Morgunblaðið - 12.03.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARZ 1994
23
Ungir dansarar með verðlaunagripinn Silfurskóinn.
Danskeppni hald-
in á Hótel Sögu
DANSKEPPNI Dansskóla Hermanns Ragnars verður haldin á
Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 13. mars ki. 14. Fjöldi dans-
para, böm og unglingar, taka þátt í keppninni og verður keppt
í fjómm flokkum, A- og B- flokki í hverri grein.
Auk verðlaunagripa og verð-
launapeninga í öllum flokkum
verður keppt um Silfurskóinn,
listasmíði Sigurðar Steinþórs-
sonar, gullsmiðs, en gripi þessa
gáfu Unnur og Hermann Ragn-
ar í tilefni af 35 ára afmæli
skólans sl. vor. Skóinn unu þá
Helga Þóra Björgvinsdóttir og
Daði Runólfsson. Sérstakur
dómari er á staðnum sem dæm-
ir um fallegasta fótaburðinn í
danskeppninni og verður Silfur-
skórinn afhentur í vor á loka-
dansleik skólans. Húsið opnar
kl. 13 á sunnudag.
Bókagjöf til Tokai-
háskólans í Japan
ALMENNA bókafélagið hefur fært Tokai-háskólanum í Japan bóka-
gjöf að verðmæti 100.000 krónur. í háskólanum fer fram kennsla í
íslensku við norrænu deildina þar. Nýlega var staddur hér á landi
prófessor Nobuyoshi Mori og kynnti hann sér það úrval bók sem
Almenna bókafélagið hefur farm að færa.
Gjöfin samanstendur af bókum
úr bókaflokknum íslensk þjóðfræði
t.a.m. íslenskt_málfar, íslenskt orð-
takasafn og íslenskir málshættir.
Einnig munu bækur Einars Más
Guðmundssonar, Tómasar Guð-
mundssonar og Gunnars Gunnars-
sonar prýða gjöfina.
í fréttatilkynningu frá AB segir:
„Það er trú Almenna bókafélagsins
að tengsl Japana og íslendinga
munu stóreflast í náinni framtíð.
Það er þjóðinni því mikilvægt að
þekking á íslandi og íslensku máli
sé til staðar í Japan, að sama skapi
og hliðstæð þekking á Japan og
japönsku máli er nauðsynleg okkur
íslendingum. Það er von Almenna
bókafélagsins að þessi bókagjöf
verði til þess að auka tengsl Japana
og íslendinga."
Minningarathöfn
í Stykkishólmi
Stykkishólmi.
MINNINGARATHÖFN um Gísla
Guðmund Kristjánsson, sjómann
í Stykkishólmi, sem fórst í sjó-
róðri hinn 1. desember sl., var
haldin í Stykkishólmskirkju 5.
mars sl. Prestur var sr. Gunnar
Eirikur Hauksson en organleik
annaðist Davið Enns forsöngvari
kirkjunnar og lék Lana Betts á
flautu og sljórnaði kirkjukórnum
sem annaðist sönginn.
Gísli var fæddur á Akureyri 21.
apríl 1942 og voru foreldrar hans
Auður Júlíusdóttir og Kristján Guð-
mundsson, skipasmiður. Þriggja ára
gamall fluttist hann með foreldrum
sínum til Stykkishólms þar sem
Kristján tók við framkvæmdastjórn
Skipasmíðastöðvarinnar þar og hér
átti Gísli jafnan heima. Hann lærði
skipasmíði en það fór nú svo að
sjómannslífið tók hann föstum tök-
um og sjómennskan var hans aðal-
starf gegnum árin. Gísli eignaðist
fljótlega bát og stundaði fískveiðar
á honum í Breiðafirði þar til yfir
lauk og seinustu sjóferðina fór hann
til að afla ígulkera sem þá voru í
mikilli sókn á markaði, á miðin inn
á sundum. Hann var einn á bát sín-
um þegar þetta bar að.
Á sínum tíma lærði Gísli i Kenn-
araskólanum til að búa sig undir
að kenna handavinnu.
Gísli var kvæntur Þóru Halldórs-
dóttur frá Borgarnesi og áttu þau
saman tvær dætur en áður átti
Þóra dóttur. Kirkjan var þétt skipuð
við minningarathöfnina sem öll var
hin hátíðlegasta.
- Árni.
--------------------
■ AÐALFUNDUR Mígrensam-
takanna verður haldinn þriðjudag-
inn 15. mars nk. kl. 20.30 í Bjark-
arási, Stjörnugróf 9, Reykjavík.
Að loknum aðalfundastörfum mun
Þórarinn Tyrfingsson, læknir hjá
SÁÁ, fjalla um róandi ávanalyf og
mígren. Fundurinn er öllum opinn
og aðgangur ókeypis.
H í TILEFNI af 95 ára afmæli
KR verða haldnir unglingatónleikar
í stóra sal KR við Frostaskjól, laug-
ardaginn 12. mars og hefjast kl.
19.30. Húsið opnar kl. 18.45. Fram
koma Bubbi Morhtens, Bubblefli-
es, Hjassið og Spilaborgin. Kynn-
ir er Jón Gústafsson. Miðaverð er
600 kr. og aldurstakmark er 13 ár.
■ í BLÍÐU og stríðu - ástin og
hjónabandið er umfjöllunarefni í
laugardagskaffi Kvennalistans
12. mars. Valgerður Jónsdóttir,
þjóðfélagsfræðingur, segir frá ný-
útkominni bók sinni með þessu
nafni. Kaffið er Laugavegi 17, 2.
hæð' og hefst kl. 11.
ÞINGINORÐURLANDARAÐS LOKIÐ
Norræn blaðamannaverð-
laun afhent í fyrsta skipti
Fyrrum sendikennari á íslandi fyrsti verðlaunahafinn
Stokkhólmi. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ERIK Skyum-Nielsen, fyrrverandi danskur sendikennari á Islandi,
er fyrsti handhafi norrænna blaðamannaverðlauna sem afhent voru
í Stokkhólmi á þingi Norðurlandaráðs í vikunni. Verðlaunin voru
stofnuð af Nordbok sem er norræn bókmennta- opg bókasafns-
nefnd. Verðlaunin nema rúmum 250 þúsund íslenskum krónum.
Erik Skyum-Nielsen hlýtur verðlaunin fyrir skrif sín um norrænar
bókmenntir, en hann hefur skrifað bæði í dagblaðið Information og
tímaritið Bogens Verden, en einnig í önnur norræn blöð og tímarit.
Erik Skyum-Nielsen er fæddur
árið 1952 og bjó um tíma á íslandi
og var þá danskur sendikennari.
Hann er vel máli farinn á íslensku
og hefur þýtt margar íslenskar
bækur á dönsku, meðal annars eft-
ir Guðberg Bergsson, Thor Vil-
hjálmsson og Einar Má Guðmunds-
son. Hann vinnur í hlutastarfi á
Konunglega bókasafninu í Kaup-
mannahöfn en skrifar reglulega í
Information um bókmenntir. Grein-
ar hans eru mikið lesnar méðal
þeirra sem fylgjast með í bókmennt-
um og þar sem hann liggur ekki á
skoðunum sínum vekja þær ósjald-
an deilur. Nú síðast deildi hann á
bókaútgefendur fyrir að hraða sér
um of við útgáfuna, svo bækur
færu iðulega illa yfirlesnar á mark-
aðinn og höfundar fengju ekki tæki-
færi til að vanda sig. Þetta hafa
nokkrir bókaútgefendur, sem stóðu
að þeim bókum er dæmi voru tekin
af, tekið óstinnt upp.
Á þinginu eru flokkabandalög
hægri-, vinstri-, jafnaðar- og miðju-
flokka. Allir flokkarnir, nema jafn-
aðarflokkarnir, höfðu boðið Krist-
ínu að starfa með sér, en Kristín
valdi vinstriflokkana. I viðtali við
Morgunblaðið sagðist Kristín hafa
ákveðið að starfa með vinstriflokk-
unum, því þeir hefðu verið tilbúnir
til að láta hana starfa i umhverfis-
nefndinni. Þar hefði hún setið und-
anfarið og lagt áherslu á að fá að
halda því starfi áfram. Miðjuflokk-
arnir hefðu fengið eitt nefndarsæti
Auk þess sem Erik Skyum-Niel-
sen hefur skrifað um bækur og
bókaútgáfu almennt en ekki síst
í rökstuðningi fyrir tillögunni
er bent á að kynferðisleg misnotk-
un barna aukist stöðugt og sé í
mörgum löndum orðin hluti af
klámiðnaðinum. Hluti af þessari
misnotkun á sér stað í löndum eins
út á þátttöku Kristínar, en vildu
ekki láta það ganga til hennar.
