Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 26

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Alríkislögreglan FBI fylgdist grannt með Ames-fjölskyldimni í tvö ár Jafnvel sorp njósnara- hjónanna var fínkembt Reuter Við hús njósnarans WILLIAM Rhoads, nágranni Ames-hjónanna, svarar hér spurningum fréttamanna en hann kynntist þeim nokkuð og ber þeim vel söguna. í baksýn er húsið, sem þau borguðu fyrir 40 milljónir kr. út í hönd. De Klerk grýttur F.W. de Klerk, for- seti Suður- Afríku, var grýttur í gær á kosninga- fundi. Réð- ust um 300 liðsmenn Afríska þjóðarráðs- ins að de Klerk á fundi í héraði norðan Höfðaborgar og hröktu hann á brott en stærsti steinn- inn sem fór í forsetann var á stærð við hænuegg. Hann slas- aðist þó ekki. Deilt um fækkun kjarnavopna RÚSSAR og Úkraínumenn deildu á þriðjudag hart um fækkun kjamavopna, í fyrsta sinn frá því að ríkin undirrituðu samning við Bandaríkjamenn í janúar um að Úkraínumenn létu kjarnavopn i landinu af hendi. Hafa Rússar sakað Úkraínumenn um að grafa und- an valdi Rússa yfir vopnunum með því að láta rússneska her- foringja sem hafa umsjón með kjamaflaugum í Úkraínu, sveija Úkraínu hollustueið. Óbeinar reyk- ingar hafa áhrif á fóstur Washington. Reuter. UM tveggja ára skeið byggði FBI, bandaríska alríkislögregl- an, upp málið gegn Aldrich Ames, háttsettum starfsmanni leyniþjónustunnar CIA og konu hans, sem ættuð er frá Kólomb- íu. Símar þeirra voru hleraðir, skrifstofa hans rannsökuð reglu- lega og jafnvel sorpið frá heim- ili þeirra var næstum því skoðað í smásjá. Kemur þetta fram í skýrslu, sem lögð hefur verið fram um njósnir þeirra hjóna fyrir Sovétríkin og síðar Rúss- land frá 1985. í skýrslunni segir, að í október sl. hafí FBI fundið ritvélar- eða prentaraborða í sorpinu og með sérstökum aðferðum mátti lesa af þeim tvö bréf eða skjöl, sem Ames hafði skrifað. í öðm fjallar Ames að sögn um „starfsmenn CIA, um aðgang að leynilegum upplýsingum, um leynilegar aðgerðir bandarísku leyniþjónustunnar" og um væntan- legan fund með starfsmönnum rússnesku leyniþjónustunnar í Caracas í Venesúela. Þangað átti hann erindi, að því er hann sagði yfirmönnum sínum hjá CIA, til að hitta tengdamóður sína en við at- hugun kom í ljós, að tengdamóðir hans var þá stödd í Bandaríkjunum. í hinu bréfinu segir Ames: „Kona mín veit hvað ég er að gera og sýn- ir mér skilning og stuðning í því.“ Leið fyrir fjárskort FBI komst einnig í tölvuna á heimili Ames-hjónanna og í bréfi, sem Aldrich Ames skrifaði á hana 8. júní 1992 segir hann meðal ann- ars: „Það, sem brennur mest á mér núna, er fjárskortur," en FBI segir, að þau hjónin hafi fengið um 1,5 milljónir dollara fyrir njósnirnar eða rúmar 100 milljónir ísl. kr. „Eins og ég hef áður sagt, geri ég mitt besta til að fjárfesta fyrir sem mest af peningunum en held þó nokkru eftir vegna eðlilegra útgjalda. Núna stend ég hins vegar frammi fyrir því að þurfa að losa um fé vegna þess að mig vantar peninga — held- ur óskemmtileg staða,“ hélt Ames áfram í bréfinu. Á þessum tíma, í júm'1992, var Ames að vinna fyrir þá deild CIA, sem fæst við ólöglega eiturlyfjasölu, en við leit á skrifstofu hans í aðal- stöðvum CIA í Langley í Virginiu fundust samt 144 leynileg njósna- skjöl varðandi Sovétríkin og Rúss- land. Mjög viðkunnanlegt fólk Þeir, sem