Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
Fyrsta hernaðaraðgerð NATO frá stofnun bandalagsins 1949
Fjórar serbneskar þotur
skotnar niður yfír Bosníu
ÞOTUR NATO GRANDA FLUGVELUM BOSNIU-SERBA
Brussel, Róm, Sarajevo. Reuter.
TVÆR bandarískar F-16 orr-
ustuþotur I flugsveitum Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
með bækistöðvar í Aviano á It-
alíu skutu í gærmorgun niður
fjórar G-4 Galeb-orrustuþotur
Bosníu-Serba nærri borginni
Banja Luka í Bosníu. Er þetta
fyrsta hernaðaraðgerð í nafni
NATO frá því bandalagið var
stofnað árið 1949.
Flugsveitir á vegum NATO, sem
í eru orrustuflugvélar frá Banda-
ríkjunum, Frakklandi, Bretlandi,
Hollandi og Tyrklandi, hafa fram-
fylgt flugbanni Sameinuðu þjóð-
anna yfir Bosníu sem kom til fram-
kvæmda í apríl í fyrra. Hefur það
orðið til þess að stríðandi fylkingar
hafa ekkert beitt flugvélum í deil-
um sínum. Flugbannið hefur ein-
ungis verið rofið af þyrlum sem
ferjað hafa menn og vistir stuttar
vegalengdir.
Að sögn Mike Boorda aðmíráls,
yfirmanns herafla NATO í sunn-
anverðri Evrópu, urðu AWA.CS-
ratsjárflugvélar NATO varar við
ferðir sex Galeb-flugvéla Bosníu-
Serba. Þegar F-16 þotumar komu
á vettvang klukkan 5:48 að ís-
lenskum tíma í gærmorgun voru
Galeb-þoturnar að gera sprengju-
árás á skotmörk við Bugojno og
Novi Travnik. Skipuðu flugmenn
F-16 þotanna serbnesku flug-
mönnunum að snúa strax til bæki-
stöðva sinna ellegar yrði skotið á
þá. Talið er að þotumar hafi farið
á loft í Banja Luka þar sem er
stærsta herstöð Bosníu-Serba.
Sinntu serbnesku flugmennirnir
endurteknum aðvörunum í engu
og var þá látið til skarar skríða
með þeim afleiðingum að fjórar
Galeb-þotur voru skotnar niður um
80 km suðvestur af borginni. Eng-
ar fregnir fóru af örlögum flug-
mannanna. Fimm hitasækin flug-
skeyti voru notuð til að skjóta
þoturnar niður, fjögur AIM-9
Sidewinder-skeyti og eitt
AMRAAM-flugskeyti sem er
langdrægara en þau fyrmefndu.
Tvær þotanna komust undan með
því að fljúga út úr lofthelgi Bosn-
íu í átt til Króatíu.
Útvarpið í Sarajevo sagði ac
serbneskar og króatískar orrustu-
þotur hefðu gert loftárásir á tvenn
skotmörk múslima í gærmorgun.
Klukkan 6:15 að staðartíma, 5:15
Reuter
Galeb-þotan ^
GALEB-þoturnar sem skotnar voru niður yfir Bosníu í gærmorgun eru smíðaðar af SOKO-flugvélaverk-
smiðjunum í Mostar. Þær ganga manna á meðal undir nafninu mávurinn. Þær eru búnar fallbyssum
og geta borið rúmt tonn af sprengjum og flugskeytum en á myndinni má sjá þann vopnabúnað sem
þotan ber.
valdið miklu tjóni, m.a. á sjúkra-
húsi. Hermt er að verksmiðjan sem
skotið var á í Novi Travnik hafi
verið helsta skotfæraverksmiðja
múslima.
Nebojsa Radmanovic, tals-
maður hers Bosníu-Serba, full-
yrti að Serbar hefðu engar þotur
misst og vísaði því á bug að Galeb-
þoturnar hefðu farið í Ioftið í Banja
Luka, stærstu borg sem Serbar
hafa á sínu valdi í Bosníu.
Þoturnar sem skotnar voru nið-
ur eru framleiddar af SOKO-flug-
vélavérksmiðjunum í Mostar en
talið hefur verið að Bosníu-Serbar
hefðu yfir samtals 20 slíkum að
ráða og alls 37 herflugvélar og
jafn margar þyrlur. Galeb-þoturn-
ar ganga manna á meðal undir
heitinu mávurinn. Þær eru tveggja
sæta og notaðar fyrst og fremst
sem þjálfunarþotur fyrir herflug-
menn og þó þær séu einnig gerð-
ar til þátttöku í hemaði fá þær
ekki rönd við reist lendi þær
í klóm F-16 sem gengur und-
ir nafninu fljúgandi fálki. Galeb
þoturnar eru búnar tveimur léttum
fallbyssum og geta borið klasa-
sprengjur og flugskeyti undir
hvorum væng, samtals um 1.200
kíló. Flugvélarnar eru knúnar
Rolls Royce-hreyfli og fljúga á
allt að 910 kílómetra hraða.
Orrustuþotur úr flugsveitum NATO skutu í gærmorgun
niöur fjórar orrustuflugvélar
Bosníu-Serba yfir Bosníu.
Þoturnar rufu flugbann
Sameinuöu þjóöanna og
geröu loftárásir á skotfæra
verksmiöju múslima.
