Morgunblaðið - 24.02.1994, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Neytendafélag Akureyrar leitar eftir úrskurði ríkisskattsljóra
Fullgildar kvittanir vegna
innheimtu þjónustugjalda
NEYTENDAFÉLAG Akureyrar og nágrennis hefur vegna ákvarðana
bankastofnana um innheimtu þjónustugjalda leitað eftir úrskurði
ríkisskattsljóra um hvort bankastofnunum beri samkvæmt bókhalds-
Iögum að láta af hendi til viðskiptamanna sinna fullgildar kvittanir
vegna þeirra viðskipta sem fram fara.
Sýning norrænna barna og unglinga
Mannleg samskipti
í Listasafninu
SÝNINGIN Mannleg samskipti,
sem er sýning norrænna barna
og unglinga, verður opnuð í vest-
ursal Listasafnsins á Akureyri á
laugardag, 26. febrúar, kl. 14.
Sýningin lýsir því hvernig norræn
böm og unglingar upplifa mannleg
samskipti, en viðfangsefnin eru ást,
fjölskylda, hefðir, leikir, vinátta,
dauði, sorg og skemmtun. Aðaltil-
gangur sýningarinnar er að sýna
hvemig börn og unglingar á Norð-
Veiði undir ís í Mývatni
Feitur og
bragðgóð-
ur silungur
Björk, Mývatnssveit.
SILUNGSVEIÐI í Mývatni með
net undir ís hófst 1. febrúar síð-
astiiðinn. Þá var vatnið búið að
vera alfriðað síðan 27. september
1993. Veiðin hefur víða verið
mjög þokkaleg og silungurinn vel
feitur og braðgóður. Virðist hann
því hafa haft nægilega átu.
Hægt er að aka á bílum út á ísinn
alveg að veiðistöðvunum. Und-
anfarna daga hefur mátt sjá mörg
slík farartæki þeysa eftir ísnum.
Eitthvað hefur veiði með dorg
verið stunduð með dágóðum árangri
miðað við undanfarin ár og lofar það
vissulega góðu. — Kristján
urlöndunum tjá sig í myndum og
leggja áherslu á þýðingu myndmáls
sem mikilvægs tjáningarmiðils.
Að sýningunni stendur Nordisk
Samraad, en ráðið saman stendur
af fulltrúum samtaka myndlistar-
kennara grunn- og framhaldsskóla-
stigs á Norðurlöndum. Sýningin hóf
göngu sýna í Kaupmannahöfn og
kemur til Akureyrar frá Gerðubergi
í Reykjavík, en J>aðan heldur hún
til Björgvinjar, Oslóar, Gautaborg-
ar, Stokkhólms, Hyvinkaa og
Árósa.
Allir krakkar eru sérstaklega
velkomnir á opnunina á laugardag-
inn og alla aðra daga og verður
áhersla lögð á að virkja krakka og
aðra gesti til beinnar þátttöku. Á
meðan á sýningu stendur gefst
tækifæri á að búa til sameiginlegt
myndverk á gólfi sýningarsalarins
og í klefum verða áhöld til mynd-
sköpunar þar sem gestir geta búið
til sýna eigin sýningu.
(Fréttatilkynning.)
■ DREGIÐ hefur verið í Akra-
leiknum sem fram fór um jólin á
vegum Smjörlíkisgerðar KEA.
Fyrsta vinning, helgarferð fyrir
tvo til Lundúna hlaut Halla Ey-
steinsdóttir, Faxatröð 3, Egils-
stöðum, Helgarferð fyrir tvo til Ak-
ureyrar og gistingu á Hótel KEA
hlutu Guðrún Guðmundsdóttir,
Jaðarsbraut 7, Akranesi, Kristín
Hjartardóttir, Dvergholti 6, Mos-
fellsbæ, Sigrún Þóra Haraldsdótt-
ir, Skjólvangi 10, Hafnarfirði, og
Hafdís Halldórsdóttir, Hraunbæ
6, Reykjavík.
