Morgunblaðið - 01.03.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 01.03.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 17 Útvarpslög til styrktar íslenskri dagskrárgerð eftir Tómas Inga Olrich Síðstliðinn þriðjudag, 22. febr- úar, voru tillögur útvarpslaga- nefndar að frumvarpi til laga um breytingu á útvarpslögum kynntar í ríkisstjórn. í tillögum sínum gengur útvarps- laganefnd út frá því sem meginfor- sendu í umijöllun um máiefni ís- lenskra ljósvakamiðla að þeir hafi mjög veruleg áhrif á menntun þjóð- arinnar og menningu. Framleiðsla dagskrárefnis, einkum í sjónvarpi, er mjög dýr, ekki síst þegar um svo takmarkað málsvæði er að ræða sem ísland er. Af þeim sökum á innlend dagskrárgerð í mjög harðri og ójafnri samkeppni við erlent myndefni. Myndefni frá ensku málsvæði hefur öðlast yfírburðastöðu á al- þjóðlegum markaði og orðið stærri málsvæðum en okkar landi tilefni til viðbragða. Markaðsstaða efnis frá ensku málsvæði er slík að ensk tunga hefur nú þegar haft veruleg áhrif á málfar íslendinga, ekki síst yngra fólks. Hlutur sjónvarpsefnis í þessari þróun er óumdeildur. Flutningur sjónvarpsefnis og hljóðvarpsefnis, sem sækir efnivið sinn í íslenskt samfélag og fjallar um innlend jafnt sem erlend mál frá íslenskum forsendum, er hluti af menningarlegri sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar. Er þá alls ekki átt við menningu í þröngri merk- ingu, heldur afþreyingu og skemmtiefni ekki síður en fræðslu- efni. í þessari víðu merkingu hug- taksins menning, verður Spaug- stofan nafntogaða að sjálfsögðu verðugt framlag til íslenskrar menningar. Þessi menningarbar- átta krefst árvekni, hún er ekki háð með stórviðburðum í eitt skipti fyrir öll, heldur í hversdagsleikan- um dag fyrir dag. Helstu tillögur í samræmi við þessa meginfor- sendu setur útvarpslaganefnd fram tillögur sem miða að því að styrkja verulega stöðu innlendrar dag- skrárgerðar, hjá Ríkisútvarpinu, hjá einkareknum ljósvakamiðlum og á vegum sjálfstæðra framleið- enda dagskrárefnis. Gagnvart Ríkisútvarpinu er það gert með því að auka ráðstöfunar- rétt stofnunarinnar yfir sjálfsaflafé sínu. Tillögur um að afnema 10% skatt á auglýsingar í útvarpi hafa mikla þýðingu fyrir Ríkisútvarpið. Á árinu 1992 nam þessi skattur rúmum 50 milljónum króna. Þetta fé rann til menningarsjóðs útvarps- stöðva sem greiddi lögbundið fram- lag Ríkisútvarpsins í rekstri Sinfón- íuhljómsveitarinnar og veitti enn- fremur ljósvakamiðlum styrk til dagskrárgerðar. Þótt Ríkisútvarpið fengi á ári hverju framlag úr sjóðn- um, voru þau framlög mun lægri en greiðsla RÚV til sjóðsins og hvíldi því menningarsjóður útvarps- stöðva sem byrði á Ríkisútvarpinu í stað þess að vera því til stuðnings. Ennfremur er yfirstjórn Ríkisút- varpsins einfölduð og fram- kvæmdastjórum fækkað. Er það gert til að skapa svigrúm fyrir betri nýtingu fjármuna til dagskrárgerð- ar og fækka boðleiðum. Slík skipu- lagsbreyting færir fjárhagslega ábyrgð nær þeim sem annast full- vinnslu dagskrárefnis og styrkir stöðu framkvæmdastjóra hljóð- varps og sjónvarps til að sinna daglegum rekstri og hafa fulla yfir- sýn yfir fjármál, tæknimál og dag- skrármál. Að því er varðar aðra ljósvaka- miðla þá njóta þeir afnáms auglýs- ingaskattsins, en auglýsingar eru eini tekjustofn hljóðvarpsstöðva í einkaeign. Til að bæta stöðu einka- rekinna ljósvakamiðla og sjálf- stæðra dagskrárgerðaraðila gerir útvarpslaganefnd þá tillögu að stofnaður verði sérstakur sjóður