Morgunblaðið - 24.02.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.02.1994, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Nýtt hótel hyggt í Vík í Mýrdal Nýtt hótel verður tekið í notkun í Vík í Mýrdal þann 1. júní og þá verð- ur eldra hótel staðarins lagt af, seg- ir Guðmundur Elísson, starfsmaður Kaupfélags Ámesinga, sem verður rekstraraðili hótelsins. Hann segir að byrjað hafí verið að byggja húsið í nóvember og nú sé byggingin fok- held. Guðmundur segir að byggingin hafi verið lengi í undirbúningi, en fyrir um Vh ári hafi verið stofnað hlutafélag um bygginguna. Stærstu hluthafar í hótelinu eru KÁ, Olíufé- lag íslands og Vátryggingafélagið, en einnig á Mýrdalshreppur hlut. Hann segir að 21 tveggja manna herbergi verði í hótelinu sem rúmi því 42. Gervihnattaleiðsaga verður tek- in upp í fluginu á næstu árum FLUGMÁLAÁÆTLUN fyrir árin 1994 til og með 1997 er nú til afgreiðslu í Alþingi. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir að gervihnatta- leiðsaga taki við af hefðbundnu leiðsögukerfi á næstu árum. Sam- kvæmt áætluninni á að veita fjármagni þegar á þessu ári til að hefja prófanir og viðurkenna aðflug með gervihnattaleiðsögu. Að sögn Hauks Haukssonar varaflugmálastjóra eru aðalatriðin í þingsályktunartillögu til nýrrar flugmálaáætlunar þau að lagt verði bundið slitlag á þá flugvelli sem hafa verið með erfitt yfirborð. Það eru flugvellimir á Húsavík, Patreksfirði, Bíldudal og Siglu- fírði. Þá verði ekki gert ráð fyrir frek- ari framkvæmdum á flugvöllum á þeim stöðum sem flugi hefur verið hætt á vegna betra vegasambands og efnahagsástands. Þessir staðir eru m.a. Rif, Stykkishólmur og Blönduós. í þriðja lagi er gert ráð fýrir að leiðsaga með gervihnöttum verði tekin í notkun hið fyrsta og hætt að setja upp hefðbundin leið- sögukerfí. Síðasta kerfíð fyrir ná- kvæmnisaðflug verður sett upp á Reykjavíkurflugvelli á næsta ári, svonefndur aðflugshallasendir. Það sem við tekur er geivihnatta- leiðsaga og í áætluninni er gert ráð fyrir fjármagni til að hefja prófanir og viðurkenna aðflug með gervihnattaleiðsögu á þessu ári. Viðurkenning fyrir leiðaflug og það sem kallað er frumaðflug með gervihnattaleiðsögu sem viðbótar- kerfí mun eiga sér stað seinni part þessa árs. Síðan verður próf- unum með gervihnattaleiðsögu haldið áfram og gera má ráð fýrir því að aðflug með þessum tækjum eingöngu verði komið í almenna notkun eftir nokkur ár. Félagar Bjarkar fá verðlaun TÍMARIT brezka hljómplötu- iðnaðarins, Music Week, hélt í gær árlegt hóf á Grosvenor House Hotel við Park Lane í London. Þar fengu þrír aðil- ar, sem staðið hafa að útgáfu á verkum Bjarkar Guðmunds- dóttur, þrenn verðlaun. Tíma- ritið er fagtímarit og er því talið hafa meira vægi en svo- kölluð popp-timarit. Samkvæmt upplýsingum Mark Rian, blaðafulltrúa tíma- ritsins, hlaut Nellee Hooper upp- tökustjóri á plötunni Debut verðlaun fyrir beztu upptökuna, leikstjóri myndbandsins Human Behaviour, Michel Gondry, hlaut verðlaun fýrir beztu leikstjórn tónlistarmyndbands og Christ- ina Kyrion hlaut verðlaun fyrir beztu kynninguna á útgáfuefni Bjarkar í Bretlandi og á alþjóða- vettvangi, en hún er blaðafull- trúi fyrirtækisins One Little Indian, sem er