Morgunblaðið - 04.05.1994, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
I
Umboðsmaður Alþingis um veiðibann í Smugunni
Heimild til setningar
reglugerðar ótvíræð
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að ekki sé ástæða til athuga-
semda við þá ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins að setja reglu-
gerð um verndun smáfisks á alþjóðlegu hafsvæði í Barentshafi,
þ.e. í Smugunni svokölluðu. Reglugerðin hafi byggst á lögum frá
1976, sem kveði á um að ráðherra sé heimilt að setja reglur um
veiðar íslenskra skipa utan fiskveiðilandhelgi íslands.
Tilefni álits umboðsmannsins er
að í september sl. barst honum
símskeyti áhafna nokkurra fiski-
skipa. Þar er kvartað yfir setningu
reglugerðar um verndun smáfisks
í Smugunni, en samkvæmt reglu-
gerðinni voru allar togveiðar ís-
lenskra fiskiskipa bannaðar þar
frá 24. september 1993 til ára-
móta.
Umboðsmaður leitaði álits sjáv-
arútvegsráðuneytisins vegna
kvörtunarinnar og í svarbréfi
ráðuneytisins kom fram, að fljót-
lega eftir að veiðar íslenskra skipa
hófust í Smugunni hafí komið
fram í fjölmiðlum í Noregi að mik-
ið væri um mjög smáan þorsk í
afla skipanna. Þá eru raktar
stærðarmælingar norsku strand-
gæslunnar, sem og íslensks eftir-
litsmanns, sem mældi afla íslensku
skipanna. Að fengnum upplýsing-
um hans gerði Hafrannsókna-
stofnun tillögu um lokun svæðis í
26600
allir þur/a þak
yfir höfudid
Nönnugata
Falleg nýuppgerð ósamþ. risíb. í
góðu steinh. Laus. Verð 3,5 millj.
Ásholt - lækkað verð
2ja herb. íb. ásamt stæði í bílg. í
nýl. lyftuh. Laus. V. 5,5 m.
Stórholt
Falleg rúmg. ný uppgerð 2ja
herb. íb. á jarðh. Laus. Verð 5,3
millji
Vantar
gott einb. í Reykjavik fyrir
fjársterkan kaupanda.
Þarf ekki að vera fullb. en
tosna 1. júní. Verð allt að
15 millj.
Bræðraborgarstfgur
3ja herb. ca 90 fm björt og fal-
leg kjíb. Verð 6,5 millj.
Engihjalli 25
3ja herb. rúmg. íb. á 2. hæð í
lyftuh. Þvottaherb. á hæð. Park-
et. Tvennar svalir. Útsýni. Laus.
Krummahólar - skipti
Góð 4ra herb. íb. á 6. hæð í
blokk. Æskileg skipti á minni íb.
í hverfinu.
Ártúnsholt
Glæ8il. 5-6 herb. íb. á 1.
hæð í litlu fjölbh. Vandað-
ar innr. Parket. Bílsk. Áhv.
4,5 millj. langtl.
Engjasel
Raðh. á þremur hæðum samt.
ca 180 fm auk stæðis f bílskýli.
Laust fljótl. Verð 10,9 millj.
Súðarvogur
140 fm gott atvinnuhúsn. Stórar
innkeyrsludyr. Verð 5 millj.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Skúlagötu 30 3.h.
Lovísa Kristjánsdóttir, lg. fs.
suðvesturhluta Smugunnar og
sama dag var gefin út reglugerð
sem bannaði veiðamar og tók hún
gildi daginn eftir.
Umboðsmanni bárust athuga-
semdir við bréf ráðuneytisins frá
Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu fyrir hönd áhafna fiski-
skipanna og kom þar fram sú
skoðun að reglugerðina skorti
lagastoð, auk þess sem undirbún-
ingur hefði verið ónógur og Haf-
rannsóknastofnun skorti heimild
til þess að gera tillögur um veiðar
utan fiskveiðilögsögu íslands.
Reglugerðin gengur ekki
lengra en lögin
Umboðsmaður vitnar til hafrétt-
arsáttmála Sameinuðu þjóðanna
og segir ljóst að íslenska ríkið
hafí að þjóðarétti sama rétt til
þess að stjórna fiskveiðum ís-
lenskra skipa á úthafinu og í eigin
efnahagslögsögu. Hann bendir á
1. grein laga nr. 34 frá 1976, sem
hljóðar svo: „Sjávarútvegsráð-
herra setur með reglugerð þær
reglur um veiðar íslenskra skipa
utan fiskveiðilandhelgi íslands,
sem nauðsynlegar þykja til þess
að framfylgt verði ákvæðum al-
þjóðasamninga, sem íslendingar
eru að gerast aðilar að, eða þá
samninga, sem gerðir eru milli
íslenskra og erlendra stjórnvalda.
