Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 Gylfi Hjálmarsson prentmi - Minning Fæddur 13. janúar 1944 Dáinn 20. febrúar 1994 Mágur minn og kær vinur Gylfi Hjálmarsson er látinn eftir stutt en erfið veikindi. Það var sárt að sjá þennan hávaxna og myndarlega mann bugast líkamlega á jafn- skömmum tíma og raunin varð. Það varð strax ljóst eftir að Gylfi greind- ist með krabbamein skömmu fyrir jól að brugðið gæti til beggja vona með bata. Gylfi tók á þeirri stöðu á þann hátt sem alltaf hefur ein- kennt hann. Af nákvæmni og sam- wiskusemi gekk hann frá öllum sín- um veraldlegu málum og tókst síðan á við veikindi sín af æðruleysi en þó alltaf af fullum krafti þar til yfir lauk. Eftir sitjum við hin, hníp- in og með tómleikatilfinningu í sál- inni og veltum fyrir okkur af hveiju þessi góði drengur hafi verið kallað- ur burt úr þessu lífi svo snemma. Gylfí var annað barn foreldra sinna þeirra Hjálmars Guðmunds- sonar skipstjóra og Huldu Guð- mundsdóttur hjúkrunarfræðings, eldri var bróðir hans Gunnlaugur og yngri systir Sjöfn. Æskuheimili hans var að Kjartansgötu 1 og á sjötta áratugnum þegar hann var -^ið alast upp var heilmikið rými fyrir tápmikla stráka til leikja og athafna í Norðurmýrinni, á Klambratúninu eins og Miklatún hét þa og svo auðvitað á Valsvellin- um. íþróttirnar skipuðu stóran sess í lífi hans. Á yngri árum lék hann bæði handknattleik og knattspyrnu með Val og síðar lengi með meist- araflokki Fram í handknattleik. Hann kvæntist árið 1966 eftirlif- andi eiginkonu sinni Veru Snæ- hólm. Þau eignuðust tvær dætur, _*Magnhild og Veru Ósk, sem nú búa báðar í Toronto í Kanada en ungan son misstu þau skömmu eftir fæð- ingu. Gylfi lauk námi í prentiðn árið 1965 og starfaði síðan hjá Morgunblaðinu allt til ársins 1969 að hann flutti með fjölskyldu sína til Toronto í Kanada. Þar starfaði hann síðan næstu tuttugu árin hjá stórfyrirtækinu „Simpson Sears“ og vann við gerð pöntunarlista fyr- irtækisins. Þegar Gylfí sneri aftur til íslands árið 1989 hóf hann störf Glæsileg Iviiífi- hlaðborö fidlegir salirogmjög góð þjcmusliL Upplýsingar . í síma22322 0 FLUGLEIDIR BÍTEL LtFTLElllR á Morgunblaðinu á ný og vann þar til dauðadags. Ég minnist þess með þakklæti hve vel hann tók mér strax er ég kom inn í fjölskyldu hans er ég kvæntist systur hans. Þó að hann flyttist til Kanada skömmu síðar áttum við Sjöfn þó eftir að eiga margar góðar stundir með Veru og Gylfa þau ár sem við bjuggum í Bandaríkjunum. Það var að vísu langt á milli okkar en við töluðum saman í síma vikulega og flest jólin okkar ytra nutum við gestrisni þeirra. Eftir heimkomuna 1989 gáfust svo aftur fleiri tækifæri til samveru með fjölskyldu og vinum og áberandi var hve mikla um- hyggju og natni hann sýndi foreldr- um sínum á þessum tíma eins og hann vildi bæta þeim upp þau ár sem hann hafði verið fjarri heima- högum. Gylfi var ákaflega ljúfur maður og þægilegur í umgengni, hann var orðvar um aðra en lá hins vegar ekkert á skoðunum sínum um mál- efni sem honum voru hugleikin og var rökfastur og fastur fyrir ef því var að skipta. Milli okkar Gylfa ríkti vinátta sem aldrei bar skugga á og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Ég veit að ég á eftir að sakna hans mikið, ekki síst nú þegar styttist í vorið og ég hugsa til þeirra skemmtilegu stunda sem við áttum saman á golfvellinum síð- astliðin sumur. Það er þungbær reynsla aldraðra foreldra hans að sjá nú á bak syni sínum en þeim og ykkur, elsku Vera, Magnhild og Vera Ósk, sem missirinn er sárast- ur, bið ég að Guð gefi styrk til að takast á við sorgina. Sigurjón Arnlaugsson. Okkur