Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
19
Skólalúðrasveit Seltjarnarness.
Skólalúðrasveit Seltjamarness
Kunn verk leikin í
Selljamameskirkju
SKÓLALÚÐRASVEIT Seltjarnarness heldur sína fyrstu stórtónleika
í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 26. febrúar klukkan 16. Sljórn-
andi er Kári H. Einarsson og kynnir Hildur Jónsdóttir.
eftir Dvorák og Symphonic Dance
no. 1 eftir Rachmaninoff. Á tónleik-
unum koma fram fjörutíu og tveir
hljóðfæraleikarar.
Miðaverð á tónleikana er 500
krónur fyrir fullorðna og 200 fyrir
skólafólk.
Á efnisskránni eru verk eftir
John J. Morrissey, .Jeff Steinberg,
James D. Ployhar, Osterling og
Moss.
Eftir hlé verða leikin Finlandia
eftir Sibelius, Exaltation eftir
Curnow, Slavneskir dansar op. 46
Modema Museet í
Stokkhólmi eiguast
íslensk listaverk
Verkin koma úr eigu atkvæðamesta
safnara norrænnar samtímalistar
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
MODERNA Museet í Stokkhólmi hefur nýlega keypt stóran hluta
af sænsku einkasafni Fredrik Roos, þar sem í eru verk eftir nokkra
íslenska listamenn, þá Georg Guðna, Sigurð Guðmundsson og Hrein
Fnðjonsson. Verkin verða að
í listaskála í Málmey, en áætlað
Safnið var í eigu Fredrik Roos,
sem var sænskur fjármálamaður
og ástríðufullur áhugamaður um
samtímalist. Hann var af auðugri
fjölskyldu, en stundaði auk þess
margs konar viðskipti sjálfur. Á
síðasta áratug hóf hann að safna
samtímalist og kom sér fljótlega
upp merku safni listaverka. Árið
1988 opnaði hann listaskála í Málm-
ey, sem kallaðist Rooseum og varð
fljótt einn helsti sýningarskáli sam-
tímalistar í Svíþjóð. Rooseum er til
húsa í gamalli gasstöð, byggðri
árið 1900 og er hún teiknuð af
John Smedberg. Hann var á sínum
tíma nemandi franska arkitektsins
Charles Gamier, sem meðal annars
teiknaði Parísaróperuna og er hún
oft kennd við hann.
í Rooseum hafa verið haldnar
ýmsar merkar sýningar á sænskri,
norrænni og alþjóðlegri myndlist
síðan húsið opnaði og íslenskir
myndlistamenn hafa komið þar
mjög við sögu. Fyrsta sýningin í
húsinu 1988 bar yfirskriftina „Fem
Nordiska Temperament“ og þar
sýndu fímm listamenn, þeir Helgi
Þorgils Friðjónsson, Sigurður Guð-
mundsson, Max Book, Olav Chri-
stopher Jensen og Marika Mákelá.
Síðan hafa ýmsir fleiri íslenskir
listamenn sýnt þar, nú síðast Krist-
ján Guðmundsson síðastliðið haust,
sem sýndi þar oftar en einu sinni.
Þeim sem þekktu Fredrik Roos
ber saman um að hann hafí verið
geymd í Stokkholmi og að hluta
er að sýna þau á næsta ári.
einstaklega heillandi maður og
hann keypti iðulega verk, bæði af
því hann langaði í þau og eins til
að styðja viðkomandi listamenn.
Hann keypti oftar en ekki heilar
sýningar og átti því orðið mikið safn
af norrænni og alþjóðlegri samtíma-
list, þegar hann lést á síðastliðnu
ári langt um aldur fram, eða aðeins
fertugur að aldri. Safn hans er talið
mesta og besta safn norrænnar list-
ar síðastliðins áratugs.
Nýlega hefur verið gengið frá
safni hans. Samkvæmt upplýsing-
um frá Moderna Museet í Stokk-
hólmi hefur sænska ríkið fest kaup
á hinum norræna hluta Roos-safns-
ins og verður honum að hluta kom-
ið fyrir í Moderna Museet í Stokk-
hólmi, en að hluta látinn Rooseum
eftir. I þeim hluta sem Moderna
Museet heldur eru tvær myndir eft-
ir Georg Guðna frá 1991, sem báð-
ar eru keyptar á sýningu, sem hann
hélt í Galleri Lars Boman í Stokk-
hólmi. Einnig er um að ræða eitt
verk eftir Sigurð Guðmundsson frá
1987 og fímm verk eftir Hrein Frið-
jónsson, fjögur frá 1987 og eitt frá
1988. Verkin verða á sýningu í
safninu á næsta ári, þegar sýndur
verður sá hluti Roos-safnsins, sem
Moderna Museet fékk í sinn hlut.
Einnig verður í Rooseum sýning á
þeim hluta Roos-safnsins, sem er
þar. Þýsk og bandarísk verk úr
Roos-safninu verða seld á uppboði
í maí næstkomandi.
Freehand teikninámskeið
94024
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90
Ysan hækkað um rúm 7% á árí
VERÐ á heilli ýsu og nýjum og
nætursöltuðum ýsuflökum hefur
hækkað að meðaltali um rúmlega
7% á einu ári samkvæmt verð-
könnun sem Samkeppnisstofnun
gerði um miðjan þennan mánuð
og í febrúar á síðasta ári. Mesta
hækkunin var á heilli rauðsprettu,
10,3%. Hins vegar varð örlítil
verðlækkun á smálúðuflökum.
Verðmunur milli einstakra versl-
ana var allt að 72%, á steinbít í sneið-
um sem kostaði frá 270 til 463 kr.
kílóið. Smálúða kostaði á bilinu 400
til 685 kr., útvatnaður saltfiskur í
bitum frá 430 til 690 kr., kinnar frá
240 til 360 kr. og ýsuflök með roði
frá 450 til 585 kr. kflóið.
Meðalverð á einstökum tegundum
í febrúar 1993 og um miðjan febrúar
1994 var þannig:
Meðalv. Meðalv. Meðalvbr.
febr. ’93 febr. ’94 febr. ’93-’94
Stórlúða í sneiðum 660 672 1,8%
Smálúðuflök 712 706 +0,8%
Ýsa, heil, hausuð og slægð 272 292 7,4%
Ýsuflök með roði 473 508 7,4%
Ýsuflök, nætursöltuð 483 517 7,0%
Ýsuflök, reykt 596 605 1,5%
Karfaflök, ný með roði 391 395 1,0%
Saltfiskflök, útvötnuð 534 538 0,7%
Saltfiskur, útvatn. í bitum 512 538 5,1%
Kinnar, saltaðar 280 301 7,5%
Gellur, nýjar 532 549 3,2%
Fiskhakk, ýsuhakk 526 540 2,7%
Steinbítsflök, roðflett 405 428 5,7%
Rauðspretta, heil m/haus 262 289 10,3%
Rauðsprettuflök 468 498 6,4%
Bestu haupin ílambakjöti á aðeins398hr./kg.
ínœstu vershm
Verðið á 1. flokks
lambakjöti í
■k hálfum
skrokkum
IWSþ lækkar um heil J
Wi 20%. Fáðu þér I
ÍJr ljúffengt lambakjöt í m
næstu verslun á r
frábæru verði, aðeins
398 krónur kílóið.
*Leiðbeinandi smásöluverð