Morgunblaðið - 28.01.1994, Qupperneq 52
Fjölskyldu-
SJOVAGÍIuALMENNAR
JteWiiEd
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FOSTUDAGUR 28. JANUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Kozyrev í
opinberri
heimsókn
hér í sumar
UTANRIKISRAÐHERRA Rúss-
lands, Andrej Kozyrev, hefur
þegið boð íslenskra sljórnvalda
um að koma hingað í opinbera
heimsókn í sumar. Boðið var
lagt fram í kjölfar heimsóknar
Kozyrevs í íslenska sendiráðið í
Moskvu sl. haust í tilefni af 50
ára afmæli stjórnmálasambands
íslands og Sovétríkjanna.
Júríj Retsj-
etov, sendiherra
Rússlands á Is-
landi, staðfesti í
samtali við
Morgunblaðið í
gær að Kozyrev
kæmi hingað til
lands í júní.
Hann sagði að
ekki hefði enn
verið ákveðið
hvenær utanríkisráðherrann kæmi
til landsins, en um það m.a. rætt
að það gæti orðið um 17. júní.
Sameiginleg yfirlýsing um
alþjóðamál
„Kozyrev mun ræða við íslensk
stjómvöld um samskipti landanna
á ýmsum sviðum, viðskipti og al-
þjóðamál," sagði Retsjetov. „Nú
er þegar hafinn undirbúningur að
sameiginlegri pólitískri yfirlýsingu
landanna um alþjóðamál, m.a. um
starf Sameinuðu þjóðanna, starf-
semi RÖSE og ýmis deilumál í
heiminum.
Helsti tilgangur heimsóknarinn-
ar er þó að ræða sameiginleg mál
landanna og þá helst viðskipti
þeirra, en þar er að mörgu að
huga. Forsendur viðskiptanna hafa
breyst mikið; áður var miðstýring-
in allsráðandi og ríkisstjómir
sömdu um viðskiptin sín á milli.
Nú em önnur viðhorf og mikilvægt
að fara vel af stað við frekari upp-
byggingu samskipta á þessu sviði,“
sagði Júríj Retsjetov sendiherra.
Opinber heimsókn Andrejs Koz-
yrevs verður fyrsta heimsókn rúss-
nesks utanríkisráðherra til Islands.
Andrej Kozyrev
52
Atvinnuléysimótmælt
Morgunblaðið/Kristinn
UM fimmtán hundruð manns komu saman á Austurvelli í gær til
þess að mótmæla atvinnuleysi að frumkvæði verkalýðsfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og samþykkti fundurinn að krefjast tafarlausra að-
gerða til að ráða bót á því. Starfandi forsætisráðherra, Þorsteini
Pálssyni, var afhent yfirlýsing þar að lútandi og sagði hann að ríkis-
stjórnin deildi áhyggjum fundannanna vegna atvinnuleysisins. At-
vinnuleysið var einnig til umræðu utandagskrár á Alþingi í gær.
Sjá frásagnir í miðopnu.
Áform Dounreay um að auka losun geislavirkra efna
Mótmæli send bresk-
um stjórnvöldum í dag
UMHVERFISRAÐUNEYTIÐ mun í dag í samráði
við utanríkisráðuneytið senda stjórnvöldum í Eng-
landi mótmæli vegna umsóknar Dounreay-kjarn-
orkuendurvinnslustöðvarinnar um að fá rýmkaðar
heimildir til að losa geislavirkan kjarnorkuúrgang
sem berst í Atlantshaf. Morgunblaðið greindi frá
því sl. föstudag að stjórnendur stöðvarinnar áform-
uðu að auka geislavirkt frárennsli frá stöðinni út
í sjó og barst umhverfisráðuneytinu staðfesting á
því í gær að umsókn þess efnis væri nú til athugun-
ar hjá breskum stjórnvöldum. Hófst án tafar undir-
búningur að mótmælaskjali.
Víðtæk leit að tveimur fjórtán ára piltum úr Keflavík
Saknað
í sólar-
hring
Björgunarsveitamenn leita í Keflavíkurhöfn.
