Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
Vilt þú fylgjast
með því nýjasta
sem er að gerast í
hestamennskunni?
Gerist
áskrijendur!
Á
EIÐFAXI
TÍMARIT HESTAMANNA
Sími 91-685316
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, simi
671800
Kynbótasýning á Landsmóti
Þokki og Kjarval munu bítast
um sigur í heiðursflokki
Nýjar reglur um röðun afkvæmahryssna
Hestar
Subaru Legacy 1.8 Sedan '91, rauður, 5
g., ek. 56 þ., sóllúga, dráttarkúla, rafm. í
rúðum o.fl. V. 1380 þús.
Toyota Double Cab diesel '92, rauður, 5
g., ek. 46 þ., upphækkaður, 33“ dekk,
lengd skúffa, brettakantar o.fl. Vsk-bíll.
V. 1890 þús.
Valdimar Kristinsson
Sá er orðinn siður að tilnefna
hvert ár eftir einhverju góðu mál-
efni sem hefur forgang fram yfir
önnur mál. Hestamenn láta slíkt
ekkert rugla sig í ríminu og vita
sem er að líðandi ár er landsmóts-
ár sem ekkert þarf að útskýra
frekar og setur það sifellt meiri
svip á hestamennskuna eftir því
sem nær líður móti. Landsmót-
skandídatar eru víða þjálfaðir um
þessar mundir, spennan magnast
dag frá degi og ekki laust við
greina megi glímuskjálfta hjá
mörgum tamningamanninum. Að
sjálfsögðu verður fylgst vel með
framvindu mála í undirbúningi
fyrir mótið í hestaþættinum og
verður þessi þáttur tiieinkaður
kynbótahrossunum sem að
margra mati er alfa og omega
landsmótanna.
Einn af hápunktum kynbótasýn-
ingar er afkvæmasýning stóðhesta
þar sem fremstu stóðhestar landsins
fá sinn endanlega gæðastimpil. Eins
og tíðkast hefur síðustu átta árin er
þeim raðað í sæti eftir kynbótamati
Búnaðarfélags íslands (BLUP-inu
margumtalaða) þannig að ekki ríkir
eins mikil spenna á sjálfu mótinu um
þennan þátt og með gamla kerfinu
þar sem úrslit verða kunn rúmri viku
fyrir mótið. Hinsvegar eru menn
flestir hveijir orðnir sammála um að
kynbótamatið gefi betri og raunhæf-
ari mynd af hestunum sem kynbóta-
gripum en gamla kerfið.
Fá fjórir hestar
heiðursverðlaun?
Línur eru nokkuð skýrar í dag um
hvaða afkvæmahestar muni raða sér
í efstu sætin. í heiðursverðlauna-
flokki þar sem hestar þurfa að ná
125 stiga markinu fyrir 50 dæmd
afkvæmi eða fleiri munu þeir Þokki
frá Garði og Rjarval frá Sauðárkróki
berjast um efsta sætið. Staða Þokka
er sýnu betri í dag þótt yfirburðir
hans séu ekki sh'kir að hann teljist
öruggur. Er hann með 137 stig fyrir
52 dæmd afkvæmi en Kjarval hefur
134 stig fyrir 58 afkvæmi. Verið er
að yfirfara kerfið og endurreikna
ýmsa þætti eða beija í gamla bresti
eins Kristinn Hugason orðaði það.
Taldi hann það ekki hafa mikil áhrif
á röð efstu hestanna en benti hins
vegar á að dómar vorsins fram að
landsmóti yrðu teknir inn í kynbóta-
matið. Þar gætu að sjálfsögðu átt
sér stað einhveijar sviptingar. Búist
er til dæmis við talsverðum fjölda
hrossa undan Kjarval til dóms sem
er talsvert yngri en Þokki en á móti
An'd segja að Þokki var ekki uppgöt-
vaður almennilega fyrr en ’88 og ’89
þannig að gera má ráð fyrir að í vor
komi fram eitthvað af nýjum snilling-
um undan honum. Slagur þessara
tveggja um toppsætið verður spenn-
Ef ekki er vel staðið að málum er
eins víst að þar fari fram útför hests-
ins sem kynbótahests svo óvæginn
sem niðurstaða brekkudómara getur
verið. En af hestum sem líklegir
þykja má nefna þá Kolfinn frá Kjarn-
holtum, Stíganda frá Sauðárkróki og
Gassa frá Vorsabæ sem allir eru með
stig til heiðursverðlauna en vantar
fleiri afkvæmi. Reyndar vantar Stíg-
anda 3 afkvæmi til að ná 1. verð-
launamörkunum en líklegt þykir að
þau muni skila sér í forskoðun í vor.
