Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 01.03.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 49 Tvískinmingsháttur Þjóðkirkjunnar Frá Rósalind Ragnarsdóttur: Fyrir skömmu ákváðu forráða- menn Perlunnar að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með kynn- ingu á fermingunni og ýmsu henni tengdri sem átti að fara fram helg-. ina 12. og 13. mars nk. Á þessari kynningu átti Þjóðkirkjan að skipa veglegan sess ásamt fyrirtækjum er hefðu upp á eitthvað að bjóða er að fermingunni lyti. Undirritaðri fannst þetta stórsnjöll hugmynd, sérstaklega þáttur kiijunnar. Eflaust hefðu margir foreldrar fermingarbarna og aðrir haft mik- inn áhuga á að kynnast beint þætti kirkjunnar og undirbúningsstarfi hennar fyrir fermingarathöfnina. Það skal ekki farið dult með það að undirrituð rekur fyrirtæki er býður upp á ýmsa vöru og þjónustu er tengjast fermingunni og hugsaði með tilhlökkun til þessarar helgar. Því miður litu talsmenn kirkjunn- Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ar helgina á annan veg. Þeir lýstu því yfir að kirkjan væri ekki tilbúin til að taka þátt í kaupstefnu af neinu tagi. Fermingarkynningin var því felld niður, því ekki hefði hún orðið svipur hjá sjón ef hlutverk kirkjunnar sjálfrar hefði vantað. Þessum skoðunum kirkjunnar var svo sem auðvelt að kyngja, fyrst hún leit á þessa helgi sem kaup- stefnu og skiljanlegt að hún taki ekki þátt í sölumennsku almennt. Bleik var þó brugðið er undirrit- aðri barst í hendur pöntunarlisti fyrir fermingarvörur gefnum út af Kirkjuhúsinu sem er þjónustumið- stöð og útgáfufyrirtæki Þjóðkirkj- unnar og jafnframt sérverslun með kirkjumuni. Þessum pöntunarlista er dreift um landið, auk þess sem hann liggur frammi í mörgum kirkj- um landsins fyrir fermingarbörnin, því þeim þarf jú að benda á hvar þau eiga að versla. Telja kirkjunnar menn þetta ekki kaupmennsku? Eftir ágætis viðtal nú í vikunni við deildarstjóra hjá fræðsludeild kirkjunnar var mér bent á að rekst- ur Kirkjuhússins væri í raun tví- skipt, sérverslun annarsvegar og hlutdeild útgáfufyrirtækisins Skál- holts hins vegar sem sér um prent- un á ýmissi kristilegri fræðslu. Þarna væri hin besta samvinna og ætti biskup íslands sæti í stjóm fyrirtækisins. Mörg fyrirtæki landsins bjóða upp á marga þá sömu vöruflokka og verið er að kynna í þessum pönt- unarlista, eins og. .fermingarhár- skraut, hanska, slæður, kerti og servíettur. Nú vaknar sú spurning, VELVAKANDI REYKT A FISK- MÖRKUÐUM REYKLAUS maður hringdi til Velvakanda og sagðist hafa horft á fréttamyndir í sjónvarpi frá þýskum og belgískum fiskmörk- uðum. Það vakti athygli hans að í tveimur þessara mynda sáust fiskmatsmenn ganga um reykj- andi yfir fiskinum. Hann var sjálfur í fískvinnslu hér í Reykja- vík á sjötta áratugnum og þá var með öllu óheimilt að reykja í vinnslusalnum. Erlendir fisk- matsmenn virðast vera svona langt á eftir íslendingum í hrein- læti hvað þetta varðar. ÁVEGAMÓTUM EF einhver kannast við kvæðið