Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 19 Tónleikar í íslensku óperunni á fimmtudag Syngiir heima eftir tíu ár úti í Evrópu Annað kvöld syngur barítonsöngvarinn Haukur Páll Haraldsson í fyrsta sinn í ára- tug fyrir íslenska áheyrendur. Þórunn Þórsdóttir fékk hann til að segja frá nám- inu, söngferlinum, verkefnaskrá tónleik- anna og framtíðaráformum. HAUKUR Páll Haraldsson bari- tonsöngvari kynnir sig fyrir íslen- skum áheyrendum annað kvöld. Tónleikar hans í Ísíensku óperunni eru á vegum Styrktarfélags henn- ar og hefjast klukkan 20.30. „Þeir verða portrett af mér sem söngv- ara,“ segir hann, „ég hef ekki komið fram hér heima síðan ég fór utan til náms fyrir tíu árum.“ Þannig kemur hann víða við á tónleikunum, syngur aríur eftir Bach og lítt þekkt íslensk sönglög, ljóð eftir Schubert, ensk þjóðlög og aríur úr óperum Verdis, Moz- arts og Leoncavallos. Jónas Ingi- mundarson leikur undir á píanó. Haukur Páll kveðst uppalinn í Karlakór Reykjavíkur. Hann hóf söngnám hjá Snæbjörgu Snæ- bjarnardóttur í Tónlistarskóla Garðabæjar og hélt því áfram í Vínarborg. „Upphafþess varnám- skeið hjá Helenu Karusso í ís- lensku óperunni,“ segir hann. „Þá var ég tæplega tvítugur og hún bauð mér til sín í Tónlistarháskól- ann í Vín. Þar var ég frá 1984 til 1990 undir hennar handleiðslu og síðan hef ég sungið jafnt í óperum og á konsertum. Mest í Þýska- landi og Frakklandi en einnig víð- ar í Evrópu og raunar Bandaríkj- unum og Japan.“ Haukur Páll er búsettur í Múnchen ásamt konu sinni, sem einnig er sönglærð, og lítilli dótt- ur. Hann segir fjölskylduna lifa af söngnum og kunna vel við Suð- ur-Þýskaland með skógi og vötn- um og útsýn til Alpanna. Aðspurð- ur um áform segir hann „áfram veginn, eins og Stefán íslandi söng, það er eina leiðin. Baráttan heldur áfram.“ Hann bætir við að lausa- mennska í söngnum sé vissulega erfiðari en fast starf hjá óperu- húsi, en jafnframt fjölbreyttari og frjálsari. Hún sé hlutskipti mjög margra ungra söngvara því fram- lög til menningarmála hafi minnk- að eftir sameiningu Þýskalands og óperuhús orðið tregari til að fastráða fólk. „Þá hefur maður áinn umboðs- mann og tekur verkefni hér og þar,“ segir hann. Reyndar var hann ráðinn við óperustúdíóið í Múnchen fyrstu tvö árin eftir að námi lauk og nú hefur hann gesta- samning við Múnchenaróperuna, annað árið í röð. Þangað snýr hann aftur í júní til að syngja í Carminu Burana og Leðurblök- unni. „Seinna í sumar ætlum við hjónin að halda saman tónleika í Texas í Bandaríkjunum," segir hann. „Konan mín er þaðan, hún heitir Marilee Williams og hefur komið fram hér á íslandi. Það var léttara prógramm en ég hef venju- lega, hún getur líka sungið djass og blús.“ Haukur Páll hefur verið á allt öðrum nótum og söng meðal ann- ars þrjú sumur í kór Wagner- HAUKUR Páll Haraldsson baritonsöngvari í einu hlutverka sinna hjá óperunni í Augsburg. hátíðarinnar í Bayreuth. Hann tekur þátt í uppfærslunni á Nifl- ungahring Wagners í upphafi Listahátíðar í Reykjavík eftir rúm- ar þrjár vikur. Þar syngur hann Þór í Rínargulli og Gunnar í Ragnarökum. Þetta verður í fyrsta sinn sem kaflar úr öllum óperunum fjórum í hringnum eru færðir upp saman, en Wolfgang Wagner, son- arsonur tónskáldsins og stjórnandi Baureuth hátíðarinnar, hafði frumkvæði að