langar með fáum orðum að minnast vinar okkar Gylfa Hjálmarssonar, en þeim hjónum Gylfa og Veru kynntumst við sum- arið 1977 er við fluttum búferlum til Kanada með börnin okkar tvö. Þar bjuggu þau hjón ásamt dætrum sínum í 20 ár og urðum við ná- grannar. Gylfi var sannur vinur og félagi, mikill íþrótta- og íþróttaáhugamað- ur sem hafði drengskap og heiðar- leika í fyrirrúmi. Á hveijum laugar- degi var farið á golfvöllinn, en á eftir spjallað saman í garðinum, um árangurinn og alla heima og geima. Þegar við fluttumst öll til Islands árið 1989 hélt kunningsskapurinn og golfferðirnar áfram af fullum krafti. Kæri vinur, þín mun verða sárt saknað. Þar sem ég sit yfir sjúkri systur minni erlendis og get ekki fylgt þér til grafar sendi ég þér mínar bestu kveðjur. Vera mín, Mæja og Ósk, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Erna og Bergþór. Kynni okkar Gylfa Hjáimarsson- ar voru slitrótt þá tæpa tvo áratugi sem þau stóðu. Þar komu ekki að- eins til landfræðilegar fjarlægðir, íslenskur efniviður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið SB S. HELGASQN HF upplýsinga. IISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677 heldur einnig aldursmunur og ólík áhugamál. Gylfi hafði verið keppn- ismaður í íþróttum og þær áttu enn sterk ítök í honum, hann unni íþróttum af lífi og sái. Hins vegar var áhugi minn á íþróttum að mestu gufaður upp, það var einungis skák- in sem ég hélt tryggð við. En við áttum sameiginlegan reit í sagn- fræði. Gylfi hafði áhuga á nútíma- sögu, einkum persónusögu, las mik- ið um þau efni og minni hans þar var mikið og gott. En þótt kynni okkar væru ekki nánari en þetta, voru þau nógu djúp til þess að ég þóttist þekkja hvern mann hann hefði að geyma. Þess vegna kom hetjulund hans í baráttu við ósigr- andi sjúkdóm mér ekki á óvart. Enginn sá á honum né heyrði að hann vissi mætavel að hveiju stefndi síðustu vikurnar. Við fráfall Gylfa koma mér í hug orðaskipti úr Njáls sögu. Fræg eru orð Gunnars á Hlíðarenda, er þeir bræður hann og Kolskeggur riðu saman fram að Markarfljóti á leið af landi brott, í útlegð. Hestur Gunnars drap fæti, Gunnar stökk af baki og varð litið upp til hlíðar- innar og bæjarins að Hlíðarenda. Þá mælti hann: „Fögur er hlíðin og hefír mér hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi." Þessi orð kannast hvert mannsbarn við, en ekki er svar Kolskeggs jafn þekkt og það á skil- ið. Kjarni þess felst í ógleymanleg- um orðum: „. . . hvorki skal eg á þessu níðast og á engu öðru því er mér er til trúað.“ Þannig hefði Gylfi einnig mælt. Hann var hreinskiptinn og drengi- legur, orðum hans mátti ávallt treysta. Slíks manns er gott að minnast. Ástvinum Gylfa sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur. Guðmundur Arnlaugsson. Man ég hvað þeir Melar seiddu margan ungan dreng til sín segir í einu Valsljóði og mér dettur það í hug þegar minningar um Gylfa líða hjá í huganum. Ég hugsa ekki um gömlu Melana heldur Hlíð- arenda-svæðið sem dró okkur félag- ana til sín og þar sem við á ung- lingsárum bundumst vináttubönd- um í leik og starfi. Við strákarnir vorum í knatt- spymu og handbolta og strax varð Gylfi fastur leikmaður með yngri flokkum Vals í þessum íþróttum. Gylfi var traustur og sterkur í markinu í fótboltanum en skothark- an og baráttan var það sem hann var þekktur fyrir í handboltanum. í báðum greinum lék Gylfi síðan meistaraflokksleiki með Val en fljótlega skipti hann um félag í handboltanum og gerði þá garðinn frægan með sigurliði Fram á þess- um árum og lék m.a. við hliðina á bróður sínum, Gunnlaugi, hinum kunna