Morgunblaðið - 12.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
7
Skatttekjur ríkisins af bifreiðaeigendum frá 1987
7,5 milljarða hækkun
TEKJUR ríkisins af bifreiða
sköttum hafa hækkað úr 9,9
milljörðum króna árið 1987 í
17,6 miHjarða króna, samkvæmt
fjárlögum þessa árs, en sem pró-
senta af heildartekjum ríkisins
hafa tekjur af bifreiðasköttum
lækkað úr rúmlega 20% í tæp
17% á sama timabili, ef marka
má samantekt fjármálaráðuneyt-
isins. Þetta kom fram á opnum
fundi, sem Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda hélt með Friðriki
Sophussyni fjármálaráðherra um
skatta á bifreiðir á fimmtudags-
kvöld. Af einstökum tekjuliðum
má nefna, að tekjur ríkisins af
bifreiðakaupum hafa minnkað
úr 4,3 milljörðum árið 1987, þeg-
ar innflutningur náði hámarki, í
3,9 milljarða í ár að áætlunin.
Tekjur af eldsneyti hafa aukist
úr 2,9 miHjörðum 1987 í 8,2 millj-
arða í ár. Bifreiðagjöld hafa
hækkað úr 200 milljónum árið
1987 í rúmlega 1,8 milljarða í ár.
Fjármálaráðherra benti á, að
mikil aukning hafi verið á framlagi
til vegamála á sama tímabili, eða
2,2 milljarðar árið 1987 á móti 6,4
milljörðum samkvæmt fjárlögum í
ár, og á seinasta ári hafi hærra
hlutfalli af tekjum af bifreiðum ver-
ið varið til vegamála en nokkru
sinni. í ár eigi 37,5% af tekjum af
bifreiðasköttum að renna til út-
gjalda í tengslum við vegamál. Bif-
reiðaeigendur vanmeti þann sparn-
að sem hljótist af aukningu bundins
slitlags. Hann nefndi einnig að
sveiflur í nýskráningum bifreiða,
sem voru um 24 þúsund árið 1987
en um 6 þúsund í fyrra, hafi umtals-
verð áhrif á tekjur ríkissjóðs. Frið-
rik sýndi samanburð á áætluðu
meðaltali af verði bifreiða og bens-
íns á Norðurlöndum, sem leiði í ljós
að skattahlutfallið hérlendis sé sam-
bærilegt við það sem gerist þar.
íslands skeri sig heldur ekki úr
varðandi álögur á bensínverð ef
miðað er við flest lönd á evrópska
Kópavogur
Listi Sjálf-
stæðis-
flokksins
ákveðinn
FULLTRÚ ARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna í Kópavogi hafa sam-
þykkt framboðslista flokksins
vegna bæjarsijórnarkosning-
anna í vor. Fyrstu sautján sætin
eru samkvæmt niðurstöðu próf-
kjörs sem fram fór 13. nóvember
1993.
í 1. sæti listans er dr. Gunnar
I. Birgisson, í 2. sæti er Bragi
Michaelsson, í 3. sæti ér Arnór L.
Pálsson, í 4. sæti er Guðni Stefáns-
son, í 5. sæti er Halla Halldórsdótt-
ir, í 6. er sæti Sigurrós Þorgríms-
dóttir, í 7. sæti er Sesselja Jónsdótt-
ir, í 8. sæti er Jón Kristinn Snæ-
hólm, í 9. sæti er Gunnsteinn Sig-
urðsson og í 10. sæti er Ingibjörg
Gréta Gísladóttir.
í 11. sæti er Karl Gauti Hjalta-
son, í 12. sæti er Birgir Ómar Har-
aldsson, í 13. sæti er Helgi Helga-
son, í 14. sæti er Hilmar Björgvins-
son, í 15. sæti er Hjörleifur Hrings-
son, í 16. sæti er Hannes Ó.
Sampsted og í 17. sæti er Stefán
H. Stefánsson.
í 18. sæti er Ásdís Ólafsdóttir, í
19. sæti er Margrét Björnsdóttir, í
20. sæti er Ásta Þórarinsdóttir, í
21. sæti er Sigurðuv Helgason og
í 22. sæti er Birna G. Friðriksdóttir.
efnahagssvæðinu, heldur sé hátt
innkaupsverð afgerandi þáttur í
eldsneytisverði hérlendis.
Mikil skattheimta
í máli Bjöms Péturssonar, for-
manns FÍB, kom m.a. fram, að um
70% af bensínverði renni til ríkisins
í líki skatta. „í janúar 1990 var
innkaupsverð á bensínlítra tæpar 9
krónur en í desember 1993 tæpar
10 krónur. Útsöluverð á 92 oktana
bensíni var 49,20 kr. í byijun tíma-
bilsins en 64,50 kr. í lok þess.
Hækkunin er um 15% á innkaupum
en 31% á útsölu. Hækkunin stafar
fyrst og fremst af auknum álögum
ríkisins á bensín," sagði Björn.
Hann mótmælti einnig harðlega
hækkunum sem orðið hafa á bif-
reiðagjöldum frá því að þau vom
lögð á samkvæmt lögum frá 1987,
seinast um 30%, og sagði það for-
gangskröfu að afnema bifreiðagjöld
sökum þess óréttlætis sem í skatt-
heimtunni fælist.
Um 60 bifreiðaeigendur mættu
og spunnust fjörlegar umræður á
fundinum að loknum erindum frum-
mælenda.
Morgunblaðið/Þorkell
Fundað um bílaskatta
FRIÐRIK SOPHUSSON fjármálaráðherra í ræðustól á fundi Félags
íslenskra bifreiðaeigenda um bílaskatta. Fjær sjást m.a. Sigurður
Helgason, sem stýrði fundi, og Björn Pétursson, formaður FIB.
Það er eitthvað bogið við nviu
'sskápalínuna frá Whirlpool
Bogadregin línan í hurðumnn a nýju ískápalínunni
frá Whirpool gefur nútímalegt yfirbragð. Um leið er
það afturhvarf til fortíðar og því má segja að gamli
og nýi tíminn mætist í nýju Soft l jook línunni frá
Whirlpool.
HLUTFÖLL HURD HÆÐ BREIDD DÝPT VERO ST.GR.
ART214 190/122 2 180 60 60 82.555
ART 362 242/83 60 82.555
ART210 202/96 60 66.405
ART 208 204/60 2 159 55 60 61.655
Heimilistæki hf
fil i;5 RIUiC'l
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO