Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ tlÆKOAUGL YSINGAR 5 herbergja íbúð Falleg 5 herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýli, miðsvæðis í Reykjavík, til leigu. Leigt er til eins árs í senn. Engin fyrirframgreiðsla. Tilboð óskast send, með upplýsingum um fjölskyldustærð o.s.frv., til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Háaleiti -12898“, fyrir 13. maí. Kaupi gamla muni s.s skrautmuni, bækur, myndir, málverk, silf- ur, Ijósakrónur, lampa, bollastell, hatta, veski, gömul póstkort og smærri húsgögn. Upplýsingar í síma 91-671989. Geymið auglýsinguna. Aðalfundur Húsfélags alþýðu verður haldinn þriðjudaginn 10. maí 1994 kl. 20.30 á Hótel Sögu í Skála, 2. hæð. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Húsfélags alþýðu. Aðalfundur Húnvetninga- félagsins í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 10. maí kl. 20.00 í Húnabúð, Skeifunni 17. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Kópavogsskóli '56-árgangur Árgangur 1956, sem tók fullnaðarpróf frá Kópavogsskóla 1969, ætlar að hittast í Lions- salnum, Auðbrekku 25, föstudaginn 27. maí. Allarfrekari uppl. gefa Sigrún Grétarsd. 12-G, sími 651168, Guðrún Jónsd. 12-D, sími 44062, og Hólmfríður Sigmarsd. 12-M, sími 46407. Vonumst til að heyra frá sem flestum. Árbæjarsókn Aðalfundur Árbæjarsafnaðar verður haldinn í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju sunnudaginn 8. maí og hefst fundurinn að lokinni guðs- þjónustu kl. 12.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sóknarnefndin. KAUPMANNASAMTOK ÍSLANDS Fundur um skattamál Fimmtudaginn 5. maí nk. gangast Kaup- mannasamtök íslands fyrir hádegisverðar- fundi á Hótel Sögu, Skála, 2. hæð, kl. 12.00, um sérstakt eftirlitsátak ríkisskattstjóra á síðasta ári. Frummælendur verða: Tryggvi Jónsson, end- urskoðandi, Garðar Valdimarsson, ríkisskatt- stjóri, Leifur ísleifsson, kaupmaður, og Skúli Jóhannesson, kaupmaður. Þess hefur verið óskað að fjármálaráðherra eða fulltrúi hans mæti til fundarins. Kaupmannasamtök íslands. Ráðstefna um arðsemi vegaframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu Tæknifræðingafélag íslands og Verkfræð- ingafélag íslands standa fyrir opinni ráð- stefnu um arðsemi vegaframkvæmda á höf- uðborgarsvæðinu. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, ríkisins, sam- taka iðnaðarins og verkalýðsfélaganna fjalla um málið frá ýmsum sjónarhornum. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 5. maí nk. í Borgartúni 6 og hefst kl. 12.30. Upplýsingar og skráning fer fram á skrifstofu TFI og VFÍ, símar 688511 og 688505, mynd- riti 689703. Undirbúningsnefnd VFÍ og TFI. Útlits- og litaráðgjöf Fegurð árið um kring. Leiðandi fyrirtæki í útlits- og litaráðgjöf leitar að nýjum ráðgjöf- um á íslandi. Þjálfunarnámskeið verður haldið í lok maí (ath. að námskeiðið fer fram á ensku). Ef þú hefur áhuga á að vinna við litgrein- ingu, stíl, förðun og húðmeðferð, hringdu þá í dag og fáðu nánari upplýsingar: Á íslandi: Tara, sími 91-641011. í Svíþjóð: Clinique Jasmin, sími 90 46 522 21332. Sjómannadagsráð úti á landi Sjómannadagurinn er 5. júní Vinsamlegast pantið merki og verðlaunapen- inga sem fyrst í síma 38465 eða 689374. Sjómannadagurinn í Reykjavík. Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði Þjónustuíbúðir fyrir aldraða í Hveragerði Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, í samvinnu við Hveragerðisbæ, hefur áhuga á að und- irbúa smíði og rekstur þjónustuíbúða fyrir aldraða í landi stofnunarinnar í Hveragerði. Um yrði að ræða húsaþyrpingar með íbúðum fyrir einstaklinga og hjón. Kaupendur nytu allrar þjónustu frá Heilsustofnun NLFÍ og gætu þjónustuþættir orðið þessir: 1. Læknis- þjónusta. 2. Hjúkrun og heimahjúkrun. 3. Matur í matsal eða heimsendur. 4. Öll ræst- ing. 5. Allur þvottur. 6. Líkamsrækt og þjálf- un. 7. Sólarhrings hjúkrunarvakt. Ætlunin er, að íbúar kaupi íbúðir sínar og greiði fyrir þjónustuna fast gjald. Heilsustofn- un NLFÍ vill með þessari auglýsingu kanna hugsanlegan áhuga á þátttöku í smíði þess- ara íbúða. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga, geta haft samband við framkvæmdastjóra NLFÍ í síma 98-30300 eða skrifað bréf. Heimilisfangið er: Heilsustofnun NLFÍ, Grænumörk 10, 810 Hveragerði. Heilsustofnun NLFÍ. Uppboð Framhald uppboðs á eftirtaldri fasteign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: 1. Miðtúni 7, Hólmavík, þinglýst eign Guðbjörns M. Sigurvinssonar og Þórunnar Einarsdóttur, eftir kröfum Byggingarsjóðs ríkisins og Húsasmiðjunnar hf., miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 16.30. Sýslumaðurinn á Hólmavík, 29. apríl 1994. Rikarður Másson. IÐN. - 445 fm. Til sölu er 445 fm nýtt, vandað iðnaðarhús- næði í Skeiðarási 8, Garðabæ. Húsnæðið, sem er helmingur af jarðhæð, er fullfrágeng- ið að utan með málningu og rúmlega fok- helt að innan með ílögðu gólfi, hitaveitu- og rafmagnsinntaki. Lofthæð er 4,2 metrar og tvær innkeyrsluhurðir, hvor að stærð 4x3,6 (Crawford). Söluverð er 11,9 millj., um 26 þús. á fm. Áhvílandi 14 ára hagstætt veðlán og getur útborgun verið lítil. Teikningar og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Frjáls framtaks hf. í Ármúla 18, efri hæð, kl. 9-17 á virkum dögum og í síma 812300 eða 670284 á kvöldin. V SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Kópavogsbúar Rútufundur Kópavogsbúum er boðið í rútuferð um bæinn og lönd hans fimmtu- daginn 5. maí kl. 20.30. ( ferðinni munu Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs, Þórarinn Hjaltason, framkvæmdastjóri tækni- og framkvæmdasviðs, og Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri, kynna framkvæmdaáætlun Kópavogs. Farið verður m.a. út á Kársnes, í Kópavogsdal, Fífuhvammsland og upp í Leirdal, þar sem kirkjugarðsstæðið verður skoðað. Síðan verð- ur boðið upp á kaffi á Vatnsenda. Lagt af stað frá Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, kl. 20.30. Kópavogsbúar fjölmennið og kynnið ykkur framkvæmdaáætlun bæj- arins. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. I.O.O.F. 9 = 175548 '/, = 9.O. 'singar Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. I.O.O.F. 7 s 176548'/2 = 9.0. REGLA MUSTERISRIDUARA RMHekla 4.5. - VS - FL FERÐAFÉLAG 0 ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Miðvikudagur 4. maí kl. 20 Lýðveldisganga Ferða- félagsins - 3. áfangi Eiliðavatn - Silungapollur. Áhugaverð og þægileg kvöld- ganga frá bænum Elliðavatni um Kirkjuhólma og Hólma niður að Silungapolli (Ath. að þetta er styttri leið en upphaflega var áætluð). Nauðsynlegt er að vera í vatnsvörðum skóm eða stigvél- um. Um 2 klst. ganga. Komið með - gengið í átta áföngum að Lögbergi á Þingvölluml Gang- an endar þar 26. júní. Fjölmenn- ið. Nærri 400 manns hafa komið í fyrstu tvo áfangana. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin og Ferða- félagshúsinu, Mörkinni 6, kl. 20.00. Verð kr. 500. Frítt fyrir börn með fullorðnum. Opið hús á þriðjudagskvöldið 10. maí kl. 20.30 f Mörkinni 6. Úrslit Ijósmyndasamkeppni F.Í., 4x4, Isalp og Jöklarannsókna- félagsins kynnt. Vinningsljósmyndir sýndar. Ferðafélag fslands. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12 ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. ifm SAMBAND l'SLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Fjáröflunarsamkoma kristni- boðsflokks KFUK verður haldinn miðvikudaginn 4. maí kl. 20.30 á Háaleitisbraut 58-60 (Kristni- boðssalnum). Kristniboðsþáttur: Ingibjörg ingvarsdóttir. Hugleið- ing: Málfríður Finnbogadóttir. Allir velkomnir. Innflytjendurtil Bandaríkjanna Þú gæti orðið einn af þeim 55.000, sem valdir verða úr til að flytja til Bandarikjanna, sam- kvæmt nýja (USINS) fjölþreyti- lega vegabréfsáritunar-happ- drættinu. Láttu skrá þig núna! Frestur rennur út 30. júnf 1994. Það er auövelt og einfalt. Við sýnum þér hvernig á að taka þátt í happ- drættinu með fullnægjandi upp- lýsingum og leiðbeiningum. Sendu 25 Bandaríkjadali (tékka eða póstávisun) til: East-West Immigrant Services, P.O. Box 1984, Wailuku, Hl 96793, U.S.A.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.