Morgunblaðið - 24.02.1994, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
ÓLYMPÍULEIKARNIR í LILLEHAMMER
„Óvæntasti sigur
minn á löngum ferf i“
sagði Þjóverjinn Markus Wasmeier eftirfrækinn sigur í stórsviginu
M ARKUS Wasmeier frá Þýska-
landi gerði það sem engan
hefði órað fyrir, að sigra í stór-
svigi karla á
Ólympíuleikunum
héríLillehammer
í gær og vann þar
með önnur gull-
verðlaun sína á
leikunum. „Gutl-
verðlaunin í
risasviginu gerðu
það að verkum að
ég var ekki undir
neinum þrýstingi.
Ég tók þátt í
stórsviginu til að
hafa gaman af og
það hafði ég svo
sannarlega. Ég bjóst aldrei við
sigri. Þetta er óvæntasti sigur
minn á töngum ferii," sagði
Wasmeier eða „Super Wasi“
eins og hann er nú kallaður
hér.
w
asmeier er þrítugur og vann
síðast stórmót er hann varð
heimsmeistari fyrir níu árum. Hann
^■■■■■1 komst ekki í fyrsta
ValurB. ráshóp í stórsviginu,
Jónatansson startaði númer 17.
skrifar frá Þegar hann kom nið-
Lillehammer ur eftir fyrrj ferðina
á næst besta tímanum trúði hann
ekki eigin augum er hann leit á tíma-
töfluna. „Getur þetta verið rétt,“
öskraði hann og kunni sér varla
læti. En annar keppandi átti einnig
eftir að koma á óvart, Urs Kaelin
frá Sviss, sem hafði rásnúmer 20.
Hann náði næst besta tímanum á
eftir Christian Mayer frá Austurríki.
Þeim sem var spáð bestu gengi
fyrir keppnina náðu sér ekki á strik.
Marc Girardelli frá Lúxemborg
keyrði útúr brautinni þegar hann
átti eftir fjögur hlið í markið. Hann
þarf því enn að bíða eftir Ólympíu-
gullinu og fær einn séns í viðbót —
í sviginu á sunnudag. Alberto Tomba
var með 13. besta tímann eftir fyrri
umferð og sagðist ekki hafa verið
nógu ákveðinn og helsta von Norða-
Annað gull Wasmeiers
ÞJÓÐVERJINN Markus Wasmeier fékk önnur gullverðlaun sín í gær er hann sigraði í stórsviginu, en hann sigraði einnig
í risasviginu á dögunum. Á innfelldu myndinni fagnar hann ásamt Kaelin frá Sviss, til vmstri, og Mayer frá Austurríki,
til hægri, sem varð í þriðja sæti þrátt fyrir besta tímann eftir fyrri ferðina.
manna, Ketil Andre Aamodt, var
langt frá sínu besta, með aðeins 18.
besta tímann.
Það var því spenna í síðari umferð
og áhorfendur sem voru um 50 þús-
und voru vel með á nótunum. Tomba
var í vandræðum alla leiðina og kór-
ónaði það með því að sleppa hliði
rétt fyrir ofan markið. Þegar þrír
bestu eftir fyrri umferð áttu eftir að
fara var Norðmaðurinn Jan Einar
Thorsen í fyrsta sæti og heimamenn
kátir. En næstur kom Wasmeier.
Hann keyrði hreint frábærlega, var
eins og fíðrildi á milli stanganna og
viti menn hann náði besta tímanum.
„Ég hefði verið mjög ánægður með
þriðja sætið og bjóst við að Mayer
og Kaelin tækju mig,“ sagði Ólymp-
íumeistarinn. Kaelin keyrði vel en
var aðeins 0,02 sek. á eftir Wasmei-
er. Þá var spennan í hámarki, May-
er, sem hafði 0,35 sek. forskot eftir
fyrri ferð, fór niður. Fyrsti milli-
tíminn lofaði ekki góðu, hann hafði
þá strax misst niður forskotið á
Wasmeier og náði sér ekki vel upp
og varð að sætta sig við 10. besta
tímann í síðari umferð og bronsverð-
launin.