þekkja Ames-hjónin, Aldrich Ames og konu hans, Maria del Rosario Casas Ames, lýsa þeim sem ákaflega viðkunnanlegu fólki en þau eiga heima í stórhýsi í Arl- ington í Virginíu-ríki, handan Po- tomac-árinnar við Washington, en S hyerfinu býr mikið af uppgjafa- embættismönnum og fyrrverandi yfirmönnum í hernum. Þegar þau keyptu húsið borguðu þau út í hönd og í reiðufé, 40 milljónir kr., og fjölskyldubíllinn var ekki af verri endanum, hraðskreiður Jagúar. Eiga þau einn son, Paul, sem er sex ára gamall. Einn nágranni þeirra Ames-hjón- anna og góður kunningi þeirra, William Rhoads, segir, að þau hafi augljóslega haft mikið fé á milli handanna en hann segir, að það hafí ekki vakið neinar grunsemdir enda vitað, að Maria var komin af efnuðu fólki í Bogota í Kólombíu. Hefði almennt verið talið, að þaðan væri ríkidæmið komið. KANADÍSKIR vísindamenn hafa fundið sönnun þess að sígarettureykur geti haft áhrif á fóstur, þrátt fyrir að móðir þess reyki ekki. Fannst nikótín í hári nýfæddra bama en mæð- umar höfðu verið innan um reykingamenn, á vinnustað eða heima. Ferðamenn særðust í Egyptalandi FIMM útlendir ferðamenn og tveir Egyptar særðust í gær er sprengja sprakk um borð í lest sem var á leið frá Kaíró í Egyptalandi til Aswan í suður- hluta landsins. Svo virðist sem hér sé um fjórðu árásina á ferðamenn að ræða í þessum mánuði. Afturhaldsöfl í Hvíta-Rússlandi AFTURHALDSSAMIR þing- menn voru skipaðir í mikilvæg- ar ráðherrastöður í stjóm Hvíta-Rússlands á þriðjudag en breytingamar fylgja í kjölfar afsagnar fijálslynds leiðtoga landsins, Stanislavs Sjúske- vitsjs. Kerrigan semur við Disney SKAUTAKONAN Nancy Kerr- igan hefur undirritað samning við Walt Disney-fyrirtækið um gerð sjónvarpsmyndar um líf hennar, sýningu í Disneygörð- um og útgáfu bamabókar. Ekki var gefíð upp hversu mikið Disney greiðir Kerrigan en tímaritið Newsweek segir hana fá eina milljón Bandaríkjadala fyrir vikið, um 73 milljónir króna. ’-a-i , - & n-a..^. aí u mi. un Látum ekki storm andstæð- inganna hrekja okkur af leið —segir íhaldsþingmaðurinn Julian Brazier um stefnu hinna gömlu, góðu gilda ÍHALDSFLOKKURINN breski hefur verið mjög í fréttum að undanförnu vegna kynlífs- og fjármálahneyksla sem stinga í stúf við hvatningu Johns Majors forsætisráðherra um að horfið verði á ný til gömlu, góðu gildanna, Back to basics-stefnuna svo- nefndu. Fyrir skömmu var hér á ferð einn af yngri þingmönnum flokksins, Julian Brazier, sem nyög hefur beitt sér fyrir stefnu gömlu gildanna. Brazier, sem er kaþólskur, vill herða refsingar, efla kristileg gildi og segir að í lagasetningu hafi heilbrigð skyn- semi oft orðið að lúta í lægra haldi fyrir ýmsum hégiljum vinstri- sinnaðra fræðimanna. Morgunblaðið ræddi við Brazier um flokk hans og gömlu gildin. „Nú skal ég segja þér hvað hefur verið að gerast, nefna nokk- ur dæmi um lög sem eru gjörsam- lega út í hött, ekki í neinum tengslum við þankagang almenn- ings“, segir Brazier. „Arið 1977 voru sett lög um að fólk sem skil- greint var sem heimilislaust skyldi hafa forgang við úthlutun íbúðar- húsnæðis til frambúðar, þeir íbúar viðkomandi sveitarfélaga sem hefðu beðið árum saman eftir út- hlutun yrðu að sitja eftir með sárt ennið. í sumum tilvikum var um barnshafandi táninga eða ólöglega innflytjendur að ræða í fyrmefnda