Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 13 I I ) ) ) ) í > i í i i i Í i i i i i i i i i i i i i Í Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Feðgarnir Einar Svavarsson til vinstri og Geir Sædal Einarsson fyrir framan malbikunarstöðina í Helguvík. Malbikunarstöð að rísa í Helguvík Grjólvarn- argarður gerður á Akranesi Akranesi - Nnú eru hafnar framkvæmdir við gerð gijót- garðs á Jaðarsbökkum neðan við íþróttavallarsvæðið á Akra- nesi. Þar hefur á undanförnum árum verið mikið vaxandi land- brot. Svo var komið að íþrótta- mannvirki voru talin í mikilli hættu ef ekkert væri að gert. Gijótgarðurinn verður um 300 metra langur og það er verktakafyrirtækið Skóflan hf. á Akranesi sem annast verkið. Tilboð fyrirtækisins í verkið þótti hagstætt og er nokkuð innan við kostnaðaráætlun. Er jafnvel talið að hægt verði að lengja grjótgarðinn meira en í upphafi var ætlað. Morgunblaðið/Jón Gunnlaúgsson Myndin var tekin fyrir skömmu og sýnir hún að framkvæmdir eru nokkuð komnar á skrið. Með tilkomu þessa gijót- garðs verður sjálfs^gt farið að huga að gerð áhorfendastúku við íþróttavöllinn á bakkanum. Knattspyrnuforystan á Akra- nesi hefur lengi haft áhuga á slíkri framkvæmd og það verð- ur fyrst núna sem sú fram- kvæmd gæti orðið að veruleika. Keflavík - „Við vonumst til að uppsetningu ljúki í lok mánaðarins og þá munum við strax geta byij- að að framleiða malbik," sagði Einar Svavarsson sem þessa dag- ana er að setja upp malbikunar- stöð í Helguvík. Stöðin er smíðuð í Þýskalandi en er flutt inn notuð frá Sviss og er framleiðslugeta hennar 90-100 tonn á sólarhring. Að fyrirtækinu stendur Einar ásamt fjölskyldu sinni og sagði hann að áætlað væri að uppkomin Patreksfirði - Tíu ára gamall strákur kveikti í sinu á Patreks- firði fyrir helgina og hlaust af því mikið bál. Slökkvilið staðarins réð þó niðurlögum eldsins áður en í óefni var komið. Yfirvöld segja brýnt að bæði myndi malbikunarstöðin kosta á milli 40 og 50 milljónir króna. Einar sagði að malbikunarstöð- in væri afar fullkomin og væri hún til að mynda mengunarlaus. Á henni væri stór ryksuga sem sog- aði allt ryk og það eina sem kæmi til með að sjást væri gufa. Einar sagði að nýja stöðin færi létt með að anna allri þörf Suðurnesja- manna á malbiki og þeir þyrftu nú ekki lengur að kaupa þessa þjónustu frá Reykjavíkursvæðinu. foreldrar og aðrir séu á verði gagn- vart brennuvörgum og reyni með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir sinuelda því af þeim get- ur hlotist óbætanlegt tjón jafnt á gróðri sem eignum. Sinubruni á Patreksfírði Morgunblaðið/Steinþór Flateyri er vatnsleikfimibær Flateyri - Flestir bæir eiga sér sína aðalíþrótt. Sumir bæir eru fótboltabæir, aðrir körfu- boltabæir og enn aðrir eru skíðabæir. Flateyri hefur ekki í gegnum tíðina getað státað af neinni íþrótt sem einkennt hefur bæinn öðru fremur. Kemur það til af ýmsu og má án efa rekja það til aðstöðuieysis til íþrótta- iðkunar, þar sem íþróttahús stað- arins er enn óklárað. Fréttarit- ara Morgunblaðsins á Flateyri fýsti að leita uppi þá íþrótt sem gæti talist einkennisíþrótt Flat- eyrar. I bænum er glæsileg sund- laug með öllum þægindum og þar er stunduð sú íþrótt sem talist getur einkennandi fyrir íþrótta- lífið á staðnum; sundleikfimi. Það er Sigrún Magnúsdóttir sem sér um að stjórna leikfim- inni, stendur á bakkanum og sýnir þátttakendunum í lauginni æfingarnar. Aðspurð sagðist Sigrún hafa kynnst þessari teg- und leikfimi hjá Irisi Grönfelt og hefðu þær Sigrún G. Gísla- dóttir, hjúkrunarfræðingur á Flateyri, farið á námskeið hjá henni og upp frá því byrjað með