Morgunblaðið - 12.03.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
11
Gerum tilkall til veiðiréttar
á alþjóðlegxim hafsvæðum
eftirÁrna R. Árnason
Á þessu ári fögnum við íslending-
ar tveimur stórum áföngum á leið
okkar til sjálfstæðis. Báðir ollu
straumhvörfum í þjóðlífmu, einkum
vegna þeirrar vakningar sem það
varð þjóðinni að ráða sjálf örlögum
sínum.
Níutíu ár eru frá skipan fyrsta
íslenska ráðherrans. Við nýju for-
ystuhlutverki tók eldhugi sem af
orðkynngi stórskáldsins stappaði
stáli í fámenna þjóð svo hún reis
úr öskustó vanmetakenndar til
djörfungar og samstöðu í fram-
kvæmdum og baráttu fyrir rétti sín-
um. Síðar á árinu fögnum við fimm-
tíu ára afmæli lýðveldis og sjálf-
stæðis. Það leysti úr læðingi þrótt
og sjálfstraust þjóðarinnar sem á
næstu árum og áratugum réðist í
hverja stórhuga framkvæmd af
annarri á öllum sviðum þjóðlífsins.
Um aldamótin urðu miklar fram-
farir í útgerð. Landsmenn eignuð-
ust fyrstu togskipin undir aldamót-
in, rétt eftir þau var fyrsta vélin
sett í árabát á ísafirði og fyrsti nýi
togarinn kom skömmu síðar. Toga-
raútgerð krafðist mikilla hafnar-
mannvirkja og dró það úr út-
breiðslu hennar. Vélbátaútgerð var
mikil framför frá útvegi smábáta
og seglskúta án þess að þurfa nýja
hafnaraðstöðu. I kjölfar hennar
döfnuðu bæir og þorp við sjávarsíð-
una. Bátarnir stækkuðu eftir því
sem hagur útgerðar styrktist og
tækni fleygði fram í skipasmíðum
og hafnargerð. Síðustu áratugi hafa
stærri bátarnir sótt björg í bú á
öllum árstímum og langt út til hafs
-stundum jafn Iangt og togararnir
sem stunda heimamiðin.
Um miðja þessa öld, í kjölfar lýð-
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, mun sunnudaginn 13.
mars vísitera Árbæjarsöfnuð og
predika við guðsþjónustu í Árbæj-
arkirkju á venjulegum messutima
safnaðarins kl. 11 árdegis.
Eftir hádegið heldur hann síðan
fund með sóknarnefnd og starfsfólki
safnaðarins. Ólafur er fyrsti biskup-
veldisstofnunar og fyrir þann afl-
vaka sem hún varð í þjóðlifinu og
í krafti efnahagslegrar velgengni á
fimmta áratug aldarinnar, varð
mikill vöxtur í togaraútgerð með
tilkomu „nýsköpunar“-togaranna.
Á þeim skipum var sótt lengra en
áður um opin höf á þau mið sem
líklegust voru til aflasældar á hverj-
um tíma. Fimmta og sjötta áratug-
inn sóttu íslenskir togarar vestur
til Grænlands, vestur um haf á
Nýfundnalandsmið og norð-austur
í Barentshaf, sem við nefndum þá
Hvítahaf. Á áttunda áratugnum
varð aftur mikill vöxtur fyrir fjölg-
un skuttogara og auknum veiðum
þeirra á heimamiðum innan lögsög-
unnar sem erlendir togarar hurfu
nú af.
Sjávarútvegur hefur gegnt vax-
andi hlutverki í atvinnulífi þjóðar-
innar og enn stærra eftir því sem
liðið hefur á þessa öld. Afkoma
hans og framþróun varð grundvöll-
ur framfara í öðrum greinum at-
vinnulífs. Afkoma hans ræður
mestu um afkomu þjóðarbúsins og
er því undirstaða lífskjara okkar.
Hagsmunir sjávarútvegs eru hags-
munir okkar allra.
Full yfirráð á heimamiðum
Um aldamótin toguðu útlendir
togarar hvar sem fengsælt var allt
upp í landsteina. Framganga
mannsins sem nokkrum árum síðar
varð fyrsti íslenski ráðherrann
kveikti með þjóðinni nýja baráttu-
glóð og íslendingar hófu sjálfir að
stugga útlendingum úr landhelgi.
