Morgunblaðið - 01.03.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SIARZ 1994
33
Ráðstjóm við Þingvallavatn
- afmælisgjöf einhverra?
eftir Bjarna Helgason
Undanfarin ár hefur starfað svo-
kölluð samvinnunefnd um svæðis-
skipulag i Þingvalla-, Grafnings-
og Grímsneshreppum. Er talið, að
nefndin sé nú á lokasprettinum með
að skila af sér tillögum um skipulag
þessara hreppa, þ.e.a.s. tillögu um
stjórnun og meðferð náttúru og
mannlífs á þessu svæði til næstu
20 ára.
Sérstaklega er sótt að svæðinu
umhverfis Þingvallavatn. Hug-
myndir um sérstaka friðun þessa
svæðis hafa sífellt gengið aftur í
samvinnunefndinni, þrátt fyrir við-
leitni einstakra heimamanna til að
kveða þær niður. Svo langt hafa
þessar hugmyndir þróast að í tillög-
um nefndarinnar nú eru bein fyrir-
mæli til yfirvalda um að vinna að
gerð sérstakrar löggjafar til vernd-
ar hinu meinta vatnasviði Þingvalla-
vatns. Ráðgjafar þessarar skipu-
lagsnefndar og kannski einhvetjir
fleiri hafa meira að segja látið sér
detta í hug að gefa mætti þjóðinni
svona friðunarlöggjöf í afmæíisgjöf.
Reyndar kemur hvergi nægilega
skýrt fram hvað eigi að standa í
svona löggjöf, en tóninn má lesa í
viðtali við formann þessarar „sam-
vinnunefndar“ í Mbl. 8. þ.m. Þar
er haft eftir formanninum að rætt
hafi verið um stækkun þjóðgarðsins
á Þingvöllum, en talið óframkvæm-
anlegt nema kaupa upp jarðir til
viðbótar. Það er hins vegar látið
liggja milli hluta hveijir hafi rætt
þetta, samvinnunefndin, Þingvalla-
nefnd eða kannski bara ráðgjafar
nefndarinnar sjálfir. Patent-lausn-
inni er þrátt fyrir þetta lýst í eftir-
farandi orðum: Lög um vatnasvið
„Fáir hafa almennt lagt
meira af mörkum til
bættrar umgengni við
náttúruna en sumarbú-
staðaeigendur.“
Þingvallavatns mundu í reynd
vernda stórt svæði kringum þjóð-
garðinn án þess að til þurfi að koma
jarðakaup eða eignaupptaka. Það
hefur áreiðanlega þótt óviðeigandi
að tala um skerðingu á eignar- og
afnotarétti samhliða þessari sér-
stæðu lögskýringu nefndarfor-
mannsins.
Sjálfsagt munu einhverjir líka
staldra við þá fullyrðingu að stað-
festing ráðherra á hugsanlegu
skipulagi gefi því lagagildi. Þetta
er ámóta fráleitt og enn ein lögskýr-
ingin sem haldið hefur verið að
fulltrúum hreppanna að staðfesti
þeir skipulagstillögurnar sé Alþingi
nauðbeygt til að fara eftir þeim við
hugsanlega lagasetningu. Það er
sem sé verið að telja fulltrúum
hreppanna trú um að þeir geti fyrir-
fram bundið hendur Alþingis í sam-
bandi við lagasetningu.'Hér er vafa-
laust nýr vettvangur lögskýringa
fyrir lögmenn landsins til að spreyta
sig á.
í viðtalinu við formanninn er
reynt að slá ryki í augu lesenda
með því að segjast hafa haft sam-
ráð við Pétur M. Jónasson líffræð-
ing í Danmörku varðandi tillögu að
lagasetningu um vatnasvið Þing-
vallavatns, af því að hann ásamt
fleirum gaf árið 1992 út fræðirit
um Þingvallavatn. Af því fræðiriti
Bjarni Helgason
er hvergi hægt að draga ályktun
um þörf á sérstakri verndunar- eða
friðunarlöggjöf fyrir gjörvallt Þing-
vallavatnssvæðið.