Wasmeier kemur frá smábænum
Schliersee sem er í Bæjarlandi. Hann
giftur og varð pabbi í fyrsta sinn
fyrir sex mánuðum. Fjölskylda hans
var öll á staðnum og samfagnaði
honum. „Nú verður slegið upp
veislu,“ sagði einn félaga hans eftir
sigurinn. En.veislan var ekki fyrir-
hugð því enginn átti von á gullinu.
Ólympíumeistarinn æfði með sænska
alpagreinaliðinu fyrir Ólympíuleika
og segir hann að það hafi hjálpað
sér. Hann er ekki á því að hætta
eftir þetta keppnistímabil þó hann
sé að komast á fertugsaldurinn.
„Wasmeier átti sigurínn fyllilega
skilinn. Ég er mjög ánægður með
silfurverðlaunin og þau eru kærkom-
in fyrir okkur Svisslendinga," sagði
hinn smávaxni Kaelin, en Svisslend-
ingar hafa ekki verið mikið á verð-
launapalli hér. „Ég er ekki vonsvik-
inn yfir að hafa misst af gullverð-
laununum. Ég var mjög taugaóstyrk-
ur fyrir síðari umferðina og þoldi
einfaldlega ekki spennuna," sagði
Mayer sem er 22 ára.
„Góð síðari umferð“
- sagði Kristinn Björnsson-sem hafnaði í 30. sæti ístórsvigi
„ÉG er mjög ánægður með seinni umferðina og eins sætið,“
sagði Kristinn Björnsson sem hafnaði í 30. sæti í stórsvigi á
Ólympíuleikunum í gær. Þjóðverjinn Markus Wasmeier sigraði
og vann þar með önnur gullverðlaun sín á leikunum því hann
sigraði einnig i risasvigi. Kristinn var ekki eins ánægður með
fyrri umferðina, enda hlekktist honum aðeins á í miðkafla braut-
arinnar sem kostaði hann eina til tvær sekúndur.
Kristinn sagði að þetta hefði
verið mjög erfitt, hann hefði
stífnað upp síðari hlutann í báðum
umferðum. Hann
VgiurB var * 38. sæti eftir
Jónatansson fyrri umferð, 5,46
skrifarfrá sekúndum á eftir
Lniehammer Christian Mayer frá
NISSAIU
í stööugri sókn
Austurríki sem náði bestum tíma.
En Kristinn tók sig á í síðari um-
ferðinni. Náði 28. besta tímanum
og var þá 3,53 sek. á eftir Ólympíu-
meistaranum Wasmeier og hafnaði
í 30. sæti af 34 keppendum sem
komust í mark, en 61 keppandi hóf
keppnina.
„Brautirnar voru mjög góðar og
það sá ekki á þeim þegar ég fór
niður, alveg eins og ég væri í fyrsta
ráshópi, engin spor eða neitt. Síð-
ari umferðin var góð hjá mér, enda
bætti ég mig um tvær sekúndur
miðað við besta tímann í fyrri um-
ferð. Ég var ákveðinn að gera betur
í seinni umferðinni og kannski var
ég full djarfur. Seinni brautin var
hraðari, en ég held að fyrri brautin
hefði átt að henta mér betur því
það voru krappari beygjur í henni,“
sagði Kristinn.
- Er það eðlilegt að vera 8,70
sekúndum á eftir þessum „stóru“
nöfnum?
„Já, ég held að það sé mjög eðli-
legt því ég hef ekki æft svo mikið
stórsvigið í vetur og aðeins keppt
í þremur mótum og æft nokkra
daga. Svigið er aðalgreinin hjá
mér. Ég er því ánægður og þetta
er svipað og ég hafði búist við fyrir-
fram.“
Kristinn getur verið ágætlega
sáttur við frammistöðuna. Hann tók
áhættu, sem gekk ekki alveg upp
í fyrri umferðinni, en aftur tókst
honum vel upp í síðari umferðinni.
Þegar Kristinn fór niður var hann
kynntur í hátalarakerfínu og sagt
að hann æfði í Noregi og fékk því
enn meiri stuðning áhorfenda sem
klöppuðu íslendingnum lof í lófa.