til eflingar innlendri dagskrárgerð á vegum þessara aðila. Fjár til sjóðs- ins verður samkvæmt tillögunum aflað með því að láta í hann renna tolla og vörugjöld af sjónvarps- og útvarpstækjum. Þessi gjöld hafa samkvæmt gildandi útvarpslögum átt að renna til Ríkisútvarpsins, en hafa í raun aldrei gert það nema árið 1986. Frá því ári hafa þessi gjöld runnið í ríkissjóð. Þessi gjöld hafa numið 90 til 120 milljónum eftir innflutningsmagni og verð- mæti búnaðarins. Miðað við þá fjár- muni sem menningarsjóður út- varpsstöðva hefur haft til úthlutun- ar til dagskrárgerðar, er hér um mikla aukningu íjármagns til fram- leiðslu innlends dagskrárefnis að ræða. % Þá ber þess að geta að útvarps- laganefnd setur fram tillögur sem tryggja réttarvernd útvarpsstöðva, sem senda út læsta dagskrá, gegn notkun svokallaðra sjóræningja- lykla. I fréttum hefur komið fram að Stöð 2 tapi árlega um 200 millj- ónum króna á ári á notkun slíkra lykla. Tillögurnar kynntar Formaður útvarpslaganefndar, sem þetta ritar, fór þess á leit við menntamálaráðherra að tillögurnar yrðu kynntar þingflokkum hið fyrsta, m.a. til þess að stjórnarand- staðan ekki síður en stjórnarflokk- arnir gætu kynnt sér málið áður en það yrði kynnt í íjölmiðlum. Var haldinn fundur sama dag og málið var kynnt ríkisstjórninni og sat formaður útvarpslaganefndar þann fund ásamt fulltrúum stjórnarand- stöðuflokkanna sem þingflokksfor- menn höfðu tilnefnt. Af hálfu Al- þýðubandalagsins sat fundinn þingmaðurinn Svavar Gestsson. Hann hefur nú kosið að leggjast gegn tillögum nefndarinnar í blaða- grein sem birtist í Morgunblaðinu 25. febrúar sl. og kallað þær „tillög- ur gegn þjóðarsátt". Greinin er byggð á samsafni af misskilningi, fljótfærni og rangfærslum. Er óhjá- kvæmilegt að gera mjög alvarlegar athugasemdir við málflutning þing- mannsins. Dagskrárgerðarsj óður útvarpsstöðva Svavar Gestsson hneykslaðist yfir því að stofnaður verði dag- skrárgerðarsjóður útvarpsstöðva sem Ríkisútvarpið geti ekki sótt í um framlög til dagskrárgerðar. Þetta sé gert með afnámi aðflutn- ingsgjalda sem tekjustofns fyrir Ríkisútvarpið. Þetta er mjög sér- kennileg túlkun á raunveruleikan- um. Aðflutningsgjöld (þ.e. tollar og vörugjöld af sjónvarps- og hljóð- varpstækjum) hafa ekki runnið til Ríkisútvarpsins síðan 1986. Þessi gjöld hafa runnið í ríkissjóð. Svavar Gestsson tók, sem sá ráðherra sem fór með málefni RÚV í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, ábyrgð á því að svipta Ríkisútvarp- ið þessum lögbundna tekjustofni 1989, 1990 og 1991. Þannig er raunveruleikinn ef þingmaðurinn vill horfast í augu við hann. Nú er hins vegar lagt til að þessi gjöld renni ekki í ríkissjóð, eins og verið hefur, heldur til dagskrárgerðar á vegúm sjálfstæðra dagskrárgerð- araðila og einkarekinna ljósvakam- iðla. Gegn því leggst Svavar Gests- son. RÚV og menningarsjóður útvarpsstöðva Tapar Ríkisútvarpið á því að geta ekki sótt í þennan nýja sjóð, eins og Svavar Gestsson fullyrðir? Nei, svo er ekki. Í gildandi lögum getur Ríkisútvarpið sótt í menning- arsjóð útvarpsstöðva um framlög til dagskrárgerðar. Það vill hins vegar svo óheppilega til fyrir Ríkis- útvarpið að það fjármagnar sjálft að miklu leyti þennan sjóð, leggur honum til rúman helming tekna hans á árinu 1992, svo dæmi sé tekið, en fær mun minna úr sjóðn- um. Á því ári lagði Ríkisútvarp- hljóðvarp menningarsjóði til 26 milljónir en fékk úr honum tæpar 4 milljónir. Ríkisútvarp-sjónvarp lagði menningarsjóði