Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson á
stuðning skilinn
eftir Ágúst Karlsson
Allir sannir sjálfstæðismenn
hljóta að tryggja Vilhjálmi góða
kosningu. Það verður aðeins gert
með því móti að skrifa töluna 2 í
reitinn fyrir framan nafn hans á
listanum í komandi prófkjöri sjálf-
stæðismanna.
Augljóslega mun það reynast
kjósendum erfítt að velja á milli
þess ágæta fólks, sem er tilbúið að
leggja á sig allt það erfiði sem fylg-
ir setu í borgarstjóm. Erfiði sem
því miður er alltof oft goldið með
dylgjum og vanþakklæti.
Mín reynsla af Vilhjálmi er sú,
að hann er hæfileikaríkur manna-
sættir, tillögugóður og réttsýnn.
Mér hafa sagt sveitarstjórnar-
menn úr öðrum flokkum að lítil
gleði hafi ríkt í upphafi, þegar Vil-
hjálmur var kosinn oddviti þeirra.
Sú skoðun manna átti eftir að breyt-
ast hratt.
í dag nýtur hann óskoraðs
trausts þessara samstarfsmanna
sinna.
Við styrkjum sjálfstæðisflokkinn
með góðri kosningu Vilhjálms, um
leið og við tryggjum 12 ára reynslu
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
hans í þágu Reykjavíkurborgar til
áframhaldandi starfs öllum Reyk-
víkingum til heilla.
Höfundur er forstjári Tryggingnr hf.
Atvinna fyrir
alla er grundvöll-
ur framþróunar
eftirÞorberg
Aðalsteinsson
Allur rekstur sameiginlegrar
stjómsýslu og stofnana í Reykjavík
á að snúast um að bæta daglegt líf
íbúanna. Öryggi þeirra í atvinnu-
málum og heilsugæslu, íjárfesting
þeirra í menntun og mannvirkjum
og aðstaða þeirra til útivem og tóm-
stundastarfs er það sem öllu ræður
um kosti mannlífsins í borginni.
Þetta em málefni fjölskyldunnar,
menntun og mannrækt, sem snýr
að öllum þáttum borgarrekstursins.
í því sambandi er eitt mál sem
stendur okkur Reykvíkingum næst,
þ.e. að vinna bug á því atvinnuleysi
sem nú hefur haldið innreið sína í
íslenskt þjóðfélag.
Alvara málsins er slík að við
lausn þeirra dugir ekkert hálfkák.
Finna þarf- raunhæfar lausnir til
frambúðar. Fái ég til þess stuðning
í prófkjörinu sem nú fer í hönd mun
ég beita mér fyrir því af alefli að
losað verði um fjármagn til eflingar
atvinnulífsins í Reykjavík. Það verði
m.a. gert með því að selja hluta af
eign Reykjavíkurborgar í Lands-
virkjun og verja því fé til uppbygg-
ingar atvinnugreina framtíðarinn-
ar. Þá er ekki úr vegi að Aflvaki
Reykjavíkur verði efldur í samvinnu
við lífeyrissjóði launþegahreyfíng-
anna.
Forsendur þess að mæta auknum
útgjöldum í rekstri borgarinnar em
þær að atvinnulífið fái að dafna á
hinum ýmsu sviðum. Að því gefnu
mun ég beita mér fyrir málum sem
em til hagsbóta fyrir hvetja fjöl-
skyldu, m.a. með lengingu opnunar-
tíma leikskóla, skapa valkost fyrir
þá sem vilja greiða að fullu fyrir
leikskólapláss, stórauka forvarnar-
starf í félagsmiðstöðvum, skólum
og í íþróttafélögunum, stuðla að
aukinni nýtingu útvistarsvæða og
hvetja fjölskyldur til sameiginlegra
tómstunda með afsláttarkortum á
sundstaði, skíða- og skautasvæði,
söfn og fleira í þeim dúr.
