Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 13

Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 13 Deilur um meðferð búvöruinnflutnings eftirJón Sigurðsson Þessar síðustu vikur og mánuði horfir þjóðin öldungis forviða á þróun mála um innflutning búvara og gjaldtöku af slíkum innflutn- ingi. Ýmsir þingmenn og ráðherr- ar virðist hafa það langtímum saman að aðalstarfi að þrefa sín í milli um þetta endemis ómál, milli þess sem þeir gefa um það yfirlýsingar í ijölmiðlum. Sá fréttaflutningur er þó ekki skýrari en svo, að maður með venjulega lestrargetu, sjón, heym og skiln- ing, nær ekki upp í þessa deilu. Að vísu hefur komist til skila yfirlýsing formanns landbúnaðar- nefndar Alþingis, efnislega á þann veg, að 50 þingmenn vilji, að land- búnaðarráðherra verði einvaldur um hvort og þá hveijar land- búnaðarvömr og ígildi þeirra megi flytja til landsins og hvaða gjöld skuli lögð á slíka vöm, sé innflutn- „Stéttarsamband bænda hefur sinn eigin ráðherra, sem síðastur manna ætti að hafa endanlegt úrskurðar- vald um hagsmuna- árekstra bænda við umhverfi sitt af sömu ástæðum og í tilbún- ingnum hér að fram- an.“ ingur hennar leyfður. Nú er það ljóst, að hér er fjall- að um hagsmuni, sem rekast á — annars vegar bænda, en hins veg- ar neytenda. Yfir þeim hagsmuna- árekstri svífa almennir hagsmunir hagkerfísins í úrvinnslugreinum landbúnaðarins. Væri hér á landi sérstakur ráð- herra Vinnuveitendasambands ís- lands, mundi engum heilvita manni koma til hugar að fá honum einveldi til úrskurðar um hags- munaárekstra Vinnuveitendasam- bandsins við Alþýðusamband ís- lands eða tollvernd fyrir aðila að Vinnuveitendasambandinu. Hann væri sjálfkrafa til þess vanhæfur. Stéttarsamband bænda hefur sinn eigin ráðherra, sem síðastur manna ætti að hafa endanlegt úrskurðarvald um hagsmunaá- rekstra bænda við umhverfí sitt af sömu ástæðum og í tilbúningn- um hér að framan. Viðskiptaráð- herra og utanríkisviðskiptaráð- herra, hveijir sem þeir eru, eiga að fara með viðskiptalegar og við- skiptapólitískar hliðar málsins og fjármálaráðherra með álagningu gjalda, en ríkisstjórnin í heild þarf á hveijum tíma að ráða til lykta Jón Sigurðsson stefnunni, sem þessir ráðherrar framkvæma. Ef 50 þingmenn vilja skipa málum þessum öðru vísi, eru sjálf- sagðir hlutir og heilbrigð skyn- semi búin að fá undarlegan sess á Alþingi. Höfundur er lögfræðingur. ■ Á LISTAHÁTÍÐ Alþýðu- bandalagsins í Hafnarfírði, 25. febrúar, var samþykktur fram- boðslisti flokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningamar í vor. List- ann skipa eftirtalin: Magnús Jón Árnason, bæjarfulltrúi, Lúðvík Geirsson, blaðamaður, Guðrún Árnadóttir, leikskólastjóri, Gunn- ar Baldursson, kennari, Hörður Þorsteinsson, viðskiptafræðing- ur, Ingibjörg Jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri, Símon Jón Jó- hannsson, framhaldsskólakenn- ari, Lára Sveinsdóttir, skrifstofu- maður, Sigurbjörg Sveinsdóttir, baðvörður, Sólveig Brynja Grét- arsdóttir, bankamaður, Kristján Hjálmarsson, nemi, Ingibjörg Björnsdóttir, nemi, Sveinþór Þórarinsson, afgreiðslumaður, ína Illugadóttir, húsmóðir, Ingr- ún Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur, Páll Árnason, verksmiðju- stjóri, Erling Ólafsson, náttúru- fræðingur, Bergþór Halldórsson, verkfræðingur, Sigrún Guðjóns- dóttir, listamaður, Sigurður T. Sigurðsson, formaður Vkmf. Hlíf- ar, Þorbjörg Samúelsdóttir, verkakona og Hulda Runólfsdótt- ir, fyrrverandi kennari. Metsölub/ad á hverjum degi! Fjölhæfni þessa vinnuþjarks birtist í mörgum myndum Vinnubílarnir frá Volkswagen hafa lyrir löngu skapaS sér afdráttarlausa sérstöSu hér á landi fyrir styrk, dugnaS og fjölhæfni. Atvinnubílstjórar hafa úr ýmsum góSum kostum aS velja, því Volkswagen Transporter getur tekiS á sig ýmsar myndir - allt eftir þörfum hvers og eins. Velja má á milli bensín- Volkswagen Transporter - bíll sem vinnur fyrir sérl og dísilhreyfla, burSargeta er á bilinu 1-1,2 tonn og farþegafjöldi getur veriS allt aS 10 manns. Bílarnir eru búnir aflstýri og eru meS framhjóladrifi eSa aldrifi. Vinnubílarnir frá Volkswagen eru undanþegnir virSisaukaskatti Volkswagen Oruggur á alla vegu! 0 (Tpi HEKLA V V y inflvfini 170-174 Laugavegi 170-174 Sími 69 55 00 10 1914-1994

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.