Síðar var mótuð sú stefna að
færa landhelgina út, svo langt að
öll helstu mið við ísland yrðu innan
hennar og öll nýting þeirra undir
okkar stjórn. Útfærslan í 12 mílur,
inn sem vísiterar söfnuði í Reykjavík-
urprófastsdæmi en sérstakt prófasts-
dæmi var myndað hér árið 1940, út
úr Kjalarnesprófastsdæmi, segir í
fréttatilkjmningu.
Þriðjudaginn 15. mars mun biskup
heimsækja þjónustumiðstöð fyrir
aldraða í Hraunbæ 105 og opið hús
fyrir eldri borgara í Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 16. mars.
síðar í 50 mílur og síðast í 200
mílur varð við hvern áfanga mjög
hart sótt baráttumál og hvert
mannsbarn tók með sínum hætti
þátt í þorskastríðunum. Að þeim
loknum gerðust okkar helstu and-
stæðingar fylginautar okkar í þessu
merkasta baráttumáli strandþjóða.
Að lyktum fékkst alþjóðleg viður-
kenning á rétti þeirra til yfirráða
og stjórnar á nýtingu grunnmiða
og annarra auðlinda landgrunnsins.
Fiskiskipaflotinn okkar tók fullan
þátt í baráttunni og stundaði veiðar
eingöngu á heimamiðum meðan
hver útfærsla var fest í sessi. Þegar
fullnaðarsigur vannst yfir 200
mflna lögsögu má segja að öll út-
gerð okkar hafi beinst að nýtingu
auðlindanna innan hennar og á
mörkunum. Veiðar togara okkar við
Nýfundnaland og í Hvítahafi lögð-
ust af. Grænlandsmið hafa verið
misjafnlega fengsæl og síðustu ár
mjög rýr af bolfiskafla. Framan af
var síldveiði stunduð hvar sem til
hennar náðist meðan stofnarnir
tveir sem við veiddum úr gáfu góð-
an afla. Loðnuveiðar hafa einnig
verið stundaðar mjög langt úti eftir
aflabrögðum. En botnfiskveiðar
færðust nær allar á heimamið, nýt-
ing þeirra varð meginmarkmið okk-
ar og gæsla hagsmuna okkar sem
fiskveiðiþjóð varð fyrst og fremst
gæsla strandveiðihagsmuna.
Gætum einnig réttinda okkar
utan lögsögunnar
Fiskimiðin og rétturinn til nýt-
ingar þeirra og annarra auðlinda
landgrunnsins eru okkur hinir mik-
ilvægustu hagsmunir. Rétturinn til
að nytja fiskimið nær langt út fyrir
landhelgi og efnahagslögsögu. í því
efni er afar mikilvægt að hagsmuna
okkar á alþjóðlegum hafsvæðum
verði gætt af sömu einurð og á
heimaslóð. Við erum og verðum um
ófyrirsjáanlega framtíð fiskveiði-
þjóð, ekki einungis strandveiðiþjóð.
Ríkisvald sem hvetur útgerðir og
sjómenn til sóknar á fjarlæg mið
og alþjóðleg hafsvæði á að sjálf-
sögðu að styðja sókn þeirra í hví-
vetna að ekki sé minnst á þeirra
eigin samtök. Hagsmunir okkar á
fjarlægum miðum eru þeir sömu
og á heimaslóð og verður best gætt
á sama hátt. Með því að rétti okkar
til að nytja þau sé skýrt og skorin-
ort haldið fram; að við höldum hlut
okkar með því að leggja ekki af
sókn á mið sem við höfum stundað;
og að við höfum frumkvæði að sam-
Árni R. Árnason
„Rétturinn til að nytja
fiskimið nær langt út
fyrir landhelgi og efna-
hagslögsögu.“
starfi þjóða um nýtingu veiðisvæða
og veiðistofna innan þeirra marka
sem þeir gefa af sér. Til þess þarf
góða samvinnu um rannsóknir, eft-
irlit og veiðistjórn og um öryggi
sjómanna á miðum og siglingaleið-
um.
Á annan hátt liggja hagsmunir
okkar sem fiskveiðiþjóðar ekki að-
eins innan lögsögunnar heldur einn-
ig utan hennar. Um alþjóðleg haf-
svæði og lögsögu grannríkja okkar
fara stofnar sem við veiðum hér
við land, í lögsögu okkar eða á
mörkum hennar. Aðrir vaxa upp á
strandsvæðum grannríkja okkar og
koma hingað fullvaxta til hrygning-
ar. Enn aðra má telja flökkustofna
sem fara um okkar lögsögu eins
og annarra þjóða og um alþjóðleg
hafsvæði. Okkur er það mikilvægt
að samstarf takist um nýtingu allra
þessara farandstofna sem annarra.
