Morgunblaðið - 04.05.1994, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
rl
Leiklist
Launin hækkuðu
úr 300.000
FOLK
dollurum í
Jerry Hall í léttri dans-
sveiflu með tengdamóður
sinni, Evu Jagger.
Dansað
við tengda-
mömmu
EVA Jagger, móðir rokkhetjunnar
Micks Jaggers, hefur að mestu hald-
ið sig Qarri sviðsljósum fjölmiðla
enda mun henni þykja nóg um alla
þá athygli og umfjöllun sem sonur-
inn hefur hlotið frá því hann sló í
gegn með hljómsveitinni Rolling Sto-
nes á öndverðum sjöunda áratugn-
um. Eva stendur nú á áttræðu og
hefur að sögn lítt verið gefín fyrir
glamur og skemmtanir enda haft
öðru að sinna um sína daga. Sú
gamla lét þó til leiðast fyrir skömmu
og brá sér á ball með tengdadóttur-
inni Jerry Hall, en hér var um að
ræða fjáröflunarskemmtun vegna
hjálparstarfs í Bosníu. Jerry, sem
er 37 ára gömul, var í miklu stuði
á ballinu enda eiginmaðurinn víðs
flarri við plötuupptökur, og áður en
yfir lauk hafði henni tekist að drífa
gömlu konuna með sér út á dans-
gólfið. Ber heimildum saman um að
þær tengdamæðgur hafi skemmt sér
hið besta fram eftir nóttu.
Rapparinn Tupac
Shakur handtekin
sjö milljónir
Sex nýir leikarar verða
í „Light Nights“ í sumar
►LEIKARINN Jim Carrey var
einungis lítt.þekktur sjónvarps-
leikari í Bandaríkjunum þegar
hann tók að sér að leika gæludý-
raspæjarann Ace Ventura í
samnefndri bíómynd. Carrey,
sem þáði um það bil 300 þúsund
dollara fyrir leik í sinn í mynd-
inni er nú sagður umsetinn til-
boðum úr öllum áttum. Hefur
hann þegar tekið að sér nýtt
hlutverk og fær fyrir litlar sjö
milljónir dollara! Ekki amaleg
kauphækkun það.
Carrey vakti athygli leikstjór-
ans Tim Shadyac, sem leikstýrði
Ace, þegar hann lék í grínþátt-
unum „In Living Color“ og að
sögn Shadyac kom aldrei neinn
annar til greina sem spæjarinn
Ace. „Ég sagði fólkinu hjá
Morgan Creek strax að Carrey
væri sá eini rétti, svo heillaður
var ég af honum,“ sagði hann.
Carrey hefur verið lýst sem
blöndu af Robin Williams og
Jerry Lewis og sú blanda virð-
ist virka vel, því Ace Ventura
var mánuð í fyrsta sæti yfir
aðsóknarmestu kvikmyndir í
Bandaríkjunum.
Leikur Jims Carreys í
Ace Ventura hefur
komið honum áfram
innan kvikmynda-
heimsins.
RAPPARINN Tupac Shakur sem
lék á móti Janet Jackson í kvik-
myndinni Poetic Justice var hand-
tekinn um helgina fyrir að hafa í
fórum sínum eiturlyf og óskráða
byssu. Shakur er 22 ára og er þetta
ekki í fyrsta sinn sem hann gerist
brotlegur við lög. Seint á síðasta
ári var hann handtekinn í tengslum
við skotárás á tvo óeinkennisklædda
lögreglumen og í desember var
hann kærður fyrir kynferðisafbrot.
Þá var hann einnig ákærður um
að hafa í fórum sínum ólögleg vopn
og var dæmdur til 45 daga þegn-
skylduvinnu.
Sjálfsvíg Cobains
hafði mikil áhrif
.á Eddie Vedder
AÐEINS nokkrum vikum eftir að Kurt Cobain söngvari
Nirvana framdi sjálfsmorð viðurkennir Eddie Vedder
söngvari hljómsveitarinnar Pearl Jam, að á árum áður
hafi hann hugsað um sjálfsmorð af og til. Hann sagði í
samtali við Los Angeles Times að á aldrinum 15-16 ára
hafi þessi hugsun ásótt sig oft á dag.
Hann segist hafa verið einmana, nema í tónlistinni.
Síðar hafi hlutimir farið að ganga betur, hann hafi feng-
ið vinnu og þá skildi hann ekki í sjálfum sér að hafa
leyft sér að hugsa þvílíkar hugsanir. „Ég hugsaði um
alla þá tónlist og reynslu sem ég hefði farið á mis við,
hefði ég framkvæmt það sem ég hugsaði," sagði hann
meðal annars.
Eddie varð mikið um þegar hann frétti lát Cobains og
kvaðst hafa brugðist við á þann hátt að rústa hótelher-
bergi sínu í Washington D.C. „og leið betur á eftir“.
Hins vegar lýsti hann því yfir í viðtali við bresku popp-
pressuna fyrir skömmu, að hann hygðist jafnvel hætta í
tónlistinni, svo mikil áhrif hafði sjálfsvíg Cobains á hann.
