Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994 Minning Elín Helga Bjöms- dóttir, Vatnshömmm Fædd 19. júní 1919 Dáin 4. mars 1994 Hver veit, hve nærri er ævi endi? Sem örskot flýgur tíðin hjá. Hve fljótt mér borið fær að hendi, að falli mitt hið veika strá. Mér afdrif síðast gef því góð, ó, Guð minn, fyrir Jesú blóð. í morgun lífs ég fór á fætur, þó fundist nár ég get í kvöld, því eins um daga’ og dimmar nætur æ dauðans reidd er höndin köld. Mér afdrif síðast gef því góð ó, Guð minn, fyrir Jesú blóð. (Emelia J. Schwarzburg - Helgi Hálfdanarson þýddi.) Hvem skyldi hafa grunað, er hitti hana fóstru mína, Helgu á Vatns- hömrum, að máli föstudaginn 4. mars sl., að að kvöldi þess dags yrði hún nár? Hún hafði að vísu kennt sér meins fyrir nokkrum vik- um, en þáð var ekkert sem orð var á gerandi, að hennar sögn. Hún fæddist að Reykjum í Mjóa- fírði, var þrettánda í röðinni af 18 systkinum. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurborg Gísladóttir, f. 30. janúar 1881 á Staffelli í Fellum, d. 4. desember 1977 í Reykjavík, og Björn Jónsson, f. 19. júlí 1872 á Bóndastöðum, Hjaltastaðaþinghá, d. 9. júlí 1937 á Akranesi. Þau bjuggu á Dalhúsum í Eyvindarárdal undir norðvesturhlíðum Gagnheiðar 1908-1911 en fluttu þá að Reykjum í Mjóafírði og bjuggu þar til 1935 er þau fluttu búferlum til Akra- ness. Þá var mamma 16 ára göm- ul. Ung að árum réðst hún sem ráðskona til Þorsteins Fjeldsted bónda á Vatnshömrum í Andakíl og giftist honum fáum árum síðar. Hann var fæddur 21. júlí 1893 að Hvítárósi í Borgarfírði, d. 1. apríl 1976. Þau eignuðust engin böm, en tóku mig í fóstur fjögurra ára gamla og ólu mig upp sem sitt bam. Mamma tók miklu ástfóstri við sveitina okkar, enda er náttúmfeg- urð og víðsýni á Vatnshömmm ein- stök með Snæfellsjökul í norðvestri og síðan óslitinn fjallahringurinn: Snæfellsnesfjallgarðurinn, Fagra- skógarfjall, Baula, Eiríksjökull, Hestfjail, Geldingadragi, Skarðs- heiði með Skessuhomið í for- gmnni, Brekkufjall og Hafnarfjall og í vestri opnast Borgarfjörðurinn þar sem ósar Andakflsár og Hvítár sameinast. í þessari fögm veröld undi hún og eyddi sinni starfsömu ævi og vildi hvergi annarstaðar vera. Þegar fór að halla undan fæti hjá pabba þá bjó hún honum gott skjól og annaðist hann af kost- gæfni, þótt sjálf gengi hún ekki heil til skógar á þeim tíma, svo hann þurfti ekki að yfirgefa jörðina sem hann eignaðist ungur og unni, engu minna en hún. En hún gleymdi samt aldrei æskustöðvunum. Fyrir um það bil tveimur ámm hafði hún orð á því við mig að hana langaði til að kom- ast „austur“ og ekki deyja fyrr. Hún hefur átt við mikla vanheilsu að stríða í mörg ár og átti erfitt með að sitja lengi í bfl, en nú var orðin nokkur bót á og þá fór hugur- inn á flug. Það vom mín forréttindi að vera einkabflstjóri hennar í sum- ar sem leið, er hún ásamt nokkmm systkinum sínum og fjölda skyld- menna kom til niðjamóts Gísla Sig- fússonar frá Gilsárteigshjáleigu í Eiðaþinghá og tveggja eiginkvenna hans, en það var haldið á Hallorms- stað helgina 23.-25. júlí sl. Óskin hennar rættist er hún fékk að líta æskustöðvarnar aftur, 58 ámm eft- ir að hún fór þaðan. Það var mjög mikil þoka og rigning upp á Héraði þessa daga, eins og reyndar í allt sumar. Þess vegna var það stórkost- leg sjón er komið var niður af Slenjudal, hvemig fjöllin sem um- lykja Mjóafjörð hreinsuðu sig al- gjörlega og þegar komið var niður í byggðina og sá til Reykja handan fjarðar, þá braust sólin fram úr skýjum og baðaði túnið og bæinn geislum sínum. Ég hef þá trú að þetta hafí verið til heiðurs henni er hér leit æskustöðvamar hinsta sinni. Mamma hafði mikinn áhuga á líf- inu. Hún fylgdist grannt með hinum íjölmenna hópi systkinabama sinna og einnig