Morgunblaðið - 04.05.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 11
Reyntað
plata með
keðju-
bréfum
FLEST bendir til þess að fólk sem
keypt hefur fjárfestingakeðjubréf
af sænskum uppruna hafi verið plat-
að og að óprúttnir aðilar séu að
reyna að hafa það að féþúfu. Þó-
nokkuð af þessum bréfum hafa ver-
ið í umferð hér á landi undanfamar
vikur. Óvíst er hvort sænska fyrir-
tækið sem gefur bréfín út er yfír-
leitt til, en fyrirtækið svarar ekki í
þeim síma sem það gefur upp.
í bæklingi sem fylgir keðjubréfun-
um er fullyrt að miklar líkur séu á
að hægt sé að hagnast mjög mikið
með því að kaupa þessi fjárfestinga-
bréf. Því er lofað að verðgildi bréf-
anna vaxi árlega á bilinu 14-25%.
Til að geta fengið fjárfestingabréf
þurfa þátttakendur í keðjunni að
greiða 4.300 íslenskar krónur.
Einn af þeim sem hefur eignast
þessi bréf reyndi að leita upplýsinga
um bréfín hjá sænska fyrirtækinu
án árangurs. Einungis símsvari
svarar í því símanúmeri sem gefið
er upp í bæklingi fyrirtækisins og
er sama á hvað tíma dagsins hringt
er. Póstur og sími hefur engar upp-
lýsingar um fyrirtækið.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Fallegur fjörusteinn
ÞÓ norðan kaldi hafi verið fyrstu daga sumarsins er komin
voi-tilfinning í börnin, enda er sunnanáttin farin að gera vart
við sig. Tómas litli skreið upp á fallegan fjörustein þegar hann
var að leika sér í fjörunni við Bug í Ólafsvík.
Matthías Bjarnason, alþingismaður
Ursögnin úr
hvalveiðiráðinu
ekki mistök
MATTHÍAS Bjarnason,
formaður þingmanna-
nefndar, sem gerði til-
lögur um stefnu íslend-
inga í hvalamálum, seg-
ir enga ástæðu fyrir
íslendinga að taka aftur
upp aðild að Alþjóða-
hvalveiðiráðinu. Hann
er ósammála þeim um-
mælum Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utan-
ríkisráðherra, í Morg-
unblaðinu um helgina,
að úrsögn íslendinga
úr hvalveiðiráðinu hafí
verið mistök. „Ég tel
að þessi ummæli séu
ekki góð í þessu við-
kvæma máli,“ sagði Matthías.
Hann er ekki heldur sammála því
sjónarmiði, sem fram kom í máli
Bjöms Bjarnasonar, formanns utan-
ríkismálanefndar, í Morgunblaðinu
fyrir skömmu, að réttur íslendinga
til að hefja hvalveiðar væri best
tryggður með aðild að Alþjóðahval-
veiðiráðinu með fyrir-
vara um að við ætlum
að veiða ákveðnar
hvalategundir. Þing-
mannanefndin hefur
lagt til að leyfðar verði
takmarkaðar veiðar á
hrefnu til að byrja með.
Nafnið tómt
„Ég sé ekki að það
sé nema nafnið eins og
það er orðið,“ sagði
Matthías um Alþjóða-
hvalveiðiráðið en tók þó
fram að ef hvalveiðiráð-
ið breytti gersamlega
um stefnu og vildi ræða
málið á vísindalegum
grundvelli þá kæmi til greina að
hlusta á það. íslendingar ættu hins
vegar að vera áfram í Norður-Atl-
antshafssjávarspendýraráðinu
(NAMMCO), á grundvelli ákvæða
hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna.
Matthías
Bjarnason.
Siðanefnd Blaðamannafélags íslands
Amælisvert brot
blaðamanns og
fréttastjóra Tímans
SIÐANEFND Blaðamannafélags ís- konuna eða Valborgu áður en viðtalið
lands telur að Arni Gunnarsson blaða-
maður og Birgir Guðmundsson frétta-
stjóri á Tímanum hafí með ámælis-
verðum hætti gerst brotlegir við 3.
og 4. greinar siðareglna Blaðamanna-
félags Islands með viðtali Arna við
Geir Snorrason sem birtist í Tíman-
um. í viðtalinu rekur Geir hjúskapar-
sögu sína og ber þá fyrrverandi konu
sína ýmsum þungum sökum.
