Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 25

Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 25 Ríkissaksóknari Rússlands segir af sér eftir að uppreisnarleiðtogum var sleppt Kazamiík sakar Borís Jeltsín um að „traðka á lögunum“ Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. ALEXEJ Kazanník, fyrrverandi ríkissaksóknari Rússlands, sakaði í gær Borís Jeltsín forseta og aðstoðarmenn hans um að „traðka á lögunum". Kazanník sagði af sér embættinu ásamt fjórum undir- mönnum eftir að Jeltsín hafði lagt að honum að hunsa ákvörðun Dúmunnar, neðri deildar þingsins, um að veita leiðtogum valdaránst- ilraunanna í október siðastliðnum og í ágúst 1991 sakaruppgjöf. Reuter „Hetja Sovétríkjanna“ leyst úr haldi ALEXANDER Rútskoj, fyrrverandi varaforseti Rússlands, gengur út úr Lefortovo-fangelsinu á laugardag, klæddur búningi hershöfð- ingja í flugher Sovétríkjanna fyrrverandi og með orður sem hann fékk fyrir frækilega framgöngu í stríðinu í Afganistan. Rútskoj, sem hyggur á forsetaframboð, er allnokkuð breyttur eftir hartnær fimm mánaða fangelsisvist, kominn með alskegg. „Látum þá skammast sín sem traðka á lögunum til að uppheíja sjálfa sig,“ sagði Kazanník. „Afsögn mín tengist þeirri staðreynd að ég var beðinn um að bijóta lögin en lögbrot koma ekkitíl greina af minni hálfu.“ Golúshko vikið frá Leiðtogar valdaránstilraunanna voru látnir lausir úr fangelsi á laug- ardag þrátt fyrir tilraunir Jeltsíns og aðstoðarmanna hans til að sann- færa Kazanník um að Dúman hefði farið út fyrir valdsvið sitt með því að samþykkja sakaruppgjöfma. Kaz- anník sagði að Jeltsín hefði fyrirskip- að sér, Viktor Jerín innanríkisráð- herra og Níkolaj Golúshko, yfír- manni gagnnjósnadeildar rússnesku. leyniþjónustunnar, að láta fangana ekki lausa. Kazanník kvaðst hafa rætt við Jeltsín í síma en forsetinn hefði þrisvar sinnum neitað að breyta fyrirmælum sínum. „Finndu leið út úr þessu,“ á Jeltsín að hafa sagt. Kazanník var álitinn skjólstæðingur Jeltsíns, en kvaðst hafa sagt af sér vegna þess að hann hefði ekki getað tekið þátt í lögbrotum. Lefortovo-fangelsið í Moskvu, þar sem upþreisnarmennirnir voru í haldi, var undir stjórn Golúshkos þar til í síðustu viku, þegar það var sett undir stjórn ríkissaksóknarans. Jeltsín tilkynnti í gær að Golúshko hefði verið vikið frá, en greindi ekki frá ástæðunni. Líklegt þykir að brottreksturinn tengist deilunni um sakaruppgjöfína, en Golúshko kann Mótmæla aðgerðum Grikkja Aþenu. Reuter. DOUGLAS Hurd, utanríkisráð- herra Bretlands, hvatti í gær Grikki til að aflétta viðskipta- banni sínu á Makedóníu í fyrrver- andi Júgóslavíu. Mikillar reiði gætir meðal annarra Evrópu- sainbandsríkja í garð Grikkja og sagðist Hurd vera að láta í ljós skoðanir þeirra allra, en hann átti í gær fundi með griskum ráðamönnum. Hurd sagði menn gera sér vel grein fyrir áhyggjum Grikkja vegna Makedóníu enda hefðu þær ítrekað verið látnar í Ijós á undanförnum mánuðum. „Þær réttlæta hins vegar að okkar mati ekki aðgerðir Grikkja, sem skaða hagsmuni fyrr- um júgóslavneska lýðveldisins Makedóníu og eru að auki ólöglegar og grafa undan orðstír og áhrifum Grikkja,“ sagði Hurd á blaða- mannafundi. Grikkir vilja að Makedóníumenn kalli land sitt öðru nafni en nyrsta hérað Grikklands ber saman nafn. Óttast Grikkir að Makedóníumenn muni gera landakröfur á hendur Grikkjum en í grísku Makedóníu búa 2,5 milljónir manna. í lýðveld- inu Makedóníu búa um 2 milljónir manna, aðallega af slavneskum eða albönskum uppruna. Þann 16. febr- úar sl. ák\að Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, að loka fyrir aðgang Makedóníumanna að hafnarborginni Thessaloniku, en þeir hafa ekki annar staðar aðgang að sjó. einnig að