Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994 Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður SR Haraldur Haraldsson hef- ur brugðist trúnaði okkar BEIÐNI var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær um að ís- mjöl hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta. Benedikt Sveinsson, stjórnar- formaður SR, sem á 43% í ísmjöli hf., segir trúnaðarbrest vera af hálfu meirihluta eigenda fsmjöls við Harald Haraldsson. Fullreynt sé, að ísmjöl geti ekki greitt skuldir sínar til þýska fyrirtækisins Kurt A. Becher. Benedikt segir meirihluta eigenda ísmjöls hafi talið eðlilegt að skiptaráðandi hefði milligöngu um samningaviðræður við Þjóðveijana, en ekki Haraldur Haraldsson, sem ekki nyti lengur trausts meirihluta eigenda. „Það er búið að reyna að semja við þýska fyrirtækið Kurt A. Bech- er mánuðum saman og Haraldur Haraldsson hefur haft milligöngu þar um, án þess að verða nokkuð ágengt. Haraldur nýtur ekki þess trúnaðar, sem nauðsynlegur er, frá meirihluta hluthafanna í Ismjöli, til þess að vera lengur milligöngumað- ur við Þjóðverjana," sagði Benedikt í samtali við Morgunblaðið í gær. Varðandi ummæli Sigurðar Ein- arssonar, framkvæmdastjóra fsfé- lags Vestmannaeyja, eins hluthaf- anna í ísmjöli, sagði Benedikt að eini ágreiningurinn á milli hans og meirihluta eigenda ísmjöls hefði verið sá, hvort setja ætti fyrirtækið í gjaldþrot nú þegar, eða fresta því um 10 til 15 daga. Ekki hæfur til þess að hafa milligöngu „Ég veit ekki annað en Sigurður sé okkur sammála um það, að fyrir- tækið sé í raun og veru gjaldþrota. Það er aukaatriði í mínum huga hvort fyrirtækið fer í gjaldþrot 10 eða 15 dögum fyrr eða síðar. Við erum einfaldlega búnir að missa þolinmæðina," sagði Benedikt. „Það er trúnaðarbrestur við Harald Har- aldsson og við teljum hann ekki hæfan til þess að hafa þessa milli- göngu. Hann hefur legið á upplýs- ingum, ekki skilað boðum frá íjóð- veijunum til mjölframleiðendanna og hann hefur brugðist trúnaði okk- ar.“ Neikvæð eiginfjárstaða Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, framkvæmdastjóri Faxamjöls og stjómarformaður ísmjöls, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Mín afstaða er klár, félagið er með neikvæða eiginflárstöðu, skv. upp- gjöri endurskoðanda. Stærsti hlut- hafi í félaginu gerði tillögu um að félagið yrði tekið til gjaldþrota- skipta og ég taldi mér ekki annað fært heldur en að verða við þeirri beiðni og styðja þá tillögu enda eru gjaldþrotalögin alveg skýr um þetta. Meira hef ég ekki um málið að segja," sagði Gunnlaugur. Gunnlaugur vildi ekki tjá sig um að þýska fyrirtækið Kurt A. Becher hafi verið reiðubúið að semja um skuldir ísmjöls við fyrirtækið, eins og haft var eftir Sigurði Einarssyni í Morgunblaðinu á sunnudag. Morgunblaðið/Júlíus Á slysstað í Kópavogi á laugardagskvöld. Stórslasaður eftir umferðarslys ÞRJATIU og átta ára gamall maður er mikið slasaður eftir að bíll sem hann var farþegi í hafnaði skammt sunnan brúnna í Kópavogi, Tveir menn voru í bílnum þegar að var komið, sá slasaði meðvit- undarlaus í framsæti og lítið slas- aður 33 ára maður í aftursæti bílsins, sem sagði að þriðji maður- inn hefði ekið