Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 36

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Steinþór Þórarins son - Minning Fæddur 3. nóvember 1951 Dáinn 16. febrúar 1994 Steinþór, tengdasonur okkar, er látinn langt um aldur fram af völd- um óvægins sjúkdóms. Þar er genginn góður drengur. Steinþór var sonur Þórarins Loftssonar bókbindara á Akureyri, sem nú er látinn, og Valnýjar Eyj- ólfsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, Rögnu og Steinþór. Steinþór lauk námi í skipasmíði hjá slippnum á Akureyri 1975, en starfaði ekki lengi í þeirri grein og hóf þá störf við húsasmíðar. Árið 1985 réðst hann til starfa hjá Út- vegsbanka íslands og vann þar og síðar hjá Isiandsbanka til dauða- dags. Hann var dagfarsprúður og lítt gefinn fyrir að trana sér fram. í gegnum árin var hann afar vel látinn af samstarfsfólki sínu. Á yngri árum stundaði hann mik- ið knattspymu og var um árabil í keppnisliði Knattspyrnufélags Ak- ureyrar. Þá fékkst hann við þjálfun yngri knattspyrnumanna á Ak- ureyri, Dalvík og í Reykjavík. Einn- ig starfaði hann í Oddfellow-regl- unni um árabil. Steini kom inn í líf fjölskyldu okkar á sólríku sumri 1973 á Akur- eyri. Þar hafði Laufey dóttir okkar kynnst þessum dugnaðarmanni og harða knattspyrnukappa. Þau gengu í hjónaband árið 1975. Þessi ungu hjón voru svo sannar- lega sólarmegin í lífinu. Hjónaband þeirra var farsælt og þau eignuðust þrjú yndisleg börn, Helgu, Atla Rúnar og Hildi. Steini var bömum sínum afar nærgætinn og ástríkur faðir og ræddi jafnan mikið við þau og hvatti þau til atnafna í íþróttum og í námi. Margs er að minnast þegar litið er yfir tuttugu ára tímabil vináttu og tengsla, sem aldrei bar skugga á, minningar tengdar gleðistundum og daglegu lífí með Steina. Þær minningar getum við á stundum yljað okkur við. í hugum okkar var fjölskyldan, Laufey, Steini og böm, sem órjúfan- leg heild fyllt krafti, lífi og gleði sem geislaði frá þeim. Nú er heildin rofin við fráfail Steina. Ógnvænlegur skuggi hefur legið yfir lífi þeirra undanfarin þrjú ár. Með baráttuvilja hins tapsára ** keppnismanns barðist Steini við hinn óvægna sjúkdóm. Bak við hann stóð fjölskyldan traust og ástrík. Móður hans, systur og fjölskyldu vottum við okkar dýpstu samúð. Mikill harmur er kveðinn að Lauf- eyju og börnum þeirra, því þeirra missir er mikill. Megi minningin um góðan og ástríkan eiginmann og föður vera þeim huggun harmi gegn. Helga og Jóhann. Hann Steini er dáinn. Þriggja ára baráttu við ólæknandi sjúkdóm er lokið og í valnum liggur baráttujaxl sem átti fáa sína líka. Steini kom ■úin í líf mitt þegar hann kynntist Laufeyju systur fyrir 21 ári. Ég var bara sjö ára, en þó farin að gera mér ákveðnar hugjnyndir um nauð- syn þess að ná sér í maka og fjölga mannkyninu. Þó Laufey væri aðeins 18 ára, var hún í mínum augum orðin vel fullorðin og var ég eigin- lega mest hissa á að hún skyldi ekki fyrir lifandis löngu vera búin að ná sér í mann. Ég var því hæst- ánægð þegar ég frétti að sumardvöl hennar á Akureyri hefði borið ávöxt og að nú ætti hún kærasta sem spilaði fótbolta. Mér fannst hann reyndar svolítið gamall, næstum því 22 ára og ég hafði áhyggjur af ald- ursmunurinn væri fullmikill á þeim. Þessar vangaveltur náðu þó ekki lengra en þetta og Steini var fljótur að kæfa niður allar efasemdir sem ég hafði um réttmæti þessa ráða- hags. Hann vann mig yfir á met- , tíma, enda var hann sérlega barn- góður. Steini hefur alla tíð reynst mér einstaklega vel og er hann í mínum augum