í greinargerð með tillögum sam-
vinnunefndarinnar, dags. 21. jan-
úar sl., er bent á að sumarhúsa-
byggðinni fylgi mengunarhætta og
er það auðvitað sameiginlegt allri
annarri byggð í landinu. En þetta
er í rauninni rauði þráðurinn í sam-
eiginlegri greinargerð ráðgjafanna,
dags. 12. nóvember á sl. ári um
verndun vatnasviðs Þingvallavatns
og bakgrunnurinn að ósk þeirra um
sérstakar friðunarráðstafanir af
hálfu Alþingis. Svo langt er gengið,
að á bls. 42 í þeirri greinargerð,
sem reyndar virðist eiga að vera
viðauki nr. 2 eða 3 í síðustu útgáfu
skipulagstillagnanna og er endur-
tekið þar á bls. 135, segir orðrétt:
„Koma þarf í veg fyrir frekari
mengun Þingvallavatns." I vísinda-
ritinu mikla um Þingvallavatn sem
ráðgjafarnir vitna ótæpilega til er
samt ekkert um mengun þrátt fyrir
rannsóknir í 18 ár og kostnað á við
eitt raforkuver. Þessi fullyrðing um
„frekari" mengun, sem er ein af
hinum stóru forsendum skipulags-
tillagnanna, fær því ekki staðist en
hún lýsir aílvei hug forsjárhyggju-
fólksins í garð sumarhúsaeigend-
anna víðsvegar kringum vatnið.
Fáir hafa almennt lagt meira af
mörkum til bættrar umgengni við
náttúruna en sumarbústaðaeigend-
ur og fáir hafa verið sér meira
meðvitaðir um umhverfi sitt. Það
kemur því úr hörðustu átt, þegar
sumir ráðgjafa nefndarinnar vega
að ræktunaráhuga og viðleitni
fólksins til að skapa sér skjól og
fegurð í lundum nýrra tjáa og vilja
ráða því hvar og hverju hver og
einn plantar. Hvílík ósvífni!
Það er von að ráðgjafamir spyrji
sjálfa sig á bls. 134 í skipulagstil-
lögunum: „Hverju hvísluðu hrafnar
Óðins, Huginn og Muninn, í eyru
■ HÚNVETNINGAFÉLA GIÐ í
Reykjavík heldur árshátíð sína
laugardaginn 5. mars kl. 19.15 í
Akóges-salnum, Sigtúni 3.
Skemmtikraftar úr heimahéraði
ásamt kór félagsins sjá um
skemmtiatriði. Dans á eftir. Miða-
sala í Húnabúð þriðjudag kl. 17-21
og fimmtudag kl. 17-21.
Snorra Sturlusonar á lögsögg-
mannsárum hans.“ Kannski hafa
þeir hvíslað að honum að fólkið vildi
helst fá að vera í friði, laust við
miðstýringu einhvers konar Þing-
vallanefnda og ráða. - Fyrir hönd
þeirra sem I verki hafa sýnt náttúru
og umhverfi Þingvallavatns sóma
hafna ég ráðstjórn um svæðið og
lagasetningu þar að lútandi sem I
besta falli gæti þjónað hégómaskap
örfárra manna. Allir sem svæðisins
njóta hljóta að bregðast mjög hart
við hvers kyns viðleitni til þess að
skerða rétt sinn umfram það sem
þegar er gert í almennri löggjöf
þjóðarinnar.
Höfundur er jarðvegsfræðingur
og formaður Félags landeigenda
við Þingvallavatn.
-------» ♦ ♦------
■ BIBLÍUSKÓLINN við Holta-’
veg gengst fyrir námskeiði um
málefni fjölskyldunnar út frá
kristnu sjónarmiði og trúarlegt upp-
eldi laugardaginn 5. mars kl. 10-17
í Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58-60. Námskeiðinu er ætl-
að að vera hagnýt hjálp til þeirra
sem vilja veita börnum sínum trúar-
legt uppeldi. „Fjölkyldan, heimilið,
börnin — kristin fjölskylda í nútíma-
samfélagi" er heiti fyrsta fyrirlest-
ursins sem fluttur verður af Ragn-
ar Gunnarssyni kristniboða. SSðan
íjallar Anna G. Hugadóttir, hús-
móðir og uppeldisfræðinemi, um
trúarþroska barna, en Gunnar J.
Gunnarsson lektor leitar svara við'"
því hvernig við getum alið upp til
trúar og talar um þau vandamál
sem foreldrar og forráðamenn
standa frammi fyrir í uppeldi barna.
Að lokum verða almennar umræður
um efni þess og umræðuhópar að
störfum. Námskeiðið er öllum opið
sem áhuga hafa á trúarlegu upp-
eldi. Námskeiðsgjald er 800 kr. en
það er einkum fyrir léttum hádegis-
verði og kaffi. Skráning fer fram S
síma 678899 og lýkur fimmtudag-
inn 3. mars. . -
skólar/námskeið
stjórnun
■ Breytum áhyggjum í
uppbyggjandi orku!
ITC námskeióið Markviss málflutningur.
Upplýsingar: Kristín Hraundal,
sími 34159.
starfsmenntun
■ Námskeið hjá
Stjórnunarfélagi
fslands:
Endurgerð vinnuferla (Re-engine-
ering the Corporation)
2. mars kl. 15.00-17.00.
Leiðin til árangurs (Phoenix)
2., 3. og 4. mars kl. 12.00-18.00.
Leiðin til árangurs (Phoenix)
8., 9. og 10. mars kl. 16.00-22.00.
Leiðir til sterkrar samningsstöðu
9. og 10. mars kl. 13.00-17.00.
Markaðs- og söluáætlun
fagmannsins
14. og 15. mars kl. 13.00-17.30.
Símsvörun og þjónusta í síma
14. og 15. mars kl. 9.00-12.00.
Þekking - þjálfun - þátttaka
(námskeið f. konur)
15. mars kl. 13.00-17.30.
Nánari upplýsingar
í síma 621066.
tungumál
■ Enskuskóli nærri York
Alm. námskeið 2-20 vikur. Stöðupróf í
upphafi náms. Fámennir hópar (6-7).
Viðurkennd próf ef óskað er.
Upplýsingar gefur Marteinn M.
Jóhannsson í s. 811652 á kvöldin.
Enska málstofan
■ Enskukennsla:
★ Einkakennsla fyrir einn eða fleiri á
afar hagstæðu verði.
★ Aðstoð og ráðgjöf til fyrirtækja
vegna þjálfunar og sjálfsnáms í
ensku.
★ Viðskiptaenska, aðstoð við þýöingar
o.fl.
Upplýsingar og skráning
í sfma 620699 frá kl. 14-18
alla virka daga.
ENSKUSKÓLINN
Túngötu 5.
Hin vinsæiu 7 vikna enskunámskeið eru
að hefjast.
★ Áhersla á talmál.
★ 10 nemendur hámark í bekk.
★ 10 kunnáttustig.
Einnig er í boði:
Viðskiptaenska, rituð enska, umræðu-
hópar, toefl-undirbúningur. Einkatímar.
Tungumálaskólar í Englandi.
★ Enskir sérmenntaðir kennarar.
★ Markviss kennsla í vinalegu umhverfi.
Hafðu samband og fáðu frekari
upplýsingar í síma 25900.
tÖlvur
■ Næstu námskeið Tölvu- og verk-
fræðiþjónustunnar, s. 688090:
■ Macintosh fyrir byrjendur. Nauð-
synlegur undirbúningur fyrir notkun
tölvunnar, 7.-10. mars kl. 16-19 eða
14.-17. mars kl. 9-12.
■ Excel töflureiknirinn. 15 kist.
námskeið um töflureikninn frábæra,
14.-18. mars kl. 16-19.
■ Windows og PC grunnur. 9 klst.
námskeið um grunnatriði tölvunotkunar
og Windows. 7.-9. mars kl. 13-16.
■ Windows kerfisstjórnun. Fyrir
þá sem vilja vita miklu meira um
Windows. 15.-18. mars kl. 9-12.
■ Power Point. 6 klst. námskeið um
notkun forritsins við glærugerð og fram-
setningu, 7.-8. mars kl. 16-19.
■ Word ritvinnslan fyrir Macintosh
og Windows. 15 klst. fjólbreytt rit-
vinnslunámskeið, 7.-11. mars kl. 9-12.
■ PageMaker umbrotsforritið.
