Morgunblaðið - 24.02.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
9
Jakkar, blússur, pils o g buxur
Stærðir 36-48
TRSSSSv neðstvið ■ Mjá \ DUNHAGA, 1 S. 622230. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14.
Glerlistarnámskeið
Jónas Bragi Jónasson, glerlistamaður, heldur
námskeið í glerskurði, steindu gleri, gler-
bræðslu og slípun.
Ath.: Námskeiðin hefjast 28. febrúar.
Upplýsingar í sfma 15054
^ BRI ^
SgJ^FFE^
erB'KIbesta kaffi á íslandi?
Hvað finnst þér?
f/7hi Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 ® 622901 og 622900
Blomberg eldunartækin hlutu
hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF
hönnunarverðlaun fyrir framúr-
skarandi glæsilega og hugvit-
samlega hönnun.
Enginn býður nú meira úrval af
innbyggingartækjum í sam-
ræmdu útliti en Blomberg I
Komdu til okkar og kynnstu
Blomberg af eigin raun, hringdu
eða skrifaðu og fáðu sendan 60
síðna litprentaðan bækling á ís-
lensku.
5 [H
JL [SÆNSKA ÞVOTTAVÉUN FRÁ FÖNIx] O* AoIaU LASKO GERDl05°4j
★ Hljóðlát og þíðgeng, svo af ber ★ Vatnsnotkun aðeins 34-63 lítrar „ „ ★ Orkunotkun aðeins 0,4-1,8 kWst. - - 1 is
★ Frjálst kerfis- og hitaval ★ Sparnaðar- og hagkvæmnisrofar ★ Ullarþvottakerfi með hitalás ★ 35 mínútna hraðþvottakerfi ★ Skolvatnsmagnsstilling ★ Vatrisdæla með stífluvörn ★ Áfangaþeytivinding með jafnvægisstjórnun ★ Stillanlegur vinduhraði ★ Mesti vinduhraði 1000 sn./mín. ★ Níðsterk tromlufesting með 35 mm stálöxli og 2 stórum burðarlegum. Gerð til að endast. □
VERÐ AÐEINS KR. 74.180,- (afb. verð) KR. 68.990,- (staðgreiðsluverð)
XLandsíns bestu þvottavélakaup? m „við látum þig um að dæma"
VISA og EURO raðgreiðslur til allt að 18 mánaða, án útborgunar. MUNALÁN með 25% útborgun og M1 I eftirstöðvum kr. 3.000 á mánuði. HÁTÚNI GA REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
Stjórn og búvörur
Tvö dagblaðanna birtu í fyrradag forustu-
greinar um ríkisstjómina og búvörulögin.
Alþýðublaðið kvað það ofsögum sagt,
að líf ríkisstjórnarinnar hangi á bláþræði,
en Tíminn að formenn stjórnarflokkanna
hafi gert samkomulag um að sitja áfram,
en pólitískan vilja í stefnumótun í land-
búnaði vanti.
Ofsögur
Forustugrein Alþýðu-
blaðsins i fyrradag bar
fyrirsögnina „Búvörulögj
in og stjómarstefnan". I
fyrrihluta hennar segir
m.a.:
„Undarlegt hefur verið
að fylgjast með deilu
stjómarflokkanna um
breytingar á búvöm-
frumvarpinu. Málið hefur
fengið mikla umfjöllmi í
fjölmiðlum og því verið
haldið margsinnis fram,
að lif ríkisstjórnarinnar
hangi á bláþræði. Þetta
er ofsögum sagt. Ekkert
sem ráðherrar eða for-
menn stjómarflokkanna
hafa látið frá sér fara um
ágreining stjómarflokk-
anna um búvömlög, gef-
ur tilefni til þess að álykta
að ríkisstjórnin sé að
springa.