óijúfanlegur hluti af fjölskyldu okkar, enda man ég varla þá tíð sem hann var ekki hluti af henni. Steini var mikill húmoristi og hafði lag á að sjá broslegu hliðarnar á hlutunum. Þessi eiginleiki hans ásamt ólýsanlegum baráttuvilja komu honum að góðum notum þeg- ar veikindi hans skutu upp kollinum fyrir þremur árum. Hann var keppn- ismaður sem spilaði ætíð til sigurs. Það gerði hann líka í baráttu sinni við krabbameinið. Og þrátt fyrir að hann þyrfti að lokum að lúta í lægra haldi, stendur hann uppi sem sigur- vegari, því hann gafst aldrei uppj. Með honum í baráttunni stóð fjöl- skyldan hans, Laufey, Helga, Átli Rúnar og Hildur, foreldar hans Valný og Þórarinn, sem er nú lát- inn, Ragna systir hans og fjölskylda hennar og tengdafólk hans. Öll tók- um við þátt í þessu með honum og gáfum honum og hvert öðru styrk. Veikindi Steina höfðu mikil áhrif eins og gefur að skilja, bæði á hann og okkur hin. Þau vöktu okkur til umhugsunar um hversu mikilvægt það er að nýta vel þann tíma sem við ;höfum hér á jörðinni og láta ekki smáatriðin fara í taugamar á okkur eða stjóma gerðum okkar. Steini notaði vel þann tíma sem hann hafði. Hann naut þess að ferð- ast um landið og var hann mjög fróður um land og þjóð. Eins var hann afskaplega vel að sér í ætt- fræði og duglegur að rækta fjöl- skyldu- og vinabönd. Hann reyndi að vera eins mikið með Laufeyju og börnunum og hægt var og tilfinn- ingar hans gagnvart þeim vom djúpar. Mér er það minnisstætt þeg- ar ég ræddi síðstliðið sumar við hann um hjónabandið. Þá sagði hann mér m.a. að hjónaband byggði á miklu meira en ást, makinn væri þinn besti vinur og yrði smám sam- an hluti af sjálfum þér sem þú vild- ir ekki né gætir verið án. Þannig væm tilfmningar hans gagnvart Laufeyju. Steini gaf okkur mikið og ég er þakklát fyrir þann tíma sem við fengum að hafa hann hjá okkur. Elsku Laufey, Helga, Atli Rúnar og Hildur. Sorg ykkar er stór, en þið eigið hafsjó af góðum minningum um einstakan mann. Þær munu vonandi létta ykkur róðurinn. Elsku Valný, Ragna og fjölskylda, ykkar missir er mikill og bið ég góðan guð að gefa ykkur öllum styrk. Helga Jóhannsdóttir. Steini mágur, eins og ég kallaði hann ávallt, lést á Landspítalanum aðfaranótt miðvikudagsins 16. febr- úar, eftir erfið veikindi. Þó andlát hans hafi ekki komið á óvart, er ávallt erfitt'að horfa á ungan mann í blóma lífsins rifinn burtu frá íjöl- skyldu, maka og ungum börnum. Eftir situr maður og lætur hugann reika yfir þau rúmlega 20 ár sem við þekktumst og allar þær ánægju- stundir sem við áttum saman. Keppnisferðirnar með KA, æfinga- ferðin til Englands 1984, gamlárs- kvöldin og nú síðast veiðiferðirnar, munu aldrei líða mér úr minni. Það verður ekki sagt að ég hafí verið mikill áhugamaður um íþróttir þegar ég kynntist Steina fyrst. Á þeim árum spilaði Steini með ÍBA og fljótlega eftir að fréttir bárust suður heiðar að Laufey systir hefði kynnst knattspyrnumanni fór mað- ur að laumast á völlinn til að fylgj- ast með pilti. Þó ég hefði ekki mik- ið vit á knattspymu sá ég þó að hann lét mikið að sér kveða í vörn- inni og gaf aldrei tommu eftir. Það er kannski þessi eiginleiki Steina sem er mér hvað minnisstæðastur. Hann var mikill keppnismaður og það fleytti honum langt í gegnum erfíð veikindi og meiðsl. Ekki var nóg með að hann þyrfti að beijast við banvænan sjúkdóm, heldur þurfti hann að vinna sig upp úr mjög alvarlegu slysi, sem hann varð fyrir 1980. Þá féll hann ofan af þaki íþróttahallarinnar á Akureyri, eina 13 metra