Morgunblaðið - 19.04.1994, Page 57

Morgunblaðið - 19.04.1994, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994 57 Smábátar undir sex tonnum aldrei undir kvótakerfið Frá Frá Hauki Sveinbjarnarsyni: Vísað er til tveggja greina í Morgunblaðinu 9. og 12. þ.m. þar sem haft er eftir formanni Utvegs- mannafélags Norðuriands, Sverri Leossyni, m.a. að stór hluti flotans spili frítt, að allir verði að sitja við sama borð og að stjórnvöld verði að kaupa upp hluta bátaflotans og leggja honum. Svona tal lýsir ofstopa og ekki geta þeir talist ábyrgir sem slíka hugsun bera. Gáum að! 1. Togarar og stærri fiskiskip geta sótt fjarlæg mið — það geta smábátar ekki. 2. Togarar og stærri fiskiskip geta verið á sjó í næstum hvaða veðri sem er — það geta smábátar ekki. 3. Uthald togara og stærri fiski- skipa er allt annað og meira en smábáta — smábátar eru dagróðra- bátar. 4. Togarar og stærri fiskiskip geta beitt ölium veiðiaðferð- um/veiðitækjum — það geta smá- bátar ekki. 5. Togarar og stærri fiskiskip eyðileggja botngróður og ijúfa þar með vist- og fæðukeðju fisk- og sjávardýra — það gera smábátar ekki. 6. Togarar og stærri fiskiskip kasta miklu magni af fiski, missa úr veiðarfærum og sprengja nætur — smábátar kasta ekki fiski. 7. Togarar og stærri fiskiskip geta stundað veiðar á öllum fiskteg- undum, t.d. loðnu, síld, rækju og fl. — Það geta smábátar ekki. 8. Togarar og stærri bátar þurfa ekki að koma með aflann að landi til vinnslu, hann getur verið unninn um borð og/eða seldur erlendis — þetta geta smábátar ekki. Þetta skal látið nægja í bili þó svo að margt annað mætti til taka, en fínnst mönnum að smábátar spili frítt og að þeir sitji við sama borð og stórútgerðin. . Þessir sömu stórútgerðarmenn, sem vilja smábátana feiga, ráða yfir mest allri auðlindinni, talin sameign þjóðarinnar, sem þeir braska með, selja, framselja og leigja og þar með ráða þeir yfir og hafa aðgang að mesta fjármagninu. Þessir sömu menn vilja búa við lýð- ræði og frelsi en nota það til að 4 VELVAKANDI JAPANSKT SJÓNVARPSFÓLK ÓSKAR AÐSTOÐAR í Morgunblaðinu fimmtu- daginn 14. apríl var frétt um að japanska ríkissjónvarpið væri væntanlegt til íslands í maí til að gera þátt um daglegt líf fólks á íslandi. Af því tilefni er leitað eftir upplýsingum um væntanleg ættarmót og stórafmæli í sumar. Jafnframt nefndi starfsmaður japanska sjónvarpsins að gaman væri að sjómannsfjölskylda myndi leggja þáttagerðarfólkinu Hð. Hann hafði Vestmannaeyjar sérstaklega í huga. Vinsamlegast hafið samband við Noboyasu Yamagata í síma 28215. T AP AÐ/FUNDIÐ Óskilamunir í Hagkaupi á Eiðistorgi STARFSMAÐUR í Hagkaupi á Eiðistorgi hringdi og sagði að eftirfarandi hlutir hefðu fundist í versluninni upp á síðkastið. Fern gleraugu, sjö lyklakippur: bindi- snæla, gullarmband með nafni og dagsetningu, armband með perlum, barnmæla og tvö háls- bönd fyrir utan vettlinga, barna- húfur o.fl. Upplýsingar eru gefn- ar í versluninni. Gullarmband tapaðist GULLARMBAND með grænum steinum tapaðist í september sl. Ef einhver hefur fundið armband- 'ð er hann vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 681596. Armbandið hefur tilfinningalegt gildi fyrir eigandann. Góð fundar- laun. Gulbrún loðhúfa GULBRÚN loðhúfa með tveimur dúskum tapaðist í síðustu viku í Vogahverfi eða vesturbænum. Pinnandi vinsamlega hringi í síma 678648, Hjól tapaðist STERKGULT Trek-fjallahjól tap- aðist helgina fyrir páska úr miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er 21 gírs fjallahjól með blárri tösku. Ef einhver veit um hjólið þá vin- samlega hringi hann í síma 651817 eða hafi samband við RLR í Hafnarfirði. Lyklakippa tapaðist LYKLAKIPPA með húslykli og bíllykli á tapaðist við Hamrahlíð- arskóla að kvöldi miðvikudags. Þetta er Aigner-leðurkippa með stafnum g á endanum. Ef einhver hefur fundið kippunna þá vinsam- lega hringið í sími 19438. Skíðahúfa tapaðist GRÆN og mislit skíðahúfa úr flísefni tapaðist í Bláfjallaskála á föstudaginn langa. Ef einhver er með húfuna þá vinsamlega hring- ið í síma 651428, Helga. GÆLUDÝR Labrador-hundur týndur GULUR labrador-hundur, eins árs gamall og gegnir nafninu Sámur, tapaðist frá Hrefnugötu