Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
etta hefur verið kaldur vetur í Tallinn, höfuðborg
Eistlands. Sennilega sá kaldasti í ein sjö ár. En veður-
guðirnir hafa ekki verið einir um að skapa kulda-
hroll í brjósti þessararjþjóðar sem endurheimti sjálf-
stæði sitt árið 1991 og Islendingar urðu fyrstir til
að viðurkenna. Nýtt andrúmsloft í rússneskum stjórnmálum
veldur sífellt meiri áhyggjum. Nú nýlega vændi Andrei Kozyrev
utanríkisráðherra Rússlands Eista og Letta um að beita þjóðern-
ishreinsunum en hartnær helmingur íbúanna í löndunum á
rætur sínar að rekja til annarra fyrrum lýðvelda Sovétríkj-
anna. Um leið lagði Kozyrev það til að Rússum verði leyft að
halda einni herstöð í Eistlandi, nokkuð sem eistnesk yfirvöld
taka ekki í mál.
Mart Laar forsætisráðherra Eistlands situr ekki auðum hönd-
um. Ekki einasta þarf hann að takast á við erfitt efnahags-
ástand og hálftóman ríkiskassa. Að margra mati hriktir nú í
stöðum þjóðfélagsins vegna vaxandi glæpastarfsemi. Fyrir
nokkru stóðst ríkisstjórn hans naumlega vantraustsatkvæða-
greiðslu í þinginu en margir þingmenn, þar á meðal stjórnar-
þingmenn, telja forsætisráðherrann ekki nógu ákveðinn í málum
sem snerta minnihlutahópana i landinu. Eistneski forsætisráð-
herrann gaf sér þó tíma á dögunum til að veita þetta viðtali
sem hér fer á eftir.
Ljósmynd/Sigursteinn Másson
Mart Laar, forsætisráðherra Eistlands: „Ótti okkar tengist skipu-
lagðri mafíustarfsemi sem undir vissum kringumstæðum gæti
þróast í hreina hryðjuverkastarfsemi."
Okkar barátta er bar-
átta allrar Evrópu
Við munum verjast!
Með þeirri frjálslyn clisstefn u
sem ríkir í skatta- og tollamálum
í Eistlandi er ljóst að ríkið er
ekki sterkt. Um leið er vitað að
mafíustarfsemi blómstrar í land-
inu og svo til á hverjum degi
greina eistneskir fjölmiðlar frá
grófum spillingarmálum. Á
hvaða tímapunkti er lýðræðið
sjálft í hættu vegna þessa?
— Það fyrsta er að ríkið verð-
ur að vera sterkt til að halda
uppi þeirri skattstefnu sem við
framfylgjum og það er ekki auð-
velt. Ríkisstjórnin verður líka að
vera samhent og stöðug. Ég
þekki marga vestræna stjórn-
málamenn sem vildu fara sömu
leið og við erum að fara nú, en
geta ekki vegna þess að flokkar
þeirra eru ekki nógu sterkir.
Þetta er að mínu mati eina leiðin
ef við viljum skapa efnahagsbata
í þessu Iandi. Við getum aðeins
bætt stöðu ríkiskassans í takt við
almennar efnahagsframfarir í
Eistlandi. Hafa verður í huga að
hér var ekkert fyrir aðeins tveim-
ur árum. Búðir voru tómar og
allsstaðar gat að líta langar bið-
raðir eftir brauði og mjólk. Það
voru jafnvel uppi áætlanir um
að flytja fólk á brott úr borgum
vegna þess að það var enginn
matur til að Iifa af veturinn. Allt
það sem nú hefur áunnist er að-
eins tilkomið vegna róttækrar og
fijálslegrar umbótastefnu sem
fylgt hefur verið. Ef þú lítur á
fjárlögin sérðu að afar stór hluti
útgjaldanna í ár er ætlaður í
verkefni er lúta að því að vernda
ríkið og koma á lögum og reglu.
