Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 56

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 56
m HEWLETT PACKARD HP Á ÍSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐID. KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Innflutningshindranir Frakka Fundur í sameigin- legu EES-nefndinni í Brussel á þriðjudag FUNDUR vegna innflutningshindrana Frakka á sjávarafurðum verður haldinn í sameiginlegu EES-nefndinni í Brussel nk. þriðju- dag. Hannes Hafstein, sendiherra Islands í Belgíu og fulltrúi Is- lands í sameiginlegu EES-nefndinni, gengur á föstudag á fund Hans van den Broek, sem fer með utanríkismál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins. Að sögn Gunnars Snorra Gunn- arssonar, forstöðumanns viðskipta- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, stóð valið um að halda fund með varamönnum í sameiginlegu EES- nefndinni í þessari viku eða bíða eftir að aðalmenn losnuðu úr aðild- arviðræðum við þau ríki sem hafa sótt um inngöngu í Evrópusam- bandið. Þeim viðræðum verður að vera lokið fyrir mánaðamót. Bandamanna aflað Gunnar Snorri sagði að starfs- menn utanríkisþjónustunnar hefðu síðustu daga verið í sambandi við þau ráðuneyti í Frakklandi sem málið varðar; utanríkis-, Evrópu- mála- og forsætisráðuneyti, þing- menn, hagsmunasamtök, bæjarfé- lög, sveitarstjórnamenn, héraðs- stjórnir og fleiri. „Málið snýst um að til þess að byggja upp þrýsting og skilning á okkar málstað þá þurfum við bandamenn. Þá verð- um við að sækja okkur innanlands í Frakklandi og hjá öðrum samn- ingsaðilum; EFTA-ríkjum, Evr- ópusambandsríkjum og fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins,“ sagði Gunnar Snorri. Hagnaður Búnaðar- banka 47 milljónir AFKOMA Búnaðarbankans batnaði mjög á síðasta ári miðað við árið á undan. Bank- inn skilaði þá 47 milljóna kr. hagnaði eftir að dregnar höfðu verið frá 37 milljónir í skatta en á árinu 1992 tap- ,>- aði bankinn 31,5 milljón kr. A síðasta ári voru 1.190 millj- ónir kr. lagðar á afskriftar- reikning og er það liðlega 550 milljónum kr. meira en árið áður þegar 637 milljónir kr. voru lagðar til hliðar til að mæta væntanlegum afskriftum útlána. Afskrifuð voru endan- lega útlán að Qárhæð 872 millj- ónir og voru 1.374 milljónir kr. eftir á afskriftarreikningnum um áramótin. Jón Adolf Guðjónsson, _ bankastjóri Búnaðarbankans, segir stjórnendur bankans vera tiltölulega sátta við afkomuna, miðað við ástandið í þjóðfélag- inu, þó bankinn þurfi að hafa meiri hagnað. Hann telur að afskriftir hafi náð hámarki á síðasta ári og því sé útlit fyrir að verulega dragi úr afskriftar- þörfinni á yfirstandandi ári. Sjá Viðskipti/Atvinnulíf, bls. Bl. Einstök atriði hindrana Á fundi sameiginlegu EES- nefndarinnar í Brussel á miðviku- daginn í síðustu viku var aðallega fjallað um lágmarksverð á sjáv- arafurðum auk þess sem borin voru fram hörð mótmæli við inn- flutningshindrunum sem frönsk yfirvöld hafa beitt. Á fundinum á þriðjudag verður fjallað í einstök- um atriðum um hvernig landa- mæra- og heilbrigðiseftirlit er not- að til að hindra innflutning. Þá munu samningsaðilar hafa kannað þau gögn sem lögð voru fram á síðasta fundi auk þess sem gögn um það sem síðan hefur gerst verða lögð fram. Á fundinum verður einnig fjall- að-um hártoganir Frakka á toll- fríðindum en þeir innheimta nú 8% toll af grálúðu. „Núna er þetta sett upp þannig að tollarnir fást ekki niðurfelldir nema lögð séu fram vottorð um að varan sé að fara í frekari vinnslu sem eru ekk- ert nema hártoganir. Það er ekki hægt að setja skilyrði af þessu tagi,“ sagði Gunnar Snorri. í sól og blíðu Morgunblaðið/Árni Sæberg Menn þurfa ekki að