Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
23
GATT
Auknum viðskiptum með
landbúnaðarafurðir spáð
London. Reuter.
Róttækar breytingar verða á viðskiptum með landbúnaðarafurðir í
heiminum vegna samkomulags 117 ríkja í GATT-viðræðunum um tolla
og viðskipti um að ríkisstyrkir verði skornir niður og markaðir verði
opnaðir, en áhrifin geta orðið lengi að segja til sín að sögn landbúnað-
arsérfræðinga.
Landbúnaður verður í fyrsta
skipti háður reglum GATT um
frjálsa verzlun samkvæmt sam-
komulaginu sem náðist í desember
eftir samningaviðræður sem höfðu
staðið í sjö ár.
„Stefnan er skýrt mörkuð og ekki
verður aftur snúið, segir starfsmað-
ur OECD, Joanna Hewitt. Þótt
fyrstu raunhæfu áhrifin verði líklega
ekki áberandi munu ríkisstjórnir
ekki geta einangrað bændur lengur
frá samkeppnisþrýstingi og mark-
aðssveiflum," sagði Hewitt á ráð-
stefnu um landbúnaðarmál.
Verulega verður dregið úr ríkisst-
uðningi við útflutning landbúnaðar-
afurða, innflutningstollum og niður-
greiðslum á innanlandsmarkaði á
næstu sex árum í iðnvæddum lönd-
um og á rúmlega 10 árum í löndum
þriðja heimsins.
„Mestu máli skiptir að ríkisstjórn-
ir verða í vaxandi mæli hvattar til
þess að ganga lengra í átt til tekjust-
uðnings, matvælaöryggis og um-
hverfisverndar, en snúa baki við
ráðstöfunum sem aflaga viðskipti,"
sagði Frank Wolter, landbúnaðarfor-
stjóri GATT.
Hann benti á að samkvæmt
GATT-samkomulaginu væri gert ráð
fyrir fekari samningaviðræðum
1999 til þess að fylgja breytingunum
í landbúnaðarmálunum eftir, en var
vongóður um þær yrðu ekki eins
flóknar. „Um 70% Uruguay-umferð-
arinnar fór í að ákveða viðskipta-
Frakkland
Fleiri Frakkar
atvinnulausir
Paris. Reuter.
ATVINNULEYSI í Frakklandi var 12,2% í janúar og Edouard Ballad-
ur forsætisráðherra varar við því að atvinnulausum muni halda áfram
að fjölga alit til ársloka.
Hins vegar gefa opinberar upplýs-
ingar til kynna að Frakkar séu loks-
ins að sigrast á samdrætti og það
vegur nokkuð upp á móti bölsýni af
völdum atvinnuleysisins.
Samkvæmt upplýsingum tölfræði-
stofnunar ríkisins, INSEE, minnkuðu
vergar landstekjur um 0,7% í fyrra,
en það er betri útkoma en margir
hagfræðingar bjuggust við. Jafn-
framt sýnir könnun, sem stofnunin
Tónlist
hefur gert, að bjartsýni atvinnurek-
enda hefur aukizt í febrúar og að
meirihluti þeirra sér í fyrsta skipti
síðan 1990 fram á vöxt en ekki
hnignun atvinnulífsins.
Verkalýðsmálaráðuneytið segir að
atvinnulausum hafi fjölgað um 4.800
síðan í desember í 3,31 milljón í jan-
úar, sem er met. Balladur sagði í
viðtali við dagblaðið La Depeche du
Midi, að stjórnin stefndi að því að
Methagnaður hjá
PolyGram
London. Reuter.
POLYGRAM, eitt þriggja söluhæstu tónlistarfyrirtækja heims, skilaði
methagnaði í fyrra níunda árið í röð og sér fram á vaxandi umsvif á
nýbyijuðu ári.
Nettóhagnaður fyrirtækisins, sem
hefur meðal annars Sting, Van
Morrison, Susanne Vega og Stevie
Wonder á sínum snærum, jókst um
21% í fyrra, í 614 milljónir gyllina
eða 319 milljónir dollara. Tekjurnar
jukust úr 506 milljónum (263 millj-
ónum dollara) 1992. Staða fyrirtæk-
isins er betri en margir sérfræðingar
höfðu talið og hlutabréf í því hækk-
uðu um rúmlega fimm gyllini, í 78,8,
í Amsterdam.
Risafyrirtækið Philips á 75% í
PolyGram og því er aðallega stjórnað
frá London, en viðskipti þess fara
fram aðeins í New York og Amsterd-
am. Stefna PolyGram er að vera
„skemmtanafyrirtæki margra menn-
ingarhópa á breiðum grundvelli“, að
sögn forseta þess, Alain Levy, sem
lét í ljós ánægju með frammistöðuna
1993 og horfurnar 1994, bæði á sviði
tónlistar og kvikmynda.
Hagnaður Glaxo millj-
arður punda á hálfu ári
London (Reuter).
BREZKA lyfjafyrirtækið Glaxo, hið stærsta í Evrópu, tilkynnti á
fimmtudag að tekjur þess síðustu sex mánuði hefðu aukizt um 22% í
rúmlega einn milljarð punda í fyrsta skipti i sögu þess — þrátt fyrir
niðurskurð á útgjöldum til heilbrigðismála um allan heim.