Það má segja að úrslitin hafi
verið mjög óvænt, enda keyrðu
stóru nöfnin, Alberto Tomba og
Marc Girardelli, báðir útúr. Kjetill
Andre Aamodt náði aðeins 18. besta
tímanum í fyrri umferð og voru það
mikil vonbrigði fyrir Norðmenn sem
bundu miklar vonir við hann.
Ásta S. Halldórsdóttir keppir í
stórsyigi kvenna í dag. ;
■ MET var slegið í Lállehammer á
laugardag. Talið er að 150 þúsund
manns hafí lagt leið sína á Ólympíuleik-
ana og heimsótt þennan 23ja þúsund
manna bæ. Mikið líf var í Storgatan,
göngugötunni. Fólksfjöldinn fyllti göt-
una sem var eins og full síldartunna
■ ALBERT príns af Mónakó tekur
þátt í Ólympíuleikunum eins og í
Albertville fyrir tveimur árum. Hann
tekur þátt í sleðakeppninni, bæði á
tveggja manna sleða og eins í bob-
sleðakeppnin þar sem fjórir eru um
borð. Hann varð í 32. sæti í keppni
tveggja manna sleða á laugardaginn,
en það er mun betri árangur en hann
náði í Albertville en þar varð hann í
43. sæti.
■ BORIS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, er ekki ánægður með gengi
landa sinn á leikunum þrátt fyrir að
þeir hafi unnið fímm gullverðlaun.
Þetta er haft eftir Vitali Smirnov,
formanni rússnesku ólympíunefndar-
innar, sem talaði við forsetann. Jelts-
ín hefur haft miklar mætur á íshokkí-
landsliðinu og ætlaði að koma til
Lillchammer til að sjá það leika, en
hætfí við vegna anna heimafyrir,1
ÚRSLIT
ÓL í Lillehammer
7.5 km skíðaskotfimi kvenna
Árangur efstu manna og innan sviga er
hvað skot hittu ekki mark.
1. Myriam Bedard (Kanada)...26.08,8 (2)
2. S. Paramygina (H-Rússl.)...26.09,9 (2)
3. V. Tserbe (Úkraína)......26.10,0 (0)
4.1. Sheshikl (Kazakhstan) ....26.13,9 (2)
5. P. Schaaf (Þýskaland).....26.33,6 (2)
6.1. Kokuyeva (H-Rússl.)....26.38,4 (2)
7. Nathalie Santer (Ítalía).26.38,8 (3)
8. S. Memm (Þýskaland)......26.46,5 (3)
9. Eva Hakova (Tékkland)....26.48,2 (1)
10. E.S. Kristiansen (Noregi) ...26.53,5 (0)
10 km skíðaskotfimi karla
1. Sergei Chepikov (Rússl.) ....28.07,0 (0)
2. RiccoGross (Þýskalandi)....28.13,0 (0)
3. Sergei Tarasov (Rússl.)...28.27,4 (1)
4. V. Dratchev (Rússlandi)...28.28,9 (1)
5. L. Gredler (Austurríki)...29.05,4 (2)
6. Frank Luck (Þýskalandi) ....29.09,7 (2)
7. Sven Fischer (Þýskalandi) ..29.16,0 (1)
8. Herve Flandin (Frakkl.)...29.33,8 (1)
9. Janez Ozbolt (Slóveníu)...29.35,8 (0)
10. A. Popov (H-Rússlandi)....29.38,5 (0)
Stórsvig karla
Fallhæð 467. Hlið voru 65 í fyrri ferð, en 64
í seinni ferð.
