Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Hafnarfjörður áfram í fararbroddi! eftir Árna Hjörleifsson Við Hafnfirðingar erum stoltir af því að vera Hafnfirðingar, og það eru margar ástæður fyrir því að við erum það. Við búum í bæ sem hef- ur langa sögu, og bæjarstæðið í hrauninu með fagurt útsýni út yfir fjörðinn, ásamt stórfenglegri fjalla- sýn allt um kring. Þessi umgjörð gefur okkur kraft og þor til að gera þessa mynd enn glæsilegri, með því að byggja upp og hlúa að því mann- lífi sem í bænum er. Þegar við al- þýðuflokksmenn tókum við stjómun bæjarins fyrir tæpum 8 árum, hafði Sjálfstæðisflokkurinn verið við völd um nokkurt skeið og doðinn og máttleysið var orðið algjört, það var sama hvar litið var. Fjölbýlishúsa- lóðir vantaði, og ungt fólk flutti burtu úr bænum, vegna íbúðas- korts, skólar voru ofsetnir, viðhald og tækjabúnaður í lágmarki, dag- vistarstofnanir vantaði og þannig mætti lengi telja. Verkefnin voru næg, það þurfti bara þrek og þor til að hefjast handa. Þetta þrek hafa alþýðuflokksmenn í Hafnar- firði, og þorið hefur ekki vantað, verkin hafa verið látin tala. Byggt var yfír fiskmarkað, þann fyrsta á landinu, gerð smábátahöfn og nýir viðlegukantar og aðstaða gerð. Nýir skólar eða viðbyggingar hafa verið teknar í notkun á hveiju hausti síð- astliðin 8 ár. Fé til viðhalds og tækjakaupa hefur verið aukið til muna. Nemenda- og kennaraað- staða gerð, náms- og tölvuveri kom- ið fyrir og þannig mætti lengi telja, og er ólíku saman að jafna skólunum nú eða þegar sjálfstæðismenn réðu, en þá vora varla til ritvélar hvað þá annað, og skólabyggingar Iágu undir skemmdum vegna viðhalds- leysis. Tekin var í notkun ný æsku- lýðsmiðstöð (Vitinn) og nýr tónlsit- arskóli er í byggingu. Heilsugæsla og íbúðir fyrir aldraða við Sólvang og Hjallabraut. Fjölmargar félags- legar íbúðir hafa verið byggðar. DUXINN... námstækninámskeið ,.og námið verður leikur einnl Bók og snældur. Verð kr. 2.900,- HRAÐLESTRASKÓLINN, sími 642100. KRIPAIUJOGA Jóga fyrir eldri borgara. Góðar teygjur, öndunaræfingar og slökun. Kennt á mánud. og fimmtud. kl. 10.30-11.30. Uppl. gefur Hulda G. Sigurðardóttir Isíma 67561 Oeftirkl. 19. Jógastötin Heimsljós Skeifunni 19. ^Dale . (Jarneeie námskeiðið Kynningarfundur ★ Meira hugrekki. ★ Stærri vinahópur. ★ Minni áhyggjur. ★ Meiri lífskrani PERSÓNULEGUR ÞROSKI STJORNUNARSKOLINN Sími 812411 Ný námskeið eru að hefjast Nýjar dagvistarstofnanir hafa risið víða í bænum og nú í mars þegar nýr leikskóli verður tekinn í notkun á Hvaleyrarholti verður séð fyrir þörfmni niður í tveggja ára aldur. Suðurbæjarlaugin var byggð og komið í notkun, nýju strætisvagna- kerfi var komið á, öskuhaugarnir voru aflagðir, og í framhaldi af því var gerð aðstaða til útivistar við Hvaleyrarvatn, en áður en haugarn- ir vora aflagðir var rusi fjúkandi um alit svæðið, en þar hefur nú verið gerð aðstaða fyrir áhugamenn um flugmódel. Samstarfssamningar hafa verið gerðar við íþróttafélögin um uppbyggingu og hafa þeir verið notaðir sem fyrirmynd í öðrum sveitarfélögum. í samræmi við samninga þessa hefur verið farið í gífurlega uppbyggingu, og má í því sambandi nefna aðstöðu Hauka á Ásvöllum, íþróttahús og aðstöðu FH í Kaplakrika, reiðskemmu Sörla, golfaðstaða og skáli fyrir Keili, að- staða fyrir Bjarkimar, og bílaíþrótt- ir o.m.fl. Fegrun og frágangur í bæjarlandinu hefur vakið athygli víða, og má í því sambandi nefna útivistarsvæðið á Víðistaðtúni, með tjaldsvæði og fyrsta höggmynda- garði landsins. Eitt af fyrstu verkum meirihluta Alþýðuflokksins var að koma skipulagi á lóðamál í miðbæn- um, kaupa upp og breyta lóðamörk- um, en það var forsenda þess að mögulegt væri að hefjast handa við uppbyggingu miðbæjarins. Nú eru framkvæmdir í miðbænum í fulium gangi og á sumri komahda verður miðbærinn okkar orðinn hinn glæsi- legasti í landinu, og mun draga til sín fólk víða að. Þessi mikla upp- bygging síðustu 8 ára, ásamt því að hinum manniegu