Það hefur verið lenska minni-
hlutaflokkanna í borgarstjóm að
setja fram gylliboð til kjósenda fyr-
ir kosningar, án þess að raunhæfar
lausnir liggi fyrir um ijárhagslegar
forsendur. Svo mun einnig verða
fyrir kosningarnar í vor þegar sam-
bræðingur vinstri flokkanna í
Reykjavík býður fram hræðslu-
bandalag með eitt mál á dagskrá;
að ná völdum, og fóma þar með
þeim stefnumálum sem flokkarnir
þykjast hafa staðið fyrir fram til
þessa. Kjósendur í Reykjavík þurfa
„Forsendur þess að
mæta auknum útgjöld-
um í rekstri borgarinn-
ar eru þær að atvinnu-
lífið fái að dafna á hin-
um ýmsu sviðum.“
að leggja á vogarskálamar ábyrgð
og staðfestu Sjálfstæðisflokksins
við stjómun borgarinnar undanfar-
in ár þar sem framfarir hafa verið
gífurlegar á öllum sviðum borgar-
rekstursins og hinsvegar sundur-
leita hjörð stjómmálaflokka sem
nærast á óánægju og em því dæmd-
ir til að flosna upp. -
Ég vil að lokum hvetja alla sjálf-
stæðismenn í Reykjavík til að taka
þátt í mótun framboðslistans fyrir
eftir Jóhannes Óla
Garðarsson
I komandi prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík um næstu
helgi er margt frambærilegt fólk,
sem gefur kost á sér, þ. á m. nokkr-
ir núverandi borgarfulltrúar. Marg-
ir þessara fulltrúa hafa unnið mjög
gott starf á síðasta kjörtímabili og
sumir jafnvel lengur, en fáir hygg
ég að hafi skilað borgarbúum jafn
miklu og góðu verki síðustu 8 árin
og Júlíus Hafstein.
Á þessum tíma hefur Júlíus
gegnt formennsku í íþrótta- og
tómstundaráði (ÍTR) og beitt sér
fyrir breyttum vinnubrögðum við
gerð mannvirkja íþróttafélaganna.
A ámm áður tóku allar fram-
kvæmdir mjög langan tíma, þar sem
félögin fengu seint og ilía alla styrki
frá hinu opinbera, bæði ríki og borg.
Þetta varð til þess, að fjármagns-
kostnaður varð mjög mikill og kom
mörgu félaginu í vandræði fjár-
hagslega. í dag em gerðir samning-
ar milli einstakra félaga og Reykja-
víkurborgar um hveija framkvæmd
á þann veg, að félögin vita að hveiju
þau ganga, peningar koma á um-
sömdum tíma og byggingarhraði
Þorbergur Aðalsteinsson
kosningamar í vor og velja á listann
þá frambjóðendur sem líklegastir
em til að leiða flokkinn til sigurs
og standa vel að framþróun borgar-
rekstursins næstu fjögur árin. Ég
býð mig fram í 6. sætið á lista
flokksins.
Höfundur er landsliðsþjálfari og
tekur þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavik.
verður eðlilegur. Þá hefur verið tek-
ið upp sérstakt kerfí varðandi húsa-
leigu- og æfmgastyrki, sem gjör-
breytt hefur rekstri margra íþrótta-
félaga til hins betra. Á þessum tíma
hefur framlag Reykjavíkur til
íþróttamála margfaldast, og er það
ekki síst að þakka ötulu starfí Júl-
íusar fyrir íþróttahreyfinguna í
borginni.
Síðan Júlíus tók við formennsku
í ÍTR, hafa verið byggð eða eru í
byggingu eftirfarandi íþróttamann-
virki: íþróttahús hjá Víkingi, Fram,
Fylki og íþróttamiðstöð hjá Fjölni.
Félagsheimili og grasvellir ÍR,
gervigrasvöllur Leiknis, grasvellir
hjá Þrótti, Fylki og Val og frágang-
ur á gerð glæsilegs golfvallar að
Korpúlfsstöðum. Þá hefur Laugar-
dalsvöllur verið endurbættur, flóð-
ljós sett og bætt aðstaða fyrir frjáls-
ar íþróttir. Skautasvell hefur verið
byggt og verið er að ljúka byggingu
sundlaugar í Árbæ. Rétt er að geta
um þátt Júlíusar í undirbúningi að
HM-95 í handknattleik á næsta
ári. Ef Júlíus hefði ekki beitt sér
fyrir því, að Reykjavíkurborg kæmi
að því verkefni og gerði nauðsyn-
legar breytingar á Laugardalshöll,
hefði þessi keppni aldrei verið feng-
in íslendingum til framkvæmdar.