útgáfufyrirtæki Bjarkar. Mark Rian fór mjög lofsam- legum orðum um Björk, sem veitti viðtöku verðlauna Christ- ina Kyrion í fjarveru hennar. Hann kvað Björk vera í senn geðþekkasta og prúðasta full- trúa, sem hann hafi kynnst á sviði dægurtónlistar og gætu íslendingar verið stoltir af henni sem fulltrúa sínum. Útvarpslaganefnd skilar tillögum sínum til breytinga á útvarpslögunum Dag’skrárg’er ðar sj óð ur til að jafna samkeppnisstöðu Þorleifur Árni Reynisson Lést af slysförum Drengurinn, sem fannst með- vitundarlaus í sundlaug Loft- leiðahótelsins á mánudagskvöld, lést á Borgarspítalanum í fyrra- dag. Hann hét Þorleifur Árni Reynisson. ÞorleifurÁmi var á 13. ári, fædd- ur 6. júlí árið 1981, sonur Líneyjar Friðfinnsdóttur og Reynis Oddsson- ar. Hann var til heimilis að Mið- skógum 24 á Álftanesi. ÚTVARPSLAGANEFND kynnti tillögur sínar til endurskoðunar á út- varpslögum opinberlega í gær. Þær fela meðal annars i sér að skylda Ríkisútvarpsins til þess að senda út á tveimur rásum verði felld niður, Ríkisútvarpinu verði skipt i tvær deildir, hljóðvarpsdeild og sjónvarps- deild, Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður og stofnaður verði Dagskrárgerðarsjóður útvarpsstöðva til að jafna samkeppnis- stöðu. Sex nefndarmenn af sjö samþykktu tillögumar og einn skilaði séráliti. Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, telur að útvarps- iaganefnd hafi í tillögum sínum farið þá leið sem pólitísk samstaða næðist líklegast um. Endurskoðunin tekur einkum til 2. og 3. kafla útvarpslaganna þar sem kveðið er á um Menningarsjóð útvarpsstöðva og Ríkisútvarpið. Lagt er til að Ríkisútvarpið skiptist í tvær deildir, hljóðvarpsdeild og sjónvarps- deild, í stað fjögurra. Stöður fram- kvæmdastjóra íjármáladeildar og tæknideildar yrðu lagðar niður og verkefni þeirra færð að stærstum hluta tii megindeildanna og fram- kvæmdastjóm stofnunarinnar yrði skipuð útvarpsstjóra og fram- kvæmdastjórum deildanna tveggja. Tilgangurinn er að einfalda skipulag stofnunarinnar og gera boðleiðir styttri og með því má ná niður kostn- aði við yfírstjórn og umsýslu og skapa aukið svigrúm til dagskrár- gerðar. Þá er einnig lagt til að ráðn- ing útvarpsstjóra og framkvæmda- stjóra verði til fímm ára, með heim- ild til endurráðningar einu sinni og að framkvæmdastjórar verði ráðnir af útvarpsstjóra. Bætt samkeppnisstaða Til að bæta samkeppnisstöðu í dag Niðurskurðartillögur__________ Verslunarráðið kynnir tillögur að 12,5 milljarða kr. niðurskurði ríkis- útgjalda .18 Fullgildar kvittanir__________ Neytendafélag Akureyrar spyr rík- isskattstjóra hvort bankastofnun- um beri ekki að afhenta fullgildar kvittanir fyrir þjónustugjöldum 26 Hornhimnum stolið ítalskir læknar sakaðir um að stela homhimnum úr augum látinna 27 Leiðari_______________________ Atvinnumöguleikar á EES-svæðinu 28 Viðskipti/Atvinnulíf ► Islenskur kattasandur vekur athygli - íslenski sokkabuxnaris- inn færir út kvíamar - Iðnfyrir- tæki mánaðarins - Sjálfumgleði og hroki urðu risanum að falli A dagskrá ► í klóm amarins - Michael Moriarty hættir í þáttunum Lög og regla - Umtöluð réttarhöld sýnd í sjónvarpi - í nógu að snú- ast fyrir leikkonu í Á norðurslóð hljóðvarpsstöðva innbyrðis er gert