ættingjum pabba. Fjórar bróðurdætur hans hafa ásamt fjöl- skyldum sínum búið sér sumarheim- ili í túnfætinum hjá henni og hefur hún því haft náið samband við þau. Henni þótti innilega vænt um mín böm og bamaböm og gladdist þegar þeim vegnaði vel. Hún átti yndislega nágranna sem bám hana á höndum sér og vöktu yfir velferð hennar þegar veikindi steðjuðu að. Þeir gerðu henni kleift að búa heima á Vatnshömmm uns yfír lauk. Henni auðnaðist að lifa þar og deyja. Ég vona að á engan sé hallað þó ég nefni nöfn Sverris Júlíussonar á Hvanneyri og hans fjölskyldu, Ein- ars og Jóhönnu í Neðrihrepp og Jómundar Hjörleifssonar á Hegg- stöðum, allt þetta góða fólk, ásamt ótalmörgum öðmm, gætti þess að hafa daglegt samband við hana, einbúann. Fyrir þetta verður aldrei fullþakkað. Guð blessi minningu hennar. Ruth Fjeldsted. Hún amma í sveitinni er dáin. Farin fyrr en okkur grunaði. Hún varð ekki gömul, aðeins 74 ára. Þó var ævi hennar löng og ævi- starfíð dijúgt. Amma var fædd og uppalin austur í Mjóafírði í stórum systkinahópi en aðeins 16 ára göm- ul fluttist hún suður í Borgarfjörð vestri og gerðist ráðskonan hans afa og síðar eiginkona hans. Upp frá því bjó hún hér syðra. Afí var Þorsteinn Fjeldsted bóndi að Vatns- hömmm í Andakfl. Hann lést árið 1976. Fósturdóttir þeirra er Ruth Fjeldsted. Eiginmaður hennar er Þráinn S. Siguijónsson og eiga þau fjögur börn. Eftir að afi dó bjó amma ein á Vatnshömrum. Hún stundaði búskap þar til fyrir nokkr- um áram þegar heilsan leyfði það ekki lengur. Hún hafði samt alltaf eitthvað fyrir stafni og hennar síð- asta verk var að dytta að girðing- unni. Amma var vinmörg kona. Sveit- ungar hennar reyndust henni ætíð vel og bám mikla umhyggju fyrir henni. Þeir fýlgdust með því að ekkert amaði að og komu til hjálp- ar ef eitthvað bjátaði á. Fyrir það færi ég þeim kærar þakkir. Síðastliðið sumar fór amma ásamt mömmu og systmm sínum austur á Hallormsstað á ættarmót. Þá heimsóttu þær systurnar átt- haga sína, Mjóafjörðinn, og urðu ungar í annað sinn. Þangað hafði amma ekki komið í 58 ár. Henni þótti mjög vænt um að fá að líta æskuslóðimar einu sinni enn. Heimili hennar var þó á Vatnshöm- mm og hvergi annars staðar vildi hún vera. Henni varð að þeirri ósk sinni að vera heima til dauðadags. Bakið hennar ömmu er ekki lengur bogið né fingumir krepptir og hnýttir eftir áratuga langt strit. Nú stendur hún hnarreist og keik við hlið afa í gróandanum og kopar- rautt hárið bærist í golunni. Vertu sæl, amma mín, og þakka þér fyrir samvemna. Hér við skijjuinst og hittast munura á feginsdegi fira. Drottinn minn gefi dauðum ró, en hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum.) Anna Sigríður Þráinsdóttir. Helga móðursystir mín fæddist á Reykjum í Mjóafírði 19. júní 1919, dóttir hjónanna Sigurborgar Gísla- dóttur og Bjöms Jónssonar bónda. Þar ólst hún upp í stómm systkina- hópi fram að 17. aldursári, er §öl- skyldan flutti til Akraness. Arið eftir réð hún sig sem ráðskonu að Vatnshömmm til Þorsteins Fjeldsted bónda sem þá var nýfrá- skilinn. Svo fór að Helga giftist Þorsteini og bjuggu þau sínu búi á Vatnshömmm og frá því að Þor- steinn lést árið 1976 bjó hún þar ein. Þau hjón eignuðust ekki böm, en tóku að sér fósturdóttur, Rut, sem gift er Þráni Siguijónssyni og hafa þau og börn þeirra sýnt Helgu alúð og ræktarsemi og verið henni til mikillar gleði. Helga var afskaplega dugleg, atorkusöm og verklagin og hún gat yfírleitt allt sem hana langaði til. Hún var fram eftir ævi mjög heilsu- hraust og sterk svo um munaði, enda gekk hún jafnan til allra verka, úti sem inni. Ég man fýrst eftir Helgu, þegar ég kom með foreldram mínum að Vatnshömmm tíu ára gömul. Sú upplifun er mér afar minnisstæð. Helga var við