EDDIE Vedder er í hljómsveitinni Pearl Jam.
KRISTÍN G. Magnús leikari og
leikstjóri Ferðaleikhússins hefur
ráðið sex nýja leikara fyrir „Light
Nights“-sýningar leikhússins í
sumar í stað þeirra sem starfað
hafa þar undanfarin ár. Um er
að ræða fjórar stúlkur og tvo pilta.
„Þeir sem störfuðu hjá mér eru
allir komnir til annarra starfa
ýmist erlendis eða hér heima, en
sumir þeirra höfðu unnið með
okkur í allt að tíu ár,“ sagði Krist-
ín í samtali við Morgunblaðið.
„Þeir sem voru ráðnir eru allt
ungt fólk, enda er ég hrifin af
því að gefa' því tækifæri. Þau
heita Guðmundur Helgason, sem
er dansari hjá Islenska dans-
flokknum, Níls Kjartan Guð-
mundsson Narby, Bára Konný
Hannesdóttir, Hulda Björg Her-
jólfsdóttir Skogland, Ambjörg
Valsdóttir og Nanna Kristín Jó-
hannsdóttir. Þau eru ekki aðal-
leikarar, en eru lifandi leikmynd
og þurfa að geta tjáð sig í þöglum
leik auk þess að geta dansað."
Sýningamar, sem fara fram á
ensku, heijast væntanlega 28. júní
í Ijamarbíói, sem nýlokið er við
að gera upp. Sú nýbreytni verður
í sumar að boðið verður upp á sex
sýningar í viku í stað fjögurra
eins og verið hefur. David Gre-
enall hjá íslenska dansflokknum
semur og æfir dansana en Ríkarð-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KRISTÍN G. Magnús leiksljóri Ferðaleikhússins notaði laugardag-
inn síðasta til að prófa Ieikara, sem jafnframt geta dansað.
ur Þórhallsson semur tónlistina.
Að sögn Kristínar verður sýn-
ingin í sumar nokkuð breytt frá
því sem verið hefur í tilefni þess
að 25 ár em liðin frá því sýningin
var fyrst sett upp. „Ég er nú í
vikunni að fara með hljóðupptöku
til John Pulver í London, sem rek-
ur eigið stúdíó. Hann samræmir
hljóð — hvort sem eru leikhljóð
eða tónlist — við 300 skyggnur
og úr þessu verður fjölmynda-
tækni, sem er stór hluti sýningar-
innar. Þó svo að sögumenn og
leikraddir heyrist er gaman að
létta á dagskránni og leyfa fólkinu
að sjá myndir í kynningunni og
inn á milli atriða," sagði hún.
Sögumaður ásamt Kristínu er
Róbert Berman auk þess sem Jón
Sigurbjömsson ljær rödd sína á
móti Kristínu.
Þess má geta að John
Pulver starfaði lengi
sem hljóðupptöku-
maður, m.a. með Pink
Floyd, en ákvað síðan
að setja sjálfur upp
eigið stúdíó, sem hann
rekur enn í London.
LILL-BABS með dætrum sínum.
Lill-Babs er enn í
fullu flöri og aldrei
ánægðari
►SÆNSKA
stjarnan frá
árum áður, Lill-
Babs eða Barbro
Svensson eins og
hún heitir fullu
nafni, hefur
varðveitt vel
æskublóma sinn.
Hún segist aldrei
hafa verið eins ánægð með Hfið
og nú, þrátt fyrir að tími hennar
á toppnum sé löngu liðinn. Hún
hefur skemmt fólki með söng í
meira en 40 ár og verið vel þekkt.
í haust kemur út bók sem fjallar
um ævi hennar bæði hvað varðar
einkalíf og skemmtanabransann.
Lill-Babs er hringtrúlofuð Norð-
manninum Olav Bjolstad en
brúðkaupsdagurinn hefur ekki
verið ákveðinn ennþá, þrátt fyr-
ir að þau hafi verið saman í
þijú ár. Lill-Babs á þrjár dætur,
Monicu 39 ára, Malin 27 ára og
Kristínu 23 ára, sem eru með
henni á myndinni hér fyrir ofan.
Auk þess er Lill-Babs orðin
amma.
Olav Bjalstad
Ath! föstudagskvöldið 6. mai
'&OSS HARMONIKUFÉLAG
REYKJAVÍKUR
HflTÍÐ
HflRdioníKunnflR
1994
Tonleikar og
stórharmoníkudansieikur á Hótel
islandi föstudagskvöldið 6. mai
1994 i beinni útsendingu RÚV.
Á dagskrá hátíðarinnar eru m.a.
eftirtalin atriði:
Stórsveit Harmoníkufélags
Reykjavikur undir stjórn Karls
Jónatanssonar.
Úrval af bestu og vinsælustu
harmonikukeikurum landsins
ásamt danska
harmonikusnillingnum Filip Gade
koma fram á tónleikunum og
eftirfylgjandi harmoníkudansleik.
nom im.wi)
SÍMI687111