Námskeið um uppsetningu og umbrot
blaða, bóka, fréttabréfa, eyðublaða o.fl.,
14.-18. mars kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 688090.
■ Bókhaldsnám
Bókfærsla fyrir byrjendur, 16 klst.
Bókhaldsnám fyrir þá sem starfa vilja
sjálfstætt við bókhald, 72 klst. Með nám-
inu fylgir skólaútgáfa af fjárhags- og við-
skiptamannabókhaldi og 30% afsláttur
allt að 45.000 kr. til kaupa á STÓLPA
bókhaldshugbúnaði.
Innritun í dag- og kvöldhópa er hafin í
síma 616699.
Fk Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28. simi 616693
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1
- PC grunnnámskeið
- Word fyrir Windows og Macintosh
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel fyrir Windows og Macintosh
- PageMaker fyrir Windows/Macintosh
- Paradox fyrir Windows
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Word og Excel framhaldsnámskeið
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning í síma 616699.
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, simi 616699
tómstundlr
■ Ný námskeið að hefjast
Glerperiugerð, brauðtertur, fluguhnýt-
ingar, sjálfsnudd, garðrækt, trjáklipping-
ar, litur og lýsing.
Tómsstundaskólinn,
sími 677222.
ýmlslegt
■ Enska 103 og 203, kr. 10.200
- Bréfaskólinn.
■ Siglingafræði, kr. 12.200
- Bréfaskólinn.
■ Tölvubókhald, kr. 9.800
- Bréfaskólinn.
■ Bókfærsla, kr. 7.500
- Bréfaskólinn.
■ Arabíska, kr. 7.800
- Bréfaskólinn.
Öll námsgögn og yfirferð verkefna
innifalin.
Sendum ókeypis kynningarefni.
Hlemmi 5,
pósthólf 5144, 125 Reykjavík,
síml 91-629750.
1994
1. 16., 17., 21. og 22. mars.
2. 6., 7., 11. og 12. apríl.
3. 13., 14., 18. og 19. apríl.
4. 27., 28. apríl og 2. og 3. maí.
5. 4., 5., 9. og 10. maí.
6. 25., 26., 30. og 31. maí.
7. 1., 2., 6. og 7. júní.
8. 8., 9., 13 og 14. júní.
Kennsluefni:
Umönnun barna og skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning:
Sími 688188 kl. 8-16.
■ Orkubrautir likamans
Fyrirlestur
Þriðjudagskvöldið 1. mars kl. 20.30
verður haldinn fyrirlestur í sal SVFR á
2. hæð í Austurveri við Háaleitisbraut
sem fjallar um:
Orkubrautir líkamans
- vegakort til vellíðunar.
Fyrirlesari er Olfur
Ragnarsson, læknir.
Nálastungulækning-
ar byggja á „acup-
uncture", hinum
fornu nálastunguað-
ferðum Kínveija, en
með þeim unnu þeir
stórkostleg læknisafrek nokkur þúsund
árum áður en vestræn læknisfræði kom
til sögunnar. Kynntar verða helstu orku-
brautir líkamans, lykilpunktar sýndir og
fjallað um mikilvægi þess að um þessar
orkubrautir sé jafnt orkuflæði til að við-
halda heilbrigði líkamans. Þetta er
fræðsla sem allir þurfa á að halda.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Aðgangseyrir er 300 kr.
Nýaldarsamtökin
■ Candita - Sveppaóþolsnámskeið
Hefst í kvðld, 4 skipti, kr. 6.900,-.
Sólveig Eiríksdóttir býður upp á nám-
skeið í matreiðslu grænmetisrétta úr
hráefni sem er laust við sykur, hvítt
hveiti, ger og óæskileg aukaefni.
Leiðbeiningar frá ónæmissérfræðingi
fylgja. Námskeiðin verða haldin á Matstof-
unni á Næstu grösum, Laugavegi 20B.
Uppl. og bókanir i sima 671812.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Aðeins 4 nemendur í hóp. Bæði dag-
og kvöldtímar. Faglærður kennari.
Upplýsingar í sfma 17356.
■ Waldorfsbrúðugerð
Kvöld- og helgamámskeið.
Upplýsingar í síma 44637.
Hildur Guðmundsdóttir.