Morgunblaðið - 24.02.1994, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1994
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Atvinnumöguleikar
á EES-svæðinu
DEILUR STJORNARFLOKKANNA UM BREYTIN G ARABU V C
Flokkamir þurfa
að ræða þau atriði
sem út af standa
Davíð Oddsson segir samkomulag stj ómarflokkanna ekki brotið
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hafnar því að samkomulag ríkisstjórn-
arflokkanna um búvörumál hafi verið brotið með þeim breytingartillögum
sem Egill Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar Alþingis, kynnti í gær
við búvörulagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hann segir að flestar þær
breytingar séu til þess fallnar að skýra málið, en skoða þurfi nánar þá
tengingu við GATT-samkomulagið sem er í breytingartillögunum. Þá
muni stjórnarflokkarnir ræða nánar það sem út af standi, en Alþýðuflokk-
urinn hefur hafnað breytingartillögunum alfarið og segir þær ekki unn-
ar á sína ábyrgð. /
Ifrétt frá fréttaritara
Morgunblaðsins í Kaup-
mannahöfn, sem birtist hér
í blaðinu í gær er skýrt frá
því, að Svíar hafi sett upp
skrifstofur, sem leiðbeini
þeim landsmönnum, sem
hafa hug á að fá vinnu í
öðrum ríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins. Hafa
verið settar upp sérstakar
deildir á vinnumiðlunar-
skrifstofum víða um landið
til þess að greiða fyrir vinnu
í öðrum EES-ríkjum.
Samningarnir um Evr-
ópska efnahagssvæðið
þýða, að aðildarríki samn-
ingsins, sem eru sautján
talsins, verða eitt atvinnu-
svæði. í því felst, að íslend-
ingar t.d. eiga að hafa
möguleika á atvinnu í hveiju
þessara ríkja sem er, til
jafns við heimamenn. Ekki
þarf að sækja um atvinnu-
leyfi í þessum löndum og
dvalarleyfis er ekki krafízt
fyrr en eftir þijá mánuði.
Atvinnuleysi er hins vegar
mikið í Evrópulöndunum og
þess vegna augljóst, að það
er ekki auðvelt fyrir fólk að
fá þar vinnu.
Þetta framtak Svía ætti
að verða okkur til eftir-
breytni. Við eigum vel
menntað fólk, sem í mörg-
um tilvikum hefur aflað sér
menntunar í öðrum löndum
og stendur í þeim efnum
algerlega jafnfætis vel
menntuðu fólki í öðrum
EES-ríkjum. Þar að auki er
tungmálakunnátta almenn
hér á íslandi. Enskukunn-
átta er mjög almenn svo og
þekking á Norðurlandamál-
um. Fleiri og fleiri tala
þýzku, frönsku, spænsku og
ítölsku. Ætla má, að tungu-
málakunnátta sé a.m.k. jafn
mikil hér og í öðrum EES-
ríkjum, ef ekki meiri, þ.e.
að hlutfallslega fleiri íslend-
ingar tali tungumál annarra
þjóða en gengur og gerist
hjá stærri þjóðurn, sem
þurfa ekki eins mikið á slíkri
þekkingu að halda. En góð
tungumálakunnátta er ein-
mitt lykill að starfi í aðildar-
ríkjum EES-samningsins.
Með þetta í huga er tíma-
bært, að íslenzk stjómvöld
taki upp skipulega aðstoð
við þá íslendinga, sem vilja
leita sér að vinnu í öðrum
EES-ríkjum. Þá er ekki
fyrst og fremst átt við þá
þörf, sem hér er til staðar
að finna vinnu fyrir fólk
heldur ekki síður hitt, að
reynsla af starfi í öðrum
löndum á eftir að gagnast
þjóðinni vel í framtíðinni.
Þeir sem starfa um skeið
erlendis flytja heim með sér
þekkingu og ný viðhorf, sem
geta háft ótrúlega víðtæk
áhrif í þeirra starfsum-
hverfi. Við getum með þess-
um hætti aflað okkur þekk-
ingar, sem gerir okkur t.d.
kleift að stórauka viðskipta-
umsvif okkar á erlendri
grund. Dag hvern eru ungir
Islendingar, sem starfa hjá
íslenzku útflutningsfyrir-
tækjunum erlendis í fréttum
fjölmiðla hér. Sú starfs-
reynsla, sem þetta unga fólk
fær er ómetanleg. En jafn-
framt er líklegt að hún geti
rutt brautina inn á ný svið.
Við hljótum á næstu
árum að leitast við að ná í
okkar hendur þeirri milli-
liðastarfsemi, sem nú er í
höndum útlendinga í sam-
bandi við fiskútflutning
okkar. Við þurfum smátt og
smátt að tryggja okkur yfir-
ráð yfir dreifingakerfi í Evr-
ópulöndum. Þar með flytjum
við milliliðagróðann heim og
treystum almennt stöðu
okkar á erlendum mörkuð-
um. En til þess að ná
árangri á því sviði þarf
þekkingu á staðháttum og
viðskiptavenjum. Þá þekk-
ingu öðlumst við með því,
að íslendingar fái tækifæri
til að starfa erlendis og
kynnast viðskiptaháttum
annarra þjóða af eigin raun.