Það þarf að styrkja löggæsluna
og vemda landamærin betur en
nú, en auk þess erum við að
stofna okkar eigin her. Eistland
var í raun ekki ríki fyrir tveimur
árum, því þá voru yfirvöld aðeins
til staðar að nafninu til. Til að
skapa sjálfstæðtt ríki og styrkja,
hafa íbúar landsins þurft að færa
fórnir, fórnir sem mest hafa bitn-
að á allri samfélagsþjónustu. En
þetta er hreinlega spurning um
tilvist Eistlands. Nú er svo komið
að við verðum að loka algerlega
landamærunum að Rússlandi til
að stemma stigu við glæpaöld-
inni. Við eigum engra annarra
kosta völ. Við getum barist gegn
eistneskum glæpamönnum en við
eigum í vandamálum með þá sem
koma frá Rússlandi. Ég get sagt
í fullri hreinskilni að við höfum
fyrst nú allra síðustu mánuðum
staðið með báðar fætur á jörðinni
í baráttunni við glæpaflokka. En
baráttan er hörð þvi héma megin
landamæranna höfum við
reynslulitla löggæslu á meðan
fyrrum KGB foringjar stjórna
glæpahringjum hinum megin.
Þetta er í raun ekki aðeins okkar
barátta heldur barátta sem snert-
ir alla Evrópu.
Samt sem áður eru uppi efa-
semdarraddir um að rétt sé af
ykkur að stofna eigin her í svo
litlu og fátæku Iandi. Allir virð-
ast sammála um að styrkja beri
lög og Iandamæragæslu en um
leið virðist það Ijóst að ykkar
eina utanaðkomandi ógn stafar
frá Rússum. Er ekki Ijóst að
Rússar myndu ætíð bera sigurorð
af ykkur ef til stríðsátaka kæmi,
sama hversu mikið af vopnum
þið kaupið?
— Það er engum blöðum um
það að fletta að erfitt yrði að
veijast gegn Rússum. Það vitum
við af reynslunni. Þess vegna
miðum við öll okkar vopnakaup
og þjálfun hermanna við skæru-
hernað sem háður yrði í borgum
og bæjum eftir mögulega innrás
Rússa. Við erum ekki að kaupa
þungavopn eins og skriðdreka
heldur léttan vopnabúnað sem
skapar okkar mönnum sterka
stöðu í skæruhemaði. Þeir sem
nú vilja gera innrás inn í Eistland
verða að vita þetta og um leið
að fólk hér er tilbúið að veijast,
hvað sem það kostar. í augna-
blikinu höfum við litla ástæðu til
að óttast beina innrás. Meginógn-
in kemur innanfrá. Vel gæti svo
farið að hér verði myndaðir
hryðjuverkahópar í ljósi þess að
40% íbúa Eistlands koma upp-
runalega frá öðram fyrrum lýð-
veldum Sovétríkjanna og tala
flestir aðeins rússnesku. Okkar
nýstofnaði her mun hafa það
meginhlutverk að beijast gegn
slíkum hryðjuverkahópum.
Enginn munur á Shírínovskíj
og núverandi stjórn
Hvaða augum líturðu uppgang
öfgasinnaðra þjóðernissinna í
Rússlandi í ljósi hótana foringja
þeirrá Vladimirs Shírínovskíjs um
að innleiða Eistland í einhvers
konar „Stór-Rússland“, komist
hann til valda?
— Shírínovskíj hefur góða
möguleika á að komast til valda.
Ef við lítum á rússneska utanrík-
isstefnu í dag verð ég hreinlega
að segja að munurinn á milli
Shírínovskíj og Andrei Kozyrev
utanríkisráðherra Rússlands er
ekki mikil. Þeir þræta sín á milli
en stefna þeirra gagnvart Eist-
landi er í raun hin sama. Ég er
afar dapur yfir þróuninni en við
verðum að horfast í augu við
raunveruleikann. Vestræn ríki
verða að átta sig á hættunni.
Við verðum að læra af reynsl-
unni. Um 1930 sögðu menn að
litli maðurinn með yfirvarar-
skeggið í Þýskalandi væri ekki
hættulegur en hvað gerðist svo?
Það sem nú er að gerast í Bosn-
íu mun án efa auka spennuna
hér vegna sögulegra tengsla
Rússa og Serba. Þess vegna er
líklegt að mönnum eins og Shír-
ínovskíj og Kosyrev eigi eftir að
vaxa fiskur um hrygg í takt við
öfgasinnaða þjóðernisstefnu í
Rússlandi. Við höfum ekki
ástæðu til að óttast þá 2.500
rússnesku hermenn sem hér eru
enn. Þeir bíða bara eftir að kom-
ast til síns heima. Okkar ótti
tengist skipulegri mafíustarfsemi
sem undir vissum kringumstæð-
um gæti þróast út í hreina
hryðjuverkastarfsemi.
