Morgunblaðið - 24.02.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Matreiðálumeistarar
vilja aðstoða bændur og kynna
allskyns sælkerafæði úr íslensku hráefni
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra var meðal gesta í Perlunni fyrr
í vikunni og hér er hann á tali við Þórarinn Guðlaugsson matreiðslu-
meistara
LANDSLIÐ íslenskra mat-
reiðslumeistara og Perlan
buðu 150 manns, alþingis-
mönnum, forsvarsmönnum
landbúnaðarins og fleirum tii
sælkeraveislu í Perlunni fyrr
í vikunni. Meðal þess sem var
á boðstólum voru innbökuð
lambanýru með eplasalati, létt-
söltuð lambahjörtu í rjóma-
sósu, lambasíða með basilsósu
og ávaxtafylltur hunangsgljáð-
ur lambabógur.
Kvöldið í Perlunni var síðasti
áfangastaðurinn í hringferð lands-
liðs matreiðslumeistara um landið
en tilgangurinn var að kynna
bændum hvemig matreiða má úr
oft lítið notuðu en afbragðsgóðu
íslensku hráefni. Bæði matreiðslu-
meistarar úr landsliðinu svo og
matreiðslumeistarar á lands-
byggðinni hafa með þessu móti
lagst á eitt með að aðstoða bænd-
ur við að leggja grunn að kröftugu
söluátaki.
Þarf kröftugt söluátak
En Þórarinn Guðlaugsson mat-
reiðslumeistari segir að öll vinna
þeirra sé einskis virði ef henni sé
nú ekki fylgt eftir með söluátaki.
„Það er brýnt að kenna fólki að
vinna betur úr íslensku hráefni
t.d. lambakjöti. Við getum nýtt
allt hráefni betur eða haldið áfram
að henda fæðunni.“ Þórarinn segir
að í sælkeraveislunni á Egilsstöð-
um hafí matreiðslumeistaramir
sem allt vora konur meðhöndlað
lambabóginn þannig að hann varð
betri en læri. Þá bendir Þórarinn
á að erlendis borði margir ekki
svínaskinku af trúarástæðum og
hann segir að tilvalið sé að flytja
út lambaskinku. Möguleikarnir era
óteljandi segir hann, nú er sölu-
átak það sem þarf. „Þá eigum við
að vinna það besta úr lambinu til
útflutnings og selja í gjafaöskjum
á sælkeramörkuðum. Framleiðsla
okkar er ekki nóg til að hún sé
samkeppnisfær á almennum
mörkuðum."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þær Þóra Davíðsdóttir, Linda Wessman, Anna Salka Knútsdóttir og
Elín Helgadóttir að undirbúa veisluna á Egilsstöðum en það voru
konur sem sáu um undirbúning veislunnar þar.
Matreiðslumeistamir hafa lagt
mikla vinnu í þær sjö sælkeraveisl-
ur sem haldnar vora um land allt
og allt var unnið í sjálfboðavinnu.
Síðastliðið laugardagskvöld vora
það einungis konur sem sáu um
150 manna veislu á Egilsstöðum
og þær buðu upp á átta rétta
veislu. Við báðum þær að gefa
okkur uppskrift af einum þessara
rétta.
Nýru í súrsætri sósu
8 nýru
1 paprika
2 litlir laukar
'Ablaðlaukur
200 g sveppir
1 lítil dós ananas
2 dl tómatsósa
4 dl vatn
soja eftir smekk
4 msk. kryddedik
Skerið nýru í strimla og léttsteik-
ið á pönnu. Saxið papriku, lauk og
blaðlauk og steikið. Skerið niður
sveppi og ananas og sjóðið með
tómatsósu, vatni, soju og krydded-
iki. Smakkið til með sykri og kjöt-
krafti. Setjið saman við papriku,
lauk, blaðlauk og nýru. Jafnið með
maísenamjöli. ■
GuðbjörgR. Guðmundadóttir
134 milljóna króna
kortafærsla eftir smáinnkaup
HÆTT er við að korthafa einum hefði brugðið ískyggilega í brún
ef hann hefði fengið á jólaútskrift sína þá færslu sem af mistökum
barst inn á færslukerfi VISA nýlega, en hún nam hvorki meira né
minna en 134.509.536 krónum.