námskeið. Nú hafa þau staðið nær samfellt í þrjú ár og er þátttakan alltaf góð. Upphaf- lega er vatnsleikfimi ættuð frá Bandaríkjunum og er hún í dag iðkuð víða um heim. Einhverra hluta vegna hefur íþróttina þró- ast út í það að vera kvennaleik- fimi og á Flateyri er enginn karlmaður þátttakandi, „þó íþróttin sé betri fyrir karla en konur, ef eitthvað er,“ eins og Sigrún orðaði það. Hér er þó fyrst og fremst um að ræða holla og góða hreyfingu fyrir alla. „Leikfimin hentar til dæmis mjög vel fyrir ófrískar konur, gerir fæðingu auðveldari og konurnar jafna sig fljótar að fæðingu Iokinni." Kínverjar á ferð um Mývatnssveit Mývatnssveit - Ferðamálaráð- herra Kína, Lu Feyen, ásamt fylgdarliði kom í Mývatnssveit sl. föstudag í boði Halldórs Blöndal samgönguráðherra. í þessum hóp frá Kína eru embættismenn í ferðamálaráðuneyti síns heima- lands og voru þeir að endurgjalda heimsókn Halldórs til Kína. Hall- dór var fararstjóri hópsins hingað í Mývatnssveit. Einnig voru með í förinni Birgir Þorgilsson formaður Ferðamála- ráðs, Magnús Oddsson ferðamála- stjóri, Jón Birgir Jónsson ráðu- neytisstjóri og Þórhallur Jósepsson aðstoðarmaður samgönguráð- herra og fleiri. Ekið var með ferða- fólkið á þremur bílum út á ísilagt Mývatnið frá Hótel Reynihlíð, veðrið var eins og best verður á kosið, logn og glampandi sólskin. Með í ferðinni voru mývetnskir leiðsögumenn og gamalreyndir veiðigarpar. Svipast um á gervigíg Megintilgangur með ferðinni út á ísinn á Mývatni var að lofa ferða- fólkinu að renna dorg. Virtist það sýna mikinn áhuga og hafa ánægju af. Lítið fór þó fyrir veiði þó alllengi væri setið. Þegar veiði- tíma lauk var haldið heim á leið en komið við hjá Háey og gengið upp á hana. í Háey er einn stærsti gervigígur í Mývatni. Fagurt var um að líta upp á eynni til allra átta og sást vel suður um allt hálendið allt til jökla. Eftir nokkra dvöl við Háey var haldið út á ísinn á ný og vitjað um eitt net og feng- ust tvær bröndur sem þótti góð uppbót á veiðiferðinni. Þegar komið var í Hótel Reyni- hlíð var ákveðið að aka upp í Bjarnarflag og að hverjmum aust- an Námakletts. Tilkomumikið var að sjá gufuna stíga hátt til himins í logninu og frekar svölu lofti um það bil er sólin var að ganga til viðar. Kvöldverður var snæddur í Hótel Reynihlíð í boði samgöngu- ráðherra og ávarpaði Halldór Blöndal viðstadda þegar sest var til borðs. Þess má geta að brönd- urnar tvær sem veiddust á ísnum voru matreiddar í hótelinu að kín- verskum hætti. Einn úr hópi Kín- veijanna annaðist þá matargerð án suðu. Þótti þessi réttur mikið lostæti. Sigurður Rúnar Ragnars- son sveitarstjóri ávarpaði hina kínversku gésti og ferðamálaráð- herra Kína þakkaði fyrir þeirra hönd. SUMAR GLEÐIN Einhver ævintýralegasta skemmtidagskrá allra tíma á Hótel íslandi Raggi Bjarna. Maggi Úlafs. Hemmi Gunn. Ómar Ragnars. Þorgeir Ásvalds. Jón Ragnars. Bessi Bjarna og Sigga Beinteins. Þeir eru mættir aftur til leiks eftir áralangt hlé. enn harðskeyttari og ævintýralegrí en fyrr og nú með vinsælustu söngkonu landsins Siggu Beinteins. Tónlistarstjórn: Gunnar Þórðarson Leikstjórn: Egill Eðvaldsson. Matseðill Portvinsbcett misturkmsk sjávarréttasúpa meó rjómatopp og kavíar Konfakslegiðgrisafltle meðfranskrt dijonsósu, parísarkartöjlum. oregano, Jlamberuöum ávöxtutn og gfjádu gnvnmeti Konfektis meðpiparmyntujxtru, kirsuberjakremi og r/ómasúkkulaðisósu Glæsileg tilboð á gistingu. Simi 688999 Hcm iAlánd Miðasala og borðapantanir í síma 687111 frá kl. 13 til 17. ..................................... ■ .....................»7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.