Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Einar Sveinsson endurkjörinn formaður Verslunarráðs íslands á 66. aðalfundi samtakanna 8 imlljarða spamaður í heilbrigðiskerfinu HÆGT er að ná fram 12,5 milljarða króna sparnaði með niður- skurði ríkisútgjalda, eða um 11% af ríkisútgjöldum samkvæmt fjár- lögnm, er mat vinnunefnda Verslunarráðsins. Nefndirnar telja að hægft sé að ná fram 65,5% þessa sparnaðar með niðurskurði í heil- brigðis-og tryggingakerfinu, eða alls um 8,2 milljarða króna. Þar af sé hægt að skera niður hjá Tryggingastofnun um rúma þijá millj- arða og rúma fjóra milljarða í rekstri og fæðiskostnaði sjúkrahúsa. í stjórnsýsluráðuneytum eru gerðar tillögur sem gætu miðað að tæplega 1,3 milljarða kr. sparnaði, m.a. uppstokkun og fækkun sendi- ráða niður í þijú auk fastanefnda, fækkun þingmanna í úr 63 í 41, fækkun ráðherra út 10 í 7 og ráðuneyta úr 15 í 7. Vinnunefndirnar leggja jafn- framt til 1.750 milljóna króna nið- urskurð í atvinnuvegaráðuneytum, mestmegnis með lækkun ríkisfram- laga til rannsóknarstofnana, og tæplega 1.300 milljón króna sparn- að í mennta- og menningarmálum, Morgunblaöið/Kristinn VILHJÁLMUR Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands, Einar Sveinsson, formaður ráðs- ins, Jónas Fr. Jónsson, lögfræðingur þess, og Jóhann J. Ólafsson, fundarstjóri aðalfundarins. Kynntar tillögur til 12,5 millj- arða niðurskurðar í ríkisrekstri EINAR Sveinsson var endurkjörinn formaður Verslunarráðs íslands til næstu tveggja ára á 66. aðalfundi samtakanna, sem haldinn var í gær. Auk venjulegra aðalfundarstarfa voru á fundinum kynntar skýrslur fjögurra vinnuhópa Verslunarráðsins um raunhæfan niður- skurð rikisútgjalda. í ávarpi til aðalfundarins sagði Einar Sveinsson að samtökin hefðu löngum fyrst og fremst fjallað um skattamál og barist fyrir því að samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs væri ekki teflt í tvísýnu með hærri sköttum en tíðkast lyá viðskiptaþjóðum okkar. Ýmislegt hefði áunnist í þeim efnum; nýlega hefði aðstöðu- gjald verið fellt niður og óheppilegir skattar á borð við jöfnunar- gjald, skattur á gjaldeyrisviðskipti banka verið lækkuð eða felld niður og tekjuskattur fyrirtækja lækkaður. „Árangur á einstökum sviðum breytir því þó ekki að skattheimtan í heild hlýtur að vera í samhengi við útgjaldaþörf ríkissjóðs. Ríkis- sjóðshallinn þýðir hvort tveggja að þrýstingur kemur á vaxtahækkanir og eins að hallinn býr til síaukin útgjöld vegna vaxtagreiðslna. Þann- ig þýðir 10 milljarða halli á þessu ári nýjan 500 milljóna viðvarandi útgjaldapóst vegna vaxtabyrði. Þessi útgjaldaliður hverfur ekki fyrr en skuldin er greidd upp. Halli á ríkissjóði er því ávísun á skatta- hækkanir í framtíðinni. Einmitt af þessum ástæðum hefur Verslunar- ráðið lagt í vinnu við að benda á leiðir til lækkunar ríkisútgjalda,“ sagði Einar Sveinsson. Hann sagði að mun auðveldara væri að benda á leiðir til að lækka skatta en finna leiðir að lækka út- gjöld. Lækkun ríkisútgjalda sé þó eina raunhæfa forsenda varan- legra skattalækkana. Einar Sveinsson rakti einnig aðfínnslur Verslunarráðsins við skatteftirlit skattstjóra og fjármálaráðuneytis, sem hefði kostað atvinnulífið mikið fé og ekki skilað nema litlum hluta þess í tekjur til ríkisins. Spjótum hefði verið beint að best reknu fyrirtækjum landsins og hefði framkvæmd eftirlitsins einkennst af ótrúlegum sparðatíningi varð- andi viðurkenningu á útgjöldum fyrirtækja. Einar sagði að enginn kvartaði undan eðlilegu skatteftir- liti með atriðum á borð við það að einkaneysla væri ekki færð sem kostnaður og jafnframt hefði það gagnrýnt að of lítil áhersla sé lögð á raunverulegar skattrannsóknir til að eltast við raunveruleg skatt- svik. Þar væri þó skynsamlegast að bera niður bæði til að ríkissjóð- ur fái þær tekjur sem honum ber og einnig sé það óþolandi aðstaða fyrir fyrirtæki, sem fara eftir sett- um reglum, að keppa við neðan- jarðarhagkerfi, sagði Einar Sveinsson. Stjórnarkjör Á aðalfundinum var lýst kjöri tii stjórnar Verslunarráðsins fyrir næstu tvö