heyskap, svona stór og myndarleg kona, rautt þróttmikið hárið fossaði niður á herðar og í því svolítið hey, og af henni Ijómaði lífsgleðin. Þrátt fyrir annir var okkur tekið með kostum og kynjum. Og mikið fund- ust mér kleinuhringimir hennar góðir. Já, hún Helga var alltaf fljót að töfra fram góðgerðir og við skemmtum okkur stundum frænk- umar við að gera okkur virkilega gott í mat og drykk. Til Helgu var alla tíð gott að koma, enda hjá henni mikill gesta- gangur, því hún var gestrisin, rausnarleg, glaðlynd og greind. Við hjón og dætur okkar höfum notið þess í ríkum mæli þegar við höfum komið að Vatnshömram, sem ekki var ósjaldan undanfarin ár. Stúlk- unum fannst mikið tilhlökkunarefni að fara til Helgu ömmusystur og þær nutu rausnar hennar og gjaf- mildi. Viðmót hennar til barna ein- kenndist af elsku og virðingu, enda hændust þau að henni. Hún hafði gjarna hjá sér á sumrum börn og unglinga sér til hjálpar og yndis- auka, eða þar til hún taldi sig ekki manneskju til að taka ábyrgð á þeim lengur sökum þess hve „lítill bógur“ hún væri orðin. Uppúr fímmtugu fór Helga að þjást af beinþynningu og bakveiki sem orsakaði að þessi vörpulega kqna gekk mikið saman og nú seinni ár gekk hún alltaf við staf. En hún lét sjúkdóminn aldrei ráða ferðinni, þrátt fýrir þjáningar og fötlun. Hún hélt yfirleitt áfram að gera allt sem hún vildi. Hún var vön að vinna allt frá barnæsku og kærði sig ekki um að vera upp á aðra komin, hún var ekki þeirrar gerðar. Hún átti nokkra hesta og lengi var hún með svolítið ijárbú og hún sagði að það væri svo ósköp notalegt að hafa blessaðar skepnumar í kringum sig. Hún sagði mér það sjálf fyrir nbkkr- um ámm þegar hún hætti fjárbú- skapnum, að nú gengi það ekki lengur, fólk hefði svo miklar áhyggjur af henni í gegningarstörf- unum og það væri alveg ómögulegt að vera að íþyngja fólki með svona áhyggjum. Þetta held ég að hafi verið dæmigert fýrir afstöðu Helgu til sjálfrar sín og annarra. Hún settist samt ekki með hend- ur í skauti. I samvinnu við Hvann- eyringa setti hún upp kanínurækt í verkfæraskúmum, en þrátt fýrir ánægjuna sem hún hafði af þessu verkefni, komst hún þó fljótlega að því að þetta var of mikil vinna fýr- ir hana. Grannar Helgu, kannski ekki síst Hvanneyringar, hafa drengilega séð til með henni, eftir að þrek hennar fór að bila, enda var hún vinsæl vel, fróð og skemmt- in. Hún var engin tískudama, ennþá síður fordómafullur andhælingur nútímans, en hún hafði sínar skoð- anir og var sjálfri sér samkvæm. Alveg var það makalaust hveiju hún Helga kom í verk. Hún hélt ávallt húsakosti öllum í góðu standi og var sífellt að betmmbæta íbúðar- húsið, svo það var alltaf dálítið spennandi að koma og sjá hvað Helga hafði verið að sýsla í húsinu. Friðmar heitinn bróðir hennar dvaldi stundum hjá henni og hjálp- aði til við framkvæmdir. Hann var eins og Helga, dverghagur, eins og merkja má af samvinnu þeirra á Vatnshömmm. Helga var ekki við eina fjöl felld í handbragði sínu, því auk þess sem áður er sagt var hún snillingur við hverslags matargerð, fatasaum og undanfama vetur hef- ur hún líka fengist við útskurð og sótt tilsögn niður á Hvanneyri. Helga varð bráðkvödd að kveldi Guðjón Jóns- son — Minning Fæddur 1. september 1905 Dáinn 4. mars 1994 Ekki datt mér í hug, elsku pabbi, að síðasta kveðjan mín til þín yrði pámð á kort frá Ríó. En allt er í lífinu hverfult og nú ert þú búin að kveðja og það á þinn hljóðlega hátt eins og þér var svo tamt. Það er erfítt að koma á blað því sem maður vildi segja í minningu föður síns en þú varst alltaf of hóg- vær til þess að skrifuð yrði um þig mikil grein, en mig langar til að senda þér smá kveðju. Guðjón var fæddur á Stóm-Hild- isey í Austur-Landeyjum hinn 1. september 1905. Foreldrar hans vom Jón Vigfússon og Ámý Odds- dóttir. Þau bjuggu alltaf í Austur- Landeyjum og man ég alltaf eftir þeim á litla bænum sem hét Vina- mynni. Eina systur átti pabbi sem heitir Halla og býr í Reykjavík, og uppeldisbróður sem Vignir heitir og býr á Seltjamamesi. 