Morgunblaðið - 12.03.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
15
fróðleiks má geta þess að H’rétta-
tíma ríkisútvarpsins sunnudags-
kvöldið 27. febrúar sl. kom fram
að meðalævi Dana sé nú ein sú
stysta í ríkjum OECD. Árið 1990
voru danskar konur í 21. sæti
OECD-ríkjanna samanborið við 8.
sæti 20 árum áður. Sama þróun
hefur átt sér stað meðal danskra
karla. Það má velta því fyrir sér
hvort eitthvert samband sé á milli
þessara breytinga og þess að Dan-
ir hafa gengið hvað harðast fram
í því af Norðurlandaþjóðunum að
draga úr útgjöldum til velferðar-
mála.
Hvert stefnir? - Hvað er til
ráða?
Magnaukning heilbrigðisút-
gjalda hér á landi hefur verið um-
talsverð síðustu þijá áratugina þótt
verulega hafi dregið úr henni á
seinni hluta tímabilsins. Ástæður
þessarar aukningar má einkum
rekja til þess að uppbygging heil-
brigðiskerfisins á sér stað á mjög
skömmum tíma, kröfur almennings
aukast samfara vaxandi velmegun,
aldurssamsetning þjóðarinnar
breytist, þekking í læknavísindum
eykst og greiðslukerfið er lítt hvetj-
andi. Frá árinu 1988 hafa heil-
brigðisútgjöld hins vegar staðið í
stað.
Hvert stefnir? - Halda heilbrigð-
isútgjöld áfram að vaxa umfram
hagvöxt eða mun eftirspurn eftir
heilbrigðisþjónustu mettast? Margt
bendir til þess að án aðgerða muni
útgjöld til heilbrigðismála aukast.
Ekki er hægt að búast við að fram-
lag hins opinbera til heilbrigðis-
mála verði aukið frá því sem nú
er. Því er nauðsynlegt að tryggja
betri nýtingu þess fjármagns sem
nú rennur til heilbrigðiskerfisins
og skapa á þann hátt svigrúm til
að mæta aukinni eftirspurn í fram-
tíðinni.
Vænlegasta leiðin til þess að
mati sérfræðinga OECD er að:
- Koma á aukinni samkeppni
þar sem því verður við komið, t.d.
á lyfjamarkaðnum og með því að
bjóða út eins mikið af vörum og
þjónustu og kostur er. Benda má
á að fyrir Alþingi liggur nú frum-
varp til lyfjalaga sem m.a. felur í
sér aukna möguleika á samkeppni
á lyfjamarkaðnum með fjölgun lyf-
söluleyfishafa. Þess má einnig geta
að á Ríkisspítölum hefur síðustu
misserin verið unnið markvisst að
lækkun kostnaðar með útboðum
og hefur sú vinna þegar skilað
verulegum árangri.
- Auka þátttöku sjúklinga í
kostnaði heilbrigðisþjónustunnar.
Hér á landi fjármagnar hið opin-
bera 87-88% af útgjöldum til heil-
brigðismála. Hlutur sjúklinga er
því 12-13%. Þessi skipting hefur
haldist nokkuð stöðug frá 1975. í
öðrum ríkjum OECD er hlutur
sjúklinga í kostnaði heilbrigðisþjón-
ustunnar u.þ.b. helmingi meiri að
meðaltali. Til fróðleiks má geta
þess að heilbrigðisstéttir eru al-
mennt mjög á varðbergi gagnvart
beinum greiðslum sjúklinga þar
sem breytingar á greiðslukerfum
hafa áhrif á notkun þjónustunnar.
Með rannsóknum hefur verið sýnt
fram á mikil áhrif beinna greiðslna
á notkun, þ.e. að þegar beinar
greiðslur aukast dregur úr neyslu.