Þegar samningurinn um
EES var gerður voru menn
sammála um, að í honum
væru ekki sízt fólgin tæki-
færi, sem við yrðum að hag-
nýta okkur. Þetta er ein
aðferðin til þess: setja upp
vinnumiðlun að dæmi Svía
til þess að greiða íslending-
um leið inn á vinnumarkað-
inn í EES-löndunum. Hér
þurfa stjórnvöld að koma til
sögunnar. Það er ekki eftir
neinu að bíða.
„Þetta er ekki stjórnarfrumvarp
heldur breytingartillaga sem að for-
maður landbúnaðarnefndar Aiþingis
er að kynna við stjómarfrumvarp sem
liggur fyrir nefndinni. Stjórnarfrum-
varpið er lagt fram af hálfu rík-
isstjórnárinnar allrar, eins og önnur
stjómarfrumvörp. Síðan hefur verið
unnið að brejdingum. Formaður land-
búnaðamefndar hefur lagt fram ýms-
ar breytingar en stjórnarflokkarnir
hafa ekki samið um þessar breyting-
ar. Þær eru unnar af sérfræðinga-
nefnd sem hefur haft víðtækt samráð
við embættismenn annarra ráðuneyta,
þótt þeir hafi ekki leitað samkomulags
við þá. Þetta em eðlileg vinnubrögð.
Síðan er það önnur saga hvort menn
vilja standa að þessum breytingartil-
lögum og það þurfa menn að ræða,“
sagði Davíð Oddsson við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
. Málið hefur skýrst
Alþýðuflokkurinn hefur hafnað
breytingartillögunum. Davíð sagði um
það að þá yrði að kanna hvaða atriði
það væm sem stæðu út af. „En það
er ekki vafi á því í mínum huga að
langflestar af þessum breytingartil-
lögum eru til þess fallnar að skýra
málið mjög rnikið."
Nýju frumvarpsdrögin sem Egill
hefur unnið að ásamt lögfræðihgun-
um Gunnlaugi Claessen ríkislög-
manni og hæstaréttarlögmönnunum
Sveini Snorrasyni og Tryggva Gunn-
arssyni var kynnt á fundi landbúnað-
amefndar kl. 13 í gær en fundi sem
halda átti kl. 10 hafði verið frestað.
Kl. 15.30 var svo nýr viðaukalisti,
sem er til viðbótar þeim lista yfir
tollskrámúmer sem fylgdi frumvarp-
inu upphaflega, kynntur á öðmm
fundi í landbúnaðamefnd. Að því
loknu var breytingartillagan kynnt á
þingflokksfundum allra þingflokka.
Meinað að sitja fund
Egill sagði í samtalið við Morgun-
blaðið að fulltrúar utanríkisráðu-
neytisins hefðu neitað að mæta á
fund nefndarmanna með lögfræðing-
unum þremur á þriðjudag og aftur
í gaermorgun. Jóhannes Geir Sigur-
Þegar Davíð var spurður hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn vilji standa að breyt-
ingartillögunum, sagði hann að ekki
hefði verið tekin endanleg afstaða til
þeirra á þingflokksfundi í gær enda
tillögumar enn til umræðu í landbúnað-
amefnd. „Flokkurinn, rétt eins og hin-
ir þingflokkamir, hefur tíma þar til
að þeirri afgreiðslu kemur, til að móta
endanlega afstöðu sína,“ sagði Davíð.
—Nú hefur Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra sagt að hann geti ekki
samþykkt allar breytingartillögurnar
þótt sumar þeirra séu til bóta.
„Fjármálaráðherrann kýs, eftir því
sem ég best veit, að gerð verði breyt-
ing við eitt atriði, en ég er einnig viss
um að fjármálaráðherrann beygir sig
fyrir niðurstöðu þingflokks Sjálfstæð-
isfiokksins. Hins vegar hef ég einnig
sagt að það atriði sem hann gerir
athugasemd við sé atriði sem ég vil
endilega skoða nánar. Það er tenging-
in núna við GATT sem var áður 50%
verðjöfnunarálag," sagði Davíð. I
sjónavarpsviðtali í gærkvöldi sagði
hann það rétt hjá Alþýðuflokknum að
nefnd fimm ráðuneyta eigi að endur-
skoða í heild ákvæði innflutningslög-
gjafarinnar eftir að GATT-samkomu-
lagið tekur gildi og þar með innflutn-
ing landbúnaðarvara.
geirsson, þingmaður Framsóknar-
flokks, spurði að því við upphaf þing-
fundar á Alþingi í gær hvers vegna
sérfræðingum utanríkisráðuneytis-
ins hefði verið meinað að sitja fund
með landbúnaðamefnd og lögfræð-
ingunum þremur. Jón Baldvin svar-
aði og sagði að lögfræðingamir sem
sömdu breytingartillögurnar væru
að semja þær breytingar að forsögn
formanns landbúnaðamefndar. Sér
skildist að þeir væm verktakar í
þjónustu formanns landbúnaðar-
nefndar. Því hefðu sérfræðingar ut-
anríkisráðuneytis tæpast átt erindi á
fund með lögfræðingunum þar sem
aðeins hafi verið óskað eftir því að
þeir fjölluðu um tæknileg atriði.
