Morgunblaðið - 12.03.1994, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
Sértækar aðgerðir vegna Vestfjarða
Byggðastofnun falið
að kanna vanda ann-
arra sveitarfélaga
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær endanlegar tillögur vinnuhóps
fjögurra ráðherra sem fjallað hefur um aðgerðir til aðstoðar
atvinnulífi á Vestfjörðum. Hugmyndirnar voru kynntar á ríkis-
stjórnarfundi í siðustu viku. Síðan þá hefur verið ákveðið að fela
Byggðastofnun að gera úttekt á byggðarlögum sem kunna að
hafa orðið fyrir sambærilegum samdrætti í aflaheimildum og
Vestfirðir, búa við áþekka einhæfni atvinnulífs og sem eru að
vinna að stækkun atvinnu- og þjónustusvæða með sameiningu
sveitarfélaga. Forsætis-, fjármála- og utanríkisráðherra var falið
að semja frumvarp um aðgerðirnar.
***** t.-*i
Morgunblaðið/Júlíus
Ók á fimm bíla
MAÐUR, sem talinn er hafa verið ölvaður, ók á fimm bíla á um 500 metra kafla frá Faxafeni um Skeið-
arvog að Miklubraut. Lögregla var dágóða stund að safna saman upplýsingum frá hlutaðeigandi öku-
mönnum um aðdraganda málsins. Tveir ökumannanna sem á vegi mannsins urðu meiddust og tveir
bílanna urðu óökufærir, auk þess sem draga þurfti bíl tjónvaldsins á brott.
Hrina af fjöldaárekstr-
um og umferðarslysum
„ÞETTA hefur verið svartur föstudagur í umferðinni,“ sagði Guðmund-
ur Einarsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík, í samtali við
Morgunblaðið í gær en þá hafði á skömmum tíma verið ekið á þrjá
gangandi vegfarendur í borginni, auk þess sem 21 bíll hafði átt aðild
að fjórum árekstrum sem urðu á fjölförnum umferðargötum á háanna-
tíma. Einn slysavaldurinn var maður sem að sögn lögreglu var áber-
andi ölvaður og ók á fimm bíla. Eftir því sem Morgunblaðið fékk upp-
lýst varð enginn fyrir alvarlegum meiðslum í þessum óhöppum.
í tillögunum felst að heimilt
verði að veita 300 milljónum króna
í víkjandi lán skv. ströngum skil-
yrðum. Að sögn Eyjólfs Sveinsson-
ar, aðstoðarmanns forsætisráð-
herra, er ríkisvaldið tilbúið til að
koma til aðstoðar þar sem fyrir-
tæki fara í samvinnu og samruna
og að því gefnu að sveitarfélögin
séu að taka til í sínum málum með
sameiningu og styrkingu atvinnu-
svæða.
Víkjandi lán
„Rétt er að vekja athygli á því
að þessar 300 milljónir eru engin
peningagjöf heldur víkjandi lán og
eru háðar mjög ströngum skilyrð-
um,“ sagði Eyjólfur. „Þær verða
aldrei meginefni þeirra aðgerða
sem þarf að grípa til þessum fyrir-
tækjum til bjargar. Aðallausnin
felst í þeim aðgerðum sem fyrir-
tækin þurfa að grípa til sjálf.“
Eyjólfur sagði að vegna hag-
ræðingar í sjávarútvegi á Vest-
fjörðum yrði myndaður starfshóp-
Morgunblaðinu í dag fylgir
blaðauki, sem nefnist Nám &
framtíð. í blaðaukanum er
skýrt frá Námskynningu ’94,
sameiginlegri námskynningu
skólanna, _sem haldin verður í
Háskóla íslands, Kennarahá-
skóla íslands og Sjómannaskól-
anum á morgun, sunnudag.
ur með fulltrúum ríkisstjórnar,
banka, sjóða, Byggðastofnunar og
annarra kröfuhafa. Með aðstoð
rekstrarráðgjafa kannar hópurinn
hvaða fyrirtæki uppfylla settar
kröfur og gera tillögur um að þeim
verði veitt víkjandi lán.
Allir sitja við sama borð
Ríkisstjómin ákvað í gær að
fela Byggðastofnun að gera út-
tekt, svipaða þeirri sem gerð var
á Vestfjörðum, á vanda annarra
byggðarlaga. „Ef einhvers staðar
eru byggðarlög eða einstakir stað-
ir sem búa við áþekk vandamál
þá er Byggðastofnun falið að gera
úttekt á þeim og skila af sér tillög-
um í framhaldi af því. Það er ein-
faldlega verið að segja að þeir sem
eiga við svipuð vandamál að stríða
sitji við sama borð,“ sagði Eyjólf-
ur.
Ríkisstjómin samþykkti að fela
forsætis-, fjármála- og utanríkis-
ráðherra að semja framvarp um
tillögumar.
Þorsteinn segir að Norðmenn séu
ekki að bæta markaðsstöðu sína
með aðild að ESB svo nokkru nemi.
Hins vegar séu þeir að gefa Evrópu-
sambandinu eftir yfirráð yfir norsk-
um sjávarútvegi. 80% af útflutn-
ingstekjum íslendinga komi frá
sjávarútvegi og meðan við getum
Sjö bílar áttu aðild að árekstri í
Ártúnsbrekku um miðjan dag í gær.
Skófla fauk af þaki jeppa á austur-
ekki bætt aðgang að Evrópumark-
aði með aðild en þyrftum að fóma
yfirráðum yfir auðlindinni komi
ekki til álita að ganga í sambandið.
Þorsteinn segir Evrópusamband-
ið skuldbundið til þess að standa
við EES-samninginn þótt hin
EFTA-ríkin gangi í sambandið.
leið og hemlaði næsti bíll á eftir til
þess að forðast að aka yfir skófiuna.