17 ára gamail fór pabbi að heim- an og fór á vertíð til Vestmanna- eyja þar sem hann var þar til yfír lauk. Hann var ákaflega mikill áhugamaður um vélar og þar kom að hann tók vélstjórapróf og var upp frá því ýmist vélstjóri til sjós eða lands. Síðar tók hann einnig jámsmíðapróf. Man ég vel ferðimar með Skaft- fellingi milli Reykjavíkur og Vest- mannaeyja en þá var pabbi vél- stjóri. Hann vann um tíma í Vél- smiðjunni Magna þar sem hann undi vel við sitt og átti þar marga góða vini. Talaði hann oft um Sig- hvat í Ási sem oft kankaðist á við hann og fleira. í Vinnslustöðinni vann pabbi í mörg ár og hætti þar síðan vegna aldurs. Um tíma var hann í útgerð og átti bátinn Hafþór Guðjónsson með fleiram. Pabbi var svo lánsamur að hitta mömmu sem hét Marta Jónsdóttir, dásamleg kona, og byggðu _þau sér húsið við Heiðarveg 25. Ég man alltaf gleðina þegar flutt var upp á efri hæðina en fyrst var byijað að búa á neðri hæðinni. Sama ár eign- uðust þau þriðja barn sitt og var þá mikil gleði. Áður höfðu þau búið á ýmsum stöðum eins og títt var, en pabbi var ákveðinn í að búa Mörtu sinni fallegt heimili. Börn Mörtu og Guðjóns em: Jón Val- garð, fæddur 8. október 1940, und- irrituð, fædd 5. apríl 1935, og Haf- þór, fæddur 26. maí 1947. Árið 1957 dundi ógæfan yfír þegar mamma dó. Ég held að pabbi hafí aldrei komist jrfír það stóra áfail, sem við og öll, allt breyttist. Undirrituð gerði sem hún gat til að halda heimilið (eins og mamma) en það kom auðvitað enginn í stað hennar, en mamma var aðeins 52 ára þegar hún lést. Og aldrei gat pabbi hugsað sér aðra konu. Pabbi minn, það er af svo mörgu að taka af þinni löngu ævi en ég læt þetta duga. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (J.H.) Síðustu árin dvaldi pabbi á Hraun- búðum og em þeim sem þar starfa færðar alúðarþakkir fyrir góða að- hlynningu. Þú ert vonandi búinn að hitta mömmu og því segi ég að lokum, góði Guð, þakka þér fyrir að hafa gefið okkur svo dásamlega foreldra. Vertu Guði falinn, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Addý. í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum elskulegur afi minn, Guðjón Jóns- son, sem lést á sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 4. mars síðastliðinn, eftir stutta sjúkrahúslegu. Afí varð veikur, skrapp ég því til Eyja á þriðjudegi til að heimsækja hann, þar áttum við saman okkar síðustu stundir, en innst inni þegar ég kvaddi hann hugsaði ég með mér að þetta gæti verið í síðasta sinn sem ég hitti hann á lífi. Elsku afí minn, ég á þér svo mikið að þakka, þú varst mér alltaf svo góður og mikill vinur, ég gat alltaf leitað til þín. Þegar ég bjó hjá þér í kjallaran- um á Heiðó með litlu Addý og þú varst svo hrifínn af henni og varst okkur mæðgum eins og faðir. Addý kveður þig í dag og biður Guð að geyma þig vel. En svo stækkaði fjölskyldan, þegar ég kynntist manninum mín- um, Jónasi Hreinssyni. Og að sjá hvað þið urðuð miklir vinir, og oft var glatt á hjalla í litla eldhúsinu á Heiðó, og hafðir þú, afi minn, alltaf gaman af að stríða mér og hvað þú gast hlegið mikið og hátt, þá var nú gaman, og mikið var erfítt fyrir mig þegar við hjónin ákváðum að flytja til Reykjavíkur. Ég gat ekki farið til þín og sagt þér það sjálf, því mér fannst ég vera að svíkja þig svo mikið. Því mamma og systkini mín höfðu þá flutt þremur árum áður til Reykja- víkur eftir að pabbi dó, og hafði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.