Pólitískt afrek
Núverandi rikisstjórn
hefur komið mörgum
mikilvæguni rnálum í
gegn, eins og alþjóðleg-
um saniningamálum líkt
og EES-samningnum og
GATT. Engir aðrir
stjómmálaflokkar í ríkis-
stjómarsamstarfi hefðu
afrekað slika samninga
eða borið gæfu til að
standa saman að jafn
mikilvægum málum fyrir
framtíð landsins. Þrátt
fyrir gífurlega erfið ytri
skilyrði hefur ríkisstjóm-
irnii tekist að halda geng-
inu stöðugu, útrýma verð-
bólgu og lækka vexti í
landinu. Það er pólitiskt
afrek. Ríkisstjórnin hefur
ehrnig stuðlað að friði á
vinnumarkaði þrátt fyrir
erfiða tíð launþega sem
hafa mátt standa and-
spænis meira atvinnuleysi
á Islandi en i marga ára-
tugi. Hin farsæla efna-
hagsstjóm landsins er
einmitt með lantímasjón-
armið í huga; að forðast
frekari erlendar lántökur
en stokka upp í stöðnuð-
um atvinnugreinum og
auka fjölbreytni i ís-
lenskri framleiðslu.
Uppstokkun
Á þessum merku túna-
mótum í atvinnusögu Is-
lendinga hafa nútimaleg
viðhorf og aukið frelsi
hafið innreið sína. Það
hafa loksins nú verið póli-
tísk skilyrði fyrir slíkri
uppstokkun. Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkui’
vom einu stjómarflok-
karnir á Islandi sem
höfðu forsendur til þess
að takast á við slíkt verk-
efni. Það er þvi grátlegt
að horfa upp á einstök
viðbrögð í stjómarsam-
starfinu sem minna því
miður á vinnubrögð
stjómarandstöðunnar
fremur en nýja takta rík-
isstjórnarinnar."
Vilji
I forustugrein Tímans,
sem nefndist „Samkomu-
lag um að sitja", segir
m.a.:
„Fyrir landbúnaðinn í
landinu er aðalatriði að
ríkisstjóm á hveijum
tíma hafi þann pólitíska
vilja að nota þær heimild-
ir, sem alþjóðasamningar
gefa, til þess að jafna
aðstöðu innlendrar fram-
leiðslu gegn niður-
greiddri erlendri fram-
leiðslu. Þótt við höfum
afnumið niðurgreiðslur,
hafa aðrar þjóðir ekki
gert það. Þetta er réttlæt-
is- og sanngimismál.
I Alþýðuflokknum er
þessi pólitíski vilji ekki
fyrir hendi. Þar stendur
vilji til þess að kasta land-
búnaðinum út í óhefta
samkeppni við hvers kon-
ar innflutning og skiptir
þá ekki máli hvort um
niðurgreiðslur eða undir-
boð er að ræða.
Seinkun
Nú hefur verið gert um
það samkomulag milli
formanna Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðu-
flokksins að sitja áfram.
Það seinkar auðvitað því
að við taki ríkisstjóm,
sem hefur þennan póli-
tíska vilja og getur hafist
handa um stefnumótun í
landbúnaði, sem gerir at-
vinnugreininni kleift að
standa sig í aukinni sam-
keppni.
Það alvarlega við þessa
deilu er að meðan hún er
óleyst sitja önnur mál-
efni, er landbúnaðinn
varða, algjörlega á hak-
anum.“
Fjárheimtur á góu í Staðarsveit
Hlídarholti.
RÚNAR Gunnarsson, bóndi á Böð-
varsholti í Staðarsveit, heimti sl.
þriðjudag fimm kindur úr fjalli.
Um nokkurn tíma hafði verið ritað
um kindurnar þar sem þær héldu
sig hátt upp við kletta ofan við
bæinn. Þær voru mjög varar um sig
en vegna harðfennis og hálku voru
ekki tök á að ná þeim. Nú þegar
hlánaði og færi batnaði komu þær
aðeins niður í graslendi í hlíðinni.
Rúnar fékk nágranna sína með
sér og tókst þeim að komast upp
fyrir kindurnar og ná þeim í hús.
Þarna var um að ræða þrjár fullorðn-
ar ær og tvö lömb, annað þeirra
hvítlamb.
Kindurnar voru allvel útlítandi
þrátt fyrir mikið harðviðri öðru
hvoru í vetur.
- Þ.B.
: