Morgunblaðið - 04.05.1994, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 39
SENDIFULLTRÚAR RAUÐA KROSS ÍSLANDS HAFA STARFAÐ í 30 LÖNDUM
FRÉTTIR
„Þau eru á þínum vegum“, fjársöfnun Rauða kross Islands vegna Veraldravaktar
Morgunblaðið/Sigrlður Ingvarsdóttir
Nemendur rifja upp síld-
arárin á Siglufirði
Dagskrá
helguð 50
áraafmæli
lýðveldisins
Siglufirði - ÁRLEG vorskemmtun
Grunnskóla Siglufjarðar var haldin
15. apríl sl. í Nýja Bíói. í tilefni
af 50 ára afmæli lýðveldisins var
fyrri hluti sýningarinnar sérstak-
lega helgaður lýðveldisafmælinu.
Meðal annars máluðu nemendur
leiktjöld sem sýndu Þingvelli og
Sigluljörð árið 1944. Kennarar
æfðu nemendur í söng og leik,
saumuðu fatnað og löguðu gamla
búninga.
Rakinsaga fánans
Á sýningunni var rakin saga
fánans allt frá Dannebrog til núver-
andi fána og síðan farið á lýðveldis-
tökuna á Þingvöllum. Þar voru
m.a. mætt til leiks glímumenn,
fjallkona og fyrsti forseta Island,
Sveinn Björnsson. Sagan barst svo
til Sigluijarðar 17. júní 1944. Var
þá sagt frá viðburðum þess dags,
dansaðir vikivakar, sýndir leikir
barna á þessum árum, síldarball,
ljóðalestur og mikill söngur. Utan
um öll tónlistaratriðin hélt Elías
Þorvaldsson, skólastjóri Tónlistar-
skóla Siglufjarðar, og annaðist
hann einnig undirleik ásamt nem-
endum tónlistarskólans.
Rappið og nútíminn
Eftir hlé var athyglinni beint að
nútímanum með rappi, dansi og
leikþáttum sem tókust með ágæt-
um. Áhorfendum gafst einnig kost-
ur á að þenja raddböndin og söng-
urinn hljómaði um troðfullan salinn
á báðum sýningum. Það voru 7.
bekkingar sem stóðu formlega að
sýningunum, en þeir eru að safna
í ferðasjóð, en auk þeirra komu
nemendur úr 1.-6. bekk fram á
þessum sýningum sem tókust í alla
staði með miklum ágætum.
50 íslensk-
ir sendi-
fulltrúar
Almanak í tilefni
lýðveldisafmælisins
SNERRUUTGAFAN
hefur gefið út almanakið
Leiðina til lýðveldis
vegna 50 ára afmælis
íslenska lýðveldisins sem
nú stendur fyrir dyrum.
Var almanakið, sem
gildir frá júní á þessu
ári fram í maí, kynnt á
blaðamannafundi í Þing-
vallasal Hótels Borgar.
Við það tækifæri var
Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra einnig af-
hent áheitabréf, því 100
krónum af söluverði
hvers almanaks er ætlað að renna
í Landgræðslusjóð til verndar
Dimmuborgum.
Jón Karl Snorrason hjá
Snerruútgáfunni gerði grein fyrir
almanakinu og sagði við það tæki-
færi að vonandi myndi það reyn-
ast skemmtilegur og áhugaverður
safngripur fyrir Islendinga og
ferðamenn sem hingað kæmu.
Einnig lét hann í ljós þá ósk að
útgáfa þess mætti
verða dálítið lóð á
vogarskálina við upp-
græðslu landsins.
Þakkaði Sveinn Run-
ólfsson landgræðslu-
stjóri áheitabréfið og
lýsti ánægju sinni
yfir því að land-
græðsluhugsjónin
skyldi tengd lýðveld-
isafmælinu með þess-
um hætti. Snerruút-
gáfan hefur gefið út
almanök frá 1983 til
kynningar á landi og
þjóð og er lýðveldisalmanakið sett
saman með svipmyndum af sögu
sjálfstæðisbaráttunnar. Má nefna
Þjóðfundinn 1851, þjóðhátíð og
stjórnarskrá 1874 og lýðveldishá-
tíðina 1944, auk mynda af öllum
forsetum landsins.