Þá er Adam frá Meðalfelli kominn í
1. verðlaunaflokkinn og spurning
hvort hann komi ekki fram á nýjan
leik með afkvæmum. Einnig mætti
nefna Kolfinnssoninn Dag frá Kjarn-
holtum sem er með stig til heiðurs-
verðlauna en var.tar 7 afkvæmi til
að ná fyrstu verðlaunum. Hér eru
nefndir til sögunnar nokkrir hestar
sem gætu komið við sögu á landsmót-
inu en vafalaust mætti nefna fleiri
en þessi upptalning látin duga að
sinni.
Frumkvæðið í höndum
hesteigenda
Við röðun á afkvæmahryssum í
verðlaunasæti á mótinu verður nú
notað nýtt kerfi. Hingað til hefur
verið farið eftir gamla kerfinu þar
Baráttan um efsta sætið í heiðursverðlaunaflokki stóðhesta mun
standa á milli Kjarvals frá Sauðákróki sem Einar Öder Magnússon
situr, og Þokka frá Garði. Niðurstaðan verður kunn 20. júní.
andi og má segja að úrslit ráðist
ekki fyrr en á síðustu metrunum eins
og sagt er í fijálsu íþróttunum. Feyk-
ir frá Hafsteinsstöðum er ásamt Við-
ari frá Viðvík kominn yfir heiðurs-
verðlaunamörkin, Feykir er með 59
afkvæmi dæmd en Viðar 52. Otur
frá Sauðárkróki er mjög nærri
mörkunum, með 129 stig, en vantar
3 afkvæmi til að fylla fimmta tuginn.
Feðgar í fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi?
Hestarnir sem keppa til fyrstu
verðlauna eru fleiri og líklega
óráðnari gáta hveijir þeirra munu
vinna sér rétt til að koma fram á
landsmóti. Ekki má gleyma því að
þótt hestar eigi réttinn er það ekki
sjálfgefið að þeir verði sýndir því
hægara er um að tala en í að kom-
ast að afkvæmasýna hest. Slík sýn-
ing þarfnast mikils undirbúnings og
fyrirhyggju.
Velja þarf afkvæmin vandlega sem
koma fram á mótinu og er þar aldeil-
is ekki nóg að fylla bara upp í töluna.
sem eingöngu hefur verið farið eftir
meðaleinkunnum afkvæmanna. Nú
verður reiknað eftir einkunnum af-
kvæma þar sem tekið er með inn í
leiðrétting fyrir sýningarár, kynbóta-
gildi föður, aldur og kynferði afkvæ-
manna. Einkunnatölur eru gefnar
upp í samræmi við kynbótamatið
(BLUP-kerfið) og segja reglurnar að
hryssur sem eru með 120 stig eða
hærra fyrir 5 afkvæmi eða fleiri í
útreikningi og mæti með 4 afkvæmi
í sýningu hljóti heiðursverðlaun. Til
að hljóta fyrstu verðlaun þarf hryssa
að hljóta 115 stig eða hærra fyrir 4
afkvæmi eða fleiri í útreikningi og
mæta með 3 afkvæmi á sýningu eða
ná 110 til 119 stigum fyrir 5 af-
kvæmi eða fleiri og mæta með 3
afkvæmi til sýningar. Omögulegt er
að átta sig á hvaða hryssur munu
eiga möguleika á farmiða á landsmót
þar sem ekki er hægt að fara beint
eftir kynbótamati BÍ (BLUP-inu) þar
sem ekki er um sömu reikniaðferðir
að ræða. Benti Kristinn á að þar
þyrftu hryssueigendur að hafa frum-
kvæði í að láta kanna hver staða
éinstakrar hryssu væri sem þeir teldu
hugsanlega eiga möguleika til verð-
launastigs. Tók hann reyndar fram
varðandi allar afkvæmasýningar að
frumkvæðið væri alltaf í höndum
hesteiganda en ekki ráðunauta BÍ.
Verða því eingöngu reiknaðar út
stöður þeirra hryssna sem fyrir-
spurnir berast um og er því ástæða
til að hvetja hryssueigendur að
ígrunda vel hvort hryssan eða hryss-
ur þeirra eigi möguleika á landsmóts-
ferð. Sagði Kristinn þessa nýju að-
ferð hafa mikla yfirburði yfir gamla
fyrirkomulagið sem hafði bersýni-
lega mikla skekkju í för með sér þar
Toyota Carine E '93, blár, sjálfsk., ek. 26
þ., 1600, rafm. í rúðum, central læs. o.fl
V. 1450 þús.
MMC Colt GL ’90, grænsans, 5 g. ek.