Ráðherra er auk þess heimilt
að setja aðrar þær reglur um þess-
ar veiðar, sem honum þykir þurfa,
svo sem til samræmingar við regl-
ur þær er gilda um veiðar ís-
lenskra skipa í fiskveiðilögsögu
íslands."
Umboðsmaður telur að heimild
laganna nái almennt til _ svæða
utan fiskveiðilandhelgi íslands.
Reglugerðin sé sett á grundvelli
laganna og verði ekki talið að hún
gangi lengra en lögin heimili. Telja
verði Hafrannsóknastofnun bæra
til að veita umsögn sína og gera
tillögur um takmarkanir á veiðum
utan lögsögunnar. Nægilega sé
fram komið að reglugerðin hafi
byggst á lögmætum sjónarmiðum
og að forsvaranlega hafi verið að
undirbúningi hennar staðið.
Veitingastaður í miðborginni
Vorum að fá í einkasölu veitingastað með vínveitingaleyfi á einum
besta stað í miðborginni. Góður rekstrartími framundan.
Veitingastaður i fallegu húsnæði í hjarta borgarinnar.
Upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu okkar, ekki í síma.
Skeifan - fasteignamiðiun,
Suðurlandsbraut 46, sfmi 685556.
Vantar einbýli, par-, eða raðhús
kr. 12-15 millj. í skiptum fyrir 2 íbúðir:
4ra-5 herb. íbúð á 2. hæð við Vestur-
berg og 2ja herb. 67 fm íbúð á jarðh. við
Rekagranda. Nánari upplýsingar gefur:
Húsið - fasteignasala,
Skeifunni 19, sími 684070.
Eyþór Eðvarðsson, hs. 679945.
t 21150-2137Í \ LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori / KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali 1
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Á mót suðri og sól
Vel byggt og vel með farið steinh., ein hæð, 165 fm, skammt frá Árbæj-
arskóla. Rúmg. stofur furuklæddar. 4 svefnherb. með innb. skápum.
Bílskúr. Glæsil. lóð 735 fm. Vinsæll staður.
3ja herb. ný og glæsileg íbúð
í lyftuh. við Vallarás á 5. hæð, 82,5 fm. Parket. Sólsvalir. 40 ára húsnl.
um kr. 5,1 millj. Frág. fylgir á lóð með bílast.
Á kyrrlátum stað í Skerjafirði
Nýl. endurb. og stækkað einnar hæðar timburh. um 150 fm á eígnar-
lóð 816 fm. Nýtt parket. Ný sólstofa. Góð eign á frábæru verði.
Fyrir smið eða laghentan
3ja herb. stór íb. á neðri hæð í tvíbýlish. í Laugarásnum. Eldh. og bað
þarf að endurn. Frábært útsýni. Einn af vinsælustu stöðum borgarinn-
ar. Tilboð óskast.
Stór og góð - hagkvæm skipti
Mikið endurn. 4ra herb. íb. á 1. hæð við Hraunbæ. Gott herb. fylgir í
kj. með snyrtingu. 40 ára húsnl. 3,3 millj. Skipti mögul. á minni íb.
í nágrenni Jaðarsels
Á söluskrá óskast gott einbhús, má vara timburh. Til greina kemur
gott endaraðh. Traustur kaupandi.
• •
3ja herb. séríb.
á mjög góðu verði
í Árbæjarhverfi.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASItlGNASAL AW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
í
Morgunblaðið/Erik JCristjánsson
Höfnin dýpk-
uð í 7 metra
Undanfarið hefur verið unnið
dag og nótt að dýpkun Reykja-
víkurhafnar og að sögn Hann-
esar Valdimarssonar, hafnar-
sfjóra, nemur dýpkunin um 1
til 1 lA metra að meðaltali. Að
dýpkun lokinni verður höfnin
orðin að minnsta kosti 7 metra
djúp og allt að 8 metrar við ein-
staka bakka. Ráðist var í dýpk-
unina til að skemmtiferðaskip
og frystitogarar ættu greiðari
aðgang að höfninni, en hingað
til hefur þurft að sæta sjávar-
föllum til að þau kæmust inn,
segir Hannes. í fyrra hafi rúm-
lega 20 skemmtiferðaskip kom-
ið hingað til lands og sífellt
fleiri frystitogarar komi til
hafnar í Reykjavík. Efnið sem
tekið er úr höfninni er síðan
flutt upp í Sundahöfn þar sem
það er notað til landstækkunar
á þróunarsvæði hafnarinnar. Á
fjárhagsáætlun fyrir árið 1994
er gert ráð fyrir að um 82 millj-
ónum verði varið til fram-
kvæmdanna sem munu standa
fram á haust.