Á vegamótum sem Jóhann Konr- áðsson syngur er viðkomandi vin- samlega beðinn að hafa samband við Þórunni Geirsdóttur, Skúla- götu 80, Reykjavík. Hana langar afskaplega mikið til að fá þetta kvæði í heild og væri vel þegið ef einhver vildi senda henni þess- ar ljóðlínur á blaði. UPPLÝSINGAR UM LJÓÐ ÓSKAST HEIÐRÚN Helgadóttir biður þá sem kannast við eftirfarandi ljóði- ínur eða kunna kvæðið allt að hafa samband við sig í síma 621309. Eitt sinn um þögla aftanstund þá öll náttúran festi blund við gullinn foss und gljúfrum há einn grátinþungur halur lá. AFBRAGÐS ÞJÓNUSTA ÞORBJÖRG Pálsdóttir, Tjarnar- götu 14 hringdi og sagðist mega til með að koma á framfæri þakk- læti sínu til tveggja verslana, skartgripaverslunar Gunnars og Tómasar Malmberg, Laugavegi 41 og Artí og Partý. „Eg hef margoft þurft að leita til þessara verslana og mætt óvenjulegum elskulegheitum og án þess að borga krónu fyrir viðvikin." TAPAÐ/FUNDIÐ Jakki tapaðist á Hótel íslandi SVARTUR leðuijakki var afhent- ur öðrum en eiganda sínum á árshátíð íjölbrautaskólans í Breiðholti þriðjudaginn 15. fe- brúar sl. Sá sem er með jakkann er vinsamlega beðinn að hringja í síma 613388 eða skila honum aftur á Hótel ísland. Hanskar töpuðust BRÚNIR rúskinnshanskar með grænni ól til að draga saman utan um úlnliði töpuðust í byijun febrúar. Finnandi vinsamlega hringi i síma 44708. UNGBARNAHÚFA fannst í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er blágræn húfa með gulum hjört- um. Eigandi má hafa samband í síma 650466 eftir kl. 17. Lyklar í óskilum TVÆR lyklakippur með lyklum á eru í óskilum í félagsmiðstöð- inni Frostaskjóli. Þær voru skild- ar eftir þar á öskudaginn. Upplýs- ingar í síma 622120. Hver er með stafinn? ÞÓRÐUR M. Jóhannesson, Fálkagötu 10, tapaði stafnum sínum fyrir u.þ.b. mánuði síðan og var hann vel merktur. í hann hringdi stúlka sem sagðist hafa hann í fórum sínum, en Þórður getur ekki munað heimilisfang hennar eða símanúmer og biður hana um að hafa samband við sig aftur, ef hún vildi vera svo góð, í síma 13064. GÆLUDÝR Læða í heimilisleit EINS og hálf árs gömul læða, svört og hvít, óskar eftir nýju heimili. Upplýsingar í síma 11264. skyldu þjónandi prestar landsins taka því vel ef önnur fyrirtæki en Kirkjuhúsið sendu auglýsingabunka í kirkjurnar til vinsamlegrar dreif- ingar? Hvað er þá til bragðs? Ætt- um við e.t.v. að bjóða Biskupi sæti í stjórn fyrirtækja okkar? Mér finnst þessi tvískinnungsháttur Þjóðkirkj- unnar vekja margar spurningar. RÓSALIND RAGNARSDÓTTIR, framkvæmdastjóri Tómstundar. Pennavinir ÁTJÁN ára Ghanapiltur með áhuga á fótbolta, tónlist og bréfaskriftum: Frank Okpati, c/o Mr. Samuel Okpati, Tema Thread Company, P.O. Box 628, Tema, Ghana. NÍTJÁN ára finnsk stúlka með margvísleg áhugamál: Kati Moilanen, Tammikatu 4, 37120 Nokia, Finland. ÞJÓÐVERJI sem var háseti á segl- skútunni Frithjof Nansen, sem hafði viðkomu á íslandi sl. sumar, langar mikið að eignast íslenska penna- vini. Er 22 ára og hefur áhuga á