Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
51
Kappræðufundur
um einkavæðingu
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður og Samband ungra Sjálfstæðis**^
manna (SUS) standa á miðvikudagskvöldið 2. mars fyrir kappræðu-
fundi á Kornhlöðuloftinu, Bankastræti 2, undir yfirskriftinni:
Einkavæðing, árangur og afleiðingar. Hefst fundurinn kl. 20.30.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
TEKINN hefur verið í notkun nýr leikskóli, Reykjakot í Mosfellsbæ. Skólinn mun starfa í þremur deild-
um og þar rúmast 100 til 120 börn á aldrinum til 5 ára.
Nýr leikskóli opnar í Mosfellsbæ
65% barna eiga nú
kost á leikskólavist
Heildarkostnaður vegna Reykjakots er 50 milljónir
Halla Jörundardóttir leikskólastjóri og Róbert Agnarsson við opnun
Reykjakots í Mosfellsbæ.
NÝR leikskóli, Reykjakot hefur
verið tekinn í notkun í Mos-
fellsbæ. Leikskólinn er í þremur
deildum og þar rúmast 100 til
120 börn. Með opnun skólans
eiga um 65% barna í Mosfellsbæ
á aldrinum til 5 ára kost á leik-
skólavist. Heildarbygginga-
kostnaður hússins ásamt lóða-
framkvæmdum er 45 milljónir
en fullbúinn skóli með öllum bún-
aði kostar um 50 milljónir.
í fýrstu verða tvær deildir teknar
I motkun við skólann en fljótlega
verður þriðja deildin opnuð og þá
munu um 69% barna í Mosfellsbæ
eiga kost á leikskólavist. Við opnun
skólans hefur verið bryddað upp á
þeirri nýjung að bjóða upp á sex
tíma vistun í skólanum.
Framkvæmdir við byggingu skól-
ans hófust í ágúst 1993 og er hús-
ið, sem er 393 fermetrar að stærð
byggt úr einingum frá Loftorku
hf., í Borgarnesi. Arkitekt hússins
er Helgi Hjálmarsson, á Teiknistof-
unni Óðinstorgi. Hönnun burðarþols
og lagna sá Kristján Guðmundsson
um og er hann frá sömu stofu en
hönnun raflagna var í höndum Páls
Pálssonar á Raftæknistofunni.
Reynir Vilhjálmsson og Þráinn
Hauksson landslagsarkitektar sáu
um hönnun lóðarinnar og tækni-
deild bæjarins annaðist eftirlit með
framkvæmdinni.
Nýr gæsluvöllur
í frétt frá Mosfellsbæ kemur
einnig fram að ákveðið hafi verið
að útbúa gæsluvöll á lóðinni við
hliðina á leikskólanum. í fram-
kvæmdaáætlun Mosfellsbæjar var
samþykkt að hefjast handa við
framkvæmdina í sumar og ljúka við
gerð vallarins í haust. Er reiknað
með að nýta eina deild í Reykja-
koti sem gæsluvöll eftir hádegi í
sumar þann tíma sem framkvæmd-
irnar standa yfir. Gert er ráð fyrir
að gæsluvöllurinn taki til starfa
með vorinu.
Ræðuflytjendur verða þeir Frið-
rik Sophusson, fjármálaráðherra,
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, og alþingismennirnir Stein-
grímur Sigfússon og Vilhjálmur
Egilsson. Að loknum framsöguer-
indum gefst fundargestum tæki-
færi til fyrirspuma og athuga-
semda. Þá verða pallborðsumræð-
ur með frummælendunum og Guð-
mundi Ólafssyni, hagfræðingi, og
Steindóri Hálfdánarsyni, prent-
smiðjustjóra. Fundarstjóri verður
Óli Björn Kárason, hagfræðingur.
Eitt af meginverkefnum ríkis-
stjórnarinnar hefur verið einka-
væðing ríkisfyrirtækja og í opin-
berum rekstri. Mótaði hún í byrjun
starfsferil síns ákveðna stefnu í
einkavæðingsmálum. Á ferli þess-
arar ríkisstjórnar hafa stór skref
verið stigin. Afstaða manna varð-
andi einkavæðingu skiptist í tvö
horn. Sumum þykur of hægt miða
en á hinn kantinn eru svo þeir sem
verulega fyrirvara hafa um ágæti
Fyrirlestur
um sameigin-
legar sveiflur
í fískistofnum
ÞÓRÓLFUR Antonsson flytur
fyrirlestur þriðjudaginn 1. mars
í stofu 101 í Lögbergi, húsi
Háskóla íslands, og hefst hann
kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist:
Sameiginlegar sveiflur í fiski-
stofnum — tengsl Barentshafs
og íslandsmiða.