til tæpar 25 milljónir en fékk 13 úr honum. Starfsemi menningarsjóðs útvarps- stöðva var því ekki til styrktar Rík- isútvarpinu, eins og fyrrverandi menntamálaráðherra virðist álíta, heldur var sjóðurinn byrði á RÚV og öðrum útvarpsstöðvum. Stofn- unin hefur skaðast á starfsemi sjóðsins og gerði það alla tíð þegar Svavar Gestsson var menntamála- ráðherra og hafði ekki burði til að breyta þessu fyrirkomulagi. Út- varpslaganefnd leggur nú til að þessari gjaldtöku af Ríkisútvarpinu og öðrum ljósvakamiðlum verði hætt og útvarpsstöðvar og þar með RÚV fái að ráðstafa auglýsingafé sínu að vild, og þá væntanlega til dagskrárgerðar. Gegn því leggst Svavar Gestsson og telur það veikja Ríkisútvarpið. Endurvarp Þá telur Svavar Gestsson að út- varpslaganefnd hafi gert tillögur um það að Ríkisútvarpið „geti ekki endurvarpað í heild erlendum dag- skrám eins og gerðist í Persaflóa- stríðinu“. Þetta er misskilningur og er hvergi að finna slíkar tillögur í frumvarpi nefndarinnar. Útvarps- laganefnd lagði fram frumvarp á síðastliðnum vetri sem varð að lög- um á 116. löggjafarþingi. Sam- kvæmt þeirri lagabreytingu varð heimilt að dreifa, án íslensks texta, fréttum eða fréttatengdu efni sem sýnir „atburði, sem gerast í sömu andrá“. Við þessar aðstæður skal sjónvarpsstöð eftir því sem kostur er láta fylgja endursögn eða kynn- ingu á íslensku á þeim atburðum, sem gerst hafa, eins og segir í lög- unum. Þetta ákvæði laganna er birt óbreytt í tillögum útvarpslaga- nefndar. Þegar Persaflóastríðið var háð var þetta ákvæði ekki í lögum. Stjónvarpað var frá Flóabardaga þannig að erlendar sjónvarpssend- ingar voru tengdar inn á kerfi Ríkisútvarps og Stöðvar 2. Slíkar útsendingar voru taldar óheimilar af hálfu útvarpsréttarnefndar og setti þáverandi menntamálaráð- herra, Svavar Gestsson, í skynd- ingu reglugerð sem heimilaði send- ingarnar með vissum skilyrðum. Þessi reglugerð var talin hafa vafa- sama stoð í lögum. í tengslum við EES-samninginn var gerð breyting á útvarpslögum á síðastliðnu ari. Var þá orðalag reglugerðarinnar fellt inn í lögin að tillögu útvarp- slaganefndar og heldur nefndin því inni í tillögum sínum nú. Er ekki ljóst hvað vakir fyrir þingmannin- um þegar hann fullyrðir að breyting hafi verið gerð á þessum lagatexta sem á rætur að rekja til hans eigin reglugerðar og er óbreyttur í tillög- um útvarpslaganefndar. Líklega hefur eitthvað skolast til í lestri. Það er hins vegar ljóst að starf- ræksla útvarps þar sem einvörð- ungu er dreift viðstöðulaust óstyttri og óbreyttri heildardagskrá er- lendrar sjónvarpsstöðvar, eins og fram fer í Fjölvarpi íslenska út- varpsfélagsins, fellur ekki undir menningarlegt hlutverk Ríkisút- varpsins, eins og það er skilgreint í 15. grein gildandi útvarpslaga. Útvarpslaganefnd gerir ekki efnis- legar breytingar á þeirri grein í tillögum sínum en undirstrikar sér- Tómas Ingi Olrich „Hann hefur nú kosið að leggjast gegn tillög- um nefndarinnar í blaðagrein sem birtist í Morgunblaðinu 25. februar sl. og kallað þær „tillögur gegn þjóðarsátt“. Greinin er byggð á samsafni af misskilningi, fljótfærni og rangfærslum. Er óhjákvæmilegt að gera mjög alvarlegar at- hugasemdir við mál- flutning þingmanns- ins.