Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 39

Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 39 Hjónaminning Jóndís Einarsdóttir * og Armann Jakobsson Jóndis Sigfurrós Fædd 18. apríl 1903 Dáin 12. febrúar 1994 Armann Fæddur 30. júní 1906 Dáinn 22. mai 1991 Nú er hún amma mín, Jóndís Sig- urrós Einarsdóttir, búin að fá hvíld- ina. Já, hún var búin að þrá hvíld- ina, sérstaklega eftir að afí dó. Þau voru svo sterklega tengd og amma fast að því háð afa síðustu árin. Ýmislegt flaug um hugann eftir símtalið sem ég var búin að eiga von á undanfarna daga. Amma og afi „fyrir handan", við systkinin kölluðum þau það alltaf. Þau bjuggu nefnilega „fyrir handan“ heima á Skrúðhömrum á Tálkna- fírði. Við sögðum alltaf: „Má ég fara yfir til ömmu og afa?“ Það var sér- stakt andrúmsloft fyrir handan hjá þeim. Það var sérstök lykt þar og rólegt, stundum allt að því syfjulegt andrúmsloft. Amma var ekki beint þessi ömmu- gæla, sem maður sér fyrir sér úr sögum, allavega ekki í mínum huga. Hún var mjög ákveðin og maður hélt sig á mottunni hjá henni, en samt var hún vissulega góð við okk- ur. Eg man að soðrii fískurinn sem afi var búinn að stappa saman við mörflot, bragðaðist betur en annar soðinn fiskur, kaffilyktin, þegar amma var að útbúa nesti handa afa, ilmaði um allt eldhúsið, og brauð- sneið með rúllupylsu, lagkaka með sultu og jólakökusneið, þessu var raðað af mikilli natni í álnestisboxið hans afa, svo var teygjunni brugðið utan um. Við fengum oft mysing í skeið hjá ömmu. Ég man gæruna sem ég svaf svo oft á fyrir framan sjónvarpið þeirra. Ekki má gleyma ferðaiögunum. Amma fór alltaf á flakk af og til. Ég man það þannig að hún fór með „flugrútunni" og okkur systrunum fannst við þurfa að líta aðeins eftir afa, og jafnvel að færa honum köku, svo honum leiddist ekki, þegar hann var eftir heima. Og svo spenningurinn þegar von var á ömmu heim með rútunni, og amma færði okkur yfirleitt alltaf eitthvað í pakka, þegar hún kom heim. Amma var síprjónandi, og gerði það svo vel að sokkarnir frá henni vöktu oft athygli, bæði þegar ég var í þeim, og ekki síst fallegu barna- sokkarnir, sem barnabarnabörnin gengu í og voru alltaf kallaðir langömmusokkar á mínu heimili. Tif- ið í pijónunum man ég mjög vel, og þá tilfírmingu þegar amma var að máta á mig sokka. Þá klæddi hún mann í sokkinn og strauk svo þétt- ingsfast eftir fætinum. Það var nota- legt. Amma var alltaf þrjósk og ákveðin. Henni varð hvergi hnikað þegar hún hafði ákveðið eitthvað og skipulagt. Þetta vissu allír og þar við sat. Afi var mjúkur maður síns tíma. Hann átti mikla blíðu og þolinmæði. Natni hans við bæði okkur bama- börnin og bamabarnabörnin er trú- lega öllum fersk í minni. Við höfum sjálfsagt flest farið í göngutúra út um móa og tún, með hlýja vinnul- úna, en sterka hönd afa utan um okkur. Og mikið var oft spurt og spjall- að. Þau gáfu okkur öllum mikið, ég gæti sjálfsagt rifjað upp mörg atvik í viðbót, sem ég auðvitað geri með sjálfri mér, en ein stutt og brosleg minning að lokum. Ég sé fyrir mér glettnissvipinn á afa, sem oft skein við manni, þegar ég rita þetta: Ég var búin að vera samvistum við kallinn minn, hann Halla, örugg- lega í tæpt ár, þegar ég tilkynnti honutn að amma og afi fyrir handan, sem ég hafði oft talað um, væru væntanleg í heimsókn á Isafjörð. Þá datt af honum andlitið og hann spurði stamandi hvort þau væru ekki fyrir handan, þ.e.a.s. dáin. En nú eru þau það bæði, og ég treysti því að þeim líði nú báðum vel þar sem þau eru og vel hafi verið tekið á móti ömmu. Ég sé afa í anda sýna ömmu allt undirlendið, grasið, lækina, kindurnar og hestana. Smá tuð, ást og væntumþykja, þannig voru þau. Góður Guð varðveiti ömmu og afa fyrir handan. Ingibjörg. Nú er hún amma horfin frá okkur inn í annan heim, þar sem afí tekur á móti henni opnum örmum, heim þar sem allt er eins og það á að vera og öllum líður vel. Hún amma var ákveðin en alltaf ákaflega góð við okkur og mér eru minnisstæðir sokkarnir fallegu og tifið í prjónunum sem fylgdu henni hvert sem hún fór. En hún var lengi búin að bíða eftir hvíidinni, sér í lagi eftir að afi dó, svo að í gegnum tár- in brosi ég og er glöð hennar vegna. Ég trúi, að nú sé hún hamingjusöm með afa í faðmi Guðs. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristrún Einarsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, GYLFl HJÁLMARSSON, Breiðvangi 3, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, þriðjudaginn 1. mars, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjóð krabbameinssjúkra barna. Vera Snæhólm, Magnhild Gylfadóttir, Vera Ósk Gylfadóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir ökkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANDRÉS KARLSSON, (Kurt Karl Andreas Blumenstein), fyrrv. byggingaeftirlitsmaður, Tómasarhaga 45, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 15.00. Jónina J. Blumenstein, Doris Nilsson, Uno Nilsson, Nína Blumenstein, Ingimundur T. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR frá Heiðarbæ, Vestmannaeyjum, sem lést 24. febrúar síðastliðinn, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00. Minning Sverrir Vilhjálmsson flugumferðarstjóri Hann Sverrir í turninum á Akur- eyri er látinn. Mér varð undarlega við er ég heyrði þessa harmafreg. Sú hugsun, hvað allt er í heiminum hverfult, sótti fast á. Fyrir mér sem flugmanni, sem hefur flogið í innanlandsfluginu árum saman, var þetta með hann Sverri í turninum fyrir norðan, einn af þessum föstu punktum í tilver- unni, eitthvað sem manni fannst að aldrei myndi breytast. Að fljúga norður, ná sambandi í gegnum radíóið við flugturninn, heyra rólega og traustvekjandi rödd Sverris lýsa veðrinu og öllum aðstæð- um, um leið og hann gaf öruggar leiðbeiningar í aðfluginu og allt til lendingar, varð svona fastur liður í lífi manns, sem maður á eftir að sakna. En meira fylgdi með. Það var ekki bara að ávallt væri ánægjulegt að koma norður og vinna með Sverri að því að koma flugvélinni markvisst og örugglega til ákvörðunarstaðar, hvort heldur var í góðu veðri eða slæmu, hitt var ekki síðra, að líta við uppi í turni og þiggja kaffisopa og taka saman spjall. Og var þá margt skrafað. Ekki sízt um hin al- varlegri mál, þótt það væri oftast gert á léttu nótunum. Einkum höfum við Sverrir gaman af að ræða um o III RflðlíiL' HBCÍRC Sími 11440 0 Önnumsterfidrykkjur íokkarfallegaog virðulega Gyllta sal. 101 i mál, sem ef til vill mætti kalla heim- spekilegs eðlis, eins og t.d. um til- gang lífsins og hugsanlegt fram- haldslíf einstaklingsins, andlegar lækningar og tilraunir á því sviði og margt, margt fleira. Sverrir var sérstakur maður, einn af þessum sem maður gleymir ekki. Ég mun eiga eftir að sakna hans sem sérstaklega geðþékks og traustvekj- andi vinnufélaga og vinar. Jæja, Sverrir minn, ég er þess fullviss að þú ert nú kominn til sum- arlandsins góða og vonandi færð þú þar einhver svör við mörgum þeim áleitnu spurningum, sem sækja á alla hugsandi menn. Með þessum fáeinu fátæklegu orð- um kveð ég þig að sinni. Við ástvini þína og aðra vini vil ég láta í ljós hryggð mína og samúð um leið og ég vísa til þessa erindis úr Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Kjartan Norðdahl, flugstjóri. t Ástkær sambýlismaður minn, faðir, sonur og bróðir, GUÐMUNDUR BJÖRGVIN KRISTINSSON, lést af slysförum aðfaranótt 27. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 4. mars kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Laufey B. Friðjónsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÓLAFÍU HALLDÓRSDÓTTUR PETERSEN. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Melsted. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÁRNA SIGURÐSSONAR, Kirkjubraut 17, Innri-Njarðvík. Guðriður Árnadóttir, Vignir Guðnason, Einar Árnason, Sigurþór Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur. t Heiðursborgari Akraneskaupstaðar, SÉRA JÓN M. GUÐJÓNSSON fyrrverandi prófastur, sem andaðist 18. febrúar sl., veröur jarðsunginn frá Akranes- kirkju miðvikudaginn 2. mars nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir, sem vildu minn- ast hans, láti, samkvæmt hans eigin ósk, Byggðasafnið í Görðum á Akranesi njóta þess og skal minningargjöfum varið til að koma á fót listasafni, staðsettu í húsakynnum safnsins. Gefendur skrái nöfn sín í minningabækur sem liggja frammi: í Reykjavík: I Kirkjuhúsinu og á Biskupsstofu. Á Akranesi: í bókaverslunum og blómabúðum bæjarins og á símstöðinni. Fyrir hönd bæjarstjórnar Akraness, Gísli Gislason, bæjarstjóri. t Útför SIGRÚNAR KRISTJÖNU STÍGSDÓTTUR frá Horni, Víghóiastíg 5, Kópavogi. verður gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 2. mars kl. 13.30. Hörður Davíðsson, Harpa Harðardóttir, Gunnar Gunnarsson, Gígja Haröardóttir, Gylfi Guðmundsson, Andrea Sigrún Harðardóttir, Herdis Erna Gunnarsdóttir, Hörður Gauti Gunnarsson, Hitdur Jóna Gylfadóttir, Hjalti Gylfason, Helga Rún Gylfadóttir. t Faðir okkar, tengdaíaðir og afi, JÓN M. GUÐJÓNSSON fyrrv. prófastur, Akranesi, sem andaðist 18. febrúar síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 2. mars kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en bent er á minn- ingabækur, sem liggja frammi: í Reykjavík: í Kirkjuhúsinu og Biskupsstofu. Á Akranesi: ( bókaverslunum og blómabúðum bæjarins, í safnað- arheimilinu og á símstöðinni. Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.