Morgunblaðið - 04.05.1994, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Buthelezi segir of stóran
sigur hættulegan fyrir ANC
Jóhannesarborg, Höfðaborg. Reuter. The Daily Telegraph.
BLÖKKUMENN urðu í gær við áskorun Nelson Mandela, leiðtoga
Afríska þjóðarráðsins (ANC) og verðandi forseta Suður-Afríku, og
héldu til vinnu og skóla, en þeir höfðu fagnað kosningasigri ANC í
alla fyrrinótt. Er helmingur atkvæða hafði verið talinn í gær hafði
ANC hlotið 62,5% atkvæða en Þjóðarflokkurinn 22,2%. Þjóðarflokkur
F. W. de Klerks, fráfarandi forseta, vann sigur í fylkiskosningum í
Vestur-Höfða (Western Cape) og mun fara með stjóm fylkisins. Allt
stefndi í þá átt að Inkatha-hreyfing Zúlúmanna hlyti meirihluta í heima-
löndum sínum KwaZulu-Natal en Inkatha var með 7,5% atkvæða í
þingkosningunum. Frelsisfylking hvítra, sem hefur á stefnuskránni
stofnun heimalands hvítra, hafði hlotið 2,8% atkvæða.
KOSNINGARNAR
I SUÐUR-AFRIKU
Samkvæmt
bráöabirgöa-
tölum er Neison
Mandela
sigurvegari
kosninganna
Tölur kl. 14:15 Atrlska þjtöarráíiö
á þriöjudag
AFRÍSKA ÞJÓÐARRÁÐIÐ 62,5%
Nelson Mandela
ÞJÓÐARFLOKKURINN 22,2%
F.W.de Klerk
INKATHA- FRELSISHREYFINGIN 8,3%
Mangosuthu Buthelezi
FRELSISFYLKINGIN 2,7%
Constand Viljoen ________________
DEMÓKRATAFLOKKURINN 1,7%
Zach de Beer
PAN-AFRÍSKA RÁÐIÐ 1,3%
Clarence Makwetu
AÐRIR FLOKKAR 1,3%
eftirab 12,04
milljónir atkvæöa, f~7
af 23 milljónum LJ
atkvæða, höföu
veriö talin.
REUTER
Er tveir þriðjuhlutar atkvæða
höfðu verið talin í Vestur-Höfða
hafði Þjóðarflokkur de Klerks hlotið
55% atkvæða en Afríska þjóðarráð-
ið 30% og tryggði flokkurinn sér
þar með stjórn fylkisins. Er talið
að sigur Þjóðarflokksins sé ekki
síst að þakka miklu fylgi hans
meðal litaðra.
Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi
Inkatha, sagði að það gæti orðið
ANC hættulegt að vinna of stóran
sigur í kosningunum. Kvaðst hann
myndu halda áfram viðræðum við
ANC um aukna sjálfsstjóm í Kwa-
Zulu-Natal. Um miðjan dag í gær
hafði Inkatha hlotið 53,4% atkvæða
í KwaZulu en ANC 32%.
Síðasta vonin
Stjórnmálaskýrendur og efna-
hagsspekingar telja Suður-Afríku
síðustu vonina fyrir heimshluta í
afturför og að næsti leiðtogi lands-
ins, Mandela, sé líklegastur allra
til að til að koma á stöðugleika og
jafnræði kynþáttanna.
Margir eru sannfærðir um að þar
sem Mandela taki við stjóm ríkasta
lands álfunnar, muni honum takast
það sem Kwame Nkrumah, forseta
Ghana og Juliusi Nyerere, forsta
Tansaníu mistókst. En verkefnið
sem hans bíður er gríðarstórt og
þeir eru einnig ljölmargir sem hafa
Næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB
Dehaene talinn
Sigurhátíð
Reuter
STUÐNINGSMENN Afríska þjóðarráðsins fögnuðu kosninga-
sigrinum í alla fyrrinótt. Er um helmingur atkvæða hafði vérið
talinn um miðjan dag í gær, var fylgi ANC 62,5%.
ekki trú á að Mandela ráði við það,
ekki síst vegna áætlana ANC um
að veija 11 milljörðum dala á næstu
fimm árum til byggingar húsa, til
að fjölga störfum, lengja skóla-
göngu og endurbóta í heilbrigðis-
málum.