Júlíus Haf-
stein í 2. sætið
N AFL ASKOÐUN
SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
eftir Þorleif Hinrik
Fjeldsted
Naflaskoðun er nauðsynleg 'ann-
að slagið, og þurfa menn að gera
slíkt. Einnig er það nauðsynlegt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að stoppa
við og athuga málin. Ég vil vekja
máls á nokkrum atriðum þar að
lútandi. Nú er prófkjör sjálfstæðis-
manna í fullum gangi og menn
reyna að ota sínum tota, og er ekk-
ert athugandi við það. En hugleið-
um nú nokkur atriði varðandi próf-
kjörið. Getur það talist lýðræðislegt
þegar allir frambjóðendur þurfa að
skila inn gögnum innan ákveðins
tíma, að kjörnefnd eftir frest kallar
til konu til þess að taka þátt í próf-
kjörinu? Nú hef ég ekkert á móti
Ingu Jónu Þórðardóttur, en hérna
eru greinlega ekki allir við sama
borð. Kjörnefnd komst að því að
þegar Katrín Fjeldsted hætti við að
skila inn framboði sínu. Þá varð
uppi fótur og fít í flokknum og
honum, þ.e. flokknum, fannst
myndast eyða í efstu sætum. Þrátt
fyrir það að sjö konur séu í próf-
kjöri. En hefur flokkurinn gleymt
að á lista flokksins eru og hafa
verið tvær fjölhæfar konur að mínu
mati, þær Guðrún Zoéga og Anna
K. Jónsdóttir, sem hafa unnið að
borgarmálum með sóma svo árum
skiptir. Spurningin er, þurfti að
bæta við konu á listann við brott-
hvarf Katrínar Fjeldsted, og hvers
vegna mega ekki allir sitja við sama
borð í prófkjörinu? Ef leggja þurfti
áherslu á að konur væru í framboði
var nóg að sjá hversu margar kon-
ur taka þátt í prófkjörinu. Hvers
vegna er ekki meiri áhersla lögð á
þátt þessara kvenna í komandi próf-
kjöri? Ef það þurfti að ýta undir
konur í flokknum á annað borð.
Mér fínnst að við verðum að standa
betur að prófkjörsmálum og að við
eigum að endurskoða prófkjörs-
formið. Prófkjör er eina lýðræðis-
lega leiðin til þess að velja einstak-
linga til forustu fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Vil ég gjarnan sjá þann
Þorleifur Hinrik Fjeldsted
„Prófkjör er eina lýð-
ræðislega leiðin til þess
að velja einstaklinga til
forustu fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn.“
háttinn á oftar heldur en gert hefur
verið. Prófkjör verður að vera með
lýðræði að leiðarljósi en ekki að
mismuna frambjóðendum, og jafn-
framt borgarfulltrúum sem hafa í
mörg ár verið í fremstu víglínu fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn. Ef flokkur-
inn vill fá ungt fólk til starfa innan
flokksins þá verður ham að við-
halda lýðræði, þannig að ungt fólk
sjái lýðræðisleg vinnubrögð, og það
eigi möguleika með dugnaði á
frama innan flokksins. Og að þeir
sem vinna vel sjái sjálfstæði og lýð-
ræði í verki en, haldi ekki að þetta
séu orð í skólabókum.
Höfundur er sölumaður og tekur
þátt íprófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Jóhannes Óli Garðarsson
„Eins og sjá má af
framangreindu hefur
ótrúlega miklu verið
komið í framkvæmd á
þessu sviði undir for-
ystu Júlíusar, enda hafa
íþróttir ávallt verið
honum áhugamál.“
Um leið hefur Reykjavíkurborg
stutt myndarlega við bakið á HSI
fjárhagslega til að undirbúa keppn-
ina.
Eins og sjá má af framangreindu
hefur ótrúlega miklu verið komið í
framkvæmd á þessu sviði undir for-
ystu Júlíusar, enda hafa íþróttir
ávallt verið honum áhugamál. Segja
má, að hann sé fæddur og alinn
upp í íþróttum, þar sem þær skip-
uðu veglegan sess á æskuheimili
hans. Þá hefur hann löngum gegnt
forystuhlutverki í íþróttahreyfing:
unni. Hann var formaður HSÍ
1978-1983 og formaður ÍBR
1984-1988. Þá er hann nýkjörinn
formaður Ólympíunefndar íslands.
Sem formaður Ferðamálanefnd-
ar Reykjavíkur hefur Júlíus beitt
sér fyrir því, að Reykjavík verði
ráðstefnuborg. I því skyni stóð hann
að stofnun Ráðstefnuskrifstofu ís-
lands og var fyrsti stjómarformaður
hennar. Með auknu ráðstefnuhaldi
í borginni skapast ótal atvinnutæki-
færi og ómældar gjaldeyristekjur.
Umhverfismálaráð hefur undir
formennsku Júlíusar beitt sér mjög
fyrir fegrun borgarinnar og því að
gera hana vænni til vistar. Hæst
ber þó hreinsun strandlengjunnar á
Reykjavíkursvæðinu. Segja má, að
hvert sem litið er í Reykjavík, þá
sé borgin fegurri og ánægjulegri
til dvalar og búsetu.
Ekki hefur Júlíus gert alla þessa
hluti einn, þar kemur til fjölmargt
samstarfsfólk og aðrir borgarfull-
trúar. Hinu verður ekki í móti
mælt, að það er Júlíus Hafstein, sem
hefur fengið þessa aðila til að vinna
saman, í því felst styrkur Júlíusar.
Því hvet ég alla sjálfstæðismenn til
að kjósa hann í 2. sætið í komandi
prófkjöri.
Höfundur er formaður
íþrótúifélngsins Fylkis.