ár. Auk Einars voru kjömir Kristinn Björnsson, Hörður Sigurgestsson, Sigurður Gísli Pálmason, Einar Benediktsson, Helgi Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Sigurður Helgason, Friðþjófur Ó. Johnson, Skúli Þorvaldsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kolbeinn Krist- insson, Sverrir V. Bernhöft, Geir A. Gunnlaugsson, Ragnar Birgis- son, Sólon Sigurðsson, Jón Helgi Guðmundsson, Haraldur Sturlaugs- son og Ágúst Einarsson. þar af 1 milljarð með breyttri greiðslutilhögun til háskóla og framhaldsskóla. Hvatt til ráðdeildar í stjórnsýsluráðuneytunum gera tillögur vinnunefndar meðal ráð fyrir að stjórnvöld setji fjárlög til nokkurs tíma, t.d. til þriggja ára í stað eins árs líkt og nú er, sem hvatning til ráðdeildar í ríkis- rekstri. Sjálfstæði ríkisstofnana verði aukið ásamt völdum þeirra og ábyrgð, samfara skýrari af- mörkun á hlutverki þeirra og til- gangi í lögum, og aukin verði vit- und ráðuneyta og stofnana fyrir kostnaði við fjárbindingu. í því sambandi verði allar fasteignir rík- issjóðs leigðar notendum og húsa- leigutekjum varið í almennt við- hald. Arðsemiskrafa verði gerð til allra annarra eigna þannig að kostnaður við fjárbindingu verði ljós öllum þeim sem fara með fjár- festingar ríkisins og stofnana þess. Útboð þjónustuverkefna verði regla fremur en undantekning. Jafnframt er lagt til að Þjóhags- stofnun verði færð undir Seðla- bankann og sameinuð hagdeild bankans og að ríkisframlag til Byggðastofnunar verði afnumið ásamt því að gerð verði krafa um að hún starfi á sama hátt og fjár- festingarlánastofnir og standi und- ir sér. Sparnaðartillögurnar gera enn fremur ráð fyrir að rekstur fang- elsa verði boðinn út til einkaaðila og að fundið verði notað hús fyrir Hæstarétt. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor á fundi Félags fijálslyndra jafnaðarmanna Vínnumarkaðurínn þarf að lúta markaðslögmálum Félag fijálslyndra jafnaðarmanna efndi til fundar síðastliðið þriðju- dagskvöld um skipulag vinnumarkaðarins og hvort það kunni meðal annars að eiga þátt í auknu atvinnuleysi. í opnunanæðu fundarstjóra, Margrétar S. Björnsdóttur formanns FFJ, kom fram að umræða fer nú fram um orsakir atvinnuleysis víða erlendis, meðal annars á ráð- herrafundum EB og EFTA. Að sögn Margrétar var tilefni fundar FFJ að hefja þessa umræðu hér á landi og hvatti hún verkalýðshreyfing- una og aðra til að halda henni áfram. # Frummælendur voru Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor, Jóhann- es Nordal fyrrum Seðlabankastjóri, Óskar Magnússon forstjóri Hag- kaups, Christian Roth forstjóri ÍSAL og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þing- maður. Svöruðu ræðumenn einnig fyrirspumum fundarmanna. • • „Orninn“ var fálki fsafírði. Fuglinn sem margir ísfirðingar tóku fyrir öm og mynd birtist af í Morgunblaðinu í gær reyndist við nánari athugun vera fálki. Fréttarit- ari verður að játa á sig mistökin. Hann vill þó taka fram að enginn þeirra mörgu fálka sem hann hefur séð um ævina nálgast þennan fugl að stærð, auk þess sem hann hefur aldrei komist í návígi við konung íslenskra fugla. Úlfar. Launamunur í stað atvinnuleysis Þorvaldur Gylfason sagði meðal annars, gð mikið og vaxandi atvinnu- leysi væri höfuðvandi í efnahagslífi Evrópu. Taldi hann vandann liggja að miklu leyti í meingölluðu fyrir- komulagi vinnumarkaðarins í flest- um Evrópulöndum. Heildarsamning- ar stórra verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda tækju ekki tillit til framboðs og eftirspurnar á vinnumarkaði. Samið væri um laun umfram greiðslugetu margra fyrirtækja, 'ág- launamenn og ungt fólk væri verð- lagt út af vinnumarkaðr.um. Taldi Þorvaldur að valið kvnni að standa á milli atvinnuleysis eða ójöfnuðar í launum. Vinnumarkaðurinn þyrfti að líkjast öðrum mörkuðum þar sem verð og kostnaður réðist af jafnvægi á milli framboðs og eftirspumar. Þorvaldur sagði að svo virtist sem nokkum veginn fijáls vinnumarkað- ur, líkt og í Sviss, Bandaríkjunum og Japan, væri alla jafna betur fall- inn tjí að tryggja inikla atvinnu