uppfærslunni. „Hún verður spennandi," segir Haukur Páll, „landsliðið af ungum söngvurum kemur heim til að vera með. Nú er að skila sér tónlistar- sprenging sem varð fyrir tíu fimmtán árum með Söngskólan- um, Óperunni og umtalinu vegna Kristjáns Jóhannssonar. Þótt menn syngi úti í Evrópu er afar mikils virði að koma heim og kynna sig. Það ætla ég einmitt að gera á tónleikunum á morgun." List Guðmundar frá Miðdal í Listhúsinu Flest verkin aldrei verið sýnd áður SÝNING á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal verður opn- uð í Listhúsinu í Laugardal laugar- daginn 7. maí. Sýningin spannar aðeins fyrstu tvo áratugi Guð- mundar sem listamanns en gefur engu að síður vísbend- ingu um fjöl- hæfni hans. Á sýningunni er að finna ijöl- breytt safn myndverka frá árunum 1919- 1939, s.s. olíu- málverk, vatnslitamyndir, teikningar, grafíkmyndir, leirmuni auk högg- mynda, sem Guðmundur var hvað kunnastur fyrir. Meirihluti verkanna hefur sjald- an eða aldrei verið sýndur opinber- lega áður, en alls verður á fjórða tug verka til sýnis í Listhúsinu. Hluta myndverkanna vann Guð- mundur erlendis, þar sem hann dvaldist við listnám á árunum 1919 til 1926. Á næsta ári verða liðin 100 ár frá fæðingu Guðmundar frá Mið- dal. Sýningin í Listhúsinu er önnur í röð viðburða sem marka aldaraf- mæli hans, en markmið þeirra er að varpa nýju ljósi á framlag Guð- mundar til lista á Islandi og ýta undir þá endurskoðun á því fram- lagi, sem þegar er hafin. Guðmund- ur Einarsson lést árið 1963, aðeins 67 ára gamall. Sýningin í Listhúsinu er opin frá kl. 10-18 alla virka daga og kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur á hvítasunnudag, 22. maí. VIÐSKIPTATÆKIFÆRI Skapar 40-50 ný störf á árinu Hafin er sala og markaössetning á nýju efni sem borið er á stein, flísar, marmara, sturtu- botna og baðker. Efnið hefur þann einstaka eiginleika að gólf- in og böðin verða stöm í bleytu án þess að nokkur sýnileg breyting verði á yfirborðinu. Tekin er þriggja ára ábyrgð á gólfi sem hefur verið meðhöndlað einu sinni og í framhaldi notuð sérstök hreingerningarefni. Tekin er 10 ára ábyrgð á sturtubotnum og baðkerum. Öll efnin eru vistvæn og niður- brjótanleg. í Ijósi þess að tíðast slysa í heimahúsum er fall í sturtubotnum og böðum þá hefur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni gert þriggja ára samning við Alþjóða verslunarfélagið hf. um að bjóða 7300 félagsmönnum sínum þessa þjónustu á næstu árum. Ekki þarf að fara mörgum orðum um markaðsmögulejkana. Nægir þá að nefna sundstaði, íþróttahús, fiskvinnslu- staði, hótel, veitingahús og heimili. Hér er því á ferðinni alvöru viðskiptatækifæri fyrir aðila sem vilja hefja öruggan rekstur eða þá sem vilja bæta þessu inn í sína línu. Námskeið í maí: * Hvernig byggja á viðskiptin upp á Við leitum að umboðsaðilum á eftirtöldum svæðum. komandi árum. Höfuðborgarsvæðið Suðurnes Vesturland * Meðferð efnanna. Snæfellsnessýsia Vestfirðir Norðuriand vestra Söiutækni og viðskiptasamningar Norðurland eystra Austurland A-Skaftafellssýsla ásamt þjónustutækni. Suðurland Vestmannaeyjar Árnessýsla Alþjóöa Verslunarfclu^Íú Iiff. Allar nanari upplýsingar Skútuvogi 11 ® (91-)67 68 69 veitír Ma9nús Jónatansson 104 Reykjavík 1 sima 91-676869 næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.