Stefnt að afgreiðslu á þriðjudag
Egill sagðist ætla að gefa nefndar-
mönnum í landbúnaðarnefnd þann
tíma til að fara yfír tillögurnar sem
Ekki hótun
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins fullyrðir að breyting-
artillögurnar sem Egill Jónsson hefur
lagt fram standist ekki milliríkjasamn-
inga og séu ekki í samræmi við sam-
komulag ríkisstjórnarflokkanna um
landbúnaðarmálin frá í desember en
sagði í útvarpsviðtali í gærkvöldi að
ekkert tilefni væri til að orða stjórnar-
slit út af þessu máli ef staðið yrði við
þetta samkomulag, og hann tryði því
ekki að samstarfsflokkurinn myndi
ekki gera það þegar á reyndi. Um
þetta sagði Davíð, að hann túlkaði
ekki þessi ummæli sem hótun. „Ég
tel að menn hafi staðið við sín orð í
þessum efnum. Formaður Alþýðu-
flokksins gerir ágreining við Gunnlaug
Claessen ríkislögmann, Tryggva
Gunnarsson hæstaréttarlögmann og
Svein Snorrason hæstaréttarlögmann
hvað sé lögfræði í málinu og ég býst
við að hann hafi gríðarlega góða lög-
fræðinga sér við hlið fyrst hann telur
sig geta fullyrt að þetta sé ekki rétt
lögfræði hjá þessum þremenningum
því þetta eru færustu menn á sínu
sviði í þessu Iandi að mínu mati.“
Alþýðuflokkurinn hefur beint því
til Sjálfstæðisflokksins að fulltrúar.
allra sjónarmiða setjist að borði til að
ganga frá frumvarpinu í samræmi við
milliríkjasamninga og samkomulag
flokkanna. „Við munum ræða saman
eins og við erum vanir að gera. Ég
held að þetta sé spilað allt of mikið
upp, og það er mikill galli fyrir stjórn-
arsamstarfið að smámál eins og þetta
sé spilað svona mikið upp,“ sagði
Davíð Oddsson.
þeir þyrftu en hann stefndi að því
að ná samkomulagi um að afgreiða
málið eftir helgina, helst á þriðjudag-
inn.
Egill segir að ekki sé um neinar
efnislegar breytingar að ræða frá
þeim breytingartillögum sem lágu
fyrir i seinustu viku og hann kveðst
í engu hafa bakkað frá þeim mark-
miðum sem hann hafi unnið að. „Að
því er þessi mál varðar eru lögin nú
algerlega skýr hveijum þeim sem
kann að lesa. Nú hafa menn engin
tækifæri á að skýla sér á bak við
óljóst orðalag, samkomulag eða yfír-
lýsingar og landbúnaðarráðherra
hefur skýrar reglur út frá að ganga.
Þess vegna er hægt að taka upp
trúverðuga umræðu um þær breyt-
ingar sem verða í íslenskum landbún-
aði á þeim breyttu tímum sem fram-
undan eru,“ sagði hann.
Aðspurður hvort hann teldi líkur
á að Alþýðuflokkurinn gæti fallist á
tillögur hans sagði hann að hans
vettvangur væri í landbúnaðarnefnd.
Málið væri þar á hans forræði og
því bæri hann ábyrgð á þeim texta
sem kæmi frá nefndinni „Þar með
er ég búinn að koma því á framfæri
sem ég stefndi að í þessu máli. Það
er svo annað hvað landbúnaðamefnd
sýnist og svo aftur hvað þinginu
Egill Jónsson formaður landbúnaðamefndar um breyting
Engiirn misskilningui
mín og Davíðs í þess
EGILL Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar, lagði fram breytingar-
tillögur við búvörufrumvarpið á fundi landbúnaðarnefndar í gær. Þing-
flokkur Alþýðuflokksins hafnar breytingunum og segja tillögurnar
brot á samkomulagi stjórnarflokkanna. Egill sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér hefði ekki verið gerð nein sérstök grein fyrir því sam-
komulagi sem Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson hafi gert
sl. sunnudag. Hann teldi að ekki væri um neinn misskilning að ræða
milli sín og Davíðs í þessu máli, og sjálfur hefði hann ekki brotið
neitt samkomulag sem gert hefði verið.