Keflavík.
VÍÐTÆK leit hófst að tveimur 14 ára piltum úr Keflavík í gær.
Leitin hafði ekki borið árangur um miðnættið. Leituðu björgunar-
sveitarmenn strandlengjuna frá Garði að Vogum við Vatnsleysu-
strönd. Síðast er vitað um ferðir piltanna svo öruggt sé talið um kl.
16 á miðvikudaginn í versluninni Járn og skip við Víkurbraut í
Keflavík sem er steinsnar frá heimili þeirra. Piltarnir heita Óskar
Halldórsson og Júlíus Karlsson, þeir stunda skóla í Sandgerði og
hafði kennari þeirra ekið þeim heim að loknum skóladegi á miðviku-
daginn.
til Júlíusar. Þegar þeir skiluðu sér
ekki heim á eðlilegum tíma um
kvöldið höfðu foreldrar samband
við lögregluna í Keflavík. Hóf lög-
Piltarnir eru nágrannar og hafði
Óskar farið að heiman skömmu
eftir að hann kom úr skólanum eða
um kl 15.30 og sagst ætla að fara
reglan þá þegar að
svipast um eftir pilt-
unum ásamt foreldr-
um þeirra. I gær þeg-
ar ekkert hafði spurst
til ferða piltanna í um
sólarhring var ákveðið
að lýsa eftir þeim og
hefja víðtæka leit. Allar björgunar-
sveitirnar á Suðumesjum tóku þátt
í leitinni. Kafarar reyndu að kafa
á ákveðnum stöðum en urðu frá
að hverfa vegna sjávarkulda og
Júlíus Karlsson er 14
ára, 1,67 m að hæð,
grannvaxinn og rauð-
hærður með slétt hár
niður á herðar. Hann
er kiæddur í dökkblá-
an kuldagalla með
hvíta pijónahúfu með
grænum stöfum.
Óskar Halldórsson er
13 ára, 1,80 m að
hæð, grannur með
Ijóst og slétt hár sem
nær niður að eyrum.
Hann er klæddur í
bláan Kraft-kulda-
galla og bláa striga-
skó.
lélegs skyggnis en hitastig sjávar
var um eða rétt undir frostmarki.
Þá var sporhundur einnig notaður
við leitina.
-BB
í Dounreay-stöðinni í Norðaustur-
Skotlandi er endurunnið brennsluefni
fyrir kjamaofna, og hefur stöðin sótt
um að fá rýmkuð losunarmörk á
nokkrum efnum. í frétt Morgun-
blaðsins fyrir viku var m.a. vitnað í
upplýsingar frá umhverfisverndar-
samtökunum NENIG á Hjaltlandi,
sem segja að ætlunin sé að allt að
tífalda frárennsli frá stöðinni, sem
yki m.a. alfa-geislun, cesíum-137
geislun og plútóníumgeislun í sjó.
Samfara því gæti joðín-mengun og
plútóníumgeislun aukist í lofti. „Ekki
liggur enn fyrir hversu aukningin
verður mikil, því stöðin hefur ekki
fullnýtt þær heimildir sem hún hefur
haft. Ekki er heldur fullljóst hvort
stöðin hyggist auka afköstin, en þá
gæti aukning á losun úrgangsefna
orðið miklu meiri en svarar til þess
sem leyfíð kveður á um,“ segir Magn-
ús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri i
umhverfisráðuneytinu.
Árið 1987 samþykktu umhverfis-
málaráðherrar Norðurlanda að lýsa
yfir áhyggjum við bresk stjórnvöld
vegna staðsetningar Dounreay, þar
sem stöðin gæti ógnað fískimiðum
Noregs, íslands og Færeyja. Alþingi
sendi frá sér harðorða ályktun í febr-
úar 1988 vegna stækkunar stöðvar-
innar sem stóð þá fyrir dyrum. Magn-
ús segir að á þessu stigi verði ekki
haft samráð við aðrar þjóðir sem
eiga hagsmuna að gæta, til að hægt
verði að koma athugasemdum Is-
lendinga á framfæri umsvifalaust.