Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
Voðalega eru þeir vitlausir
að halda að við bítum á þetta.
Ást er ...
2-28
.... að leika sér saman
öðru hvoru
TM Reg U.S Pat Off — all rights reserved
© 1994 Los Angeles Times Syndicate
Auðvitað hef ég hreina sam-
visku pabbi. Eg hef aldrei
notað hana.
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Múrarar, aukum vinnuna okkar!
Frá Hreini Þorvaldssyni:
Er ekki tími til kominn að hefja
múrverkið aftur til vegs og efla
innienda efnisnotkun í stað inn-
fluttrar, eins og nú er stefna
margra fyrirtækja í byggingariðn-
aði á kostnað okkar og allra ann-
arra iðnaðarmanna sem eiga við
atvinnuleysi í greininni að stríða?
Hvernig væri að við færum að
hlaða hús aftur úr hraunsteini eins
og gert var á árunum 1950 til
1970 og reynst hafa ágætlega? Nú
er hægt að klæða þau utan ef
mönnum finnst þurfa, en fyrir alla
muni að hlaða alla veggi, múrhúða
og fínpússa innanhúss. Þetta myndi
auka vinnu múrara um helming frá
því sem nú er. Kaupendur gætu
fengið húsin svona, tilbúin undir
málningu og þar með ráðið hraðan-
um með það sem ógert er og þar
með skuldunum.
Ég er alveg gáttaður á innflutn-
ingi heilu húshlutanna eins og nú
er gert og skil satt að segja ekki
í iðnaðarmönnum að þeir skuli ekki
rísa á fætur og mótmæla þeim.
Tökum sem dæmi hve langt er
gengið í þessum efnum nú þegar
fluttar eru inn gifsplötur í stað vik-
urplatna til hleðslu innanveggja.
Þarna er gengið framhjá alíslensku
efni, sem hefur reynst mjög vel og
í stað þess erum við að sóa gald-
eyri og kaupa erlenda vinnu algjör-
lega að ástæðulausu. Svona má
segja um marga aðra hluti til bygg-
inga, eins ög allt það gifs sem flutt
er inn og notað í stað sands og
sements sem við eigum nóg af.
Hættum þessari vitleysu og lát-
um ekki innflytjendur glepja okkur
sýn, notum hefðbundnar aðferðir
og byggjum úr íslensku efni og
notum íslenskt vinnuafl alls staðar
þar sem við komum því við, þá
farnast okkur betur í framtíðinni.
Við múrarar ættum að taka
höndum saman og stofna félag um
byggingu hlaðinna húsa og fá út-
hlutað svæði til smáíbúðabygginga
og þar með sýna fram á að við
getum byggt ódýrustu húsin sjálfír
úr alíslensku efni. Við ættum að
nota lífeyrissjóð múrara til að fjár-
festa í svona verkefni sem kemur
til með að auka vinnu múrara um
helming frá því sem nú er.
Fyrst stóru byggingarfyrirtækin
geta ekki komið kostnaðinum við
íbúðarbyggingar niður, nema með
svo og svo miklum innflutningi til-
búinna húshluta, þá er röðin komin
að okkur iðnaðarmönnum sjálfum
að sjá hvað við getum gert úr
heimafengnu efni og vinnu.
HREINN ÞORVALDSSON,
múrarameistari og fyrrverandi
byggingafulltrúi Mosfellsbæjar.
Ameríkudraumur í dós
Frá Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur:
Vegna umfjöllunar Dagsljóss
þann 8. febrúar síðastliðinn um
næringarduftið Herbalife, langar
mig til að taka fram eftirfarandi:
Þær upplýsingar sem ég hef um
Herbalife koma frá sölumönnum og
neytendum vörunnar.
Sem næringarráðgjafa ber mér
að fræða fólk um það sem það setur
ofan í sig og kenna því að borða
rétt samsetta fæðu. Vel getur verið
að næringarduftið Herbalife sé gott,
ekki ætla ég að dæma það þar sem
innihaldslýsingunni er mjög ábóta-
vant. íslenska innihaldslýsingin er á
„sumum dósanna" (þær eru ekki
allar með íslenskri innihaldslýsingu).
Þar er upptalin næring í 60 g af
duftinu og síðan er upptalin næring
í 2 tilbúnum máltíðum; þar kemur
ekki í ljós í hveiju duftið er blandað.
í sumum upplýsingum er sagt að
blanda megi duftið í mjólk, undan-
rennu, ávaxtasafa eða vatni. Það er
mikill munur á næringarinnihaldi í
vatni og mjólk.
I innihaldslýsingunni er til dæmis
taiin upp þrúgusykur (fructose),
fructose er ávaxtasykur. Seinna í
upptalningunni er sagt hvitt duft,
það segir ekkert, hvítt duft getur
verið margt, bæði gott og slæmt.
Loforðin sem fylgja í leiðbeining-
unum er engan veginn hægt að
standa við „að efnið sé hreinasta
efnið innan næringarfræðinnar" og
„hreinasta form að fæðu sem til
er“. „Herbalife frumunæring er full-
komið næringarprógram og inni-
heldur öll nauðsynleg mikró næring-
arefni sem likaminn þarfnast.“
„Hebalife vinnur að þvi að losa
líkamann við úrgangsefni og eitur-
efni.“ „Formúla 1 og 2 eru sameig-
inlega bestu efnin innan þyngdar-
stýringar í dag. Það er einasta efnið
á markaðnum sem hannað er 100%
til að leysa og uppfylla hinar sér-
stöku þarfir og vandamál þeirra sem
vilja grenna sig.“ Kannski léttir það
mest pyngjuna?