Þóra Dal auglýsingateiknari
hannaði almanakið en textinn er
eftir Árna Björnsson. Orðabankinn
sá um að snúa textanum á ensku.
Snorri Snorrasoit afhendir
Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra áheitabréf fyr-
ir hönd Snerruútgáfunnar.
Jón Karl Snorrason hjá
Snerruútgáfunni í baksýn.
Morgunblaðið/Sverrir
RAUÐI kross íslands stendur fyrir
fjársöfnun fyrstu vikuna í maí und-
ir yfirskriftinni: „Þau eru á þínum
vegum“. Bréf ásamt gírósesðli hefur
verið sent inn á heimili landsmanna,
þar sem leitað er eftir stuðningi al-
mennings við Veraldarvakt Rauða
kross Islands. Vaktina standa um
50 manns úr ýmsum starfsgreinum,
svokallaðir sendifulltrúar. Þeir eru
reiðubúnir til að fara utan til
hjálparstarfa með stuttum fyrirvara
þegar kallið kemur. Árlega sendir
RKÍ á þriðja tug sendifulltrúa utan
og hafa þeir starfað í 30 löndum.
í frétt frá RKÍ kemur fram að
hreyfing Rauða krossins er nátengd
atburðum heimsmála. Jafnframt
segir að sú útbreiðsla vopnaðra átaka
sem átt hafí sér stað það sem af er
þessum áratug hafí lagt auknar
skyldur á herðar hreyfingunni. Hild-
arleikurinn í Bosníu og stríð í lýðveld-
um fyrrum Sovétríkjanna hafa bæst
við ófrið í öðrum heimsálfum.
Mannúðaraðstoð
Talið er að árið 1980 hafí meiri-
háttar hörmungar heijað á um 100
milljónir manna en á árinu 1992 var
þessi tala komin í 320 milljónir.
Aukin neyð kalli á aukna mannúðar-
aðstoð og þess vegna þarf alþjóða-
hreyfíng Rauða krossins á stöðugt
fleiri sendifulltrúum að halda. Þá
segir: „íslensku sendifulltrúamir
hafa reynst vel, ekki síst vegna fjöl-
breyttrar reynslu af vinnumarkaði
sem margir þeirra búa yfir auk góðr-
ar menntunar (hjúkrunarfræðingur-
inn hefur unnið í frystihúsi, verk-
fræðingurinn verið til sjós og svo
framvegis), sem kemur sér vel þar
sem allt er í hers höndum.“
Meðal verkefna sem sendifulltrú-
ar inna af hendi eru hjúkrun og
lækningar á vígvöllum, dreifíng
matvæla á hungursvæðum, flutn-
ingar hjálpargagna til stríðshrjáðra
og uppbygging flóttamannabúða.
Hornsófi Ledana
tauáki. 2H2
áður 124.000
Sófasett Seres
leðurlíki 3-1-1
áður 124.000
Nú 85.000
Sófasett Seres
tauákl. 3-1 -1
áður158.01
ISLAND
Pýskaland +
+ Bandaríkin
Grenada
+
Níger
Gambía +
Gínea + ^
Filabeins-
ströndin
v *
Króatia +++ + O?
Bosnia ■ . + ++
Tyrkland (ta](+^|ran +Afganistan
+ Pakistan
Zimbabwe +
Súdan
+ .
Eþíópía + sómalia
,+ + Kenýa
pMósambík
+Thaí!and
Padúa-
NýJaGinea
Claris Works námskeið
94041
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
*
Isafjörður
Stefnumál
Sjálfstæðis-
flokksins kynnt
KYNNINGARFUNDUR um stefnu-
mál Sjálfstæðisflokksins á ísafírði í
komandi bæjarstjórnarkosningum
verður haldinn í kvöld, miðvikudag-
inn 4. maí, kl. 20.30 á Hótel ísafirði.
Ávörp flytja Bjöm Jóhannesson,
Signý Rósantsdóttir, Helga Sigur-
geirsdóttir og Björgvin Arnar Björg-
vinsson. Að ávörpum loknum munu
Þorsteinn Jóhannesson, Halldór
Jónsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Pét-
ur H.R. Sigurðsson og Ragnheiður
Hákonardóttir svara fyrirspurnum
fundarmanna.
Hægindastóll Comet
leður/LL
áður 39.800
NÚ 19.900
Gestarúm Legaflex
áður 19.800
Nú 9.900