hópnum. Víða um land var meirihlutanum af umræddu húsnæði hins opinbera úthlutað minnihlutahópum af þessu tagi. Stefna gömlu gildanna merkir að aftur verði horfíð til heilbrigðr- ar skynsemi í þessum efnum, stefnu sem var notuð fyrir 1977 og merkti að fólk sem sýndi ábyrgðartilfinningu og verið hafði lengi á biðlista hafði forgang við úthlutun. „Heltekin af umbótum" Við erum orðin svo heltekin af umbótum og þeim félagslegu nei- kvæðu þáttum sem vaxi hjá glæpamönnum við fangelsisvist o.s. frv. að við höfum misst sjónar á aðalatriðinu. Það er mjög mikið um rán og þjófnaði í Bretlandi núna, ofbeldisglæpir eru hins veg- ar fremur fátíðir miðað við ýmis önnur lönd. Það sem skiptir öllu er að venjulegt fólk vill að þjófam- ir séu læstir inni svo að þeir geti ekki stundað þessa iðju, hvort sem það verður þeim til betrunar, það er annað mál... í lokin nefni ég menntastefn- una, þar viljum við að aftur verði tekinn upp lágmarksagi og kennd á ný þau grundvallaratriði sem þorri Breta vill að séu kennd.“ —En flokkurinn er aðhláturs- efni vegna þessara hneykslismála. Hvers vegna er Major ekki sjálfum sér samkvæmur í stefnunni þegar kemur að gömlum siðferðisgild- um, áttu ekki lauslátir ráðherrar á borð við Tim Yeo og David Mellor að víkja umsvifalaust? „Það er rétt og ég er viss um að þorri flokksmanna vill að þann- ig sé tekið á málunum, aðhlátur- inn sem þú nefndir á rætur að rekja til þessa. En forsætisráð- herrann hefur nú tekið af skarið og sagt að komi slík mál upp á ný verði ráðherra strax að víkja.“ Morgunblaðið/Kristinn Gegn linkind JULIAN Brazier, þingmaður breska Ihalds- flokksins. „Venjulegt fólk vill að þjófarnir séu læstir inni“. — Af hverju eru þetta alltaf íhaldsmenn, er ekki líklegt að Verkamannaflokkurinn bókstaf- lega ræni gildastefnunni að nokkru leyti, almenningur hlýtur að telja hann trúverðugri eða hvað? „Fjölmiðlar eru rétt að byija að segja frá þessum hlutum, þetta hefur verið vandi í öllu stjómmála- lífi landsins lengi, hjá öllum flokk- um en farið Ieynt. Nýlega var fyrr- verandi varaleiðtogi Verkamanna- flokksins uppvís að því að eiga hjákonu í aðeins mflu fjarlægð frá heimili sínu í London en fjölmiðlar telja yfirleitt meira spennandi að segja frá vandkvæðum stjómar- flokks en stjómarandstöðu. Trúverðugleiki Tony Blair, einn af skuggaráðherr- um Verkamanna- flokksins, mjög snjall maður, er þegar byijaður að „ræna“ eins og þú nefnir það, þeir eru byijaðir að boða sína eigin útgáfu af gömlu, góðu gildunum. Fyrir hálfu öðru ári heyrði ég hluta úr ræðu sem Blair flutti og hann vitn- aði þar nokkrum sinnum orðrétt í bækling sem ég gaf út nokkrum vikum fyrr, þetta kætti mig mjög! En hann er nú byijað- ur að draga ákveðna markalínu til að flokkurinn geti ekki lent í svipuðum vanda vegna siðferðis- brests einstakra flokksmanna eins og íhaldsflokkurinn... Minn flokkur er nú mun strangari en aðrir og ég get nefnt þér sem dæmi að ef ég eignaðist bam utan hjónabands myndi flokksnefndin í mínu kjördæmi þegar ákveða að ég yrði ekki aftur í framboði. En við eigum ekki að vera ofur- hræddir við að Verkamannaflokk- urinn ræni frá okkur, við látum ekki storm andstæðinganna hrekja okkur af leið heldur bend- um ótrauðir á að okkar stefna sé góð stefna." Viðtal: Kristján Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.