Hvers konar utanríkisstefna?
Þá bíður utanríkisráðherra lands-
ins erfitt starf. Á liðnum áratugum
hafa suður-afrísk stjórnvöld átt
náið samstarf við ríki á borð við
ísrael og Tævan en ANC hefur hins
vegar notið stuðnings Kúbverja,
Kínveija og Palestínumanna.
Fjölmargar þjóðir telja sig tengj-
ast landinu á einn eða annan hátt,
svertingjar í Bandaríkjunum telja
sig eiga hönk upp í bakið á ANC
fyrir stuðning sinn, vinstristjórnir
hafa tengst kommúnistaflokki Suð-
ur-Afríku, sem kann að hafa um-
talsverð áhrif á nýju stjórnina, að
ógleymdum Afríkuríkjunum, sem
vonast til aðstoðar frá hinum efn-
aða „bróður" í suðri.
líklegasti eftir-
maður Delors
JEAN-Luc Dehaene, forsætisráð-
herra Belgíu, er nú talinn líklegasti
eftirmaður Jacques Delors, sem
næsti forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (ESB). Sam-
kvæmt frétt í The European hefur
hann náð töluverður forskoti á
helsta keppinaut sinn, Ruud Lub-
bers, forsætisráðherra Hollands.
Dehaene mun meðal annars njóta
stuðnings Frakka, Þjóðveija og
Dana. Hvorugur þeirra hefur form-
lega lýst því yfir enn að hann sæk-
ist eftir embættinu. Helsta ástæða
þess að þeir báðir koma helst til
greina er að undanfarin tíu ár hef-
ur sósíalisti frá stóru aðildarríki
verið forseti framkvæmdastjórnar-
innar. Er nú talið tímabært að
kristilegur demókrati frá litlu ríki
taki við.
Brittan úr leik
Um tíma var talið að Bretar
myndu bjóða fram sinn fulltrúa í
framkvæmdastjóminni, Leon Brítt-
an, ekki síst í ljósi þess, hve vel
honum tókst til er hann hafði for-
ystu fyrir ESB í GATT-viðræðun-
um. Nýleg bók Brittans, þar sem
hann lýsir Evrópuhugsjón sinni ýtti
einnig undir vangaveltur um fram-
boð hans. Heimildir European
herma hins vegar að Bretar hafi
nú gefið þessi áform á bátinn, þar
sem nær óhugsandi er talið að fyrr-
um ráðherra í ríkisstjórn Margaret
Thatcher muni ná nægilegu fylgi.
Þá vilja Bretar ekki eiga á hættu
að vera sakaðir um að reyna að
koma í veg fyrir framboð Dehaene.
írinn Peter Sutherland, sem und-
anfarið hefur gegnt embætti fram-
kvæmdastjóra GATT, hefur einnig
verið nefndur til sögunnar en ólík-
legt er talið að hann eigi nokkra
möguleika.
Lubbers lengi líklegastur
Lubbers, sem meðal annars var
í forsæti ráðherraráðsins er Ma-
astricht-samkomulagið var undir-
ritað, var lengi vel talinn sá, sem
mesta mjöguleika hafði. Það hefur
þó dregið úr líkum hans að hann
hefur ekki viljað segja af eða á um
hvort hann hafí áhuga á embættinu
fyrr en eftir hollensku þingkosning-
arnar, sem voru haldnar í gær. Þá
er Lubbers sagður hafa glatað
stuðningi Þjóðveija m.a. vegna þess
hve illa hann tók í sameiningu
Þýskalands á sínum tíma.
Norrænt samstarf sjónvarpsstöðva
Sj ónvarpskeppni
um popptónlist
„ÞAÐ er hægt að slá því föstu
að Kontrapunktur fari fram 1996
og ákveðið hefur verið að þættirn-
ir verði teknir upp í Malmö í Sví-
þjóð. Vegna þess hve þættinum
hefur verið vel tekið hafa nú kom-
ið fram hugmyndir um að hafa
fleiri þætti í þessum dúr. í því
sambandi hefur verið rætt um
spurningaþætti um jasstónlist og
jafnvel popptónlist," sagði Svein-
þjöm Baldvinsson dagskrárstjóii
Sjónvarpsins í samtali við Morg-
unblaðið.