bílnum en hlaupið á brott eftir slysið. Sá sem slasað- ist er ekki talinn í lífshættu að á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi, um klukkan 11 á Iaugardagskvöld. sögn lögreglu í Kópavogi en mik- ið slasaður og liggur á sjúkra- húsi. Ekki er enn ljóst hver ók bílnum og framburður vitna sem komu að slysinu hafði ekki varpað ljósi á það í gær. Sambýliskona þess sem slapp lítið meiddur er eigandi bílsins. Formaður fjárlaganefndar um athugxm Ríkisendurskoðunar á sölu SR-mjöls Meðferð skýrslunnar er á valdi fjárlaganefndar FJÁRLAGANEFND Alþingis hefur boðað til fundar með fulltrúum Ríkisendurskoðunar í dag um skýrslu Rikisendurskoðunar um sölu hlutabréfa ríkisins í SR-mjöli hf. Eindregnar kröfur komu fram á Alþingi í gær frá forustumönnum sljórnarandstöðuflokk- anna um að skýrslan verði birt en ríkisendurskoðandi hefur lýst því yfír að hann vijji ekki birta skýrsluna meðan málið sé til meðferðar fyrir dómstólum. Forsætisnefnd Alþingis fjallaði um málið í gær en komst ekki að niðurstöðu. Sigurður Helgi Sveinsson Leit hald- ið áfram LEITIN að Sigurði Helga Sveinssyni Foldahrauni 40d, Vestmannaeyjum, sem týnd- ist í sjó á fimmtudag, hefur ekki enn borið árangur. Leitað var með neðansjávar- myndavél en þeirri leit var hætt fyrr en áætlað var þar sem vélin bilaði. Að sögn lögreglu er gert ráð fyrir að leit haldi áfram í dag. í dag Verkaskipting sjúkrahúsa Barnadeild á Borgarspítala 22 Tryggingar__________________ Hagnaður hjá Sjóvá-Almenn- um 24 Suður-Afríka Úrslitatilraun til að ná sáttum 29 Leiðari Vandi SÞ í Bosníu 30 IHtrjgniiMitMfc ► Njarðvíkingar urðu ísiands- meistarar í körfuknattleik - Bjami Sigurðsson og Kristján Jónsson góðir í Noregi - Sigrún Huld setti sjö heimsmet Sigbjörn Gunnarsson formaður fjárlaganefndar sagðist í umræð- um á Alþingi í gær telja eðlilegt að Ríkisendurskoðun kynnti fjár- laganefnd niðurstöður sínar, enda væri skýrslan gerð að ósk þeirrar nefndar. Það hlyti síðan að vera á valdi fjárlaganefndar hvemig hún teldi eðlilegast og réttast að nota þessar upplýsingar. Upplýsti Sig- bjöm að fjárlaganefnd hefði verið Magnús Pétursson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu, sem fékk eitt atkvæði í bankaráðinu segir að Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra hafi hvatt sig til að sækja um stöðu seðlabanka- stjóra 12. mars sl. eftir að auglýst- ur umsóknarfrestur bankaráðsins boðuð til fundar með ríkisendur- skoðanda vegna málsins í dag og myndi nefndin þá taka ákvörðun um framhald málsins. Fyrirvari um birtingu Salome Þorkelsdóttir forseti Al- þingis sagðist hafa beðið ríkisend- urskoðanda um greinargerð um málið, m.a. í framhaldi af ósk Guðrúnar Helgadóttur 3. varafor- var mnninn út. Aðstoðarmaður ráðherra hafi komið þeim boðum ráðherrans til sín að hann vænti þess að sjá umsókn hans meðal umsækjenda um bankastjórastöð- umar og í framhaldi af því hafí hann ákveðið að sækja um. Sjá nánar á bls. 58. seta Alþingis og þingmanns Al- þýðubandalags um að forsætis- nefnd þingsins fjallaði um málið. Sú greinargerð hefði borist í gær- morgun og verið til umræðu á fundi forsætisnefndar í gær. Salome tók fram að þessi greinar- gerð hefði ekki fjallað