Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 Forræðisdeila Emu Eyjólfsdóttur og James Brían Graysons Móðurínni dæmt for- ræði yfir dóttur sinni HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Ernu Eyjólfsdótt- ir forræði dóttur hennar og James Brian Grayson en sem kunnugt er leiddi forræðisdeila þeirra m.a til þess að Gray- son, Don Feeney og starfsmenn hans reyndu að nema telpuna og hálfsystur hennar á brott frá landinu. Foreldrar telpunnar voru giftir í Bandaríkjunum en Erna fór úr landi og til íslands í trássi við bann dómstóls í Flórída sem síðan úr: skurðaði föðurnum forræðið. í framhaldi af því var reynt að nema börnin á brott en eftir þá sátu Grayson og Feeney um tíma í fang- elsi hér á landi. Við dómsmeðferð málsins sem lauk í gær var m.a. lagðár fram skýrslur sálfræðinga um heimilis- hagi og tengsl mæðgnanna. Faðir telpunnar hafði staðhæft að móðirin væri vanhæfur uppal- andi en sálfræðingarnir telja að meðan móðirin haldi sig frá neyslu áfengis og lyfja sé hæfni hennar sem uppalanda óskert en hún stundi nú líferni sem auki líkurnar á að henni takist að halda fíkn sinni í skefjum. Þá var það mat sálfræðinganna að athugun á forsjárhæfni hennar hefði sýnt að hún hefði gott næmi fyrir tilfinningalegum þörfum bamsins og hafi hlý og sterk tengsl við barnið og sé því mikilvæg. Barnið sé nú í góðu jafnvægi, sé tilfinningalega vel ræktað, líkam- legum þörfum þess sé vel sinnt og það hafí fengið fullnægjandi örvun. Stúlkan hafí sterk og hlý tilfinn- ingatengsl við móður sína og upp- lifi ríka væntumþykju frá henni. Aðlögun hennar sé góð í skólanámi sem jafnaldrahópi og væri stöðug- leiki á því sviði vafalaust æskileg- ur. Mat sálfræðinganna var að æskilegt væri að barn sem upplifað hefði slíkt rót sem telpan fái tæki- færi til að festa rætur í sínu félags- lega umhverfi án frekara umróts. í samræmi við þetta og ákvæði barnalaga um að við úrlausn for- sjármála beri að taka mið af því sem er barninu fyrir bestu var það Morgunblaðið/Árni Sæberg Dómsuppkvaðning ERNA Eyjólfsdóttir og lögmaður hennar, Hróbjartur Jónatansson hrl., standa upp þegar Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari gengur í dómsalinn. niðurstaða Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara að við núverandi aðstæður væri það baminu fyrir bestu að móðirin fari með forsjá þess. Meðan á forsjárdeilunni hefur gilt um umgengnisrétt föðurins úrskurður sýslumanns í Reykjavík um að hann skuli njóta umgengni við telpuna 4 klst. tvisvar í viku þegar hann dvelst hér á landi undir eftirliti barnaverndamefndar. Halldór Blöndal samgönguráðherra VEÐUR VEÐURHORFUR IDAG, 1. MARZ YFIRLIT: Yfir landinu austanverðu er 1.024 mb mínnkandi hœð, en á suðvestan- verðu Grænlandshafi er kyrrstæð 980 mb lægð. Önnur lægð, 990 mb, um 800 km suðsuðvestur af Reykjanesi, hreyfist norðnorðaustur og síðar norður. SPÁ: Nokkuð hvöss suðaustanátt, einkum sunnanlands og vestan. Délítil rigning sunnanlands í fyrramálið og einnig suðaustan- og austanlands siðdegis, en um landið norðanvert verður þurrt og sumstaðar bjart veður. Hlýnandi veður og á morgun verður frostlaust á láglendi um landið alft. STORMVIÐVÖRUN Búist er við stormi á Suðvesturmlðum, Faxaflóamiðum, Vestur- djúpi og Suðurdjúpi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suðvestanátt, strekkingur allra syðst á landinu en annars hægari. Éljagangur, einkum sunnanlands og vestan. Frost á bilinu 2 til 8 stig, kaldast í innsveitum nyrðra. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svar- sími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg sunnan- og suðaustanátt, snjókoma á Suð- ur- og Suðausturlandi en annars skýjað en þurrt. Áfram fremur kalt. Q Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað * / * * / r * r Slydda * Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma ■A Skýjað V $ Skúrir Slydduél Alskýjað * V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig v Súld = Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgær) Upptýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima Akureyri Beykjavík hlti veður -i-2 léttskýjað 1 snjóél Bergen +2 Helsinki +12 Kaupmannahöfn +1 Narssarssuaq 0 Nuuk 6 Ósló +5 Stokkhólmur +9 Þórshöfn 3 léttskýjað léttskýjað skýjað snjókoma skýjað skýjað skýjað skýjað Algarve 14 skýjað Amsterdam 8 rignlng Barcelona vantar Berlín 7 alskýjað Chicago +2 snjókoma Feneyjar 10 þokumóða Frankfurt 10 skýjað Glasgow 3 rigning Hamborg 2 rigning London 10 skýjað LosAngeles 18 mistur Lúxemborg 10 skýjað Madríd 10 skýjað Malaga 13 skýjað Mallorca 14 skýjað Montreal +11 léttskýjað NewYork +2 léttskýjað Orlando 22 skýjað ParÍ6 11 hálfskýjað Madelra 15 léttskýjað Róm 14 þokumóða Vín 8 alskýjað Washington 2 skýjað Wlnnipeg +10 skýjað I DAG kl. 12.00 , 5° , Heimlld: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.30 i gær) 100 millj. til land- kynningar erlendis HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra hefur hrundið af stað átaki sem ætlað er að lengja ferðamannatímann hér á landi í báðar áttir, og verður í því skyni varið 100 miiljónum króna til landkynningar erlendis sem staðið verður að með öðrum hætti en áður. Auk samgönguráðuneytisins standa Flugleiðir og Framleiðnisjóður landbúnaðarins að átakinu. Þá hefur samgönguráðherra ákveðið að sú deild Ferðamálaráðs sem snýr að skipulagningu ferðaþjónustu innaniands, afþreyingu og umhverfisvernd verði sett niður á Akureyri og vinni í samvinnu við Byggðastofnun þannig að mannafli hennar nýt- ist I öðrum fjórðungum. Halldór sagði í ræðu sem hann flutti við setningu Búnaðarþings að með þessu nýja fyrirkomulagi hefði hann trú á að ofangreindir þættir í starfsemi Ferðamálaráðs myndu styrkjast og koma ferðaþjónustu í sveitum sérstaklega til góða með aðstoð og leiðbeiningum um það hvernig unnt sé að nýta og draga fram sérstöðu eða möguleika ein- stakra byggða eða bæja. Hann sagði að umhverfisdeild Ferðamála- ráðs myndi vinna í nánu samráði við Landgræðsluna, Skógrækt rík- isins og umhverfisráðuneyti og jafnframt ráðunaut Búnaðarfélags íslands í ferðamálum. Varðandi landkynningarstarf er- lendis sagði Halldór að til mikils væri að vinna þar sem ferðaþjónust- an kæmi næst sjávarútvegi í gjald- eyrisöflun með um 15 milljarða króna eða 11% gjaldeyristekna, og .væri það þumalfingursregla að hver erlendur ferðamaður gefi jafn mikið í gjaldeyristekjur og eitt tonn af þorski. Bruggiðj- um lokað LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv- aði starfsemi tveggja brugggerða um helgina og fann auk þess landa í bíl grunaðra sölumanna sem stöðvaðir voru við umferðareftir- lit. í húsi í Mosfellsbæ var lagt hald á tvö eimingartæki og tvær 200 lítra tunnur af gambra. í húsi í Vogahverfi var lagt hald á eimingartæki og tunnu með gambra sem nýbúið var að leggja í. Þá voru ungir menn stöðvaðir á bíl á Suðurlandsbraut og fannst landi í bíl þeirra. Lögreglan hafði um skeið fylgst með bruggurunum og beið þess að þeir hæfu starfsemi að nýju en þeir höfðu áður verið grunaðir um þá iðju þótt ekki hafi hún sannast á þá fyrr en um helgina. Léstí umferðarslysi BANASLYS varð á Landvegi tæpa tvo kílómetra frá Suður- landsvegi, aðfaranótt sunnu- dags. 35 ára gamall maður beið bana þegar bíll sem hann ók lenti út af veginum og valt. Maðurinn, sem var einn á ferð, kastaðist út úr bílnum og var lát- inn er að var komið. Hann hét Guðmundur Björgvin Kristinsson, 35 ára gamall, fædd- ur 5. september 1958. Hann var búsettur á Hellu, hagfræðingur og stærðfræðingur að mennt og starfaði sem verkefnisstjóri fyrir atvinnuátak í vesturhluta Rangár- vallasýslu. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og son af fyrra hjónabandi. Guðmundur Björgvin Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.