Velgengnin stafaði að hluta til af
gjaldeyrisgróða, sem jók veltu um
22% í 2.80 milljarða punda. Sala
jókst um 13%, sem er helmingi meiri
vöxtur en í greininni í heild umrædda
mánuði. Aðeins magasárslyfið
Zantac, söluhæsta meðal heims,
veldur vonbrigðum, enda 12 ár síðan
það var fyrst sett á markað. Zantac
seldist fyrir 1.201 milljón punda og
það jafngildir 43% af veltu fyrir-
tækisins, en aukninbgin var aðeins
5%. Aðalógnunin stafar frá ódýrum
gerðum af lyfinu Tagamet frá Smith
Kline Beecham, sem hafa ekki verið
vernduð með einkaleyfi.
og- stjórnsýsluhætti og aðeins 30% í
reglur," sagði Wolter á ráðstefnunni.
David Nelson-Smith frá Cargill,
einn umsvifamesti kornkaupmaður
heims, sagði að GATT-samkomulag-
ið boðaði mikilvæga stefnubreyt-
ingu. „Þótt GATT muni ekki leiða
til þess að verulega verði dregið úr
höftum í kornviðskiptum kann sam-
komulagið að marka þáttaskii að því
leyti að ríkisstjórnir fáist til þess að
draga sig í hlé og láta hagfræðina
taka við,“ sagði hann.
Hann sagði að korninnflutningur
til Evrópusambandsins yrði minni
en hann var 1986-88 þegar hann
var sjö milljónir lesta á ári. En verð
á hveiti mundi hækka þegar dregið
yrði úr útflutningsstyrkjum, stað-
greiðslu yrði óskað í auknum mæli,
einkum í Kína og á Indlandi, og
aukinn hagnaður mundi auka fram-
leiðslu í Suður-Ameríku, Ástralíu og
Bandaríkjunum.
snúa við vaxandi atvinnuleysi í árslok
1994 eða byijun árs 1995. Hann
sagði að nýtt hagvaxtarskeið mundi
fjölga atvinnutækifærum og ítrekaði
spá stjórnarinnar um 1,4% á þessu
ári.
Honda býr
til raf-
vespur
Tokyo. Reuter.
HONDA-fyrirtækið í Japan
hefur í hyggju að frandeiða
vespur sem ganga fyrir raf-
niagni.
Ætlunin er að leigja stjórn-
völdum 200 rafknúnar vespur
af gerðinni Honda CUV ES til
þriggja ára fyrir 850.000 jen frá
10. marz. Vespan verður búin
rafhlöðu, sem endist í átta tíma
og hægt er að hlaða með því
að tengja við venjulega innst-
ungu. Honda leigir vespurnar,
því að þær eru dýrar og ætlunin
er að endurnýta rafhlöðurnar.
Venjulegar vespur kosta
150.000 jen (um 112.000 kr.).
Rekstrarkostnaður rafmagns-
vespu er 24 kr. á hveija 60 km.
ÞJONUSTU-
Við tökum við ábendingum
og tillögum sem varoa
þjonustu SVR í símsvara
814626
Strætisvagnar Reykjavíkur hf
NILFISK GM200
NILFISK GM200 hefur nýjan 5-þrepa síunarbúnað
og hreinni útblástur en nokkur önnur ryksuga
(heldur eftir 99% rykagna stærri en 0,3/1000 mm).
GM200 er líka hljóðlátari (58 desibel), kraftmeiri
(1150W mótor) og endingarbetri (2000 tímar áður
en skipta þarf um kol í mótor).
★ 7m inndregin rafmagnssnúra
★ Innbyggt sogstykkjahólf
★ Aflaukandi kónísk slanga
★ Þægileg sogaflsstilling
★ Rykmælir lætur vita þegar skipta
á um poka
★ Létt (7,8 kg.) og lipur
NÚ ÁTILBOÐSVERÐI:
Verðlistaverð kr. 24.200,-
NÚ AÐEINS 21.050,- m/afb.
19.990,- STAÐGREITT
/ponix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Biddu um
Banana Boat
þegar þú vilt 99,7% Aloe Vera
Þú kemst ekki nær sjálfri Aloe Vera plötunni, sárasmyrsli náttúrunnar.
Prófaðu 99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat á brunasár, þurra eða
sprungna húð, útbrot o.þ.h. Þú finnur ekki mun á því og að brjóta Aloe Vera
blað og bera hlaupið úr því beint á þig. Gerðu verðsamanburð á 99,7% hreina
Aloe Vera gelinu frá Banana Boat og útþynntum Aloe Vera gelum. 99,7%
hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat fæst í 6 misstórum túpum og brúsum
með eða án pumpu. Verð frá kr. 540,- desilítrinn til kr. 988,- hálfur lítri.
99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat fæst í Heilsuvali, Barónsstíg 20,
og í öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur. Það fæst líka í vönduðum
apótekum, snyrtivöruverslunum, sólbaðsstofum og víðar, ásamt breiðri Aloe
Vera húðvörulínu frá Banana Boat (Body Lotion, varasalva, sólkrem o.m.fl.).
Biddu um Banana Boat þegar þú vilt hreina hágæðajurtavöru á góðu verði.
HEILSUVAL - Barónsstíg 20 « 626275 og 11275
Látið Hótel Örk
ásamt Sigurði Hall
sjá um árshátíðina
★ Rútuferð
★ 3ja rétta kvöldverður
að hætti Sigurðar Hall
★ Dansleikur
★ Ferð heim f
á
Við sjáum um allt, svo það eina f
sem þarfað gera erað þanta
tímanlega í síma 98-34700.
HOTEL ODK
HVERAGERÐI - SÍMl 98-34700 - FAX 98-34775