„í æðakerfi líkamans getur verið
allt að 10 sinnum meira af eiturefn-
um og úrgangsefnum þar sem lík-
aminn byijar strax að hreinsast út.“
IJm hvaða eiturefni er verið að tala?
„Herbalife næringarprógram er þró-
að þannig að þú færð færri kaloríur
en þú brennur. “ Hvernig gerist það?
„Herbalife virkar á þann hátt að
maður fær aftur það sem hefur tap-
ast af vöðvavef." Hvernig er það
hægt? „Því verra sem fólk hefur það
fyrstu dagana, því fleiri eitur og
úrgangsefni hafa verið í líkamanum
og er í raun staðfesting á að efnið
virkar." Er það vísindalega sannað?
Með leiðbeiningunum eru engar
ákveðnar fæðisleiðbeiningar þannig
að neytandinn hefur ekki neitt sem
hann getur farið eftir, til að vera
viss um að neyslan beri árangur.
Sem fagmanneskja er ekki hægt
að loka eyrunum fyrir svona fullyrð-
ingum. Hvar er hinn fróði vel lesni
íslendingur?? Duftið rennur út betur
en heitar lummur. Þó komið sé árið
1994 heldur stór hluti þjóðarinnar
að hægt sé að kaupa allt fyrir pen-
inga, nei sá tími er ekki kominn, þvi
miður.
Kæri landi, upp með skynsemina,
hollt næringarríkt mataræði eftir
okkar eigin manneldismarkmiðum,
aukna hreyflngu og þar með betri
líðan.
GUÐRÚN ÞÓRA HJALTADÓTITR,
löggiltur næringarráðgjafi.
HOGNI HREKKVISI
Víkverji skrifar
Víkvetji vill hvetja fólk til þess
að takast ferð á hendur og
skoða þau náttúruundur, sem eru
að verða við Síðujökul. Eins og fram
hefur komið í fréttum er jökullinn
á skriði. Ljósmyndarar, kvikmynda-
gerðarmenn, blaðamenn og frétta-
menn hafa sýnt og sagt frá því, sem
þarna er að gerast í máli og mynd-
um. En í rauninni geta engin orð
lýst þessu. furðuverki náttúrunnar
og heldur ekki ljósmyndir og sjón-
varpsmyndir nema að mjög tak-
mörkuðu leyti.
Þegar komið er að jöklinum heyr-
ast greinilega hljóðin sem hann
gefur frá sér, þegar hann skríður
fram fet fyrir fet. Þessum hljóðum
verður ekki lýst. Engu er líkara en
þarna sé á ferðinni risastór hljóm-
sveit, sem leikur sérkennilegt takt-
fast tónverk, af þeirri gerð, sem
aldrei áður hefur verið samið.
Hlustandinn veit aldrei úr hvaða
átt næstu tónar berast, hvort þeir
eru þungir og háværir eða léttir og
mildir.
Tónskáld ættu að leggja leið sína
að Síðujökli. Þangað geta þau sótt
hugljómun í frumlegar tónsmíðar.
Vikveija varð hugsað til Jóns Leifs
og tónlistar hans, sem endurspeglar
með áhrifamiklum hætti frumkraft-
inn í íslenzkri þjóðarsál, þar sem
hann stóð við jökulröndina og fann,
sá og heyrði jökulinn skríða fram.
xxx
að er töluvert ferðalag að kom-
ast að Síðujökli. Um helgina
var þar mikil umferð bæði bíla og
vélsleða svo og flugvéla. Færið var
svo gott, að skyndilega birtist þar
Toyota Tercel, fjórhjóladrifinn skut-
bíll af eldri gerðinni og virtist ekk-
ert sjálfsagðara!
Hótel Edda á Kirkjubæjar-
klaustri sér um skipulagðar ferðir
að jöklinum á vélsleðum með leið-
sögumönnum. í því veðri, sem var
um helgina slá þessar íslenzku
óbyggðir út Alpasvæðin, sem skíða-
iðkendur leita til á veturna. En veðr-
ið er að vísu ekki eins öruggt á
þessum slóðum og þar!
Ferðamenn þurfa hins vegar að
gæta þess, að vera vel búnir enda
getur verið kalt á ijöllum og jöklum.
En fyrir vel búna ferðamenn er
ferð að Síðujökli ótrúleg ævintýra-
ferð. Enginn veit hve lengi jökulinn
skríður fram eða hversu langt. Nú
fer i hönd fallegasti tími vetrarins
og tæpast hægt að finna skemmti-
legri áfangastað í vetrarferð en
Síðujökul.
xxx
Yegabætur eru orðnar svo mikl-
ar á Suðurlandi, bæði við
Markarfljót, yfir Mýrdalssand og
Eldhraunið að leiðin að Kirkjubæj-
arklaustri hefur stytzt verulega.
Hitt er svo annað mál, að þeir, sem
eru á ferð fyrir kl. 9.00 að morgni
eða eftir kl. 22.00 á kvöldin geta
ekki búizt við mikilli þjónustu á
Suðurlandi. Á leiðinni frá Reykjavík
að Klaustri var hvorki hægt að
finna opna benzínstöð eða sölustað
á þessum tíma, utan einn stað á
Selfossi, sem reyndist vera opinn
til kl. 23.30 á sunnudagskvöld. Það
er tæpast við því að búast að ferða-
þjónusta nái að festa rætur á lands-
byggðinni ef þjónustan er ekki betri
en þetta.