að tillögu að Menningarsjóður út- varpsstöðva verði lagður niður. Þar með er felld niður 10% gjaldtaka af auglýsingum í útvarpi og er ætlað að þessi ráðstöfun bæti stöðu einka- rekinna hljóðvarpsstöðva sem fjár- magna starfsemi sína með því móti. í stað hans yrði stofnaður Dagskrár- gerðarsjóður útvarpsstöðva en ekki eru gerðar sérstakar ráðstafanir vegna Sinfóníuhljómsveitar ísíands. í Dagskrárgerðarsjóð skuli renna tollar og/eða vörugjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau sem samsvara aðflutningsgjöldum. í áliti nefndarinnar segir að frá menn- ingarlegu sjónarmiði sé mikilvægt að efla innlenda dagskrárgerð og með þessu móti geti löggjafinn séð til þess og jafnframt bætt samkeppn- isstöðu einkarekinna útvarpsstöðva. Leiði þetta vonandi til valddreifíngar í dagskrárgerð og ýti undir fjöi- breytni í framboði dagskrárefnis. Ekki er gert ráð fyrir að Ríkisút- varpið geti sótt um styrki úr sjóðnum en samt sem áður er ekki komið í veg fyrir að það geti nýtt sér fram- lög með óbeinum hætti. Gert er ráð fyrir að hlutverk sjálfstæðra fram- leiðenda verði fest með lögum og ekkert í tillögunum sem mælir gegn því að Ríkisútvarpið kaupi af þeim. Tómas Ingi Olrich, formaður nefnd- arinnar, sagði hins vegar er tillögurn- ar voru kynntar að heimild væri fyr- ir hendi í reglugerð fyrir ráðherra að grípa inn í starfsemi Dagskrár- gerðarsjóðsins ef ástæða þætti til. Skyldum létt af RÚV Auk þess er lögð til breyting við 16. grein útvarpslaga á þá lund að felld verði niður skylda Ríkisútvarps- ins að starfrækja tvær hljóðvarpsrás- ir og það geti því lagt niður aðra rásina ef ástæða þykir. Einnig verði skylda til fræðsluútvarps afnumin. Ennfremur má geta þess að þótt engin grundvallarbreyting sé gerð á afnotagjöldum Ríkisútvarpsins er ekki gert ráð fyrir heimild til hækk- unar næstu tvö árin í því augnamiði að veita Ríkisútvarpinu aðhald og auka á hagræðingu í rekstri. Auk þess er felld úr lögum heimild til að innsigla viðtæki vegna vangoldinna gjalda og ákvæði um 10% áiag vegna kostnaðar við innheimtu vangoldinna afnotagjalda fellt niður. Tillögurnar kynntar sem stjórnarfrumvarp Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra sagði er tillögumar voru kynntar að þær yrðu lagðar fyrir ríkisstjórn og kynntar sem stjómar- frumvarp í kjölfarið. Sagðist Ólafur telja að farin hefði verið leið sem lík- legust væri til pólitískrar samstöðu og þótt einhveijum kynni að þykja skrefín stutt yrði vart gengið lengra. -----♦ ♦ 4----- Lag Frið- rikssigraði DÓMNEFND valdi í gærkvöldi lag Friðriks Karlssonar, Nætur, með texta eftir Stefán Hilmars- son, sem framlag íslendinga í söngvakeppni evrópska sjón- varpsstöðva sem fram fer í Dublin á írlandi 30. apríl næst- komandi. Flyljandi Iagsins var Sigrún Eva Ármannsdóttir. Hlaut Friðrik 300 þús. kr. verð- laun frá Sjónvarpinu fyrir sigurlag- ið, en auk þess fékk hann 1.200 þúsund krónur til að fullvinna lagið fyrir keppnina. Sjónvarpið leitaði til þriggja laga- höfunda sem hver um sig lagði fram eitt lag til keppninnar, og voru þau leikin í þættinum „Á tali hjá Hemma Gunn í gærkvöldi og úrskurður dómnefndar síðan kynntur. \ l \ \ I \ \

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.