sl. mánudag. Sámur er ómerktur. Ef einhver hefur orðið var við Sám eða veit hvar hann er niður- kominn þá vinsamlegast hringi hann í síma 812628 eða 683070. Kettlingur fæst gefins ATTA vikna svört hvít læða fæst gefins. Kassavön. Uppl. í síma 626818. Saknar einhver Lísu? SVÖRT og hvít læða, þ.e.a.s. svört með hvítt á bringunni og hvítar loppur, fannst fyrir utan Stapasel fyrir þrem dögum. Kisan er með ól og á henni stendur Lísa, Strandaseli. Ef einhver saknar kisu sem hugsanlega heit- ir Lísa þá vinsamlega hringið í síma 876678. Fresskettlingur gefins Fresskettlingur, 2 mánaða gam- all af blönduðu kyni (loðinn), ósk- ar eftir góðu heimili. Uppl. í síma 27949. Kettlingar gefins GULLFALLEGIR sex vikna gamlir kettlingar fást gefins á góð heimili. Uppl. í síma 652221 Vinningstolur laugardaginn 1. 3. 4. FJÖLDI VINNINGSHAFA 238 7.595 UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA 10.995.115 139.793 7.092 518 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 17.595.772 kr. UPPLÝSÍNGAR SIMSVARI91 -681511 LUKKUUNA991002 undiroka aðra, komast yfir alla auðlindina, hneppa hana í kerfí og kvóta og stjórna sjálfir. Ekki má mikið útaf bera,' enda allt offjár- fest, svo ekki sé hrópað á ríki og bæ til hjálpar, dugi það ekki skal ganga að smábátaútgerðinni dauðri — einstaklingsframtakinu. Það má líkja þessu við það að kartöflubænd- ur krefðust þess að borgarbúar settu ekki niður kartöflur í garðhol- urnar sínar — drottnunargirnin og yfirgangurinn, einræðiskenndin og græðgin á sér greinilega engin tak- mörk. Smábátaeigendur og allir þeir sem vilja efla og styðja einstakling- inn til dáða og athafna, framkvæma og framfara skora á háttvirt Al- þingi að skerða ekki á nokkurn hátt krókaleyfi smábáta og einnig að þeir smábátar sem kvóta hafa að hann sé ekki svo lítili að hann sé ekki lifibrauð. HAUKUR SVEINBJARNARSON framkvæmdastjóri Bátagerðarinnar Samtaks. Pennavinir SVISSNESK 23 ára kona sem ferð- aðist um ísland í fyrrasumar og lík- aði vel vill eignast pennavini. Áhugamálin lestur, dans, ferðalög og badminton: Anita Isenchmid, Moserweg 3, CH-5612 Villmergen, Schweiz. TÓLF ára áströlsk stúlka með áhuga á tónlist, leikur á fiðlu og píanó, og safnar frímerkjum: Lisa Curtis, 27 Fencott Drive, Belmont North, N.S.W. 2280, Australia. LEIÐRETTING Hvar er upphaf, hvar er endir? í minningargrein um Guðlaug Svan Kristinsson í Morgunblaðinu laugardaginn 16. apríl síðastliðinn var eftirfarandi erindi og sagt eftir ókunnan höfund: Hvar er upphaf, hvar er endir? Hvernig fæ ég svar við því? Eilífðin þó oss á bendir að við hittumst öll á ný. Erindið er eftir eftir Hjördísi Björgu Kristinsdóttur, eitt af þrem- ur sem hún orti um bróður sinn Guðmund Björgvin Kristinsson og birtust í minningargrein hennar um hann í Morgunblaðinu 3. mars síð- astliðinn. LEIÐIR KVENNA TIL AUHNS ARANGURS í VIÐSKIPTUM Námskeiðið með Brian Tracy á mvndbandi. Brian hefur séð um ráðningu og þjálfun hundraðA kvenna til stjómunarstarla. Námskeiðið er ætlað konum sem vilja ná árangri í einkarekstri sem og fyrir metnaðarfullar konur ervilja ná meiri árangri í starfi og einkaiífi. „Peak Performance Woman“ er byggt á viðamiklum rannsóknum á þörfum og væntingum nútúnakvenna. Sleðal efnis: Hvemig ná má auknum árangri með bættri framkomu Stjórnunarfélag islands Ánanaustum 15 Sími: 621066 Brian Tracy á myndbandi. Leiðbeinandi: Fannýjónmundsdóttir. Tími: 28.-29. apríl kl. 9-13. Hveraig á að setja sér markmið og ná þcim? Hvernig á að leita að starfi sem leiðir til aukins frama? INNRITUN HAFIN. FAGOR JJ JP JP Þ íV vP T / A V jF L A R 12 manna 7 þvottakerfi Hljóölát 40dB Þvottatími 7-95 mín Sjálfv.hitastillir 55-65'C Stillanlegt vatnsmagn Sparnaöarrofi Hitaþurrkun HxBxD: 85x60x60cm Án topp-plötu: 82x60x58cm MUNALÁN, VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR RONNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68 Síðast komust færri að en vildu og vegna 1]ölda áskoranna endurtökum við KOMPUDAGA næstu helgi. KOMPU DAGAR ENDURTEKNIR Básaverð aðeins 1800 krónur. Pantiö strax því plássið er takmarkaö! Síminner 625030. KOLAPORTIÐ -alltaf spennandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.