um efni umræddrar skýrslu heldur einung- is um málið og meðferð þess: Salome sagði að forsætisnefnd hefði ekki afgreitt málið í gær heldur talið nauðsynlegt að afla frekari gagna. Þá myndi málið væntanlega skýrast eftir fund fjár- laganefndar í dag. Fjárlaganefnd óskaði eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar 12. janúar. Salome upplýsti að ríkis- endurskoðandi hefði nokkru síðar tilkynnt fjárlaganefnd munnlega þann fyrirvara að hann myndi ekki birta greinargerð um málið ef það færi fyrir dómstóla, að minnsta kosti ekki meðan málflutningur færi fram. Fjárlaganefnd hefði ekki gert athugasemd við þennan fyrirvara. „Nú hefur verið upplýst að greinargerð ríkisendurskoðunar sé á lokastigi en jafnframt ljóst að munnlegur málflutningur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli út af sölu hlutabréfa í SR-mjöli hf., verður 25. apríl nk. Ríkisendur- skoðandi boðaði því í síðustu viku að greinargerð hans yrði ekki birt að svo komnu máli,“ sagði Salome á Alþingi í gær. Gagnrýni á málsmeðferð Ólafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins tók málið upp á Alþingi í gær og sagði það skoðun þingflokks Alþýðu- bandalagsins að birta ætti skýrslu Ríkisendurskoðunar tafarlaust í ljósi upplýsinga sem þingflokkur- inn hefði fengið um að í skýrsl- unni kæmi fram gagnrýni á með- ferð málsins. Ólafur sagði að engin rök, lagaleg, stjómarskrárleg eða siðferðileg, væru fyrir því að leyna þingmenn skýrslunni. Páll Péturs- son formaður þingflokks Fram- sóknarflokks og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður þing- flokks Kvennalista tóku undir kröf- ur um að skýrsla Ríkisendurskoð- unar yrði birt. Þegar Morgunblaðið spurði Ólaf Ragnar hvaða upplýsingar hann hefði vitnað í sagði hann þær koma fram í bréfi ríkisendurskoðanda til forseta Alþingis sem forsætisnefnd fjallaði um í gær. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðisins segir í bréfí ríkisendurskoðanda að trú sínu hlutverki láti stofnunin í ljósi álit sitt á gangi mála og vinnubrögðum við sölu hlutabréfanna og gagnrýni það sem hún telji að betur hefði mátt fara. Morgunblaðið/RAX Dauður fugl a fjorur TALSVERT af dauðum fugli rak í gær á fjörur á Seltjarnar- nesi frá golfvelli Nes-klúbbsins og að Gróttu. Að sögn lögreglu er talið líklegt að um sé að ræða fugla sem flækst hafi í netum og drepist og síðan rek- ið á land. Guðmundur Magnússon um ráðningu bankastjóm við Seðlabanka íslands Niðurstaðan er lítils- virðing við bankaráðið ÁKVÖRÐUN Sighvats Björgvinssonar um skipun seðlabanka- stjóra sætir harðri gagnrýni. I gær sagði Ágúst Einarsson, formað- ur bankaráðs Seðlabankans, sig úr ráðinu vegna skipunar Stein- gríms Hermannssonar og segir hann að pólitískir hagsmunir hafi verið látnir ráða umfram fagleg sjónarmið. Guðmundur Magnússon, prófessor, sem fékk þrjú atkvæði í atkvæðagreiðslu bankaráðsins á föstudag, segir um niðurstöðu ráðherra að Iíklega sé óþarft að hafa bankaráð við Seðlabankann. Ákvörðun ráð- herra sé ákveðin lítilsvirðing við bankaráðið og fyrirlitning á þekkingu. Hann segist ætla að hugsa sitt ráð hvort hann muni segja sig úr bankaráðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.