Morgunblaðið - 04.05.1994, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
.. Morgunblaðið/RAX
GOMLU útihúsin við Drangshlíð eru að mati bænda á staðnum hættuleg öryggi barna þeirra sem 1
sækja í að leika sér í húsunum, en um 3 milljónir mun kosta að gera þau upp. Á myndinni sjást i
Guðmundur Jónsson, Ásta Halldóra Ólafsdóttir og Þórarinn Ólafsson uppi á einu húsanna.
Lagasetn-
ingekki
á borðum
„ÉG HVET eindregið til og trúi
því að hægt verði að leysa þessa
kjaradeilu fljótt og vel. Eftir því
sem mér sýnist eru efni til þess,“
segir Guðmundur Árni Stefáns-
son, heilbrigðisráðherra, um
kjaradeiiu meinatækna og við-
semjanda. Hann telur affarasæl-
ast að bíða þess að aðilar kom-
ist að samkomulagi. Lagasetn-
ing sé ekki uppi á borðum. Nýr
fundur hafði ekki verið boðaður
í deilunni í gær.
Guðmundur Ámi sagðist
fylgjast grannt með gangi mála
og þeirri þjónustu sem inna
bæri af hendi á sjúkrahúsunum
á meðan á verkfalli stæði. „Auð-
vitað er ástandið orðið slæmt og
tilltölulega fámenn stétt haft
þessar afleiðingar," sagði hann.
„En ég held að affarasælast sé
að freista þess að ná samkomu-
lagi. Ég er ekki úrkula vonar
um að það eigi að vera hægt.“
Eigandi
hestaleigu
óttast um
reksturinn
ÞÓRARINN Jónasson sem rek-
ur hestaleigu í Laxnesi í Mos-
fellsbæ segist óttast þær ráð-
stafanir að herpessýktu hrossin
úr Víðidal skuli hafa verið sett
í sóttkví í Selholti sem er næsti
bær við Laxnes. Þórarinn er
með hundrað hross á húsi og
telur hann hugsanlegt að í þau
geti borist smit.
„Ég er með stærsta fyrirtæki
á þessu sviði á íslandi og tek
á móti þúsundum ferðamanna
á ári. Sýktu hrossin voru flutt
á næsta bæ við hliðina á mér.
Það er bara ein girðing á milli,
en veiran berst með loftinu og
að sjálfsögðu er maður uggandi
út af þessu,“ sagði Þórarinn.
Hann sagði að ekkert hefði
verið rætt við sig áður en sýktu
hrossin voru flutt úr Víðidaln-
um í sóttkví í Selholti, en bæjar-
fulltrúar í Mosfellsbæ sam-
þykktu flutning hrossanna.
í svari sem Brynjólfur Sand-
holt yfírdýralæknir sendi bæj-
arritaranum í Mosfellsbæ
vegna fyrirspurnar um smit-
hættu vegna flutnings veiku
hrossanna segir að hann telji
að verði þeim reglum fylgt sem
settar hafi verið um flutninginn
og einangrun hrossanna stafi
öðrum hrossum ekki hætta af.
25 milljónir
vegna sumar-
starfa nema
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
aukafjárveitingu að upphæð 25
millj. til að ráða 135 skólanema
til sumarstarfa hjá íþrótta- og
tómstundaráði í átta vikur að
jafnaði.
í erindi framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs kem-
ur fram að í fjárhagsáætlun árs-
ins 1994 sé gert ráð fyrir 50
störfum fyrir skólafólk sumarið
1994, umfram það sem gert
hafí verið ráð fyrir í áætlun um
reglubundin störf. Unnt sé að
ráða til viðbótar í um 135 störf
ef aukafjárveiting fengist.
Verkefnin sem um er að ræða
eru meðal annars við Sumarleik-
hús ungs fólks, leikgarða fyrir
yngstu bömin, lengri opnunar-
tími á sumarnámskeiðum og
stuðningur við námskeið ÍTR.