landsliðsmanni. Á þessum árum var margt skemmtilegt gert. Við vöndum komur okkar á heimili hvor annars og alltaf minnist ég þess hversu velkominn ég var á Kjartansgötuna heima hjá Gylfa. Við fórum mikið saman upp í Valsskála á vetrum þótt ekki vær- um við neinir skíðamenn, heldur sóttum við í útiveruna og félagslífið í skálanum. Nokkrar keppnisferðir eða skemmtiferðir voru farnar með Val og mætti margt segja frá þeim ferðum. Þegar árin færðust yfir okkur urðu þó tvær skemmtiferðir sem við fórum í uppspretta mikils hlát- urs og kátínu. Sú fyrri var farin norður í Iand með dönskum vini okkar þar sem við vorum að sýna honum landið. Allt gekk þetta nú vel þangað til átti að gista á Akur- eyri í lok ferðarinnar. Peningarnir voru af skornum skammti. Þessi danski vinur okkar vildi endilega inn á hótel. Það fannst okkur Gylfa allt of dýrt og réðum við því að um nóttina sváfum við í bílnum okkar í næsta nágrenni við öskuhaugana á Akureyri. Segir lítið af svefni okkar þessa nótt en þetta var nú landkynningin okkar. Seinni ferðin okkar var öllu lengri. Þá ákváðum við nokkrir félagarnir að það væri ódýrara að sigla til Kaupmanna- hafnar á 3. farrými Dronning Alex- andrine en fara norður í land í sum- arfríinu. Þó við værum nokkrir sem ákváðum einn vordaginn að fara út fórum við bara þrír í ferðina sem var ógleymanleg og endaði með viku í París áður en siglt var aftur heim frá Kaupmannahöfn. Gylfi var traustur félagi og það sannaðist okkur spilafélögunum sem höfum haldið hópinn í rúm 30 ár. Þegar Gylfi flutti ásamt Tjöl- skyldu sinni til Kanada 1969 sökn- uðum við vinar í stað og ánægja okkar var mikil þegar hann kom aftur. Þegar Gylfi mætti í spila- klúbbinn fannst okkur eins og hann hefði verið með alla tíð. Þegar ákveðið var að Gylfi og Vera flyttu heim til íslands aftur þurfti hann að leita sér að vinnu. Það lýsir vel hvem hug vinnuveit- endur Gylfa á Morgunblaðinu báru til hans, að þegar hann leitaði eftir vinnu þar aftur var hann umsvifa- laust boðinn velkominn til starfa. Mér er minnisstætt hversu glaður Gylfi var þegar hann sagði mér tíð- indin. Gylfi vildi hafa reglu á hlutunum, orð áttu að standa og engum vildi hann skulda neitt, ekki einu sinni lítilræði. Þegar ég skrifa þetta sé ég brosið hans fyrir mér þegar mér er það ljóst að það er ég sem skulda honum en hann ekki mér. Síðustu ár gerðum við að venju að horfa saman á víðavangshlaupið á sumar- daginn fyrsta og fá okkur síðan hressingu á einhveiju kaffihúsinu á eftir, og það var hann sem borgaði síðast. Valsmaður var Gylfi mikill. Við hjónin höfðum lengi haft hug á að heimsækja þau Veru til Kanada. Það varð svo loks 1981 að við fórum í um tveggja vikna ferð til Toronto en ekki alveg ein, heldur um 20 manna hópur Valsmanna, strákar 15-16 ára og fararstjórar. Gylfi og Vera höfðu undirbúið móttökurnar og fengið nágrannana í næstu hús- um til að hýsa hópinn. Þarna nutum við einstaklega skemmtilegrar ferð- ar og móttökur eru enn og aftur þakkaðar. Ræktarsemin við Val var svo aftur sýnd nú í ár þegar Gylfi bað okkur vinina í spilaklúbbnum að sleppa sér við afmælisgjöf og gefa heldur peningana til einhverrar starfsemi innan Vals, en það fannst honum alveg sjálfsagt, af því við værum allir Valsmenn. Svona var Gylfi, ljúfur, elskuleg- ur og drengur góður. Gylfi er ótímabært farinn í sína ferð, þá ferð sem við öll eigum fyr- ir höndum. í ljóði Snorra Hjartarsonar, Ferð, segir skáldið: En handan við Qöllin og handan við áttimar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. Minningin um góðan félaga lifir. Við spilafélagarnir og eiginkonur okkar