72 þ. V. 650 þús.
Toyota Double Cab SRS bensfn '93,
m/húsi, 5 g., ek. 20 þ., álfelgur, brettakant-
ar, 31“ dekk o.fi. V. 2.050 þús.
Toyota 4Runner V-6 '93, 4ra dyra, 5 g.,
ek. 2 þ. km. V. 2.9 millj.
Toyota Corolla XL '90, 3ja dyra, 4 g , ek.
70 þ. V. 680 þús.
MMC Lancer GLX '92, silfurgrár, sjálfsk.,
ek. 23 þ. V. 1050 þús. stgr.
Ford Ranger XLT '92, 4x4, V-6, 4,0I
vél, blár, rafm. í rúðum, álfelgur, 3T' dekk.
Einn m/öllu. V. 1590 þús., sk. á ód.
Subaru Legacy station '90, brúnsans, 5
g., ek. 55 þ., rafm. í rúðum o.fl. Ath. Sum-
ar og vetrardekk á felgum. V. 1270 þús.
Chevrolet Blazer S-10 sport '91, 4,3 I.
vól, vínrauður, sjálfsk., ek. 46 þ. km., rafm.
í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1980 þús. stgr.
MMC Colt EXE '92, 1500, 5 g„ ek. 44
þ„ rafm. í rúðum, álfelgur, spoiier, central
o.fl. V. 990 þús.
Honda Civic GL '89, 3ja dyra, hvítur, 5
g„ ek. 63 þ. V. 710 þús„ sk. á dýrari 300
þús. upp.
MMC Lancer GLXi '93, vínrauður, sjálfsk.,
ek. 22 þ„ rafm. í rúðum, central læs o.fl.
V. 1350 þús.
Subaru station 1800 GL '91, blár, 5 g„
ek. 47 þ. V. 1070 þús. Vantar nýl. 7 manna
bíl.
Toyota 4Runner EFi '85, 5 g„ ek. 113
þ„ sérskoðaður, 35" dekk, 4:10 hlutf.,
sóllúga o.fl. Gott eintak. V. 1080 þús„ sk.
á ód.
Range Rover '85, sjálfsk., ke. aðeins 59
þ. V. 1380 þús„ sk. á ód.
MMC Pajero V-6 '91, 5 g„ ek. 40 þ„ ál-
felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1980 þús„
sk. á ód.
MMC Pajero V-6 '91, langur, grár/blár,
sjálfsk., ek. 52 þ„ sóllúga, álfelgur, rafm.
í öllu o.fl. V. 2.2 millj., sk. á ód.
Toyota Corolla XLi '93, rauður, sjálfsk.,
ek. 14 þ„ spoiler o.fl. V. 1180 þús.
Kolfinnur frá Kjarnholtum á rétt á að koma fram .á landsmótinu
með afkvæmum og svo gæti farið að sonur hans Dagur frá Kjarn-
holtum yrði þar einnig í sömu erindagjörðum. Knapi er Gísli Gíslason.
Daihatsu Charade TS EFi 16v ’93, rauð-
ur, 1300 vél, bein innsp., 5 g., ek. aðeins
6 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús.
Forskoðun fyrir landsmót 1994
Mai Júní
4. Dómar á Stóðhestast. BÍ. 1. Gaddstaðaflatir. Melgerðismelar.
5.-6. Dómar á Stóðhestast. BÍ. 2. Gaddstaðaflatir. Melgerðismelar.
7. Sýning á Stóðhestastöðinni 3. Gaddstaðaflatir Melgerðismelar.
16. Mosfellsbær/V armárb. 4. Gaddst.fl., yfirlitssýn. Melgerðism., yfirlitssýn.
17.-19. Víðidalur. 5. Gaddstaðafl., verðl.af.
20. Víðidalur, yfirlitssýning. 6. Snæfellsnes. Vindheimamelar.
23. Víðidalur, verðlaunaveiting. 7. Dalir. Vindheimamelar.
24. Vestfirðir. 8. V.-Húnavatnssýsla. Vindheimamelar.
25. Vestfirðir. Hornafjörður/Fornustekkar. 9. Borgarnes. Vindheimamelar.
26. Vestfirðir. Hérað/Stekkhólmi. 10. Borgarnes. Vindheimamelar.
27. Gaddstaðaflatir. Hérað/Stekkhólmi. 11. Borgarn., yfirlitss. A.-Húnavatnssýsla.
28. Gaddstaðaflatir. N.-Þingeyjarsýsla. 12. Vindheimam., yfirlitss.
30. Gaddstaðaflatir. Húsavík.
31. Gaddstaðaflatir. Svarfaðard./Flötutungur.