Einnig sagði Kristín að miðflokk-
arnir hefðu boðið sér þátttöku í
norrænu flokkssamstarfí þeirra, en
sér þætti það ekki viðeigandi.
Kristín sagði að til greina hefði
komið að stofna grænan hóp. Til
að stofna hóp þarf fjóra þátttakend-
ur, en þau voru aðeins þijú, svo sú
áætlun datt upp fyrir í bili. Finnsku
græningjarnir starfa innan vébanda
miðflokkanna.
um norrænar bókmenntir og þar
hafa íslenskar bókmenntir notið
sérlega góðs af. Það eru fáir Danir
sem geta skrifað af jafnmikilli
þekkingu um þær. Nú í vikunni
birtist til dæmis grein í sænska
dagblaðinu Dagens Nyheter um
Jakobínu Sigurðardóttur, sem er
bæði nokkurs konar minningar-
grein um hana og úttekt á verkum
hennar og stöðu í bókmenntum og
í sögulegu tilliti.
og Tælandi, Filippseyjum og Sri
Lanka, þar sem tekið er upp efni,
sem síðan er meðal annars dreift
á Norðurlöndum. Á Norðurlöndum
er bannað að selja og dreifa slíku
efni, en það er ekki saknæmt að
hafa það í fórum sínum.
Bæði í Svíþjóð og í Danmörku
hefur verið rætt um að áhrifamik-
ið væri að koma því í lög að óheim-
ilt sé að hafa barnaklámefni í fór-
um sínum. Gegn þessari hugmynd
hefur því verið borið við að ekki
sé hægtað fara að leita skipulega
að þessu efni og því ekki hægt að
fylgja slíkum lögum eftir. Hug-
myndin er þó ekki að farið verði
að leita, heldur að rannsóknir verði
gerðar, ef grunur leiki á um að
slíkt efni sé að finna í fórum við-
komandi, Ííkt og tíðkast um eitur-
lyf-
Þingið hefur nú samþykkt að
leggja til við þing landanna að
saknæmt verði að hafa barnaklám-
efni í fórum sínum, að auka sam-
vinnu milli tollgæslu landanna til
að koma í veg fyrir dreifingu, að
löndin framfylgi barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og geri það
á sama hátt.
Kvennalistinn í kosninga-
bandalagi vinstriflokka
KRISTÍN Einarsdóttir, þingmaður Kvennalistans, tók þátt í kosninga-
bandalagi vinstri flokkanna á þingi Norðurlandaráðs í vikunni. Að-
spurð sagði hún að þátttaka hennar á þeim væng fæli ekki í sér
neina pólitíska stefnumörkun, heldur væri bandalagið eingöngu
tæknilegs eðlis, rétt eins og tíðkaðist á þingi almennt.
Þing Norðurlandaráðs
gegn bamaklámi
AÐGERÐIR til að koma í veg fyrir misnotkun á börnum í barnaklám-
efni kom til umræðu á þingi Norðurlandaráðs í vikunni. í tillögum,
sem nokkrir þingmenn, þar á meðal Rannveig Guðmundsdóttir, stóðu
að, er lagt til að það verði saknæmt að hafa slíkt efni í vörslu sinni.
í tillögunni er lagt til að norrænu þingin taki mið af barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði. Tillagan endurspeglar
umræður um þessi mál, meðal annars í Danmörku og Svíþjóð.
Bökunarkynning!
Dröfn Farestveit, hússtjórnarkennari, kynnir
brauðbakstur með El-Gennel heimilisbökunarvélinni
í verslun okkar í dag frá kl. 10-15.
Komið og kynnist hvernig má baka úrvals brauð
og spara meira en 35.000 krónur
á ári í heimilishaldinu!
Sérstakt kynningarverð á brauðvélum í dag!
Einar
hf.
Borgartúni 28 7? 622901 og 622900