þáttum er hér vel sinnt, hefur vakið athygli langt út fyrir Hafnarfjörð og hingað hefur fólk fiutt og hér vill það búa. Fólks- flutningar hingað á síðustu árum eru langt umfram það sem gerist annars staðar og árið ’93 fluttu til að mynda 2 að meðaltali á dag til bæjarins. Það er öllum ljóst að upp- byggingin hefur verið mikil og árangur verkanna blasir ails staðar við, en þó svo að mikið hafi áunnist eru næg verkefni framundan, hér hefur til að mynda verið allt of mik- ið atvinnuleysi að undanförnu, það verður því að vera eitt aðal verkefni næstu bæjarstjórnar að vinna bug á atvinnuleysinu. Möguleikar Hafn- Árni Hjörleifsson. „Þetta þrek hafa al- þýðuflokksmenn í Hafnarfirði, og þorið hefur ekki vantað, verkin hafa verið látin tala.“ firðinga eru margir, við eigum nóg landrými í nálægð við góða höfn í Straumsvík, að auki eigum við mikia möguleika í nýtingu jarðhitasvæða í Krísuvík, eins má nefna þá miklu auðlind sem við eigum í köldu vatni og í ferðaþjónustu sjá_ menn fyrir sér mikla aukningu. Á síðustu 8 árum hefur uppgangur Hafnarfjarð- ar víða vakið athygli. Það er því mikil nauðsyn að bæjarbúar rifji upp ástandið eins og það var, og beri það saman við stöðuna nú og að þeim samanburði loknum er ég sannfærður um að menn muni treysta Alþýðuflokknum til áfram- haldandi starfa. Sagt er að menn skuli dæmdir af verkum sínum, og vil ég því draga athygli að því að ég hef verið þátttakandi í þessari miklu uppbyggingu síðustu 8 ára, og tel mig hafa unnið af samvisku- semi og heilindum, fyrst sem for- maður skólanefndar Hafnarfjarðar í 4 ár og síðan sem bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður ásamt því að sitja í skipulagsnefnd bæjarins. Þó svo að mikið hafi áunnist, geri ég mér grein fyrir því að næg verkefni eru framundan og þar sem ég tek nú þátt í prófkjöri Álþýðuflokksins, legg ég það í dóm þinn, kjósandi góður, hvort þú treystir mér til að vinna að áframhaldandi uppbygg- ingu í bænum okkar, ég er tilbúinn til starfa, og stefni á 2. sætið á listanum, ég vonast eftir góðum stuðningi í komandi prófkjöri. Áfram Hafnarfjörður. Höfundur er bæjarfulltrúi og þátttakandi í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði. Alþýðuflokkurinn sýnir ábyrgð í atvinnumálum eftir Eyjólf Sæmundsson Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- bandalagið í Hafnarfírði leggja nú í einum kór höfuðáherslu á það í gagnrýni sinni á Alþýðuflokkinn að skuldir bæjarins hafi aukist á kjör- tímabilinu. Því verður ekki á móti mælt að skuldirnar hafa aukist á þessu kjör- tímabili og því síðasta einnig þegar Alþýðubandalagið átti aðild að meirihluta bæjarstjórnar. Þetta er reyndar ekkert sérstakt fyrir Hafn- arfjörð heldur á við um nær öll sveit- arfélög landsins, þ. á m. höfuðborg- ina sem safnað hefur stórum skuld- um á undanförnum áram undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. En hveijar era ástæður skulda- aukningar? Þær eru fyrst og fremst af tvennum toga: Fyrst er til að taka þá staðreynd að þegar Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag tóku við stjórn bæjarmála 1986 þurfti að hefjast handa við miklar framkvæmdir vegna van- rækslu fyrri meirihluta þar sem sjálfstæðismenn voru ráðandi. Byggja þurfti nýja skóla, nýjar dag- vistunarstofnanir, aðstöðu fyrir íþróttafélögin, æskulýðsmiðstöð, heilsugæslustöð, efla þjónustu við aldraða, taka ný svæði til skipu- lags, auka og bæta hafnaraðstöðu, endurbæta miðbæinn o.s.frv. Þetta uppbyggingarstarf hefur staðið sleituiaust í tvö kjörtímabii. í öðra lagi kemur það til að á þessu kjörtímabili hefur atvinna dregist saman í landinu og er Hafn- arfjörður þar engin undantekning. Meirihluti Alþýðuflokksins ákvað að bregðast við þessu m.a. með því að halda áfram framkvæmdum af full- um krafti og fjármagna þær með lánsfé. Auk þessa voru settir fjár- munir í atvinnuátak og aðrar at- vinnuskapandi ráðstafanir. Þetta var gert að yfirveguðu ráði, í þeirri vissu