hafa verið vikið frá vegna máls bandaríska leyniþjónustu- mannsins Aldrichs Ames, sem var handtekinn í Bandaríkjunum fyrir njósnir í þágu Rússa í síðustu viku. Talsmaður Jeltsíns sagði á sunnu- dag að forsetinn áskildi sér rétt til að hnekkja ákvörðun þingsins og sagði hana bijóta í bága við stjóm- arskrána. Andrej Kozyrev utanríkis- ráðherra lýsti helstu ieiðtogum upp- reisnarmannanna í október, Alex- ander Rútskoj, þá varaforseta, og Rúslan Khasbúlatov, forseta gamla þingsins, sem glæpamönnum og kvaðst vona að þeir yrðu aftur sett- ir í fangelsi. „Rútskoj í forsetaembættið" Rúslan Khasbúlatov gekk fyrstur út úr Lefortovo-fangelsinu í Moskvu á laugardag. Hann var þreytulegur og kinnfiskasoginn eftir hartnær fimm mánaða fangelsisvist en með sigurglampa í augunum þegar hóp- ur stuðningsmanna hans fagnaði honum fyrir utan fangelsið. Næstur kom Rútskoj, með alskegg og valtur á fótum, klæddur búningi hershöfð- ingja í flugher Sovétríkjanna fyrr- verandi og með orður sem hann fékk fyrir frækilega framgöngu í stríðinu í Afganistan. „Rútskoj í forsetaembættið!" hrópuðu hundruð stuðningsmanna hans fyrir utan fangelsið. A meðal þeirra sem fögnuðu föngunum var þjóðernisöfgamaður- inn Vladímír Zhírínovskíj, sem lét ekki hjá líða frekar en fyrri daginn að halda sér í sviðsljósinu. „Vel gert, strákar," sagði hann. „Þetta er okkar dagur!“ Khasbúlatov lét svo um mælt á sunnudag að hann hefði „ímugust á stjórnmálamönnum nútímans" og ætlaði að hætta afskiptum af stjórn- málum Rússlands. Hermt var að hann hygðist fara til heimahéraðs síns, Tsjetsjeniju, sem hefur lýst yfir sjálfstæði frá Rússlandi. Samstarfsmaður Rútskojs sagði að hann myndi gefa kost á sér í næstu forsetakosningum, sem verða ekki síðar en árið 1996. Staða Jeltsíns virðist veik og sig- ur hans yfir uppreisnarleiðtogunum í október þykir hafa breyst í ósigur. Líkurnar á að hann nái endurkjöri hafa minnkað verulega. Deilan við Dúmuna um sakaruppgjöfina end- urspeglar djúpstæðan ágreining við þingið sem gæti leitt til uppgjörs og skaðað hann frekar. Á meðan batnar staða hugsan- iegra frambjóðenda í forsetakosn- ingunum, miðjumannsins Viktors Tsjernomyrdíns forsætisráðherra, umbótasinnans Grígoríjs Javlínskíjs, auk Rútskojs og Zhírínovskíjs. Moldova Sjálfstæðis- sinnar sigra Kishinyov. Reuter. HELSTI flokkur sjálf- stæðissinna í Moldovu, fyrr- verandi lýðveldi Sovétríkj- anna, vann mikinn sigur í þingkosningum sem fram fóru á sunnudag og forystu- mennirnir lofuðu að tryggja áframhaldandi sjálfstæði landsins gagnvart Rúmeníu og Rússlandi. Lýðræðislegi bænda- flokkurinn, sem vill halda sjálfstæði Moldovu, fékk 42% atkvæða, samkvæmt fyrstu töjum. Þjóðarflokkurinn, sem er hlynntur sameiningu Moldovu og Rúmeníu, galt hins vegar afhroð, fékk aðeins 7% atkvæða og varð þriðji. Flokkurinn var stærstur í síð- ustu kosningum árið 1991, með rúman þriðjung þing- sæta. *@K) Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar. sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggingavöru- verslanir. Dreifing: Hringás hf., sími 677878 - fax 677022 TILKYNNING! Kæru viðskiptavinir um land allt! Besta ráðið til að þið finnið lægsta verðið á "original" Hewlett-Packard prentdufti er að gera verðsamanburð. RRENTDUFT ÁBETRA —VERBU Þegar þig vantar "original" prentduft (toner) Hewlett-Packard prentarann þinn hafðu þá samband við okkur. Við komum til móts við þig í verði og þjónustu! Og meira en það: Við kaupum af þér gömlu prenthylkin! Njóttu öryggis með rekstrarvörum frá.. 0 L I) k Tæknival Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 + heimsending þér að kostnaðarlausu! Útsalan hefst í dag Laugavegi 4 - Sími 14473

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.