Morgunblaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sex saman
FÉLAGARNIR Jónannes
Svan, Páll, Guðjón Orri,
Bernharð Már, Stefán Arni
og Marvin hafa stofnað reið-
hjólafélagið Sex saman en
tilgangur þess er að fara
saman í langar hjólreiðaferð-
ir. Það er algjört skilyrði
sögðu þeir félagar að nota
hjálma í hjólatúrunum þann-
ig að tveir þeirra sem enn
höfðu ekki orðið sér úti um
þetta nauðsynlega höfuðfat
ætluðu að bæta úr því hið
snarasta.
Hver bæjar-
búi skuldar
395 þúsund
HVER íbúi á Akureyri skuldaði
395 þúsund krónur í lok síðasta
árs en bróðurparturinn er vegna
Hitaveitu Akureyrar sem hver
bæjarbúi skuldar 263 þúsund
krónur í. Skuldir hafa hækkað
um 41 þúsund krónur á bæj-
arbúa milli áranna 1992 og
1993 en i árslok 1992 voru þær
354 þúsund þar af 245 þúsund
vegna hitaveitunnar. Akur-
eyringar voru 14.799 talsins í
lok síðasta árs og hafði fjölgað
um 128. Skuldir bæjarins námu
5,8 milljörðum í árslok.
Útlending-
ar vilja
í HólasKÓla
UM þijátíu fyrirspumir hafa
borist til Bændaskólans á Hól-
um í Hjaltadal frá útlendingum
sem gjarnan vilja stunda nám
við skólann. A síðasta skólaári
stunduðu fimm erlendir nemar
nám við skólann og luku tveir
þeirra, norskar stúlkur, bú-
fræðiprófi síðastliðinn sunnu-
dag. Jón Bjarnason skólastjóri
sagði við skólaslit, að vilji væri
til þess að koma til móts við
erlenda nema. Öðru fremur er
það hrossaræktin sem laðar að.
Vill að unnið
verði á vijkt-
um hjá UA
ATVINNUMÁLANEFND Ak-
ureyrar hefur beint þeim til-
mælum til stjómar Útgerðarfé-
lags Akureyringa vegna hins
alvarlega atvinnuástands sem
ríkir á Akureyri og fyrirsjáan-
legrar aukningar þess þegar
skólum lýkur í vor, að allra leiða
verði leitað til aukinnar hráefni-
söflunar svo taka megi upp
vaktavinnu í frystihúsi félags-
ins. Þá beinir nefndin einnig
þeim tilmælum til ÚA og stjóm-
ar Verkalýðsfélagsins Einingar
að þessir aðilar nái samkomu-
lagi um að hrinda úr vegi þeim
ágreiningsefnum sem kunna að
hindra að vaktavinnufyrir-
komulag verði tekið upp.
Óvenju mörg verkefni framundan í byggingariðnaði í sumar
Blómlegra en um
margra ára skeið
MÖRG STÓR verkefni era framund-
an í byggingariðnaði á Akureyri í
sumar og hefur ekki verið eins blóm-
legt yfír verkefnum um margra ára
skeið. Flest verkefnanna eru á veg-
um opinberra aðila en byggingafull-
trúinn á Akureyri segir að enn sé
lægð hvað varðar einstaklinga sem
era að byggja eigin hús. Alltof lítið
sé um slík og hafi reyndar verið um
langt skeið. Sum verkefnanna sem
ráðist verður í í sumar eru af þeirri
stærðargráðu að kunnugir telja að
verktakar í bænum þurfí að samein-
ast um að bjóða í þau.