og litla verðbólgu en markaðsfirring og miðstýring sem víða tíðkast í Evrópu. Þorvaldur . sagði Nýsjálendinga nýlega hafa breytt skipulagi vinnu- markaðarins og dregið úr valdi verkalýðsforingja. Þorvaldur taldi til- tölulega fáa einstaklinga hér á landi hafa launaþróun í hendi sér í skjóli löngu úreltra laga frá 1938 um stétt- arfélög og vinnudeilur. Þessu valdi þyrfti að dreifa á fleiri hendur, til fólksins á vinnustöðum, og verka- lýðshreyfingin þyrfti að verða lýð- ræðislegri. Þorvaldur taldi að endur- skoða þyrfti löggjöf um vinnumark- aðinn með valddreifingu að leiðar- ljósi. Stöðugleiki stuðlar að atvinnu Jóhannes Nordal sagði meðal ann- ars að hvorki væri rétt né sanngjarnt að kenna aðilum vinnumarkaðarins alfarið um það sem aflaga hefur far- ið í heildarstjóm efnahagsmála hér á landi, stjórnvöld hefðu ráðið þar miklu. Mestur árangur hafi náðst í kjarasamningum þegar ríkisstjórnir hefðu sýnt sterka forystu, að mati Jóhannesar. Jóhannes taldi aðhaldssamari efna- hagsstefnu og ytri skilyrði hafa átt þátt í auknu atvinnuleysi hér undan- farin ár. En sá stöðugleiki sem nú hefur náðst skapaði ákjósanlegustu skilyrðin til að byggja upp öfluga atvinnustarfsemi í framtíðinni. Óhagkvæmt skipulag Óskar Magnússon sagði að leik- regluV vinnumarkaðarins hefðu vérið nær óbreyttar í meira en hálfa öld. Annars vegar væm miðstýrð vinnu- veitendasamtök og hins vegar 240 verkalýðsfélög með tilheyrandi yfír- byggingu. Óskartaldi reynsluna hafa sýnt að aðilar vinTiúmarkaðarins réðu ekki við helstu hlutverk sín, svo sem að semja um laun. Hins vegar væru aðilar vinnumarkaðarins að semja um óskyld atriði sem í eðli sínu heyrðu fremur undir stjórnvöld. Heildaraðgerðirnar tækju ekki tillit til einstakra aðila sem yrðu útundan. Óskar sagði að ASÍ-þing 1958 hefði samþykkt að gerðir yrðu vinnustaða- samningar, en ekkert orðið úr því. Sjóðakerfi verkalýðshreyfingar- innar er of dýrt og illa heppnað, að mati Óskars, í því fælist stórkostleg skattlagning á launafólk. Þá dró Óskar í efa að skylduaðild að verka- lýðsfélögum stæðist lög ef grannt væri skoðað. Skipulag vinnumarkað- arins væri illa fallið til að bæta hag fyrirtækja og verkalýðs. Breytinga er þörf á íslandi Christian Roth gerði samanburð á vinnumarkaði á íslandi og í Þýska- landi. Þar í landi em til dæmis 16 verkalýðssamtök en hér um 400. Þjóðveijum er í sjálfsvald sett hvort þeir eru í verkalýðsfélögum og finnst Roth íslendingar uppteknari af stétt- arbaráttuhugmyndum en Þjóðveijar. Roth telur atvinnuleysi mikið þjóð- félagsmein og að þjóðfélögum Vest- urlanda stafi alvarleg hætta af því. Lagði Roth til ýmsar leiðir til að sigr- ast á atvinnuleysi, svo sem hluta- störf, afnám yfirvinnu, meiri sveigj- anleika til breytinga milli þess sem kjarasamningar em gerðir, lægri eft- irlaunaaldur og lengra skólaár. Sem gestur í landi okkar sagðist Roth vilja leggja til að verkalýðsfé- lögum yrði fækkað og þau gerð valdameiri. Þá hvatti hann til að for- ysta verkalýðsins yrði faglegri og skeleggari. Verra hlutskipti kvenna en karla Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varp- aði fram þeirri spumingu hvort völd hagsmunasamtaka hefðu rýrt völd stjómmálaflokka. Samningar sem stóm samflotin hefðu átt aðild að hefðu snúist um flest annað en laun. Aðilar í kjarasamningum hefðu seilst í ríkum mæli inn á svið sem stjórn- völd ættu að sinna. Nefndi hún sem dæmi þjóðarsáttarsamninga sem skattborgarar hefðu borgað. Ingibjörg sagði, að óréttlæti í launakerfinu hefði verið fryst með samflotunum og launaskriðið undan- farin ár hafi verið konum í óhag. Taldi Ingibjörg þörf á starfsmati en takmarkaður vilji væri á meðal verkalýðsforingja að hrófla við ríkj- andi kerfi. Ingibjörg sagði hlut kvenna mun verri en karla á vinnumarkaði. Þær nytu til dæmis ekki yfirborgana í sama mæli og karlar. Margir fundarmenn kvöddu sér hljóðs og mæltu með eða móti fram- söguræðum. Starfsmenn ASÍ og fleiri veittu engin grið og vörðu verkalýðshreyfinguna með oddi og egg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.