Hellur og
raftarógna
ferðafólki
við Drang
HÚSIN undir Drangi við
Drangshlíð undir Eyjafjöllum,
vinsælum áningarstað, sem þús-
undir ferðamanna heimsækja
árlega, eru að hruni komin og
telja bændurnir í Drangshlíð
mikla slysahættu stafa af
ástandi. Að sögn Jóns Guð-
mundssonar bónda í Drangshlíð
eru ferðamenn hvattir til að
skoða húsin í ferðabæklingum,
sem m.a. er dreift til erlendra
ferðamanna, og segist hann ótt-
ast að einhver geti farið sér að
voða því hvenær sem er megi
búast við að þungar hellur eða
raftar í húsunum láti undan. Að
auki fari um húsin á hveiju vori
hundruð barna í skólaferðalög-
um og sé þá eins og jafnan mik-
il slysahætta við þjóðveginn,
vegna aðstöðuleysis fyrir rútur.
Með liðsinni Þórðar Tómassonar
í Skógum hafa bændur í Drangs-
hlíð reynt að afla fjár til að
standa að endurbyggingu mann-
virkjanna, sem Jón telur að sé
að finna á minjaskrá. I því skyni
hefur m.a. fengist 250 þúsund
króna styrkur úr Húsfriðunar-
sjóði og að auki vilyrði fyrir
framlagi úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði sem svarar til eins
ársverks úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði en Jón segir að viðun-
andi endurbætur sem komi hús-
unum í það horf að þau geti
borið þann fólksfjölda sem þar
fer um muni kosta um 3 milljón-
YFIRKJÖRSTJÓRN í Reykjavík
ákvað á fundi sínum í gær að
nafnið Reykjavíkurlistinn komi
hvorki fram í auglýsingum kjör-
stjórnar á framboðinu né við gerð
kjörseðils. Jón Steinar Gunnlaugs-
son, formaður yfirkjörstjómar,
segir það skyldu hennar að tryggja
að rétt sé staðið að málum sem
lúta að framkvæmd kosninganna,
burtséð frá öllum andmælum.
Málinu lokið
„Við höfum ekki vald til að fjalla
um hvort aðstandendum R-lista
sé heimilt að nota opinberlega
nafnið Reykjavíkurlistinn um
framboðslista sinn. Uppi eru mis-
munandi sjónarmið um það hvort
listanum sé heimilt að kenna sig
við kjördæmið og báðir aðilar hafa
gert grein fyrir sínum sjónarmið-
um, en málinu er lokið hvað yfír-
kjörstjórn varðar,“ segir Jón Stein-
ar.
í yfirkjörstjóm sitja, auk Jóns
Steinars, Eiríkur Tómasson og
Gísli Baldur Garðarsson, og var
einhugur innan hennar um ákvörð-
unina. í bókun yfirkjörstjómar
segir m.a.: „Á framboðslista þeim,
sem barst yfirkjörstjórn fyrir lok
framboðsfrests og auðkenndur
hefur verið með listabókstafnum
R, segir orðrétt: „Alþýðubandalag-
ið, AJþýðuflokkurinn, Framsókn-
arflokkurinn og Kvennalistinn
hafa ákveðið að bjóða fram sam-
eiginlegan lista við borgarstjómar-
kosningarnar í Reykjavík sem
ir króna. Stærri fyrirtækjum í
ferðaþjónustu hefur verið skrif-
að bréf þar sem óskað er eftir
stuðningi þeirra við fram-
kvæmdirnar.
í greinargerð sem Þórður
Tómasson hefur ritað um mann-
virkin undir Drangi segir meðal
annars: Drangurinn með þeim
mannvirkjum se'm við hann hafi
verið reist séu með merkustu
náttúru- og þjóðminja á Suður-
landi. Fjárhús og hesthús í skjóli
Drangsins bregði svip á gamla
fram eiga að fara 28. maí 1994.