Stærstu verkefnin
Stærstu verkefnin sem væntan-
lega verða boðin út nú á næstunni
era bygging nýrrar álmu við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri en þar
er um að ræða hús á þremur hæðum
með tveimur kjöllurum. Þetta er
nokkurra ára verkefni og með þeim
stærstu sem boðin hafa verið út á
liðnum árum. Þá er ætlunin að reisa
nýtt 2.400 fermetra hús við Mennta-
skólann á Akureyri og fyrirhugað
að taka fyrstu skóflustungu þess á
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Þá verður byggð viðbótarbygging
við Flugstöðina á Akureyri, fram-
kvæmdir eru hafnar við byggingu
nýs leikskóla í Giljahverfi, umfangs-
miklar framkvæmdir standa yfír við
Sundiaug Akureyrar, áætlað er að
reisa hús yfír starfsemi Siglinga-
klúbbsins Nökkva, húsgagnaversl-
unin Vörabær hefur boðið út bygg-
ingu verslunarhúss, framkvæmdir
standa yfir við breytingar í kjallara
Glerárkirkju þar sem verður leik-
skóli og þá má nefna að Hitaveita
Akureyrar mun í sumar leggja 10
kílómetra aðveituæð frá Laugalandi
í Þelámörk til Akureyrar og loks
má nefna að framkvæmdir hafa
staðið yfír við byggingu nýrrar álmu
við Verkmenntaskólann á Akureyri.
„Ég tel að óvenju bjart sé yfir
byggingariðnaði í sumar og það
kemur til með að hafa veralega góð
áhrif á aðra starfsemi, gróska í
byggingariðnaði er fljót að hafa
áhrif. Það kæmi mér ekki á óvart
að það sé meira en áratugur siðan
við höfum séð fram á önnur eins
verkefni í þessum iðnaði og það mun
hleypa nýju lífíð í þennan iðnað,“
sagði Sveinn Heiðar Jónsson bygg-
ingaverktaki. Hann sagðist ekki
hafa í hyggju að bjóða. í þau stóru
verk sem framundan eru en fyrir-
tæki hans hefur lagt áherslu á að
byggja íbúðarhús.
Sveinn Heiðar sagði mikilvægt
að verktakar á Akureyri sameinuð-
ust um að bjóða í stóru verkefnin
annars væri hætta á að þau misstu
þau til annarra.
Of fáir byggja
Jón Geir Ágústsson, bygginga-
fulltrúi Akureyrarbæjar, sagði að
vissulega væri ánægjulegt hversu
mörg stór verkefni á sviði bygging-
ariðnaðar væru framundan í sumar
en einkum væri þar um að ræða
opinberar byggingar. „Einkaaðil-
arnir halda enn að sér höndum og
við hefðu viljað sjá fleiri hefja bygg-
ingar eigin húsnæðis," sagði Jón
Geir, en á þessu ári er áætlað að
byrjað verði á byggingu 45 íbúða.
Þær voru 53 í fyrra. „Það er alltof
lítið, þörfin er 100-110 íbúðir á ári
þannig að það vantar nokkuð upp
á.“
Jón Geir sagði að lægð hefði ver-
ið upp undir áratug hvað varðar
einstaklinga sem eru að reisa sér
eigið húsnæði, íbúðarbyggingar í
bænum hefðu fyrst og fremst verið
innan félagslega kerfísins.'
Morgunblaðið/Rúnar Þór
*
Elsti Islendingurinn 105 ára
„ÉG GET ekki svarað því
hverju ég á langlífið að
þakka, ég hef alltaf verið
heilsuhraust og lifað heil-
brigðu lífi,“ sagði Valgerður
S. Friðriksdóttir en hún er
elst Islendinga og átti 105 ára
afmæli í gær, 3. maí. Hún
kvaðst alltaf hafa verið geð-
góð og glaðlynd og ekki eytt
púðri í illt umtal.
Valgerður fæddist að Há-
nefsstöðum í Svarfaðardal
og ólst þar upp. Hún var í
vist hjá læknishjónunum á
Grenivík um tveggja ára
skeið en tvítug að aldri, árið
1909 fór hún til Akureyrar
þar sem hún var vinnukona
hjá kaupmannshjónunum í
Gránu og síðan hjá Önnu og
Hendrik Shciöth. Anna var
einn stofnenda Lystigarðsins
á Akureyri og sagðist Val-
gerður hafa hjálpað til við
gróðursetningu fyrstu
plantnanna í garðinum árið
1912.
Sumarið 1913 var Val-
gerður í verbúðarvinnu í
Þorgeirsfirði hjá Gísla bónda
á Svínárnesi en þar kynntist
hún mannsefni sínu Jónasi
Franklín. Þau giftu sig í
Grundarþingi og hófu bú-
skap á Akureyri um haustið.