Helsta flugstöö
Bosníu-Serba
G-4 Galeb
Lítil árásarþota
búin fallbyssum,
klasasprengjum
flugskeytum.
Þotan er
aubveld
bráb fyrír
F-16.
vopnaverk-
smiöja múslima
REUTER
Bandarískar F-16 þotur
Ein hrabfleygasta og meb-
færílegasta bardagafiugvél
heims, búin fallbyssum og
flugskeytum til ab granda
flugvélum.
að íslenskum tíma, hefðu serb-
neskar flugvélar ráðist á borgina
Bugojno og króatískar flugvélar
hefðu gert loftárás á verksmiðju
í Novi Travnik klukkan 6:58 að
staðartíma. Sagði útvarpið að þot-
urnar hefðu rennt sér þrisvar nið-
ur yfir íbúðahverfi í Bugojno og
Sprengjutilræði
íBeirut
TÍU manns fórust, þar á meðal
fjögurra ára barn, og 60 særðust
í sprengjutilræði í kirkju maron-
íta, kristinna Líbana, í Beimt á
sunnudag. Stjórnmálaleiðtogar og
aðrir ráðamenn úr röðum krist-
inna jafnt sem múslima voru yfir-
leitt á einu máli um að líklegast
væri að ísraelar stæðu með ein-
hveijum hætti að baki tilræðinu.
Hefði ætlunin verið að leiða at-
hygli umheimsins frá fjöldamorð-
inu í Hebron á föstudag er ísra-
elskur öfgamaður myrti yfír 40
múslima í mosku. „Eg held ekki
að múslimi gæti gert svona nokk-
uð“, sagði einn syrgjendenna í
Beirut grátandi. „Þetta var gert
til að auka misklíð milli múslima
og kristinna. ísrael er á bak við
þetta“. Myndin er frá útföreins
fómarlambsins í gær.
Reuter
Danska
stjórnin
missir
meirihluta
STJÓRN Jafnaðarmannaflokks-
ins í Danmörku tapaði meiri-
hluta sínum á þinginu í gær
þegar Bente Juncker, fyrrver-
andi félagsmálaráðherra, sagði
sig úr Miðdemókrataflokknum,
einum af þremur miðjuflokkum
sem styðja stjómina. Sam-
steypustjómin hefur því nú að-
eins 89 þingsæti af 179. Ekki
er þó talið að stjórnin falli þar
sem Juncker lofaði að styðja
stjórn Pouls Nyrups Rasmussens
sem óháður þingmaður.
íkveikja í
Lundúnum
ÁTTA manns biðu bana og 16
brenndust í eldi í klámkvik-
myndahúsi í miðborg Lundúna á
sunnudag. Maður sást hlaupa
frá byggingunni með bensín-
brúsa eftir að eldurinn blossaði
upp og lögreglan telur að hann
hafi hellt bensíni niður í húsinu,
hugsanlega inn um bréfalúgu.
Að sögn lögreglu var neyðarút-
gangurinn í húsinu lokaður
þannig að eina útgönguleiðin var
um anddyrið þar sem eldurinn
var kveiktur.
Gummer úr
þjóðkirkjunni
JOHN Gummer, umhverfismála-
ráðherra Bretlands, kvaðst í gær
ætla að segja sig úr Ensku bisk-
upakirkjunni, þjóðkirkju Eng-
lands, til að mótmæla þeirri
ákvörðun hennar að heimila
prestvígslu kvenna. Gummer
ætlar að ganga í kaþólsku kirkj-
una.
Undrandi á
heilbrigðis-
reglum
MICKEY Kantor, viðskiptafull-
trúi Bandaríkjanna, sagði í gær
að Bandaríkjamenn myndu ekki
sætta sig við hömlur sem Frakk-
ar hafa sett á fiskinnflutning.
Hann útskýrði ekki nánar hvaða
ráða yrði gripið til en sagði
„fremur erfitt" að skilja áhyggj-
ur franskra stjórnvalda af heil-
brigði innfluttra vara, benti á
að hertar reglur hefðu fyrst ver-
ið teknar í notkun eftir að sjó-
menn efndu til mótmæla gegn
innflutningi.
22 falla í Suð-
ur-Afríku
AÐ MINNSTA kosti 22 menn
biðu bana í átökum stríðandi
fylkinga blökkumanna í Suður-
Afríku um helgina, einkum í
Natal-héraði, höfuðvígi Inkatha-
frelsisflokksins. Tveir vopnaðir
menn réðust inn í samkomuhús
í Enhlalakahle og skutu leiðtoga
Afríska þjóðarráðsins (ANC) á
svæðinu.
Lorena Bobb-
itt laus
LORENA Bobbitt, sem skar
undan eiginmanni sínum með
eldhúshnífi í fyrra, var látin laus
í gær úr geðsjúkrahúsi þar sem
hún hefur verið í rannsókn frá
því að dómstóll úrskurðaði að
hún hefði framið verknaðinn í
stundarbijálæði. Dómstóllinn
féllst á tillögu geðlækna um að
konan yrði látin laus en yrði
áfram á göngudeild sjúkrahúss-
ins. Bobbitt sagði þegar henni
var sleppt að hún liti á málið sem
„lærdómsríka reynslu" og
kvaðst hlakka til að eignast börn
með einhverjum öðrum en John
Bobbitt, sem hún er að skilja við.