Námskeið fyrir
aðstandendur alkóhólista
Maka, fullorðin börn og foreldra
Ragnheiður Óladóttir, ráðgjafi, verður með námskeið fyrir aðstandendur
alkóhólista og aðra meðvirka í Glerárkirkju helgina 25., 26. og 27. febrúar.
Námskeiðið fer fram með fyrirlestrum og hópvinnu. Fjallað verð-
ur um meðvirkni, orsakir og afleiðingar og leiðir út úr vandanum.
Stefnt er að því að stofna áframhaldandi stuðningshóp ef áhugi
er fyrir hendi. Námskeiðsgjald er 7.000 kr.
Skráning í símum 96-25159 og 91-24428
JÁSKÓL.INN
l AKUHEYRI
Fyrirlestur
Tfmi: Laugardaginn 26. febrúar 1994 ki. 14.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri við
Þingvallastræti, stofa 24.
Flytjandi: Jón Þ. Þór, sagnfraeðingur.
Efni: Sókn breskra togara á íslandsmið
1919-1976.
Öllum er heimill aðgangur.
Vilhjálmur Ingi Árnason formaður
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis sagði að samkvæmt bók-
haldslögum væru öllum þeim sem
veittu þjónustu af einhveiju tagi sem
greitt væri fyrir skylt að gefa við-
skiptamönnum sínum fullgildar
kvittanir í tvíriti.
Gilda önnur lög um bankana?
„Bankarnir ætla að hefja gjald-
töku um næstu mánaðamót vegna
ýmiss konar þjónustu og þá hljóta
þeir að þurfa að gefa viðskiptavinum
sínum kvittun fyrir þeim peningum
sem þeir taka á móti fyrir þjón-
ustuna,“ sagði VilhjálmurIngi.„Við
viljum fá að vita hvort önnur lög
gilda um bankana í þessu efni, þeir
hafa fram til þessa komist upp með
þetta, t.d. hvað varðar ávísanahefti.
Nú má búast við að þetta verði stór
gjaldliður hjá mörgum fyrirtækjum
þannig að það hlýtur að þurfa full-
gildar kvittanir frá bönkunum rétt
eins og frá öðrum fyrirtækjum sem
menn kaupa þjónustu af.“
♦ ♦ ♦
■ GALLERÍ Borg heldur málver-
kauppboð á Akureyri í samvinnu við
Listhúsið Þing og Listmunaupp-
boð Sigurðar Benediktssonar hf.
Uppboðið fer fram á Hótel KEA
sunnudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Boðin verða upp verk gömlu meist-
aranna og má þar nefna Jóhannes
S. Kjarval, Gunnlaug Blöndal,
Kristínu Jónsdóttur, Ásgrím Jóns-
son, Jón Engilberts, Þorvald
Skúlason og fleiri. Uppboðsverkin
verða sýnd í Listhúsinu Þingi, Hóla-
braut 13, Akureyri, laugardaginn
26. febrúar og sunnudaginn 27. febr-
úar frá kl. 14 til 18.
■ RAGNHEIÐUR Óladóttir ráð-
gjafi verður með námskeið fyrir
aðstandendur alkóhólista og aðra
meðvirka i Glerárkirkju um næstu
helgi, dagana 25. 26. og 27. febr-
úar. Námskeiðið fer fram með fyrir-
lestrum og hópvinnu, en fyrirlestr-
amir fjalla um meðvirkni, raunsæi,
tilfinningar, trú og bata. Einnig
verður stutt kynning frá Al-Anon
samtökunum.
Hafið æft
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýnir Hafið næstkomandi föstudag.
Myndin er tekin á æfingu í vikunni. Björn Björnsson situr en
bak við hann eru f.v. Birkir Bragason, Helga Steinunn Hauks-
dóttir og Guðný Bjarnadóttir.
Leikfélag Dalvíkur
frumsýnir Hafið
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýnir Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son í leiksljórn Þórunnar Magneu Magnúsdóttur næstkomandi
föstudagskvöld, 25. febrúar kl. 21. Þetta leikrit Ólafs Hauks var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið 1992 og gekk fyrir fullu húsi
allan veturinn.