Eignuðust þau tvö börn, Jó-
hann Friðrik Franklín, bak-
arameistara á Akureyri, og
Þóru Rósu Franklín, hús-
móður, en þau eru bæði lát-
in. Jónas maður Valgerðar
léstárið 1956.
Valgerður vann öll aimenn
störf er tengdust sjósókn fyrr
á árum og þá tók hún virkan
þátt í starfi Slysavarnafélags
kvenna og góðtemplararegl-
unnar á Akureyri enjiar er
hún heiðursfélagi. „Ég fer
alltaf á sumrin í bíltúr um
Svarfaðardal og heim að Há-
nefsstöðum. Svarfaðardalur-
inn er dásamlegur," sagði
Valgerður Hún er vel ern
miðað við aldur og fylgist vel
með því sem gerist í heimin-
um sem hún sagði að tekið
hefði miklum breytingum á
sinni löngu ævi.
Það er 99 ára aldursmunur á
nöfnunum Valgerði S. Frið-
riksdóttur sem átti 105 ára
afmæli í gær og langalanga-
langömmubarninu Valgerði
Tryggvadóttur sem er 6 ára,
en þær eru á myndinni til
vinstri. Valgerður hefur síð-
ustu 20 árin dvalið á Dvalar-
heimilinu Hlíð á Akureyri þar
sem hún hélt upp á 105 ára
afmæiisdaginn sinn í gær.
Mjólk eyfirskra kúabænda flokkaðist 99,2% í fyrsta flokk
Kjötmarkaður erfiður
og algjört verðfall
Eyjafjarðarsveit - MJÓLKURFRAMLEIÐSLA er í góðu jafnvægi og
er raunar eina búgreinin sem ekki á við offramleiðslu að stríða. Kjöt-
markaðurinn er hins vegar vérsta vandamál sem bændur þurfa að glíma
við nú. Þetta kom fram í skýrslu Odds Gunnarssonar formanns Félags
eyfirskra kúabænda á aðalfundi félagsins og Mjólkursamlags KEA.
Kjötneysla hefur ekki aukist þrátt
fyrir mikla verðlækkun til neytenda
á síðustu áram og sagði Oddur, að
algjört verðfall hefði orðið á nauta-
kjöti til framleiðenda frá því á sama
tíma í fyrra. Verð á UNl nautakjöti
var þá 326 krónur, en sumir slátur-
leyfíshafar vora famir að greiða
bændum allt niður í 195 krónur fyr-
ir kílóið í febrúar síðastliðnum. Fyr-
ir nokkru var undirritað samkomu-
lag milli Landssambands sláturleyf-
ishafa og Landssambands kúa-
bænda um sérstakar ráðstafanir í
nautakjötsmálum, en það fól í sér
að tekin yrðu út af markaði 5.000
tonn af ungneytakjöti.
Skráð verð lækkað
Skráð verð var lækkað niður í 75%
af grundvelli, meðal annars til að
bændur þyrftu ekki að borga verðm-
iðlunargjald af mun hærri upphæð
en þeir fá greitt frá sláturleyfishöf-
um. Oddur var efíns um, að þetta
samkomulag takist því nokkrir
sláturleyfíshafar neiti að skrifa und-
ir samninginn.
í máli Þórarins E. Sveinssonar
mjólkursamlagsstjóra kom fram að
2,26% samdráttur varð í innveginni
mjólk árið 1993 miðað við fyrra ár.
Mjólkin flokkaðist mjög vel og fór
99,2% í fyrsta flokk. Efnamagn
mjólkur er meira á samlagssvæðinu
en í meðalmjólk sem lögð er til
grundvallar útborgun á landinu
þannig að bændur fá greitt yfirverð
fyrir hana. Á síðasta ári var upp-
hæðin 7 milljónir króna.
Alls fengu 29 mjólkurframleið-
endur viðurkenningu fyrir afburða
góða mjólk á síðasta ári en reglurn-
ar sem hafðar eru til viðmiðunar
era þær ströngustu á landinu.
á Hríshóli hlaut verðlauna-
skjöld frá Búnaðarfélagi ís-
lands fyrir besta kynbótanaut-
ið í ár, Andvara 87014, en
hann hlaut hæsta kynbótadóm
sem sem þekkist hér á landi.