og fáir héldu að hann gengi heill aftur. En á stuttum tíma náði hann undraverðum bata og lék meira að segja sitt síðasta tímabil með KA sumarið eftir. Eftir slysið sagði hann eitt sinn, að sennilega hefði einhver haldið í sig á leiðinni niður og honum væri ætlað stærra hlutverk í lífinu. Það er því kald- hæðnislegt að hann skuli síðan falla fyrir banvænum sjúkdómi og það svona ungur. Það er erfitt að setja sig í spor þeirra sem ganga í gegn- um slíka lífsreynslu en oft dáðist ég að honum þegar orustur höfðu tapast, þá var ný orusta skipulögð og haldið út á völlinn aftur. Einmitt í einni slíkri kom kallið, hann var í miðjum leik og veit ég að þannig vildi Steini fara. í einkalífinu var Steini mjög gæfusamur maður. Hans mesta gæfa var þegar hann kvæntist Lauf- eyju systur minni. Saman áttu þau þijú mannvænleg börn, Helgu, 15 ára gamla, Atla, 13 ára og Hildi, 7 ára. Laufey studdi Steina í gegnum veikindi hans með einstakri fórnfýsi og hvatningu og er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig það er að standa nú ein eftir og horfa á eftir elskulegum eiginmanni yfír móðuna miklu, því ég veit, elsku Laufey mín, að þið áttuð svo mörgu ólokið. Elsku Laufey, Helga, Atli og Hildur. Guð hjálpi ykkur í gegnum þessa erfíðu tíma. Ég, Didda og börnin sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng verður í huga okkar. Indriði Jóhannsson. Látinn er í Reykjavík kær vinur, Steinþór Þórarinsson, smiður og bankamaður. Oðru sinni, á tiltölu- lega skömmum tíma, kveðjum við hjónin góðan vin og félaga frá barn- æsku, sem hefur lotið í lægra haldi langt um aldur fram fyrir vágesti krabbameins. Steinþór Þórarinsson fæddist á Akureyri 3. nóvember 1951 og var því liðlega 42 ára þegar hann and- aðist á Landspítalanum hinn 16. þessa mánaðar. Steinþór var sonur hjónanna Valnýjar Eyjólfsdóttur, sem lifír einkason sinn, og Þórarins Loftssonar bókbindara, sem lést fyrir liðlega ári. Ættir sínar rakti Steinþór til Seyðisfjarðar og í Hörg- árdal. Auk Steinþórs eignuðust þau hjón eina dóttur, Rögnu, fædda 1950, sem gift er Þorgrími Magnús- syni, pípulagningameistara á Akur- eyri. Áuk barna sinna ólu þau Valný og Þórarinn dóttursoninn, Þórarin Ámason, að nokkrú leyti upp. Það var alla tíð augljóst að sérlega kært var með þeim systkinum og þegar Þórarinn yngri fæddist varð hann Steinþóri strax mjög náinn og auga- steinn ömmu sinnar og afa. Steini Þórarins, eins og hann var ávallt kallaður, ólst upp í góðu at- læti á Hólabrautinni á Akureyri, sem liggur að íþróttavelli bæjarins. 'Því var það afar eðlilegt að Steini leitaði ungur á völlinn til íþróttaiðk- ana, enda bráðger og miklum kost- um búinn. Hann varð fljótt flestum jafnöldrum sterkbyggðari og hraustari. Það var því engin furða að forystumenn íþróttamála á Ak- ureyri veittu þessum knáa sveini fljótt athygli. Það var sama hvort var í spretthlaupum, langhlaupum, spjótkasti, handbolta, skíðum eða fótbolta og fleira mætti telja, alls staðar var hann í fremstu röð. Það var ósjaldan kallað í Steina að aflok- inni fótboltaæfíngu og hann beðinn að keppa fyrir KA í einhverri grein fijálsra íþrótta. Og ekki var að sök- um að spyija, Steini sló öllum við. Það var hins vegar fótboltinn sem smám saman tók hug hans allan. Á þeim árum var ekki algengt að strákar utan af landi vektu sérstaka athygli knattspyrnuforystunnar í landinu og væru valdir í úrvalslið. Hvort tveggja var að við utanbæjar- menn tókum á þeim árum ekki þátt í Islandsmótum yngri flokka auk þess sem verkefni