í verkinu segir frá útgerðar-
manni sem farinn er að reskjast
en hann hefur kallað börnin á sinn
fund til að ræða framtíð fyrirtæk-
isins og þar með þorpsins því fyr-
irtæki hans er langstærsta fyrir-
tækið á staðnum. Spurningin er
hvort halda eigi áfram rekstrinum
eða selja „þeim á Akureyri" kvót-
ann og skipin og setja þorpið og
íbúa þess á guð og gaddinn.
Viðurkenningar
Verkið hefur hlotið margvís-
legar viðurkenningar svo sem
menningarverðlaun DV og verið
tilnefnt til norrænu leikskálda-
verðlaunanna sem afhent verða í
vor. Þá hefur Þjóðleikhúsinu verið
boðið að sýna Hafið á leiklistarhá-
tíð í Bonn í Þýskalandi í sumar
og hefur það boð verið þegið.
Þrettán hlutverk eru í leikritinu,
en þau eru i höndum Kristjáns
Hjartarsonar, Þórunnar Þórðar-
dóttur, Guðnýjar Bjarnadóttur,
Steinþórs Steingrímssonar, Helgu
Matthíasdóttur, Ingveldar Láru
Þórðardóttur, Arnars Símonarson-
ar, Helgu Steinunnar Hauksdótt-
ur, Björns Bjömssonar, Elínar
Gunnarsdóttur, Birkis Bragason-
ar, Sigurbjörns Hjörleifssonar og
Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur.
Næstu sýningar verða á sunnu-
dag 27. febrúar kl. 15, mánudags-
kvöldið 28. febrúar kl. 21, fimmtu-
dagskvöldið 3. mars kl. 21, laugar-
dagkvöldið 5. mars kl. 21. og loks
mánudagskvöldið 7. mars kl. 21.
Sýningar fara fram í Ungó.
Fegurðarsamkeppni Norðurlands í Sjallanum
Sjö stúlkur taka þátt
SJÖ stúkur taka þátt í Fegurð-
arsamkeppni Norðurlands sem
fram fer í Sjallanum á Akur-
eyri annað kvöld, föstudags-
kvöldið 25. febrúar. Sú stúlka
sem hlýtur titilinn Ungfrú
Norðurland vinnur sér þátt-
tökurétt í Fegurðarsamkeppni
íslands sem haldin verður á
Hótel íslandi í maí auk margs
konar gjafa. Besta ljósmynda-
fyrirsætan verður kosin og vin-
sælasta stúlkan og í fyrsta
skipti verður sportstúlkan einn-
ig kosin.
Stúlkurnar sem taka þátt í
keppninni eru Brynhildur Sölva-
dóttir, 18 ára, starfsmaður á Kola-
grillinu, Ásdís Elva Rögnvaldsdótt-
ir, 19 ára nemi í VMA, Freyja Árna-
dóttir, 19 ára starfsmaður á leður-
verkstæði á Húsavík, Eva Ingimars-
dóttir, nemi í Menntaskólanum á
Akureyri, Lilja Björg Hauksdóttir,
20 ára starfsmaður í Stjörnusól á
Akureyri, Kristín Hlíf Kristjáns-
dóttir, 18 ára og Anna Karen Krist-
jánsdóttir, 19 ára nemi í VMA.
Kynnir kvöldsins er Hermann
Anna Karen
Kristjánsdóttir
Brynhildur
Sölvadóttir
Ásdís Elva
Rögnvaldsdóttír
Eva
Ingiinarsdóttir
Freyja
Árnadóttir
Lilja Björg
Hauksdóttir
Gunnarsson, dómnefnd skipa Ólaf-
ur Laufdal, veitingamaður, Bragi
Bergmann, ritstjóri, Sigtryggur
Sigtryggsson, fréttastjóri, Steinunn
Kristín IBíf
Krisljánsdóttir
Guðmundsdóttir, verslunarmaður,
og Ester Finnbogadóttir, fram-
kvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni
Islands.