Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska 04GUB. Þ&TTA <SiGTI onexc sMTÓG Þ'J'ÐlHGA&MtKtLt. HAOBKStsvcæfXji?n BS Grtt At> þAttrMAST etM- I ttvecss TtL J)B S TJOKMA i/zetcsTYtuuM éxs TMG/ST) \1 etejn /*» ee> • . /|\ W' ny(\\ yií'u \ L) — < > ©KFS/Distr. BULLS Ferdinand Smáfólk Ég verð að játa, herra, að mér hefði aldrei dottið i hug að setja vatnsmel- ónu i nestispokann minn ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Eitthvað verðurað gera til bjargar „miðaldra konum “ Frá Sigrúnu Ólöfu Marinósdóttur: UNDIRRITUÐ hefur kynnst slíkri og þvílíkri meðferð hjá svokölluðum „sérfræðingum" innan læknastétt- arinnar á íslandi, að ég sé mig knúna til að bregða mér í þann hóp landsmanna sem skrifar lesenda- bréf. Ég vil taka fram að ég hef unn- ið innan „heilbrigðiskerfisins" í 12 ár og þekki það frá ýmsum hliðum. Hér með undanskil ég barnalækna, — þeir eru frábærir og vinna í raun allt of mikið, svo og minn góða heimililslækni, Guðmund Sigurðs- son, heilsugæslulækni á Seltjarnar- nesi. En undanfarin ár hef ég sjálf þurft á sérfræðikunnáttu lækna hér á íslandi að halda. — Hvílík upplif- un. — Hvílík niðurlæging og hvílíkt áhugaleysi hjá þessum svokölluðum sérfræðingum. En þeir sérfræðing- ar, sem ég hef þurft að leita til, eru sérfræðingar í sýkingasjúkdóm- um, gigtarlækningum og tauga- lækningum. Augnlæknar mínar, sem eru tveir, eru báðir frábærir læknar og manneskjur. Ekki nenni ég að rekja sjúkdóms- sögu mína hér, — sem er frá því ég var rúmlega tveggja ára, — er í dag 53ja ára, — sem sagt „mið- aldra kerling". Engan hef ég eigin- manninn til að skreyta mig með, fráskilin, — engan hef ég fínan titil- inn heldur og þá er hætta á ferðum í „heilbrigðiskerfi" okkar íslend- inga, — sem er að hruni komið vegna aðgerða misviturra manna í heilbrigðisráðuneytinu undanfarin ár. Ég hef mætt slíku áhugaleysi og hreinum og beinum dónaskap frá þessum svokölluðu „hámenntuðu sérfræðingum" og mér þykir ekki tilhlýðanlegt að setja það niður á blað. Skít sjálfan mig ekki út á því. En allar konur, sem kallaðar eru „miðaldra", sem getur verið frá 40 ára aldri fram til 65 ára, gætið ykkar á sérfræðingunum. Ekki trúa því, að þið séuð fyrst og fremst á „á þessum leiðinlega aldri“, senni- lega séu einkenni ykkar af geðræn- um toga eða þið séuð hreint og beint ímyndunarveikar! Ég er að missa máttinn bæði í fótum og höndum, er alltaf með mikla verki í mjaðmagrind og baki, hef verið að missa sjónina undafar- in ár, — en allt þetta mun líklega vera af „geðrænum toga“, — eða svo hefur mér skilist á þessum svo- kölluðu „sérfræðingum". Ja, fyrr mega nú vera geðrænu truflanirn- ar. En því miður, sérfræðingar sem hér á við, — heilinn í mér starfar ágætlega, — sem er ekki ykkur að þakka, heldur er það mér meðfætt. — Hefur ykkur þótt ég dónaleg og frek vegna þess að ég hefi ekki viljað trúa „svokölluðum sjúkdóms-' greiningum" ykkar. Mér hefur hríð- versnað en enginn gerir neitt nema minn góði fyrrnefndi heimilislækn- ir. Er þar fyrst og fremst um að kenna mínum „leiðinlega aldri“. Þykist þó bæði andlega hress og tiltölulega ungleg miðað við heilsu- far, — en það er nú einu sinni í genunum og foreldrum mínum að þakka. Ekki er það ykkur sérfræð- ingunum að þakka. Eina sem ég hef haft af ykur að segja eru sár vonbrigði fyrir mig og algjört áhugaleysi ykkar. Svo allar miðaldra konur á ís- landi! Ég aðvara ykkur. Látið ekki svokallaða „sérfræðinga í lækna- stéttinni“ bijóta ykkur niður, þó þið séuð ekki á „réttum" aldri eða haf- ið fínan eiginmannstitlatappa til að hengja á ykkur. — Við verðum held ég að stofna samtök eða hreint og beint biðja háttvirta „sérfræðinga í læknastétt" að taka það fram í sínum auglýsingum í símaskránni að þeir taki konur á þessum aldri í meðferð og taki þær trúanlegar. Nú koma þeir eflaust með spenni- treyju til að setja mig í og leggja mig inn á geðdeildina, — því það skal enginn voga sér að fínna neitt að störfum þessarar stéttar. Af hveiju er mér algjör ráðgáta. Er ég þar með ekki að finna neitt að geðsjúkdómum, hef reynslu af þeim í minni fjölskyldu, — heldur eru til fleiri sjúkdómar sem hijáð geta okkur konur á „þessum óþægilega aldri“ fyrir læknastéttina en geð- rænir eða taugaveiklun, svo kölluð „neurosis" á læknamáli, — sem önnur hver kerling á þessum aldri er greind með. Munið læknar, — Aðgát skal höfð í nærveru sálar,“ — jafnvel þó miðaldra sé. SIGRÚN ÓLÖF MARINÓSDÓTTIR, Skeljagrandi 4, Reykjavík. Orðsending Frá Birni S. Stefánssyni og Halldóru Einarsdóttur: EINS og lesendum Morgunblaðsins má vera kunnugt, undirbjuggum við undirrituð framboð til borgar- stjórnar, sem einbeitti sér að breytt- um lýðræðisreglum. Fyrir okkur vakti það að setja málið á dagskrá, án tillits til vonar um kjörfylgi, og knýja þannig hin skipulögðu stjórn- málasamtök til að sinna því. Undir- tektir við málefnið voru góðar. Samt varð ljóst, að það hlaut að gjalda þess, að flestir líta á kosning- arnar sem einvígi D- og R-lista. Við fórum að ráði fólks nær vett- vangi stjórnmála en við um það að hætta ekki á það að spilla áliti svo góðs málstaðar með lélegri kosn- ingu, sem mundi sýna ranga mynd af afstöðu almennings til málefnis- ins, og hurfum því frá þessu ráði til að kynna málið. Málið hlýtur að komast á dagskrá, þótt á annan hátt verði. BJÖRN S. STEFÁNSSON, HALLDÓRA EINARSDÓTTIR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.