Morgunblaðið - 24.02.1994, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1994
ATVINNUAUa YSINGAR
Tollstjórinn í
Reykjavík auglýsir
Starfsmann vantar nú þegar í afgreiðslustarf
á tollstjóraskrifstofunni í Reykjavík. Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum, sem fást
á skrifstofu embættisins, Tryggvagötu 19.
Reykjavík, 23. febrúar 1994.
Tollstjórinn í Reykjavík.
Heilsugæslulæknir
Staða læknis við Heilsugæslustöð Vest-
mannaeyja er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1994 og skal
skila umsóknum á þar til gerðum eyðublöð-
um. Staðan veitist frá 15. maí 1994 eða eft-
ir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Hjalti Kristjánsson,
yfirlæknir, og Eyjólfur Pálsson, framkvæmda-
stjóri, í síma 98-11955.
Stjórn
Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja.
FLUGLEIDIR Æmt
Traustur íilrnskur ferÓafélagi ÆL
Tölvunarfræðingur
- kerfisfræðingur
Flugleiðir óska eftir að ráða kerfisfræðing til
starfa við hugbúnaðargerð sem fyrst.
Þekking og reynsla í NATURAL forritun og
ADABAS gagnagrunni æskileg.
Skriflegar umsóknir óskast sendar starfs-
mannaþjónust'u félagsins, aðalskrifstofu,
Reykjavíkurflugvelli, fyrir 4. mars nk.
Starf skólaráðgjafa
í Norræna húsinu fyrir tímabilið 1.7. 1994
til 31.12. 1995 er laust til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að hafa kandidats-
menntun eða sem samsvarar henni. Þá er
kunnátta í íslensku og öðrum norrænum
tungum áskilin. Umsækjendur þurfa að hafa
reynslu af kennslu, stjórnun og upplýsinga-
starfsemi.
Hlutverk skólaráðgjafans er m.a. að efla
kennslu í norrænum tungum í grunnskólum
og framhaldsskólum á íslandi. Starfið felur
m.a. í sér tengsl við skóla og aðrar opinber-
ar stofnanir á íslandi, undirbúning og fram-
kvæmd námskeiða og málþinga, fyrirlestra
og frumkvæði að verkefnum sem lúta að
. málakennslu.
Skólaráðgjafinn fundar a.m.k. fjórum sinnum
með verkefnisstjórn, en í henni sitja fulltrúar
móðurmálskennara og kennara í norrænum
tungum á íslandi, kennarasamtakanna og
menntamálaráðuneytisins.
Skólaráðgjafinn starfar með forstjóra og
stjórn Norræna hússins, bókasafnsvörðum,
svo og öðru starfsfólki hússins.
Umsókn sendist fyrir 8. mars 1994 til:
Per Stevring,
Styringsgruppen fornordisk
skolesamarbejde,
Nordisk Ministerráds Sekretariat,
B ox3035,
DK-1021 Kpbenhavn K,
Danmörku.
Bréfasími: 90 45 3393 6344.
Nánari upplýsingar veitir Per Stovring
í síma 90 45 3396 0381.
RADAUGÍ ÝSINGAR
Til leigu Tryggvagata 8
Fallegt útsýni yfir höfnina
2. hæð 355 fm. Má skipta í 2-3 einingar.
3. hæð 125 fm óinnréttað rými ásamt
skemmtilegu turnherbergi.
Leigutími 5-10 ár eða eftir samkomulagi.
Sanngjörn leiga.
Upplýsingar ísíma 91-20160 milli kl. 13 og 18.
Til leigu fvesturbænum
Parhús á tveimur hæðum í vesturbænum,
ásamt tveimur herbergjum með snyrtingu í
kjallara. Bílskúr. Til leigu frá 1. apríl.
Upplýsingar í síma 24397.
Styrkveiting
úr Þróunarsjóði leikskóla
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunar-
verkefnum í leikskólum/skóladagheimilum.
Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar,
tilraunir og nýbreytni í uppeldisstarfi. Um
styrk geta sótt sveitarstjórnir/leikskólastjór-
ar/fóstruhópar og einstakar fóstrur. Sækja
má um styrk til nýrra verkefna og verkefna
sem þegar eru hafin. Umsókn fóstru skal
fylgja umsögn viðkomandi rekstraraðila.
Styrkumsóknir skulu berast menntamála-
ráðuneytinu fyrir 22. mars nk. á þar til
gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í
afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Frá Lánasjóði
íslenskra námsmanna
Námsmenn athugið að eftir 1. mars nk. tek-
ur sjóðurinn ekki við nýjurri umsóknum um
lán á námsárinu 1993-1994.
LÍN.
ISAL
Mötuneytisbygging
Til sölu, niðurrifs og flutnings er timburbygg-
ing á verksmiðjusvæði ISAL, áður notuð sem
mötuneyti. Húsið ertimburhús byggt í eining-
um á stálgrind alls um 1030 fm að grunn-
fleti. Hver eining er 12,2 m að lengd og 3,0 m
á breidd.
Húsið er klætt að utan með krossvið og stál-
klæðningu og að innan með filmukrossvið,
grind er einangruð með glerull. Á þaki er
pappi á sléttri stálklæðningu og krossvið.
Undir útveggjum er ca 100 cm hár járnbent-
ur steinveggur og veggbútar undir miðju
húsinu.
Helstu stærðir eru:
Matsalurog eldhús 395 fm
Hliðarsalir2x110fm 220 fm
Forstofurog snyrtingar 140fm
Geymslurogopinskýli 275 fm
Vegghæð er 270 cm, ris 55 cm,
Húsið selst í núverandi ástandi með því sem
er innandyra. Innifalið í tilboði skal vera brot
og hreinsun á sökklum og að fjarlægja frá-
rennslislögn, sem liggur ofan á jarðvegi und-
ir húsinu. Grunn skal fylla með grús í sömu
hæð og er í kring.
Húsið verður að fjarlægja af svæði ISAL og
grunnur jafnaður fyrir 31. mars 1994.
Allar nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn
Sigurðsson eftir 28. febrúar nk. í síma
607424.
Tilboði ber að skila til innkaupastjóra fyrir
5. mars 1994.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða að hafna öllum.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 94002
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í að byggja lager-, verkstæðis- og skrifstofu-
hús við Vesturtanga 8-12 á Siglufirði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf-
magnsveitna ríkisins, Suðurgötu 4, Siglu-
firði, Ægisbraut 3, Blönduósi, og Lauga-
vegi 118, Reykjavík, frá og með fimmtudegin-
um 24. febrúar 1994 gegn kr. 15.000 skila-
tryggingu.
Verkinu á að vera að fullu lokið föstudaginn
28. október 1994.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins á Blönduósi fyrir kl. 14.00
mánudaginn 14. mars 1994 og verða þau
þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi merktu:
„RARIK - 94002 Siglufjörður - húsnæði."
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
Sli
SR-MJÖL HF
SR-MJÖL HF.
Aðalfundur
Aðalfundur SR-mjöls hf. verður haldinn á
Hótel íslandi í fundarsal á 2. hæð föstudag-
inn 11. mars 1994 kl. 14.00.
Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
Innkaupastjóri.
Stjórnin.