Enn má nefna fiskveiðihagsmuni
okkar við og innan lögsögu annarra
ríkja þar sem við höfum um langan
aldur stundað veiðar, svo sem við
Grænland, Nýfundnaland og í norð-
urhöfum - þó með hléum hafi ver-
ið. Allra þessara hagsmuna þurfum
við að gæta í samskiptum við aðrar
Biskup vísiterar
Arbæjarsöfnuð
þjóðir, halda fram rétti okkar og
láta ekki niður falla þær nytjar sem
við höfum haft. Ef svo færi er
hættan sú að við missum réttindi,
eða eigum harða baráttu til að stað-
festa þau á ný, samanber deilur
okkar nú við Norðmenn og Rússa
vegna veiða á alþjóðlegu svæði í
Barentshafi. Við höfðum áður
stundað þar veiðar, en lögðum þær
af. Við stunduðum þá einnig reglu-
lega þorskveiðar á Nýfundnalands-
miðum, en höfðum hætt því áður
en þær voru bannaðar. Þegar stofn-
ar þar hjarna við á ný má búast
við því að við eigum þar ekki leng-
ur óskorað tilkall til veiðiréttinda.
Þá álít ég að við eigum að gera
tilkall til veiðiréttar á alþjóðlegum
hafsvæðum, ekki aðeins á jöðrum
lögsögu okkar, heldur einnig á öll-
um alþjóðlegum hafsvæðum norður
af íslandi, sökum legu landsins sem
er eyland í austanverðu Norður-Atl-
antshafi og á mörkum þess og norð-
urhafa. Það er þannig skoðun mín
að við eigum t.d. að gera tilkall til
veiðiréttar á alþjóðlega fiskverndar-
svæðinu við Svalbarða á þessari
forsendu. Þó við höfum ekki stund-
að þar reglulega veiðar undanfarna
áratugi tel ég samt að við eigum
tilkall til þess á þessum grundvelli.
Einnig eigum við að gæta réttar
okkar og kröfu til fiskimiða og sjáv-
arbotns á þeim hafsvæðum sem
landfræðilega tengjast landgrunni
íslands, til allra átta. Þannig eigum
við að ganga eftir rétti okkar til
að stjórna nýtingu auðlinda Reykja-
neshryggjarins og rétti okkar til
aðildar að nýtingu auðlinda Hatton
Rockall svæðisins suður af íslandi.
Svo mjög sem við erum háðir
fiskveiðum og annarri nýtingu auð-
linda hafsins og eigum ekki aðrar
gulli líkar auðlindir, hljótum við að
vænta þess að grannar okkar og
frændur, Norðmenn, hafí manndóm
og dirfsku til að sýna okkur sann-
girni og virða tilkall okkar til veiði-
réttar í norðurhöfum. Telja verður
óeðlileg þau viðbrögð þeirra að neita
íslenskum skipum um hafnkomu og
þjónustu vegna ágreinings um veið-
ar á alþjóðlegu hafsvæði. Þó hags-
munir okkar rekist á um sinn fara
þeir saman á fleiri og mikilvægari
sviðum hafréttarmála. Við íslend-
ingar unnum brautryðjendastarf til
að fá alþjóðlega staðfestingu á yfir-
ráðarétti strandþjóða yfir grunn-
slóð, heimamiðum og landgrunni,
en þeir komu í kjölfarið þegar bar-
áttan var unnin. Nú loks hafa þeir
tekið saman höndum við okkur um
málflutning og baráttu á hafréttar-
ráðstefnu SÞ til að tryggja fram-
gang sameiginlegra hagsmuna í
verndun og nýtingu fiskimiða og
annarra auðlinda hafsins. Samstarf
okkar verður væntanlega mikilvægt
í þeirri baráttu sem framundan er.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi.
OPIÐ:
STORA BOKAVEISLA FJOLVA
s — Tvöfalt HELCARTILBOÐ:
# ÍO % aukaafslátrtux* við kassann!
Öll börn fá bók í kaupbætí!
UNDRAHEIMUR
FYRIR BORN
QQ FULLPRBMAt
Hundruð œvintýra-
bóka, teiknisögur:
Tinni, Prins Valíant,
Ástríkur, Lukku-Láki.
Listaverkabækur,
Fjölfræðisöfn, Skáld-
sögur, Ævisögur,
Spennusögur og
ótal margt fleira.
Hagstæðustu bókakaup sem hægt er að gera!!
Komib í heimsókn í góöa vehrinu um helgina. Allir eru auhvitah velkomnir!