Er ekki möguleiki á því að
rússneski minnihlutinn í Eist-
landi, sem upplifir sig kúgaðan,
kunni að rísa upp og hér bijótist
út almenn borgarastyrjöld sem
síðar gæti leitt til innrásar riíss-
neska hersins?
— Ef við lítum á þróunina
síðastliðið ár þá sjáum við að
borgarastyrjöld í Eistlandi er
ekki inni í myndinni. Þetta er
friðsælli staður en svo. Fyrir
fimm áram hefði ég líklega gefíð
þér allt annað svar. Eina hættan
á almennum óróa í augnablikinu
tengist efnahagsástandinu. Það
eitt er stórt skref fram á við.
Rússneska minnihlutanum er
farið að skiljast að þótt lífið hér
sé ekki auðvelt, þá bíði hans allt
annað og erfiðara líf handan
landamæranna.
Singapore Austur-Evrópu?
Nú liggja á samningaborðinu
drög að takmörkuðum fríverslun-
arsamningi milli Eystrasaltsríkj-
anna og Evrópusambandsins.
Hafa Eistlendingar í dag ein-
hverja möguleika á að flytja út
vörur til Evrópusambandsins í
Ijósi þess að innanlandsfram-
leiðslan er lítt þróuð?
— Jú, við höfum ákveðna
möguleika en það verða áfram
kvótar á okkar útflutning vegna
takmarkana sem felast í þessum
samningsdrögum. Við þörfnumst
samnings sem er opnari en sá
sem okkur býðst nú. Samninga-
viðræður era í gangi og þróunin
hefur til þessa verið jákvæð. Við
vonumst til að viðræðum ljúki í
sumar og fríverslunarsamningur
milli Eystrasaltsríkjanna og Evr-
ópusambandsins taki gildi frá og
með fyrsta janúar á næsta ári.
Finnskir embættismenn sem
ég hef rætt við í Helsinki orða
það svo að Eistland sé að reyna
að verða að Singapore Austur-
Evrópu, nokkuð sem sé óraun-
hæft vegna staðsetningarinnar
og spennunnar sem ríkir milli
Eistlands og Rússlands. Hvað
segirðu um þetta?
— Varðandi samlíkinguna við
Singapore þá held ég að það sé
ekki hægt að nota nákvæmlega
sömu aðferðir hér og í sumum
Asíuríkjum. Engu að síður er það
rétt að okkar efnahagsstefna er
að mörgu leyti sambærileg. Við
höfum ekkert styrkjakerfi á inn-
anlandsframleiðslu um leið og
hér eru engin innflutningshöft.
Vinnuafl er ódýrt sem laðar að
erlenda fjárfesta sem tekist hefur
vonum framar. Þau Asíu- og
Austur-Evrópuríki sem vilja örar
framfarir fara öll sömu leið og
við. Við eigum að sjálfsögðu í
samkeppni við Finnland en sú
samkeppni er heilbrigð og á jafn-
réttisgrandvelli. En í Eistlandi
vinnum við eftir evrópskri fyrir-
mynd svo það er fráleitt að líkja
því sem hér er að gerast ein-
göngu við Singapore.
En ykkar vaxtarmöguleikar
hljóta þó að mestu leyti að ráð-
ast af því hvernig samskiptin
verða við Rússland, þar sem er
hundrað og sextíu milljóna
manna markaður, ekki satt?
— Þetta er dálítið flókið mál.
í byijun árs voru miklar efasemd-
ir um hvort unnt væri að flytja
vörar milli Rússlands og Eist-
lands. Ástæðan er efnahagsstríð
sem 'rússnesk stjórnvöld halda
uppi gegn Eistlandi. Á sama tíma
hafa bein viðskiptasjónarmið og
einkarekstur smám saman tekið
völdin á ýmsum sviðum. Rúss-
neskir viðskiptamenn eru áfram
um að halda tengslum við Eist-
land. Viðskiptahindranir stjórn-
valda hafa ekki haldið. Þvert á
móti sýna tölur að vöruflutningar
milli landanna hafa aukist á allra
síðustu mánuðum. Auðvitað er
hætta á að rússnesk yfirvöld grípi
til róttækra efnahagsþvingana
gagnvart Eistlandi en á þessu
stigi efast ég um slíkt. Því örar
sem einkavæðingarmál þróast í
Rússlandi þeim mun minni mögu-
leika hafa Shírínovskíj og hans
líkar á að stöðva þessi viðskipti.