Ekiðá
aldraðan
hjólreiða-
mann
EKIÐ var á sjötugan mann á
reiðhjóli á gönguljósum á
Stekkjarbakka á móts við
Kaupstað í Mjódd um klukkan
21 í fyrrakvöld.
Maðurinn var að hjóla norður
Stekkjarbakka og kom að
gönguljósum, þar sem gatan
skiptist í tvennt. Ökumaður bíls
sem á eftir honum kom fannst
hann fara of hægt og hugðist
sveigja öfugu megin fram hjá,
samtímis og hjólreiðamaðurinn
beygði til vinstri,. og skall á
hjólreiðamanninum. Reiðhjóla-
maðurinn öklabrotnaði og rif-
beinsbrotnaði auk þess að fá
nokkra höfuðáverka, en var
með fullri meðvitund þegar
hann var fluttur með sjúkrabif-
reið á slysadeild.
|
I'
í
Sá sem hefur tvö störf láti frá sér annað
Rýmt verði til
fyrir yngra fólki
í PREDIKUN sr. Ingólfs Guðmunds-
sonar í Seltjarnarneskirkju, 1. maí
lagði hann út frá ritningargreininni:
„Sá sem á tvo kirtla, gefi þeim, er
engan á ...“ og sagði: „Sá sem hef-
ur tvö störf, láti frá sér annað til
þess sem ekkert hefur“. Með þessum
orðum sagðist hann vilja beina þeim
tilmælum til ellilífeyrisþega og eftir-
launafólks að það legði niður störf
til að rýma fyrir atvinnulausu ungu
fólki.
Ingólfur sagði að viðurkennt væri
í þjóðfélaginu að fólk hætti að vinna
um sjötugt. Það gerðu prestar og
ýmsar kirkjulegar stofnanir hafi tek-
ið það upp að láta þá sem komnir
væru á þann aldur hætta störfum
til að rýma fyrir þeim sem yngri
eru. „En það er ekki alstaðar svo
hjá söfnuðum að starfsmenn hætti
við ellilífeyrisaldur,“ sagði hann.
Launalaust leyfi
Ingólfur sagði að þegar skera átti
niður hjá finnsku kirkjunni þá hafi
það verið eldra starfsfólk sem tók
sér tímabundið launalaust leyfi. Það
hafí verið gert til að tryggja ungu
fólki vinnu, sem bar meiri fjárhags-
legar skuldbindingar og mátti síður
við því að missa vinnuna. „Það eru
dæmi um það innan kirkjunnar að
menn eru komnir með ellilífeyri og
á eftirlaun og eru þar að auki í fullu
starfi hjá kirkjunni á meðan aðrir
ganga atvinnulausir," sagði Ingólfur.
„Þetta kalla ég að þeir, sem eiga
tvær skikkjur ættu að gefa þeim sem
enga hefur aðra eða sá sem hefur
tvö störf eftirlaun og ellilífeyri ætti
að láta þeim eftir sín störf sem enga
eða takmarkaða vinnu hafa.“
í mars voru 86 manns á atvinnu-
leysiskrá á Seltjarnarnesi í söfnuði
sem í eru rúmlega fjögur þúsund
íbúar, sagði Ingólfur. „Ef reiknað er
með að fjórir til fimm séu í kringum
hvern mann þá eru 500 manns í
þessu litla byggðarlagi sem væntan-
lega þekkja til atvinnuleysis meðal
nákominna," sagði hann.
Ólaunuð störf
Benti hann á að vitanlega gætu
þeir sem eru á eftirlaunum tekið
þátt í ólaunuðum störfum sem
áhugamenn. Það væri nóg af verk-
efnum hjá kirkjunni og ekki meining-
in að ýta mönnum frá þátttöku í
kristilegu starfi.
Sagði hann á að á árlegri Leik-
mannastefnu íslensku þjóðkirkjunnar
hefði verið samþykkt ályktun, þar
sem því hefði verið beint til sóknar-
nefnda, að við ákvörðun um starfslok
starfsmanna kirkjunnar verði tekið
tillit til ríkjandi atvinnuástands í
landinu og þeir starfsmenn, sem þeg-
ar eru komnir á eftirlaunaaldur láti
hinum yngri eftir störf sín.
i
i
I
i
i
f