Ókumanni næsta bíls þar á eftir tókst
Þorsteinn segir tæknilegt úrlausn-
arefni að breyta EES-samningnum
í tvíhliða samning milli Evrópusam-
bandsins og Islands.
„Mér sýnist að við höfum tryggt
okkur. Með hinu væram við að
fóma yfirráðum yfir landhelginni.
Ég held að íslenskir sjómenn myndu
aldrei sætta sig við að ákvarðanir
um möskvastærð og friðunarað-
gerðir með lokun á ákveðnum veiði-
svæðum yrðu settar undir valdið í
Brassel. Við ætlum okkur að ráða
þessari auðlind, hún er undirstaðan
undir okkar sjálfstæði," sagði Þor-
steinn Pálsson.
ekki að hemla í tæka tíð, fremur en
hinum fjórum sem á eftir fylgdu og
ók hver á annan. Tveir menn voru
fluttir á slysadeild Borgarspítalans
með bak- og hálsmeiðsli og sumir
bflanna voru stórskemmdir.
78 ára maður á fólksbfl ók utan
í fimm bíla og stórskemmdi tvo þeirra
á leið sinni frá húsi við Faxafen,
eftir Skeiðarvogi og suður að Miklu-
braut á háannatíma um klukkan 16
í gær. Ökumenn tveggja bíla sem
maðurinn ók á þurftu að leita til
slysadeildar. Slysavaldurinn, 78 ára
gamall maður, virtist áberandi ölvað-
ur að sögn lögreglu en að sögn vitna
ók hann ýmist aftur á bak eða áfram
á bfla sem á vegi hans urðu.
Á fímmta tímanum urðu tveir
árekstrar með fimm mínútna milli-
bili við mót Reykjanesbrautar og
Smiðjuvegar. Tveir bflar áttu aðild
að hinum fyrri, þrír að þeim seinni.
Enginn meiddist, að sögn lögreglu.
2 ára telpa varð undir bíl við Hard
Rock Café í Kringlunni klukkan tæp-
lega fjögur í gær. Telpan rann að
sögn lögreglu á svelli og undir bíl.
Hún var flutt á slysadeild til skoðun-
ar, en fékk að fara heirtvað henni
lokinni og er óbrotin og ekki alvar-
lega meidd, samkvæmt upplýsingum
frá slysadeild.
Þá varð drengur fyrir bíl á mótum
Brautarholts og Nóatúns á fimmta
tímanum en hlaut ekki alvarleg
meiðsli, að sögn lögreglu, fremur en
kona sem ekin var niður á gang-
brautinni í Austurstræti, á móts við
Landsbankann.
Á þeim tíma sem þessi slys urðu
var blíðviðri í borginni, sólarglæta,
hægviðri og ekki teljandi hálka á
jafnmiklum umferðargötum.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Islendingar hefðu ekki
hag af aðild að ESB
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra telur hagsmuni íslend-
inga bærilega tryggða með samningnum um evrópska efnahagssvæð-
ið og við hefðum ekki hag af aðild að Evrópusambandinu. Miðað
við þá samninga sem séu í deiglunni milli sambandsins og Norð-
manna myndi aðild íslands að ESB ekki þýða bættan aðgang að
Evrópumarkaðnum svo nokkru næmi en hins vegar þyrfum við að
fórna yfirráðum yfir auðlindum sjávar.
í dag
Uppsetning Helga lofuö
Gagnrýnendur Iofa uppsetningu
Helga Tómassonar á ballettinum
Rómeð og Júlíu 18
Skóladagheimilin_______________
Foreldrar óttast skerta þjónustu
skóladagheimila 18-19
Slæm verkefnastaða
Ef samkeppnisstaða byggingariðn-
aðarins verður ekki jöfnuð verður
mikið atvinnuleysi í greininni í
sumar 19
Leiðari____________________
Það er eitthvað að! 26
Menning/listir
þ Nýir leikarar útskrifast úr
Leiklistarskólanum - Tónleikar
helgarinnar — Andspymuhreyf-
ingin að verki — Kristjana og
Baltasar sýna
LESBCE
MOROUNBLAOflNi
SPORÐAKÖST :
UNDIR JÖKLI
:SIISÍ
Lesbók
^ Jöklaferð og hvalaskoðun í
einni rispu - Nýtt hæstaréttarhús
— Listamiðstöðin Louisiana í
grennd við Kaupmannahöfn -
Kvennabarátta og líknarmál
Boeing 757-þota frá Flugleiðum
Lent var í Bergen
vegna eldsneytisleka
ELDSNEYTISLEKI kom að leiðslu í öðrum hreyfli Boeing 757-vélar
Flugleiða um miðjan dag í gær. Vélin var á leið til íslands með 179
farþega frá Stokkhólmi og Ósló. Lekans varð vart þegar hún var
nálægt Bergen í Noregi og var ákveðið að lenda þar.
Að sögn Einars Sigurðssonar, upp- var að búast. Slökkvikerfi er í hreyfl-
lýsingafulltrúa Flugleiða, fengu flug-
menn þotunnar merki um eldsneytis-
leka í mótor kl. 14.15 að íslenskum
tíma. Ákveðið var að lenda í Bergen,
sem var næsti flugvöllur. Ekki þurfti
að nauðlenda en slökkt var á hreyfl-
inum og farið eftir ákveðnum reglum
sem gilda við aðstæður sem þessar.
Að sögn Einars gekk allt eins og við
unum en ekki kom til þess að það
yrði notað.
Skömmu síðar var vél send utan
eftir farþegunum. Um borð í henni
var flugvirki með varahluti og gerði
hann við bilunina í gær eftir að flug-
virkjar í Bergen höfðu tekið vélina í
frumskoðun.