1. Markus Wasmeier (Þýskal.).....2.52.46
(1.28,71/1.23,75)
2. Urs Kaelin (Sviss)............2.52,48
(1.28,70/1.23,78)
3. Christian Mayér (Austurríki) ....2.52,58
(1.28,34/1.24;24)
4. Jan EinarThorsen (Noregi).....2.52,71
(1.28,78/1.23,93)
5. Rainer Salzgeber (Austurríki).,.2.52,87
(1.29,51/1.23,36)
6. Norman Bergamelli (Italíu)....2.53,12
(1.29,39/1.23,73)
7. Lasse Kjus (Noregi)...........2.53,23
(1.29,07/1.24,16)
8. Bernhard Gstrein (Austurr.)...2.53,35
(1.29,13/1.24,22)
9. Jeremy Nobis (Bandar.)........2.53,60
(1.29,02/1.24,58)
10. G. Koenigsrainer(ítalíu)......2.53,61
(1.29,16/1.24,45)
11. Guenther Mader (Austurríki) ....2.53,66
(1.29,37/1.24,29)
12. Kjetil Andre Aamodt (Noregi)...2.53,91
(1.30,03/1.23,88)
13. Franck Piccárd (Frakklandi)...2.53,97
(1.29,79/1.24,18)
14. Mitja Kunc (Slóveníu).........2.54,07
(1.28,90/1.25,17)
15. T. Barnerssoi (Þýskalandi)....2.54,49
(1.29,96/1.24,53)
16. Thomas Grandi (Kanada)........2.54,76
(1.29,97/1.24,79)
17. Iati Piccard (Frakklandi).....2.54,85
(1.30,21/1.24,64)
18. Fredrik Nyberg (Svíþjóð)......2.54,94
(1.29,96/1.24,98)
19. Paul Accola (Sviss)...........2.54,96
(1.30,21/1.24,75)
20. Robert Crossan (Kanada).......2.56,10
(1.30,85/1.25,25)
21. Achim Vogt (Liechtenstein)....2.56,38
(1.31,12/1.25,26)
22. Jemej Koblar (Slóveníu).......2.56,67
(1.30,75/1.25,92)
23. Jure Kosir (Slóveníu).........2.57,10
(1.31,30/1.25,80)
24. GregorGrilc (Slóveníu)........2.57,13
(1.31,38/1.25,75)
25. Johan Wallner (Svíþjóð).......2.57,46
(1.31,57/1.25,89)
26. Kiminobu Kimura (Japan).......2.58,50
(1.31,86/1.26,64)
27. Vedran Pavlek (Króatía).......2.58,91
(1.32,13/1.26,78)
28. Javier Ubeira (Spánn).........2.59,35
(1.32,07/1.27,28)
29. Gianfranco Martin (Ítalíu)......2.59,84
(1.32,28/1.27,56)
30. Kristinn Björnsson............3.01,16
(1.33,88/1.27,28)
■61 keppendur hófu keppni, en 34 luku
henni. 17 féllu úr í fyrri umferð, en 10 i
seinni umferðinni.
1.000 skautahlaup kvenna
1. Bonnie Blair (Bandaríkin)...1.18,74
2. Anke Baier (Þýskalandi)......1.20,12
3. Ye Qiaobo (Kína)............1.20,22
4. Franziska Schenk (Þýskal.)..1.20,25
5. M. Garbrecht (Þýskalandi)....1.20,32
6. Shiho Kusunose (Japan)......1.20,37
7. Emese Hunyady (Austurríki) ....1.20,42
8. Susan Auch (Kanada)..........1.20,72
9. Oksana Ravilova (Rússland)...1.20,82
10. NatalyaPolozkova (Rússl.)....1.20,84
IMorræn tvíkeppni sveita
Úrslit eftir stökk af 90 m palli í norrænni
tvíkeppni sveita:
Stig:
1. Japan.........................733.5
2. Noregur.......................672.0
3. Sviss.........................643.5
4. Eistland......................619.0
5. Austurríki....................609.0
6. Tékkland..................... 603.5
7. Bandaríkin....................602.0
8. Þýskaland.....................595.0
9. Finnland......................592.0
10. Frakkland.....................557.5
11. Italía........................544.5
12. Rússland......................503.0
FELAGSLIF
Þjálfararáðstefna
Knattspymuþjálfarafélag íslands heldur
ráðstefnu um knattspymuþjálfun laugar-
daginn 26. febrúar í KA-heimilinu á Akur-
eyri. Þátttaka tilkynnist til Bjarna St. Kon-
ráðssonar (91-630363 eða 30533) eða
Bjarna Jóhannssonar (91-668660 eða
668566).,; innujlliije uileiovítb