að erfiðleikamir séu tíma- bundnir, þó að ijárhagsstaðan ein sér gæfi e.t.v. tilefni til þess að hægt yrði á. Markmiðið er að sjálf- sögðu það að forða sem flestum fjöl- skyldum frá hörmungum atvinnu- leysis og örbirgðar. Ég held að bæjarbúar séu flestir sammála því að í meginatriðum hafi verið fylgt réttri stefnu, þó auðvitað séu skiptar skoðanir um einstök mál. Þeir sem gagnrýna þessa stefnu harkalega en skamma meirihlutann jafnframt fyrir að hafa ekki gengið enn lengra í þá átt að skapa atvinnu eru varla samkvæmir sjálfum sér. Ég tel að það sé skylda sveitarfé- laga að leggja sitt af mörkum til að stuðla að atvinnuuppbyggingu og sporna gegn atvinnuleysi. Þetta geta þau gert með því að halda uppi framkvæmdum á samdráttar- tímum, með því að skapa sem hag- stæðust rekstrarskilyrði og með því að styðja við atvinnustarfsemi, en þó þannig að ekki raski samkeppnis- stöðu og dragi úr ábyrgð og sjálfs- bjargarviðleitni stjórnenda fyrir- tækjanna. Ef samdráttur er lang- varandi verður ríkisvaldið hins veg- ar að axla meirihluta byrðanna, „Eg tel að það sé skylda sveitarfélaga að leggja sitt af mörkum til að stuðla að atvinnuupp- byggingu.“ sveitarfélög hafa ekki til þess bol- magn. Sú skylda hvílir að sjálfsögðu á sveitarstjórnarmönnum að fara vel með þá fjármuni sem þeim er trúað fyrir og gæta ýtrustu hagsýni í hvívetna, hvort heldur sem er á tím- um uppgangs eða erfiðleika. Þá grandvallarreglu mun Alþýðuflokk- urinn hafa að leiðarljósi yeiti bæj- arbúar honum umboð í komandi Eyjólfur Sæmundsson. kosningum til þess að fara áfram með stjórn bæjarins. Höfundur er varabæjarfulltrúi og formaður hafnarstjórnar og býður sig fram til 3. sætis í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði. Ungt fólk og húsnæði eftir Steinunni Guðmundsdóttur í þessari grein langar mig að fjalla um húsnæðisvanda unga fólksins, því að mínu mati er félags- lega íbúðakerfið sprungið. Þar bíður fólk jafnvel í nokkur ár eftir að fá úthlutun í stað þess að eiga þess kost að geta eignast húsnæði á hin- um almenna markaði af eigin rammleik. Er ekki eitthvað að? Mér virðist að þróunin í þessum málum hafi ekki fallið í réttan farveg. Ekki alls fyrir löngu sá ég í fréttatíma sjónvarpsins að auður þjóðarinnar lægi fyrst og fremst hjá því fólki sem er komið um og yfir fimmtugt. Er það ef til vill svarið við því hversu margt ungt fólk bíður eftir því að komast í fé- lagslegar íbúðir? Við unga fólkið stöndum hins vegar frammi fyrir því að vilja ekki drukkna í vöxtum og verðbótum og sjá á eftir af- rakstri vinnu okkar til sparifjáreig- enda. Ekki ég að minnsta kosti. Við viljum líklega flest geta valið okkur hvar og í hvernig húsnæði við búum. Ég tel þess vegna mikla þörf á því að við getum sem flest aflað okkur húsnæðis á hinum al- menna markaði, sem svo er kallað- „Ég tel þess vegna mikla þörf á því að við getum sem flest aflað okkur húsnæðis á hin- um almenna markaði, sem svo er kallaður.“- ur. En til þess að svo geti orðið þarf að bjóða upp á ódýrar lóðir, stuðla að hagræðingu við húsbygg- ingar og bjóða upp á sanngjarna og eðlilega lánamöguleika svo eitt- hvað sé nefnt. Annars er það borin von að ungt fólk almennt geti aflað sér húsnæðis á hinum almenna markaði. Félagslega kerfið á fullan rétt á sér þó eðlilega megi spyrja hvort það þurfi að þjóna jafn stórum hópi og reyndin hefur verið. Fullfrískt ungt fólk hlýtur að hafa metnað til þess að koma sér þaki yfir höfuðið án þess að þurfa að leita til félags- lega kerfisins. Til þess að svo megi verða þarf að byggja almenna kerf- ið upp með þeim hætti að það gagn- ist ungu fólki. Það er ekki rétt að syndir feðranna komi niður á ungu fólki í dag og þeir sem fengu stór- lega niðurgreidd lán á árum áður Steinunn Guðmundsdóttir heimti nú himinháa vexti af þeim sem eru að stofna fjölskyldur og koma sér þaki yfir höfuðið. Höfundur er gjaldkeri. Hún er þátttakandi í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.