dansi, tónlist, handbolta, ferðalög- um, kvikmyndum og siglingum: Frank Noack, Grosse Hirschseiters 1, 66589 Merchweiler, Germany. LEIÐRÉTTINGAR Höfundarnafn misritaðist Undir minningargrein sem Ás- valdur Andrésson skrifaði um Sig- urð Karlsson og birtist á blaðsíðu 26 og 27 í Morgunblaðinu á sunnu- dag misritaðist nafn höfundarins. Er hlutaðeigendur innilega beðnir afsökunar á mistökunum. Höfundur leikmyndar Vegna misritunar í fréttatilkynn- ingu Borgarleikhússins var missagt í menningarblaðinu á laugardaginn nafn höfundar leikmyndar í Gleði- gjöfunum, sem frumsýndir verða hjá Leikfélagi Reykjavíkur á fimmtudaginn. Hann heitir Steinþór Sigurðsson. Bæjarverk- fræðingur í viðtali við prófessor Einar B. Páls- son í sunnudagsblaði segir að Einar hafi verið yfirverkfræðingur og staðgöngumaður bæjarverkfræð- ings á árunum 1945-1961. Þar féll niður að geta þess að bæjarverk- fræðingur á þessum árum var Bolli Thoroddsen. Samtök lífrænna framleiðenda á íslandi Stofnuð verði þjónustumiðstöð fyrir lífræna framleiðendur A SAMEIGINLEGUM fundi Lífræns samfélags og Verndunar og ræktun- ar, sem eru samtök bænda í lifrænni framleiðslu, var nýlega samþykkt að leggja traustan grunn að framleiðslu og markaðssetningu lífrænna afurða með því að ljúka hið fyrsta við gerð sjáifstæðs vottunarkerfis sem samrýmist íslenskum aðstæðum en uppfylli um leið alþjóðlegar kröfur. í fréttatilkynningu frá samtökunum kemur fram að verkið sé unnið í samráði við Alþjóðasamtök með aðstoð fremstu sérfræðinga á Á fundinum var jafnframt sam- þykkt að efla styrk og hlutverk lands- samtakanna Verndun og ræktun (VOR)í sameiginlegum hagsmuna- málum lífrænna bænda á íslandi, og af því tilefni hafa framleiðendur inn- an Lífræns samfélags gengið til liðs við VOR. Þá var ákveðið að veita faglega forystu í þróun lífræns bú- skapar með stofnun þjónustumið- stöðvar fyrir lífræna framleiðendur, lífrænna landbúnaðarhreyfinga og sviði lífrænna vottunarkerfa. og mun hún sjá um rekstur vottunar- kerfís og vinna að markaðsmálum, útgáfu-, og fræðslumálum hreyfíng- arinnar. Þótt miðstöðin verði sjálf- stæð stofnun mun hún byggja á margþættu grunnstarfí Lífræns samfélags og VOR á þessum sviðum og vinna í nánu samstarfi við fram- leiðendur og tæknilega ráðunauta5”'"-' þeirra. SIGUNGASKÓUNN Námskeið til 30 TONNA RÉTTINDA 14. marz-11. maí. Á mánudögum og miðvikudögum kl. 19.00-23.00. Verð kr. 22.500. Námskeið til ÚTHAFSSIGLINGA Á SKÚTUM / (Yachtmaster Ocean) 15. mars-13. maí. Undanfari hafsiglingapróf. Á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.00-23.0' Verð kr. 20.000. Bæklingur sendur ef óskað er. Upplýsingar og innritun í síma 689885 SIGUNGASKÓUNN Lágmúby - meölimurr í Alþjóöasambandi siglingaskóla (ISSA) vrsa Geriu géð kaup fyrir ferminguna því aldrei hefur verið meira úrval til af fallegum borðstofusettum frá Danmörku, Þýskalandi eða Ameríku. Savona borðstofuborð m/Ancona stólum. HÚ8gagnahöIIin BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.