vottum öldruðum foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum sam- úð okkar. Elsku Vera, Magnhild og Ósk, Guð styrki ykkur í ykkar miklu sorg. ' Róbert Jónsson. Kveðja í morgun saztu hér undir meiði sólarinnar og hlustaðir á fuglana hátt uppí geislunum minn gamli vinur en veizt nú, i kvöld hvernig vegimir enda hvemig orðin nema staðar og stjömurnar slokkna (Hannes Pétursson.) í dag verður borinn til grafar Gylfi Hjálmarsson, sem lést langt um aldur fram eftir stutt en erfið veikindi. í dag eiga margir erfitt, en allt tekur enda — jafnvel erfið- leikarnir líka. Stundum koma þau atvik fyrir í lífinu að orðin sitja ein- hvers staðar föst. Ótímabært frá- fall Gylfa vinar míns er eitt þeirra. Ég veit þó fyrir fullt og fast að Gylfi hefði ekki viljað að menn legð- ust í víl sín vegna, heldur litu hlut- ina með björtum huga. Þannig var hans lífsstíll og þannig tók hann flestu sem fyrir bar í lífinu með jafnaðargeði. Leit yfirleitt á björtu hliðarnar og stutt var oft í drengja- legt og góðlegt brosið hans. Þá var oftar en hitt stutt í spaugið og þá lifnaði allt í kringum hann og allt . virkaði svo bjart og gott. Slík endur- minning hjálpar mörgum í dag og mér finnst ég svo miklu betri mað- ur að fá að eiga slíkar minningar. Það veitir sálaryl og styrk. Gylfi fæddist í Reykjavík 13. jan- úar 1944 og var því nýorðinn 50 ára þegar hann andaðist á Landa- kotsspítala hinn 20. febrúar. For- eldrar hans eru Hjálmar Guðmunds- son skipstjóri og Hulda Gunnlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðing- ur. Hann tók sveinspróf í setningu 5. júní 1965 og það ár hóf hann störf á Morgunblaðinu. Gylfi hélt vestur um haf til Kanada 1969, þar sem hann starfaði hjá. Simpson Sears til ársloka 1988. í byijun árs 1989 kom hann aftur heim og hóf störf á ný hjá Morgunblaðinu. Gylfi kvæntist Veru Snæhólm 3. apríl 1966 og eignuðust þau tvær dætur, Magnhild og Veru Ósk. Gylfi var mikill heimilisfaðir og því leitaði hugur hans oft til Toronto, en þar eru dætur hans búsettar. Þar hafði hann líka sjálfur búið og sem mikill íþróttaunnandi átti hann sér uppáhaldsfélag — hafnaboltalið- ið Toronto Blue Jays. Gylfi fylgdist vel með félaginu í leik og þeir voru ófáir morgnarnir sem hann kom inn á íþróttadeildina til að fá upplýs- ingar um leiki í hafnaboltanum sem fóru fram um nóttina. Sem fyrr segir hafði Gylfi mikinn áhuga á íþróttum, enda átti hann ekki langt að sækja þann áhuga. Á yngri árum var hann þekktur íþróttamaður. Lék hann t.d. með fyrsta unglingalandsliðinu í hand- knattleik, sem tók þátt í Norður- landamóti. Seinna varð hann marg- faldur íslands- og Reykjavíkur- meistari með Fram, en hann lék við hlið Gunnlaugs (Labba) bróður síns. Gylfi lék einnig með meistara- flokki Vals í knattspyrnu og sem unglingur þótti hann mjög efnilegur fij álsíþróttamaður. Gylfi hafði yfir góðri kímnigáfu að ráða, var glettinn og gat' séð broslegar hliðar á ótrúlegustu um- mælum og vangaveltum. Þá var Gylfi glöggur og minnisgóður og rifjaði oft upp gamla atburði á ein- stakan hátt. Hann var þekktur fyr- ir skyldurækni, yfirvegun og sjálfs- aga og vann verk sín afar vel. Hann þoldi ekki óreglu á hlutunum, en vildi hafa allt á sínum stað. Frestaði því ekki til morguns, sem hægt var að gera í dag. Gylfi sló ekki um sig, það var ekki hans lífs- Stfll. Hann var vinur vina sinna og ávallt tilbúinn að veita þá aðstoð sem hann gat. Það var öryggi að vita af honum á næstu grösum. Gylfi var mikill keppnismaður og undirbjó sig vel fyrir hveija orr- ustu, ákveðinn í að láta sitt ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.