Umrætt viðtal birtist í Tímanum
laugardaginn 22. janúar 1994. Blaða-
maðurinn segir í formála að viðtalinu:
„Þetta er frásögn hans (Geirs). Það
er að sjálfsögðu enginn dómari í sjálfs
sín sök, en þetta er málið eins og það
snýr að honum.“ Síðan rekur Geir
hjúskaparsögu sína og ber fyrrver-
andi konu sína þungum sökum, en
hann nafngreinir bæði konuna og
dóttur þeirra í viðtalinu. I kæru Val-
borgar Þ. Snævarr fyrir hönd Vigdís-
ar Violetu Rosento eru flest efnisat-
riði þeirrar frásagnar rengd. Kærir
hún röng og meiðandi ummæli um
eiginkonu Geirs, það að Ámi Gunn-
arsson hafði ekki samband við eigin-
Hafnarfjörður
31,7 millj.til
gatnagerðar í
Setbergslandi
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að taka rúmlega 31,7 millj.
króna tilboði lægstbjóðanda, Hagvirk-
is-Kletts hf., í gatnagerð í miðhverfí
Setbergs og víðar. Fimm tilboð bár-
ust í verkið.
Tilboð Hagvirkis-Kletts hf. er
72,89% af kostnaðaráætlun, sem er
44.926.635 krónur. Næstlægsta boð
átti Guðjón Þorkelsson, sem bauð
74,65% af kostnaðaráætlun, JVJ hf.
bauð 87,92% af kostnaðaráætlun,
Klæðning hf. bauð 88,61% af kostn-
aðaráætlun og Völur hf. bauð 88,71%
af kostnaðaráætlun.
var birt, og loks það að nöfn eiginkon-
unnar og ungrar dóttur þeirra hjóna
skuli hafa komið fram í viðtalinu.
í úrskurði siðanefndar segir að það
sé ekki í verkahring siðanefndar að
taka afstöðu til ásakana Geirs Snor-
rasonar á hendur konu sinni. Nefndin
hafí áður kannast við í úrskurði frá
18. júní 1993 „að í svokölluðum per-
sónuviðtölum sé ekki leitað staðfest-
ingar á einstökum ummælum viðmæl-
andans". Þá hafi hún bætt við: „Þó
er ekki hægt að halda því fram að
viðmælandinn einn sé ábyrgur. Um
slík viðtöl gilda siðareglur ekki síður
en um annað efni sem blaðamenn
vinna.“
í úrskurðinum segir að það virðist
ljóst að blaðamaður og fréttastjóri
- viðhöfðu ýmsa gát í viðtali sínu við
Geir Snorrason, en hins vegar vanti
á að til upplýsingaöflunar sé vandað
svo sem kostur sé, og að tillitssemi
sé sýnd í vandasömu máli, eins og
krafist sé af blaðamönnum í 3. grein
siðareglna.
Undarlegrök
Þá segir að vörn Áma Gunnarsson-
ar og Birgis Guðmundssonar gegn
kæruliðnum um nafnbirtingu sé und-
arleg. Hún virðist fela í sér að útlend-
ingar sem giftist til íslands búi við
önnur réttindi og jafnvel annars kon-
ar tilvist en aðrir landsmenn. Siða-
nefnd sjái enga ástæðu til að fallast
á þetta sjónarmið, og Geir Snorrason
beri alvarlegar sakir á konu sína. í
4. grein siðareglna sé það lagt á
blaðamenn að meta hvenær öryggi
borgaranna eða almannaheill krefjast
þess að nöfn þeirra sem bornir eru
þungum sökum séu birt. Ekki verði
séð að það hafí þjónað neinum til-
gangi í þessu máli að birta nafn kon-
unnar og hvað þá barnsins. Er það
því úrskurður siðanefndar að þeir
Ámi Gunnarsson og Birgir Guð-
mundsson teljist hafa brotið ákvæði
3. og 4. greinar siðareglna Blaða-
mannafélags Islands og sé brotið
ámælisvert.
Weetabix $
HJARTANS
Æ
TREFJARIKT m g m f
ORKURÍKT } rl