Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994 21 Auglýsingar Gott fólk hlut- skarpast hjá ÍMARKI AUGLÝSINGASTOFAN Gott fólk hf. varð hlutskörpust í sam- keppni ÍMARKS um athyglisverðustu auglýsingu ársins 1993. Hlaut stofan þrenn verðlaun, en næst á eftir kom Auglýsingastofa P&Ó með tvenn verðlaun. I samkeppninni voru tvenn verðlaun, gullhúð- uð gjallarhorn, veitt í hverjum flokki, önnur fóru til auglýsinga- stofunnar og hin til auglýsandans. Voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. í flokki dagblaðaauglýsinga hlaut Ydda hf. verðlaun fyrir aug- lýsingu Nathans & Olsen, Fæðu- hringinn. Fyrir athyglisverðustu sjónvarpsauglýsinguna hlaut Vá- tryggingafélag íslands hf. verð- laun ásamt Góðu fólki hf. fyrir auglýsinguna F27. Auglýsinga- stofa P&Ó og Samtök íslenskra innréttinga- og húsgagnaframleið- enda fengu verðlaun fyrir athyglis- verðasta útsendiefnið sem var kynningarefni um íslensk húsgögn og innréttingar. Plastkornið, sem Plastprent hf. framleiddi, var valið athyglisverðast í flokki óvenjuleg- ustu auglýsinganna. Þá fengu Vátryggingafélag Is- lands og Gott fólk verðlaun fyrir athyglisverðustu tímaritaauglýs- inguna sem ber yfirskriftina Hluti slökkviliðsins ætti alltaf að hanga heima. Þjóðminjasafn íslands og Jóna Sigríður Þorleifsdóttir fengu verðlaun fýrir athyglisverðasta vöru- og firmamerkið. Sælgætisgerðin Freyja og Aug- lýsingastofa P&Ó fengu verðlaun fyrir athyglisverðustu útvarpsaug- lýsinguna sem nefnist Staur - al- veg þráðbeinn og verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsingaher- ferðina hlutu Vátryggingafélag íslands og Gott fólk hf. fyrir kynn- ingu á F-27. Gefendur verðlauna voru Is- lenska útvarpsfélagið, Morgun- blaðið, Ríkisútvarpið, Fróði hf., Silkiprent hf., Sjóvá-Almennar, Póstur og sími, DV og Verslunar- ráð íslands. Dómnefnd skipuðu eftirtaldir: frá ÍMARK voru Bogi Sigurodds- son formaður, Margrét Kr. Sig- urðardóttir og Jón Gunnar Aðils. Frá SÍA voru Ólöf Þorvarðardóttir, Iðnaður Hlutafjáraukmng hjá Norsk Hydro NORSK Hydro hyggur á allt að fimm milljarða (norskra) króna fjármagnsaukningu á fyrra árshelmingi með útgáfu nýrra hlutabréfa samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Minnihlutastjórn Verkamanna- flokksins hyggst neyta forkaups- réttar og halda þar með 51% eign- arhlut ríkisins í Norsk Hydro, en til þess þarf hún stuðning þingsins. Norsk Hydro gaf síðast út hlutabréf 1988 og aflaði um 2,5 milljarða norskra króna. Síðan hefur fyrirtækið fjárfest 50 millj- arða n. króna og þar af hefur helmingnum verið varið til hagnýt- ingar olíu- og gassvæða í Norð- ursjó. Norska stjórnin mun fara fram á stuðning þingsins við frumvarp um að varið verði rúmlega 2,6 milljörðum n. króna til þess að taka þátt í fyrirhugaðri útgáfu hlutabréfanna. „Ég treysti því að stjórnin fái meirihlutastuðning (við frumvarp- ið) á þingi,“ sagði Jens Stolten- berg orkumálaráðherra á blaða- mannafundi. Verslun Vöruviðskiptahalli nam 1,57 milljörðum punda í desember, en var 1,28 milijarðar punda í nóvem- ber. Hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir eins milljarðs punda halla, en hann varð miklu hærri. Sam- kvæmt bráðabirgðatölum nemur hallinn allt árið 1993 13,42 millj- örðum punda, sem er lítil sem engin breyting frá 1992 þegar hann nam 13,41 milljarði punda. Innflutningur frá ríkjum Evr- ópusambandsins (EBS) jókst um 5% miðað við nóvember og það vekur ugg. Hagfræðingar segja að hallinn í desember staðfesti að þegar eftirspurn aukist innanlands sé henni að miklu leyti mætt með innflutningi. Staða útflutningsins vekur einnig ugg. Útflutningur Breta til Árshtíl í< )ir Verö Irá 1400 kr. á niann (>148 49 Valgerður Sigurðardóttir, Björn Valdimarsson, Loftur Ólafur Leifs- son og Elísabeth A. Cochran. Frá Viðskiptadeild HÍ voru Runólfur Smári Steinþórsson og Brynjólfur Sigurðsson og frá Samtökum aug- lýsenda var Bergsveinn Samsted. Tekið var fram á hátíðinni að allar auglýsingarnar sem tilnefndar voru hafi verið valdar í leynilegri atkvæðagreiðslu. Alls voru sendar inn 274 auglýsingar í keppnina. VIÐURKENIUINGAR gærkvöldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá verðlaunaafhendingunni í Flugfélög Air France vill fá nýjan styrk frá stjórnvöldum París. Reuter. FRANSKA flugfélagið Air France hefur beðið um að minnsta kosti 20 milljarða franka (3,44 milljarða) ríkisstyrk til þess að endurskipu- leggja félagið og láta það bera sig. Félagið boðaði einnig róttækar ráðstafanir til þess að minnka tap, sem talið er að hafi numið 7,5 millj- örðum franka (1,29 milljörðum doll- ara) á síðasta ári. Að sögn tals- manns þess, er fyrirhugað að leggja niður 5.000 störf fyrir árslok 1996, Sáttímálum Sculleys og Spectrums New York. Reuter. FYRIRTÆKIÐ Spectrum Inform- ation Technologies og John Scul- ley, fyrrverandi framkvæmda- stjóri þess, segjast hafa fallið frá málshöfðunum sinum. Báðir aðilar höfðuðu mál skömmu eftir að Scully hvarf óvænt frá fyrir- tækinu í febrúarbytjun eftir fjögurra mánaða starf. Spectrum krafðist rúmlega, 300 milljóna dollara bóta af Sculley fyrir samningsbrot, van- rækslu og meiðyrði. Sculley var áður stjórnarformaður tölvufyrirtækisins Apple og lögsótti stjómarformann Spectrum, Peter Caserta, fyrir svik. þar af 2.100 á þessu ári. Flugvélum félagsins verður fækkað í 149 úr 166 fyrir árslok 1999 og laun verða fryst í þrjú ár. Félagið sagði í yfirlýsingu að reynt yrði að aðlaga það nýjum aðstæðum og gera það samkeppnishæfara. Christian Blanc stjórnarformaður mun ræða við fulltrúa starfsmanna og reyna að fá stuðning þeirra við áætlunina, sem er nauðsynleg for- senda þess að ríkið veiti umbeðinn stuðning. Fyrir fímm mánuðum neyddist stjórn Edouards Balladurs forsætis- ráðherra til þess að draga til baka stuðning við fyrri spamaðaráætlun vegna verkfalls starfsmanna. Nú kveðst ríkisstjórnin fús að veita Air France töluverða fjárhagsaðstoð, ef starfsmenn félagsins samþykki end- urskipulagninguna. Stærsta verkalýðsfélag starfs- manna Air France, Force Ouvriere, segir uppsagnir óhjákvæmilegar vegna slæmrar afkomu félagsins. Verkalýðssamböndin CGT og CFDT kalla það hins vegar fjárkúgun, að tengja stuðning frá ríkinu endur- skipulagningu á félaginu. Stjórnin verður einnig að taka til- lit til reglna Evrópusambandsins um ríkisstyrki og hættu á kæmm um brot á þeim. í síðasta mánuði sagði Karel Van Miert úr framkvæmda- stjórn ESB, að Air France tefldi á tæpasta vað og endurfjármögnun frá ríkinu yrði að fylgja raunhæf áætlun. Stokke tripp trapp Stóllinn sem vex með barninu 5 ára ábyrgð Sama verð og annars staðar á Norðurlöndunum kr. 9.760,- epol Faxafeni 7 s. 687733 Viðskiptahalli Breta hefur aukist London. Reuter. VIÐSKIPTAHALLI Breta jókst enn að mun í desember og óttazt er að aukinn innflutningur geti stofnað efnahagsbata í hættu. EBS-landa síðasta ársfjórðung 1993 dróst saman um 9,5% miðað við næstu þijá mánuði á undan. Hallinn á viðskiptunum við EBS- lönd jókst í 903 milljónir punda úr 543 milljónum í nóvember. Brezka fjármálaráðuneytið seg- ir viðskiptatölur sveiflukenndar og að erfitt hafi verið að treysta tölum EBS á undanförnum mánuðum. Þar með telur ráðuneytið tölurnar slæmar að sögn hagfræðinga, sem telja nauðsynlegt að endurskoða fyrri spá um 11 milljarða punda greiðsluhalla 1994. islHndskosiiir Skattframtal einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur Skilafrestur rennur út þann 15. mars Síðasti skiladagur skattframtals einstaklinga sem höfðu með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur á árinu 1993 er 15. mars. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.