unglingalandsliða voru mun umfangsminni en nú er. Steini Þórarins var þó einn afar fárra utan sv-homsins sem valinn var í úrvalslið. Steini Þórarins var kornungur, eða 17 ára, þegar hann hóf að leika með 1. deildarliði IBA í knattspyrnu. Upp frá því lék Steini samfleytt með ÍBA, meðan það var og hét og síðar með KA. Sumarið 1980 var síðasta sumarið sem Steini spilaði með KA, en þá um haustið varð hann fyrir slysi við vinnu sína, sem batt enda á farsælan knatt- - spyrnuferil hans. Snemma hneigðist Steinþór til bóklestrar, enda alinn upp í mikilli návist og natni við bækur, bæði hvað snerti innihald og útlit. Steini varð fljótt alæta á bækur og las jöfnum höndum höfuðskáldin sem og það sem léttara er talið. Þess vegna varð Steini fljótt mörgum jafnöldrum sínum fróðari um land og þjóð. Ég er ekki viss um að mörgum hafi verið kunnugt um hversu margfróður Steini var. Hann var þeirrar gerðar að hann mikl- aðist aldrei af eigin verkum eða þekkingu, var ef til vill á stundum hógværari en góðu hófí gegndi. Steinþór Þórarinsson bar ekki til- finningar sínar á torg. Engu að síð- ur var hann sérlega hjartahlýr og tilfinninganæmur. Mörgum sinnum áttum við löng samtöl um allt milli himins og jarðar, samtöl sem við geymdum og geymum um ókomna tíð hvor fyrir sig. í þeim samtölum var víða komið við, talað um íþrótt- ir, stjórnmál, íjölskyldur okkar og lífíð og tilveruna almennt. Oft á tíð- um fengum við séð tilveruna í öðru ljósi eftir þessi samtöl, sem voru okkur báðum afar mikilvæg. Eftir að Steinþór lauk námi við Gagnfræðaskóla Akureyrar vann hann ýmis störf þar til hann hóf trésmíðanám. Alls staðar var hann vel liðinn, hvort heldur af samstarfs- mönnum eða vinnuveitendum, enda gegnheill og vandaður maður. Öll störf vann Steini af mikilli natni og trúmennsku. Ég held að honum hafi ætíð verið nokkur eftirsjá í því að nýta ekki námshæfíleika sína og góða greind til frekara náms. Sumarið 1973 kom ung og falleg stúlka sunnan úr Reykjavík til sum- ardvalar á Akureyri. Hún heitir Laufey Jóhannsdóttir, dóttir Helgu Jónasdóttur kennara og Jóhanns Indriðasonar verkfræðings, sem er borinn og barnfæddur Akureyring- ur. Það er skemmst frá að segja að Laufey og Steini felldu saman hugi og gengu í hjónaband 1975. Með þeim var mikið jafnræði og kærleikar. Laufey er kennari við Hlíðaskóla. Þau bjuggu á Akureyri til 1986 þegar þau fluttu búferlum til Reykjavíkur þar sem Steini hóf störf hjá íslandsbanka og starfaði þar til dauðadags. Þau eiga þijú yndisleg böm, Helgu, fædda 1978, Atla Rúnar, fæddan 1980, og Hildi, fædda 1986. Enda þótt öllum væri ljóst hvert stefndi, bjó þó von í bijóstum að Steini mundi ná bata. Ekki síst var von og trú Steina mikil. Hann barð- ist hetjulegri baráttu, dyggilega studdur af sínum nánustu, sem og góðum vinum. Þeirri baráttu er lok- ið. Söknuður ríkir meðal þeirra sem kynntust Steinþóri Þórarinssyni. Mestur er missir og söknuður eigin- konu, barna, móður og systur, sem sjá á eftir eiginmanni, föður, syni og bróður í blóma lífsins. Það er mikil huggun harmi gegn að hafa átt þess kost að kynnast Steinþóri Þórarinssyni, sem alla tíð gaf meira af sér en hann þáði. Eftir lifa minn- ingar um óvenju vandaðan úrvals- mann. Megi góður Guð styrkja alla þá sem um sárt eiga að binda. Guðbjörg og Sigbjörn Gunnarsson. í dag kveðjum við kæran vin, Steinþór Þórarinsson, sem kvæntur var skólasystur okkar Laufeyju Jó- hannsdóttur. Við vorum fjórar vinkonur í menntaskóla sem stofnuðum spila- klúbb til að stytta okkur stundir í