fara til Lillehammer til þess að njóta sólar og góðs skíðafæris. Þessi stúlka sat makindalega í skíðalyftu í Bláfjöllum í gær. Biðin í lyfturnar er áreiðanlega meiri á ólympíusvæðinu. Forsætisráðherra um tillögu formanns landbúnaðamefndar við búvörufrumvarpið Skoða þarf nánar tenging- una við GATT-samningana Alþýðuflokkurinn hafnar tillögunum og fjármálaráðherra vill breytingar DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að flestar þær breytingartil- lögur sem Egill Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar, lagði fram við búvörulagafrumvarpið í gær séu til þess fallnar að skýra málið og hafnar því að breytingartillögurnar séu brot á desembersamkomu- lagi ríkisstjórnarflokkanna- um búvörumál. Þó þurfi að skoða nánar tenginguna við GATT-samningana. Þingflokkur Alþýðuflokksins hafnar tillögunum og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði eftir þingflokksfund í gær að þær væru brot á samkomulagi stjórnarflokkanna og vinnubrögðin ekki í samræmi við samkomulag formanna stjórnarflokkanna síðastliðinn sunnudag. Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra telur að breyta þurfi frumvarpsdrögunum þó hann segi jafnframt að margt í þeim sé til bóta. skilning að ræða milli sín og Davíðs í þessu máli, og sjálfur hefði hann ekki brotið neitt samkomulag sem gert hafi verið. Alþýðuflokkurinn óskar eftir sérstökum fundi Jón Baldvin óskaði í gær eftir því við forystumenn Sjálfstæðis- flokksins að fulltrúar allra viðkom- andi ráðuneyta og lögfræðingar formanns landbúnaðarnefndar færu sameiginlega yfir málið á ný á sér- stökum fundi til að reyna að ná sameiginlegri niðurstöðu og mæltist jafnframt til þess að fundi landbún- aðarnefndar sem boðaður hefur verið í dag verði frestað. Sjá nánar á miðopnu. Friðrik sagðist telja að málið væri ennþá á vinnslustigi og skoða þurfi betur örfá atriði. „Ég sé ekki ástæðu til þess á þessari stundu að blanda GATT-tollum inn í þessa umræðu enda á sú nefnd sem for- sætisráðherra skipaði að fjalla um það mál,“ sagði hann. Breytingartillögurnar skýra málið Davíð Oddsson segir að skoða þurfi nánar þá tengingu við GATT- samningana, sem er í breytingartil- lögum formanns landbúnaðar- nefndar við búvörulagafrumvarpið. Davíð sagði við Morgunblaðið, að stjórnarflokkarnir yrðu að ræða um það sem bæri á milli þeirra í búvörulagadeilunni og ná um það samkomulagi. Hann sagði þó ekki vafa um það í sínum huga að lang- flestar af þeim breytingartillögum, sem Egill Jónsson lagði fram í gær við búvörulagafrumvarpið, séu til þess fallnar að skýra málið mjög mikið. Egill Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið að sér hefði ekki ver- ið gerð nein sérstök grein fyrir því samkomulagi sem Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson hefðu gert síðastliðinn sunnudag. Hann teldi að ekki væri um neinn mis- Ánægður minkur í Má TOGARINN Már SH 127 frá Ólafsvík er væntanlegur þangað í dag. Það verða þó ekki eingöngu skipveijar sem stíga þá í land, heldur líklega einnig óvenjulegur laumufarþegi, minkur. Einar Guðlaugsson, sem nú ir veiðarfærum og í öllum skot- leysir skipstjóra Más af, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að skipverjar hefðu orðið varir við minkinn fjórum dögum áður. „Hann er eitthvað að þvæl- ast hérna á dekkinu," sagði Ein- ar. „Við höfum nú ekki reynt mikið til að ná honum, enda er það erfitt, því hann felur sig und- Einar sagði að minkurinn virt- ist ánægður með vistina, enda væri hann fiskæta og fengi því fylli sína á dekkinu. „Hann gerir sjálfsagt engum mein en við losum okkur við hann þegar við komum í land.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.