Almenn námskeið
í heimilisbókhaldi hjá íslandsbanka '
ÍSLANDSBANKI hefur hleypt af stokkunum þriggja tíma al- j
mennum námskeiðum í heimilisbókhaldi. Námskeiðin verða á
þriðjudags- og fimmtudagskvöldum og er námskeiðsgjald 1.200
kr. Randver Fleckenstein, fræðslustjóri, segir að námskeiðin séu |
einkum ætluð yngra fólki með nýstofnað heimili og þeim sem
hafi í huga að lækka heimilisútgöldin.
Að sögn Einars S. Einarssonar,
forstjóra Visa, mun hafa hlaupið
ótrúlegur ofvöxtur í upphæðina þeg-
ar leiðrétta átti rangan innslátt í
nýju sjálfvirku búðarkassakerfi, sem
viðkomandi verslun hafði tekið í
notkun. Mistökin komu þó strax í
ljós daginn eftir svo komið var í veg
fyrir taugaáfall viðkomandi kort-
hafa.
Rafræn viöskiptl
Einar segir að notkun rafrænna
afgreiðslutækja, svonefndra Posa og
rafrænna búðarkassa, hafí vaxið
mjög á sl. þremur árum svo nú lætur
nærri að um 80% allra búðarvið-
skipta séu orðin rafræn. Hefur þessi
þróun aukið mjög öryggi og hag-
kvæmni fyrir verslunareigendur og
greiðslukortafyrirtækin. „Því miður
ber stundum við, einkum varðandi
sjálvirku búðarkassakerfín, sem eru
af þremur gerðum, að eitthvað fer
úrskeiðis, en þeir hnökrar eru þá
skomir tafarlaust af.“
Einar segir að fyrirtæki geti að
sjálfsögðu sent inn færslur án þess
að hafa leitað heimildar, en fari
„handstraujuð" færsla yfir 10-15
þúsund kr. gerir viðkomandi þjón-
ustuaðili það á eigin ábyrgð og
áhættu þó auðvitað sé reynd inn-
heimta. I rafræna kerfínu eru mörk-
in ívið lægri og fara mörkin gjaman
eftir eðli viðskipta. Þau era t.d. lægri
á öldurhúsum en í skartgripabúðum
svo dæmi sé tekið.
Að lokum má geta þess að næst-
stærsta færsla sem Visa hefur borist
nam 1,2 milljónum fyrir nokkru. Sú
mun hafa verið raunveraleg, án
heimildar, en að fullu greidd.
Nýjar sósur
og pasta frá Honig
FYRIIt skömmu komu í verslan-
ir nýjungar frá fyrirtækinu
Honig.
Hér á landi hefur fengist pasta
frá þessu fyrirtæki síðan árið
1948. Um er að ræða sósumar
Napolitana og Bolognese. Þá er
líka um að ræða þrílita pastaskrúf-
ur, Fusilli Tricolore pasta. ■
Randver sagði að forskot hefði
verið tekið þann 11. febrúar sl.
með sérstöku námskeiði fyrir at-
vinnulausa. Almennu námskeiðin
tækju við að því loknu og yrðu
með svipuðu sniði. Á þeim yrði
velt upp spurningum varðandi
fjármál heimilisins. „Við glímum
t.d. við spumingar eins og hvert
fara krónurnar? Er hægt að auka
öryggi í fjármálum? Hvaða þjón-
ustu býður bankinn til að hjálpa
okkur við að ná endum saman?
Svo veltum við því fyrir okkur
hvað þurfí til að halda heimilisbók-
hald. Hvað liggi að baki hugtaka
eins og greiðslubyrði og greiðslu-
getu? Hvemig skammtíma- og
langtímamarkmið fari fram?
Hvaða leiðir séu færar í spamaði
og gerð fjárhagsáæltana," sagði
Randver og tók fram að Neytenda-
samtökin hefðu aðstoðað við upp-
byggingu námskeiðsins.
Skránlng I útlbúum
Hann sagði að námskeiðin væra
öllum opin og námskeiðsgjaldi yrði
stillt í hóf eða 1.200 kr. Innifalin
væru námskeiðsgögn og kaffí. |
Námskeiðin verða haldin í Reykja-
vík og í útibúum sem víðast úti á
landi. Skráning fer fram í öllum |
útibúum íslandsbanka. ■
Bakstur fyrir alla!
Kökablöndumar frá Betty Crocker em
nýjung á markabimm. Þœr gera þér kleift
aö baka ilmandi kökur og það á mettíma.
Nú fást fjórar tegundir aftilbúnu hráefni í
pökkum, þú bcetir aðeins vökva og eggi út í
blönduna, hrœrir og bakar.
Prófaðu Ijúffengu muffins og súkkulaði-
kökumar frá Betty Crocker.
i
\
i
í