Fyrir nokkru fór ég með lest
á milli Sankti Pétursborgar í
Rússlandi og Tallín í Eistlandi. Á
landamærunum þurfti Iestin að
bíða í tvær klukkustundir. Spenn-
an þar er tilfinnanleg sem endur-
speglast meðal annars í þeirri
staðreynd að í dag er nær útilok-
að fyrirEista aðfá vegabréfsárit-
un til Rússlands. Um leið ríkir
visst hatur í Eistlandi milli rúss-
neskumælandi íbúa landsins sem
erfitt eiga með að öðlast eistnesk-
an ríkisborgararétt og innfæddra
Eista. Er ekki lykillinn að væn-
legri framtíð þessa lands að finna
í því hvernig tekst að jafna
spennuna milli Eista og þessara
minnihlutahópa?
— Samkvæmt skoðanakönn-
unum er mikill meirihluti rússne-
skumælandi íbúa Eistlands, sem
komu frá öðrum fyrrum lýðveld-
um Sovétríkjanna, neikvæður í
afstöðu sinni til ákvarðana rúss-
neskra stjórnvalda í garð Eist-
lands. Því miður láta rússnesk
stjórnvöld sig lítt varða álit þess-
ara íbúa þótt þau tali ætíð um
mannréttindabrot sem við erum
sögð fremja á rússneskumælandi
fólki. Áhuginn í Kreml liggur
meir í því að skapa nýja valda-
stöðu í þessum heimshluta.
Það er ljóst að engin verður
fluttur nauðungarflutningum frá
Eistlandi. Fólk verður hins vegar
hrætt þegar það heyrir frá
Moskvu að slíkt standi til. Það
eru hrein ósannindi. Varðandi
erfiðleika þessa fólks í tengslum
við að læra eistnesku þá er það
svo að til að fá' landvistarleyfi
er ekki nauðsynlegt að læra eist-
nesku. Aðeins þeir sem vilja fá
ríkisborgararétt þurfa að læra
tungumálið. Á tímum Sovétríkj-
anna voru Rússar ekki áhuga-
semir um að læra eistensku því
þeir þurftu það ekki. Við vorum
hernumin og til stóð að eyða
þessari þjóð algerlega. Rúss-
nesku íbúarnir hér verða að sætta
sig við breytta tíma og um leið
að viðurkenna okkar lýðræðis-
legu stjórnarhætti. Hin neikvæða
afstaða milli Eista og Rússa í
landinu er ekki sú sama og var
fyrir tveimur árum. Þá fannst
enginn Eisti né Rússi sem sagði
að þessir þjóðfélagshópar gætu
lifað í sátt og samlyndi. Nú hefur
þetta snúist við og- meirirhluti
allra íbúa landsins er annarrar
skoðunar. Lokaniðurstaðan fer
aðallega eftir því hvernig okkur
á eftir að takast til við að skapa
efnahagslegt öryggi fyrir alla
íbúa Eistlands.
Forseti íslands til Eistlands?
Hvaða augum lítur forsætis-
ráðherra Eistlands á samskipti
Eistlands og íslands?
— Þau samskipti era góð og
vinsamleg. Ég er í góðu sam-
bandi við Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra íslands sem á sínum
skólaárum þýddi bók um hernám
Sovétmanna í Eistlandi yfir á ís-
lensku. Hann þekkir okkur því
og þau vandamál sem við stönd-
um frammi fyrir býsna vel. Það
var mjög eðlilegt og jákvætt að
ísland skyldi verða fyrsta landið
í heiminum til að viðurkenna
sjálfstæði Eistlands. Við eram
afar þakklát fyrir það. Þótt ég
hafi sjálfur ekki heimsótt ísland
eru margir íslenskir stjórnmála-
menn sem hafa sýnt þróuninni
hér áhuga og komið til Eistlands
til að sjá með eigin augum hvað
er að gerast. í bijóstum allra
Eista ríkir hlýr hugur í garð ís-
lensku þjóðarinnar. Ég vona inni-
lega að forseti íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir sjái sér fært að
koma í opinbera heimsókn til
Eistlands í ár. Það yrði okkur
mikið gleðiefni.
Texti: Sigursteinn Másson,
Eistlandi