“ staklega hlutverk Ríkisútvarpsins varðandi innlenda dagskrárgerð. Tekur nefndin það fram í greinar- gerð að menningarhlutverk Ríkis- útvarpsins, eins og það er skil- greint í tillögum nefndarinnar, nái ekki til þess að endurvarpa í heild óstyttum dagskrám erlendra sjón- varpsstöðva. Er þar verið að vísa til 2. gr. útvarpslaga, þar sem end- urvarp er skilgreint, en á þeirri grein er starfsemi Fjölvarpsins grundvölluð. Það er mjög sérstakt ef Svavar Gestsson hyggur að mið- að við gildandi menningarskyldur Ríkisútvarpsins geti það tekið að sér að sjónvarpa dagskrá erlendra sjónvarpsstöðva, eins og Fjölvarpið gerir. Önnur atriði Samkvæmt tillögum útvarps- laganefndar verður felld niður skylda Ríkisútvarpsins til að hljóð- varpa á tveimur rásum. Útvarpinu er hins vegar I sjálfsvald sett hvort það gerir það eða ekki. Þetta aukna sjálfsvald Ríkisútvarpsins er skað- legt fyrir það að mati Svavars Gestssonar. Þá er lagt til að Sjónvarpið sendi aðeins út eina sjónvarpsrás en ekki „minnst eina“ eins og stendur í gildandi lögum. Ekki er vitað til þess að Ríkisútvarpið hafi í huga að sjónvarpa á fleiri rásum. í raun má lesa gildandi lög þannig að ekki sé gert ráð fyrir slíku nema með sérstakri ákvörðun löggjafans. Nær heimild útvarpsstjóra og út- varpsráðs einungis til þess að senda út fleiri dagskrár sjónvarps ef um tímabundið sjónvarp er að ræða. Hér er því ekki um efnisbreytingu að ræða, heldur skýrari ákvæði. Með tillögum útvarpslaganefnd- ar er staðfest heimild Ríkisútvarps- ins til að fjármagna rekstur sinn með afnotagjöldum. Frysting af- notagjalda Ríkisútvarpsins í tvö ár er ráðstöðun sem sníður stofnun- inni ramma miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Aðrir hafa þurft að sýna ráðdeild í rekstri og laga sig að samdrætti. Ríkisútvarpinu er í tillögunum gert að horfa fram til óbreyttra tekna næstu tvö árin. Miðað við þá verðbólgu sem nú er í landinu og virðist vera til fram- búðar er ekki um strangt aðhald að ræða, en þó nokkurt. Það skað- ar ekki Ríkisútvarpið, þótt Svavar Gestsson kjósi að gera mikið úr því. Það hlýtur að vekja athygli að þingmaður sem gerir sig gjarnan sérstakan málsvara íslenskrar menningar ráðist svo opinskátt að tillögum um lagabreytingar sem hafa það að meginmarkmiði að stórbæta stöðu innlendrar dag- skrárgerðar, jafnt hjá ríkisfjölmiðl- um, einkareknum ljósvakamiðlum og sjálfstæðum framleiðendum dagskrárefnis. Þegar innlend fram- leiðsla dagskrárefnis á í vök að veijast fyrir ásókn erlends efnis, er brýnt að þeir sem gera sér grein fyrir mikilvægi þess að íslenskir ljósvakamiðlar starfi á forsendum íslensks þjóðfélags og íslenskrar menningar og styrki en veiki ekki íslenska málkennd, snúi bökum saman. Höfundur er þingmaður og formaður útvarpslaganefndar. „KOMDl SVEITINA Hótel Stykkishólmur og leikfélagið Grímnir, Stykkis- hólmi, sýna „Með vífið í lúkunum“ eftir Ray Cooney. Leikstjóri: Ingibjörg Björnsdóttir. ■ Það er gott að komast í sveitina, jafnvei að vetrarlagi. ■ Því ekki að skella sér eina helgi með vinum og kunningjum eða þá vinnufélagarnir. ■ Helgartilboð í mars: Gisting, kvöldverður, morgunverður tíg ieiksýn- ingin „Með vífið í lúkunum“ kr. 5.400 á mann. ■ Sýningarhelgar í mars: 5. mars frumsýning, laugardagskvöld. 12. mars. 19. mars, miðnætursýning. ■ Sveitarómantíkin kostar ekkert. ■ Við fjarlægjum bæði sjónvarp og síma úr herbergjum óski gestir þess. ■ Ef hópurinn er tuttugu eða fleiri flytjum við ykkur á staðinn fyrir kr. 1.750 á mann. Aksturstími frá Reykjavík ca. 2 klst. og 47 mín. Frá Akranesi ca. 1 klst. og 43 mín. Frá Borgarnesi ca. 1 klst. og 18 mín. Hótel Stykkiáiámiir' Sími 93-81330 - Fax 93-81579 fOeÍtaliÓtd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.