Heiti listans er Reykjavíkurlistinn
og óskað hefur verið eftir listabók-
stafnum R.“ Af þessum tilvitnuðu
orðum verður ekki annað ráðið en
listinn sé borinn fram af fyrr-
greindum fjórum stjórnmálaflokk-
um eða -samtökum. Eins og listinn
er úr garði gerður lítur yfirkjör-
stjórn svo á, að „Reykjavíkurlist-
búskaparhætti en húsin séu
óðum að hrörna og falli í grunn
innan fárra ára verði ekkert að
gert. „Þjóð fátæk af fornum
húsum gamalla búhátta má ekki
við því að missa þessi merku hús
horfinna búhátta og hér þarf
að bregðast hratt við ef ekki á
illa að fara,“ segir í greinargerð
Þórðar.
Jón Guðmundsson sagði að
hluti skýringarinnar á því að
bændur telji úrbætur ekki þola
frekari bið sé sú að þeir óttist
inn“ sé heiti á listanum en ekki á
stjórnmálasamtökum, sem að hon-
um standa.“ í úrskurðinum segir
síðan með vísan til laga um kosn-
ingar, að aðeins verði skýrt frá
listabókstöfum framboðslistanna
tveggja, D-lista og R-lista, t' aug-
lýsingum í dagblöðum og útvarpi,
og síðan talin upp í réttri röð nöfn
frambjóðenda á hvorum lista. Á
um öryggi barna sinna sem
sækja í að leika sér í húsunum,
auk öryggis ferðafólks. Þá óttist
bændurnir að þeir, sem eigend-
ur húsanna, verði gerðir fjár-
hagslega ábyrgir fyrir slysum
sem þarna kunni að verða en
þeir hafi ekki fjárhagslegt bol-
magn til að gera við húsin og I
takist ekki að afla fjár til að |
endurreisa húsin kunni svo að
fara að þeir eigi ekki annarra
kosta völ til að forðast slys en
að rífa húsin.
kjörseðli við borgarstjórnarkosn- ;
ingarnar verði eftirfarandi texti j
fyrir ofan nöfn frambjóðenda á ,
D-lista: „D. Listi borinn fram af ’
Sjálfstæðisflokki.“ Jafnframt að |
eftirfarandi texti verði fyrir ofan
nöfn frambjóðenda á R-lista: „R.
Listi borinn fram af Alþýðubanda-
lagi, Alþýðuflokki, Framsóknar-
flokki og Kvennalista."
Hjákátlegur ágreiningur
Baldur Guðlaugsson, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaga í I
Reykjavík, sagðist í samtali við j
Morgunblaðið vera sáttur við og ,
fagna niðurstöðu yfirkjörstjórnar
því hún væri í samræmi við sjónar-
mið fiokksins. Eftir standi hins
vegar sú spurning hvort R-listinn
geti notað nafnið Reykjavíkurlist-
inn í auglýsingum sínum og ann-
arri kynningu, það er að segja
annað nafn en komi fram á kjör-
seðlum og auglýsingum yfirkjör- i
stjórnar.
Einar Örn Stefánsson, kosn- i
ingastjóri R-listans, segir að úr- j
skurðurinn breyti engu um notkun.
á nafninu Reykjavíkurlistinn á
öðrum vettvangi en í auglýsingum
yfirkjörstjórnar og á kjörseðlum.
„Okkur frnnst þetta í sjálfu sér
ekki skipta neinu máli, og hálf
hjákátlegt fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn að gera úr þessu ágreining.
Mér skilst einnig, að úrskurðurinn
leiði til að nafns Sjálfstæðisflokks-
ins verði í fyrsta skipti ekki getið
í auglýsingum kjörstjómar,“ segir
Einar.
Yfirkjörstjórn úrskurðar að nafn Reykjavíkurlistans verði ekki á kjörseðli
Aðeins listabókstafir verðal
á auglýsingum og kjörseðli
Einar Örn Jón Steinar Baldur
Stefánsson Gunnlaugsson Guðlaugsson
Talsmaður Sjálfstæðisflokksins segir
ákvörðunina í samræmi við sjónarmið
flokksins. Kosningastjóri R-listans segir
úrskurðinn engu breyta um notkun nafnsins
á öðrum vettvangi.