Fyrirlesturinn fjallar um hvem-
ig margir fiskistofnar sýna sömu
tilhneigingu í stofnstærðarsveifl-
um. Sumir þessara fiskistofna eru
alfarið í ferskvatni, aðrir ganga
milli ferskvatns og sjávar og enn
aðrir eru alfarið í sjó. Einnig verð-
ur gerð grein fyrir tengslum líf-
fraeðilegra þátta í Barentshafi og
á íslandsmiðum með skírskotun
til hafstrauma og sjávarskilyrða.
Höfundar auk Þórólfs Antons-
sonar eru þeir Guðni Guðbergsson
og Sigurður Guðjónsson og starfa
þeir allir sem sérfræðingar hjá
Veiðimálastofnun.
einkavæðingar, þótt fæstir þeirra
hafi lýst yfir algeri andstöðu við
einkavæðingu sem slíka.
Á fundinum mætast fulltrúar
þessara sjónarmiða og því má
vænta fjörugra umræðna og þess
skal getið að fundurinn er öllum
opinn.
(Fréttatilkynning)
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
88 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
8. lelkvika , 26. feb. 1994
Nr. Leikur:Röðin:
1. Arsenal - Biackbum 1 - -
2. Liverpool - Coventry 1 - -
3. Manch. City - Swindon 1 - -
4. Ncwcastle - Ipswicfa 1 • - -
5. Norwich - Shcff. Wed - X -
6. Sheff. Utd - QPR - X -
7. Southampton - Wimbled 1 - -
8. West Ham - Manch. Utd - X -
9. Bamsley - MillwaU - X -
10. Leicester - Middlesbro 1 - -
11. Luton - Sunderland 1 • •
12. Oxford - Notth For. 1 - -
13. Stoke - Portsmouth 1 - -
Heildarvinningsupphœðin:
118 milljón krónur
13 réttir: 136.710 kr.
12 réttir: 3.800 kr.
11 réttir: 370 kr.
10 réltin 2 1 kr.
Morgunblaðið/Kristinn
Hafnarfjarðarskjálfti settur á svið
BJÖRGUNARSVEITIN Fiskaklettur og almannavarnanefnd Hafnar-
fjarðar settu upp björgunaræfingu í samvinnu við Almannavarnir ríkis-
ins síðastliðinn sunnudag. Að sögn Guðjóns Petersens forstjóra Al-
mannavarna ríkisins var markmiðið að æfa líkleg viðbrögð í kjölfar
jarðskjálfta á Hafnarfjarðarsvæðinu. Sem dæmi um verkefni sem björg-
unarsveitarmenn þurftu að glíma við má nefna hrunin hús og eitur-
mengun auk aðhlynningar slasaðra. Sagði Guðjón að æfingin hefði
gengið vel í heildina en hinsvegar ætti eftir að fara nákvæmlega yfir
árangurinn og skoða hvort eitthvað mætti betur fara. í æfíngunni
tóku þátt 120 manna lið björgunarsveitarmanna, 11 lögregluþjónar,
allt slökkvilið Hafnarfjarðar, auk starfsmanna úr slökkviliðinu í Reykja-
vík, og greiningarsveit frá Landspítalanum. í hlutverkum slasaðra
voru ungliðar úr björgunarsveitunum, hjúkrunarfræðinemar og Banda-
ríkjamenn af Vellinum, alls 200 manns. Sagði Guðjón loks að framund-
an væri æfing vegna hugsanlegs Suðurlandsskjálfta og færi hún fram
23. apríl.
8. ldkvika, 27. feb. 1994
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Atalanta - Juventus - - 2
2. Gcnoa - Lecce 1 - -
3. Milan - Foggia 1 - -
4. Napoli - Cagliarí - - 2
5. Parma - Cremonese 1 - -
6. Piacenza - Lazio - - 2
7. Roma - Sampdoria - - 2
8. Torino - Inter 1 - -
9. Ancona - Ravenna - X -
10. Cescna - F'id.Andría 1 - -
11. Pescara - Palermo - X -
12. Venezia - Verona - - 2
13. Vicenza - Lucchese - X -
Heildarvinningsupphœðin:
15,4 milljónkrónur
13 réttir: 589.390 J kr-
12 réttir: 12.610 | kr.
11 réttin 970 J kr.
10 réttir: 240 J kr.