Komi til þess að hérlend stjórnvöld
auki, frá því sem nú er, þátttöku
sjúklinga í kostnaði heilbrigðisþjón-
ustunnar með beinum greiðslum í
þeim tilgangi að draga úr útgjöld-
um hins opinbera, má búast við
minni neyslu. Áður en slíkt yrði
gert þyrftu a.m.k. að liggja fyrir
óyggjandi sannanir þess að neyslan
væri of mikil.
- Setja greiðsluramma. Nú er
það svo að þjónusta sjúkrahúsa er
fjármögnuð með föstum fjárlögum,
þ.e. þeim er úthlutað fastri fjárhæð
til ráðstöfunar á ákveðnu tímabili.
Byggist sú upphæð á útgjöldum
fyrri ára. Aðferðin er einföld en
það má deila um það hvort hún
hvetji til aðhalds. í henni felst lítil
sem engin hvatningtil að meta fjár-
þörf hvers sjúkrahúss og einnig er
erfiðleikum bundið að umbuna fyr-
ir góðan rekstur og refsa fyrir lak-
an.
Lokaorð
Neikvæð umræða um heil-
brigðisþjónustuna hefur verið áber-
andi á síðustu misserum. Kostnað-
arsamdráttur hefur iðulega verið
sýndur einhliða sem niðurskurður
en ekkert tekið fram í þeim tilfell-
um þar sem um aukna skilvirkni
er að ræða. Það kemur hins vegar
berlega í ljós við lestur skýrslu
OECD að sú vinna sem lögð hefur
verið í hagræðingu í heilbrigðis-
kerfinu hefur skilað árangri á þann
hátt að dregið hefur verið úr kostn-
aði án þess að fóma gæðum. Ég
er þess fullviss að þessi jákvæða
umfjöllun verður starfsfólki heil-
brigðisþjónustunnar gott veganesti
í áframhaldandi vinnu við hagræð-
ingu í heilbrigðiskerfinu.
Þegar ég las úttekt OECD á ís-
lenska .heilbrigðiskerfinu eftir alla
þá neikvæðu umfjöllun sem það
hefur fengið væri ósatt að segja
annað en að ég hafi orðið stolt af
íslensku heilbrigðisþjónustunni. Er
gott til þess að vita að það eru fleiri
en við íslendingar sem gera sér
grein fyrir því að íslensk heilbrigð-
isþjónusta er ein sú besta í heimin-
um.
Þessi grein er samhljóða erindi
sem höfundur flutti á fundi hjá
Rotary-klúbbi Reykjavíkur 2.
mars sl.
Höfundur er viðskiptafræðingur á
Ríkisspítölum.
Starfsdagar í
grunnskólum
eftir Guðrúnu Ebbu
Ólafsdóttur
„Aldrei fyrr hafa borist fleiri
kvartanir frá foreldrum yfir starfs-
dögum í grunnskólum,“ segir í
frétt Morgunblaðsins 4. febrúar sl.
Haft er eftir Hrólfí Kjartanssyni
deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu „að tilraun hafí verið gerð
til þess á sínum tíma að fækka
(starfs)dögunum en það sé erfítt í
framkvæmd því reglurnar tengist
kjarasamningum kennara".
í umræðum um starfstíma skóla
er því gjarnan slegið fram að
vinnutími og kjarasamningar
kennara standi breytingum á
skólastarfi fyrir þrifum. Rétt er
að hafa það hugfast að kennarar
gera ekki kjarasamninga einir og
sér heldur við fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs. Kennarasam-
band íslands hefur haft frumkvæð-
ið að því að ræða þær breytingar
sem gera þarf á kjarasamningum
kennara vegna t.d. einsetningar
skóla, lengri skóladags og fjölgun
kennsludaga.
Með nýsamþykktum kjarasamn-
ingi milli Kennarasambands ís-
lands og ríkissjóðs fylgir bókun
sem margir binda vonir við. í bók-
uninni lýsa samningsaðilar því yfír
að þeir séu reiðubúnir til að taka
ákvæði um vinnutíma kennara til
■"endurskoðunar vegna þeirrar
stefnu skólayfírvalda að m.a. auka
kennslutíma nemenda, koma á ein-
setnum skóla og fjölga kennslu-
dögum nemenda.
I reglugerð um starfstíma skóla
segir í 2. grein: „Menntamálaráð-
herra skal árlega gefa út skóla-
dagatal, þar sem starfsdagafjöldi
er tilgreindur, ásamt föstum leyfís-
dögum og öðrum þeim atriðum sem
gilda fyrir hvert skólaár sérstak-
lega. Ráðstöfun starfsdaganna er
nánar skilgreind í 3. grein en eink-
um á að miða við eftirfarandi:
,,a) Vinnu kennara að kennslu-
áætlun, undirbúning skólastarfs,
útskrift einkunna og/eða vitnis-
burða nemenda, skýrslugerð, inn-
ritun o.fl.
b) foreldradaga sem varið er í
viðtöl kennara og foreldra/nem-
enda.“
Hver skóli skal birta nemendum,
foreldrum og kennurum í upphafí
skólaárs starfsáætlun samþykkta
af skólanefnd og fræðslustjóra.
Kennurum er það fullljóst að
starfsdagar skóla eru þymir í aug-
um margra foreldra og Kennara-
samband íslands hefur lagt til að
starfsdagarnir verði færðir til. Ég
vænti þess á móti að foreldrum sé
það ljóst að verði starfsdagar lagð-
ir niður, allir eða að hluta, verður
að vinna þau störf sem þá daga
eru innt af hendi á öðrum tíma.
Kennarasambandið hefur ákveðn-
ar hugmyndir þar að lútandi.
Vinnuskylda kennara er 1.800
klukkustundir á ári eins og al-
mennt gerist á vinnumarkaði.
Skipting vinjjutíma kennara er
bundin í kjarasamningum og um
breytingar þar á þarf að semja.
Tilfærsla á starfsdögum, fjölgun
kennsludaga nemenda, aukinn
daglegur kennslutími nemenda,
einsetinn skóli og samfelldur skóla-
dagur fela í sér kostnaðarauka.
Það er löngu orðið tímabært að
stöðva hörmulegan niðurskurð í
skólamálum okkar íslendinga og
auka framlögin þannig að við
stöndum a.m.k. jafnfætis þeim
þjóðum sem við berum okkur
gjarnan saman við.
Foreldrar og kennarar þurfa að
taka höndum saman og þrýsta á
skólayfirvöld til að gera alla skóla
einsetna, auka kennslutíma nem-
enda og koma á samfelldum og
lengri skóladegi fyrir öll börn, þeim
að kostnaðarlausu.
Stundum er sagt að skólatími
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
„Foreldrar og kennar-
ar þurfa að taka hönd-
um saman og þrýsta á
skólayfirvöld til að
gera alla skóla ein-
setna, auka kennslu- ,
tíma nemenda og koma
á samfelldum og lengri
skóladegi fyrir öll börn,
þeim að kostnaðar-
lausu.“
nemenda sé ekki í takt við tíðar-
andann — það er á valdi skólayfír-
valda að standa svo að skipulagi
starfsins að nemendur, heimili og
kennarar skili sem bestum árangri.
Höfundur er formaður
Kennarafélags Reykjavíkur.
Morgunblaðið 27. febrúar 1994
Þessi frétt færði okkur í raun ekki nein ný sannindi
enda staðfesting á því sem við vissum fyrir.
Morgunblaðið er þarna að vísa til könnunar breska
dagblaðsins European á gæðum og áreiðanleika bíla.
Honda lenti í efsta sæti en aðeins fjórir
af hverjum hundrað bílum biluðu.
Bílar næsta samkeppnisaðila biluðu fimmfalt meira.
M
Vatnagörðum - Sími 689900
-klikkar ekki