skólanum. Þetta varð upphaf mikill- ar vináttu og tengsla okkar á milli. Fjölskyldur okkar vinkvennanna tengdust síðar sterkum vináttu- böndum. Það var okkur mikið gleði- efni að sjá að vináttan blómstraði ekki síður á milli mannanna okkar. Þeir voru gæddir svipaðri kímnigáfu og Iífsgleði. Gaman var að hittast og voru margar ferðir farnar í sum- arbústaði sem og í utanlandsferðir. Þar naut Steini sín, hann var hrókur alls fagnaðar í söng og gleði og skemmtilegum uppátækjum. Hann var sannur vinur vina sinna og allt- af reiðubúinn að leggja öðrum lið. Fyrir þremur árum kom í ljós að Steini vinur okkar gekk ekki heill til skógar. Þrátt fyrir það hélt hann sínu striki. Hann kvartaði aldrei og sýndi alltaf sama æðruleysið þó að sjúkdómurinn þrengdi hag hans sí- fellt meir og herti tökin. Jafnvel í ferð klúbbsins sl. haust var hánn eins og endranær sá sem lengst vakti og mest söng. Þannig viljum við minnast hans sem hins glaða, skemmtilega félaga og vinar. Nokkrum dögum fyrir andlát Steina kom hópurinn saman og átti góða stund. Við renndum þá ekki gnln í að vinur okkar ætti svo skammt eftir ólifað. Hópurinn á eft- ir að sakna Steina mikið og hans skarð verður ekki fyllt. Elsku Steini. Við þökkum þér all- ar góðu samverustundirnar og gleð- ina sem þú veittir okkur. I huga okkar allra lifír minningin um góðan dreng. Elsku Laufey, Helga, Atli, Hild- ur, Valný og aðrir ættingjar. Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg og söknuði. Guðrún og Guðmundur, Kristín og Valgeir, Vigdís og Björn. Mig langar til að minnast vinar míns Steinþórs Þórarinssonar sem lést langt um aldur fram eftir erfið veikindi. Steinþór var fæddur og uppalinn á Akureyri og kynntist ég honum er ég steig mín fyrstu spor í meist- araflokki KA í knattspyrnu. Stein- þór var þar fyrir og var einn af bestu leikmönnum liðsins. Tók Steinþór vel á móti nýliðanum og var gott að vera undir handleiðslu hans, njóta reynslu hans og þekk- ingar og kynnast þeim vilja sem hann bjó yfír. Steinþór bjó yfir feikn- amiklum keppnisanda og sigurvilja og fór út í alla leiki með því hugar- fari að sigra. Segja má að hann hafi barist við sjúkdóm sinn með sama hugarfari. Hann hafði ekki hátt um hlutina heldur tókst á við þá með sínu lagi. Eftir að við báðir höfðum stofnað fjölskyldur hófum við að ferðast saman á sumrin ásamt nokkrum vinafjölskyldum. Var sá hópur kallaður Útileguhópurinn og fórum við um verslunarmannahelg- ar í tjaldferðalög. Nú er stórt skarð höggvið í þann hóp. Margs er að minnast frá þessum ferðum, hvort sem er grillveisla í Vaglaskógi fyrir 12 árum eða Seljavöllum í ágúst um síðustu verslunarmannahelgi þegar við fórum í okkar hefðbundnu göngutúra, sem gátu orðið ansi langir og erfiðir, síðan í sund og loks grillveisla með tilheyrandi.Ekki var á Steinþóri að sjá að þar færi í raun fársjúkur maður. Tók hann þátt í öllu sem fært var af þeim krafti sem honum einum var gefinn. Síðastliðið ár störfuðum við saman að knattspyrnuþjálfun, en Steinþór hafði mikinn áhuga á þjálfun og unglingastarfí í íþróttum. Steinþór hafði mikið að gefa á þessu sviði, hann hafði mikla reynslu og þekk- ingu á knattspymuþjálfun og er það alveg víst að bæði ég og strákarnir eigum eftir að njóta þeirrar reynslu og þekkingar Steinþórs um ókomin ár. Aldrei lét hann sig vanta og er hann leysti mig af í eitt sinn er mér minnisstætt að strákamir höfðu á orði að þeir hefðu sjaldan eða aldrei fengið jafn góða hvatningarræðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.