í norska blaðinu Aftenposten
frá í fyrradag segir að ætlunin
sé að hætta spurningaþáttum um
klassíska tónlist, Kontrapunkti,
en taka upp spumingaþætti um
popptónlist í staðinn. Sveinbjörn
sagði það ekki alls kostar rétt,
heldur hefði dagskrárstjóri norska
sjónvarpsins varpað fram hug-
mynd þess efnis að hefja einnig
spurningaþætti um popptónlist.
Var honum falið að móta hana
betur svo hægt yrði að skoða
hana þegar menn bæru næst sam-
an bækur sínar. Þá hefðu tónlist-
Mozart verður áfram við-
fangsefni í Kontrapunkti og
ef til vill verður spurt um
Billy Gibbons gítarleikara
ZZ Top í norrænni spurn-
ingakeppni um popptónlist.
arstjórar norrænu stöðvanna lagt
til á fundi í síðasta mánuði að
hefja spurningaþætti um jass.
„Þessar hugmyndir eru meðal
fjölmargra hugmynda sem menn
eru að velta fyrir sér í samstarfi
norrænu stöðvanna og kanna
möguleika á að láta verða að veru-
leika. Þar hefur til að mynda skot-
ið upp hugmynd um að koma á
keppni í norrænni sögu,“ sagði
Sveinbjörn.
Craxi hót-
ar öllu illu
BETTINO
Craxi, fyrrver-
andi forsætis-
ráðherra ítal-
íu, hótaði í gær
að koma upp
um fjölda
stjórnmála- og
kaupsýslu-
manna, sem
hefðu verið á kafi í þeirri miklu
spillingu, sem olli straumhvörf-
um í ítölskum stjórnmálum.
Kvaðst Craxi ekki ætla að
verða blóraböggull en hann
varð að segja af sér embætti
vegna fjármálahneykslis.
Iranir leituðu
til IRA
BRESKA blaðið Independent
birti í gær frétt þess efnis að
foringi í íranska hernum hefði
boðið Írska lýðveldishernum
(IRA) vopn 'og reiðufé í nóvem-
ber sl., ef IRA myrti háttsettan
íranskan flóttamann. IRA neit-
aði boðinu.
Svíar ganga
til Friðarsam-
starfs
SÆNSKA þjóðþingið sam-
þykkti á föstudaginn að gerast
aðili að friðarsamstarfi NATO.
Fulltrúar allra flokka lögðu
áherslu á að þar sem samstarf-
ið gerði ekki ráð fyrir beinni
þátttöku í varnarsamstarfi væri
þátttakan ekki brot á hlutleysi
Svíþjóðar. Flokkarnir eru hins
vegar ósammála um ýmis fram-
kvæmdaatriði samstarfsins,
meðal annars fjármögnun þess.
Víetnömsk
bjórinnrás
BANDARÍSKIR bjórunnendur
geta brátt slökkt þorstann í
víetnömskum bjór, sem brugg-
aður er í gömlu keisaraborginni
Hue og ber hennar nafn. Eru
fyrstu átta gámarnir með
192.000 flöskur á leiðinni yfir
Kyrrahaf og mun flaskan kosta
innan við 18 kr.
Umferðar-
átak í Moskvu
LÖGREGLAN í Moskvu fann
89 stolna bíla og sektaði 67.000
ökumenn fyrir umferðarlaga-
brot í sérstöku umferðarátaki
sem stóð yfir á mánudag. Þá
lagði lögreglan hald á töluvert
magn vopna. Um 1.400 lög-
reglumenn tóku þátt í aðgerð-
inni.
Fjórða
morðákæran
á frú West
ROSEMARY
West, eigin-
kona Fred-
ericks West,
sem ákærður
hefur verið um
tíu morð í
breska bænum
Glouchester,
var í gær
ákærð fyrir aðild að fjórða
morðinu. Er frú West sökuð
um að eiga þátt í dauða svissn-
esku stúlkunnar Therese Sieg-
enthaler, sem hvarf árið 1974,
þá 21 árs.
Rosemary West
Bettino Craxi