Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 15 » I- Stofnandi Hyundai hættir Seoul. Reuter. CHUNG Ju-yung, stofnandi Hyundai-stórfyrirtækisins í Suður-Kóreu, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að setjast í helgan stein. Chung er 78 ára að aldri og hef- ur verið heiðursfor- seti Hyundai í tvö ár. Hann bauð sig fram í forsetakosningunum í fyrra, en laut í lægra haldi fyrir Kim Young-sam. Hann ætlar nú að eyða ævikvöldinu á búgarði á afskekktum stað á vesturströnd landsins. Bróðir Chungs, Se-yung, stjómar nú fyrirtækinu, en það á 48 dótturfyrirtæki, þeirra á meðal stærsta bílafyrirtæki landsins, skipasmíðastöð og stærstu gámaverksmiðju heims. Aukin bíla- sala í Svíþjóð Stokkhólmi. Reuter. NÝSKRÁNINGAR bifreiða voru 44% fleiri í síðasta mánuði í Svíþjóð en í apríl í fyrra eða tæplega 16.000 á móti tæplega 11.000. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs eru nýskráningarnar 27% fleiri en í fyrra eða 52.939 á móti 41.612. Tíu söluhæstu bílamir frá áramótum eru sem hér segir: Volvo 800, sem ber höfuð og herðar yfir aðra, 7.480; Volvo 900 4.871; Saab 900 4.547; Ford Escort 3.181; VW Golf 2.557; Ford Mondeo 2.413; Volvo 400 2.263; Saab 9000 2.181; Opel Astra 1.560 og Toyota Corolla 1.550. Hólmavík Kaupfélag Stein- grímsfjarðar tap- ar 32,7 milljónum Laugarhóli - Aðalfundur Kaupfélags Steingrímsfjarðar var haldinn á Hólmavík laugardaginn 23. apríl síðastliðinn. Nú hafði 12,5 milljón króna hagnaður árið 1992, snúist í 32,7 milljón króna tap á síðastliðnu ári. Með í þessari tölu era þá allar deildir félagsins. Velta þess í landbúnaðarafurð- um hefír minnkað um helming og í sjávarafurðum er hún aðeins 67% þess sem áður var. Mesta tapið er á Hraðfrystihúsunum á Hólmavík og Drangsnesi, en það er um 35,9 milljónir króna. I skýrslu sinni við setningu aðal- fundar Kaupfélags SteingrímsQarð- ar, síðastliðinn laugardag, gat Jón E. Alfreðsson kaupfélagsstjóri þess, að velta félagsins árið 1993 hefði aðeins verið 73% af veltu þess árið á undan. Rakti hann minnkun vöru- sölu í 98% af fyrra árs veltu, en þar hafði orðið minnst minnkun í 228.806 þúsund. Velta landbúnað- arafurða hafði minnkað í 51% af veltu fyrra árs, eða 104.052 þús- und. Velta sjávarafurða varð 238.560 þúsund að 67% af fyrra árs veltu og loks önnur þjónusta 33.587 þúsund eða 93% af fyrra árs veltu. Tapið á hraðfrystihúsunum varð mest. Það varð 22.613 þús. á Hólmavík en 13.287 þúsund á Drangsnesi. Samtals um 36,9 millj- ónir. Bæði húsin vora rekin með hagnaði árið á undan. Staða versl- unarútibúsins á Drangsnesi var nær óbreytt, eða rétt rúm milljón í hagn- að. Tap aðalbúðarinnar á Hólmavík snerist hinsvegar í hagnað nú, eða 158 þúsund krónur. Pakkhús, öku- tæki og sláturhús skila einnig öll nokkram hagnaði. Kaupfélag Steingrímsfjarðar tók við rekstri þrotabús Kaupfélags Norðurfjarðar og varð nú tap á þeim rekstri um 11 þúsund krónur. Kaupfélagsstjórinn taldi rekstur ársins 1993 hafa einkennst af erf- iðri varnarbaráttu. Samdráttur var á rækjukvóta í Húnaflóa og lægð í verði erlendis. Aðeins hefir þó Hólmadrangur aukið við rækjukvóta sinn. Fjárfesting KSH þó lítil, eða rúmar 4 milljónir króna. í október sl. var samþykkt í stjórn kaupfélagsins að athuga möguleik- ann á því að breyta skipulagi félags- ins og var ráðinn rekstrarráðgjafi til þess máls, en verkið vannst seint og skilaði hann fyrst áfangaskýrslu nú í marslok. Helst er nú rætt um að gera eitt öflugt útgerðar- og vinnslufyrirtæki með sameiningu frystihúsanna á Hólmavík og Drangsnesi ásamt Hólmadrangi hf. Þá hefir komið til álita að gera slát- urhúsið að sérstöku fyrirtæki. Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson FRYSTITOGARINN — Hólmadrangur hefur orðið eig- endum sínum dijúg tekjulind. Hér er hann við bryggju á Hólmavík. Macintosh námskeið Mjög vandað og gott námskeið ^TÍr bytjendur. Stýrikeifi tölvunnar, ritvinnsla og kynning á helstu forritum. Með fylgir disklingur með deiliforritum, dagbókarforriti, teikniforriti, leikjum, veiruvamarforriti o. fl. • Hagstætt verð! Tölvu- og verkfræöiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 • sfml 68 80 90 Greiðslumiðlun Liðlega 600fyrirtæki hafa samið um debetkort SAMNINGAR hafa nú verið gerðir við 120 fyrirtæki um viðtöku debet- korta frá því samkomulag náðist á milli bankanna og Kaupmannasam- takanna um þjónustugjöld. Áður hafði verið gengið frá samningum við um 500 fýrirtæki þannig um 620 fyrirtæki veita kortunum nú við- töku. Meðal fyrirtækja sem gengið hafa frá samningum er Hagkaup og tengd fyrirtæki eins og Bónus, Ikea og Kosta Boda. Yerður bytjað að taka við debetkortum í verslun Hag- kaups í Hólagarði strax eftir helgina og síðan i einni búð af annari. Samkvæmt upplýsingum Visa ís- lands hafa nú verið gefin út um 30 þúsund debetkort á undanförnum fjórum mánuðum eða um 20 þúsund Visa Electon-kort og 10 þúsund Maestro-kort. Hlutabréf í Aflvaka Reykj avíkur hf. Heildamafnverð nýs hlutafjár: Kr. 150.000.000,- Sölugengi í almennri sölu: 1,00 Sölutímabil: Umsjón með útboði: 29. apríl - 28. október 1994 Landsbréf hf. Útboðslýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá Landsbréfum hf. og umboðsmönnum Landsbréfa hf. í útibúum Landsbanka íslands um allt land JL & AFLVAKI REyKJAVIKURf LANDSBREF HF. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598 Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. NYUA BILA.HOLLIN FUNAHOFÐA 1 S:672277 Vatnabátur af Shetlandgerð 40 HD, Merc- ury motor og kerra, allt árg. '91. Góður við sumarbústaðinn. Verð kr. 750.000 stgr., ath. skipti á bíl. Ford Taurus 3000 árg. '88, ek. 106 þ. km., hvltur, sjálfsk. Bíllinn er með öllu. Lágt verð kr. t.290.000 stgr., ath. skipti. Toyota Hilux Double cab, bensfn árg. '93, ek. 17 þ. km., dökkgrænn, 33" dekk, álfieg- ur, hús, brettakantar. Toppbíll. Verð kr. 2.150.000 stgr., ath. skipti. Subaru Legasy Artlc árg. '93. ek. 8 þ. km., vinrauður, álfelgur. Verð kr. 2.080.000 stgr., ath. skipti. MMC L-300 diesel árg. '91, ek. 75 þ. km., grár, 8 manna. Verð kr. 1.770.000 stgr., ath. skipti. BÍLATOFtG FUNAHÖFÐA 1 S:683444 MMC Lancer 1600 GLXi, árg. '93, vínrauð- ur, sjálfsk., álfelgur, sóllúga, ek. 19 þ. km. Verð kr. 1.390.000. MMC Colt 1300 GLI árg. '93, rauður, ek. aðelns 2 þ. km. Verð kr. 990.000. Mitsubishi Lancer GLXi, árg. 92, hvítur, ek. 20 þ. km. Verð 1.080 þús. Daihatsu Charade SG árg. '90, grásans, ek. 66 þ. km. Verð kr. 640.000. VW Golf CL árg. '91, rauður, ek. 28 þ. km. Verð 750.000. s VANTARALLARGERÐIRBÍLAÁ STAÐINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.